Viðskipti innlent

Velta með gjaldeyri minnkar milli mánaða

Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri í maímánuði 2011 nam 5.343 milljónum kr. sem er 207 milljónum kr. minni velta en í apríl 2011.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að þar af námu gjaldeyriskaup Seðlabankans 1.235 milljónum kr. eða 23,1% af heildarveltu mánaðarins.

Gengi evrunnar hækkaði um 0,7% gagnvart krónunni í mánuðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×