Fleiri fréttir

Kaupmáttur launa eykst

Vísitala kaupmáttar launa í maí 2011 er 105,9 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,9%.

Hafnaði rökum Seðlabankans

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti í gær ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að beita Seðlabankann dagsektum vegna vanrækslu á afhendingu gagna og upplýsinga um útlán banka.

Nær 80% stjórnenda telja efnahagsaðstæður slæmar

Ekki er hægt að segja annað en að enn ríkir mikil svartsýni á meðal íslenskra stjórnenda á ástandið í efnahagslífinu og hefur afstaða þeirra til þess lítið batnað frá bankahruni. Nær 80% stjórnenda telja að aðstæðurnar séu slæmar.

Airbus gerir risasamning í París

Indverska lággjaldaflugfélagið IndiGo hefur lagt inn stærstu flugvélapöntun allra tíma hjá Airbus verksmiðjunum. Samningurinn var undirritaður á flugsýningunni í París sem nú stendur yfir en félagið hefur keypt 180 farþegaþotur af Airbus gerð.

Sérfræðingar spá yfir 4% verðbólgu í júní

Greiningar Arion banka og Íslandsbanka gera báðar ráð fyrir því að verðbólgan muni mælast yfir 4% í þessum mánuði. Nokkur munur er á spám þeirra, greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að verðbólgan fari í 4,1% en Arion banka að hún fari í 4,3%. Verðbólgan mældist 3,4% í síðasta mánuði.

Ríkisskattstjóri rannsakar leynifélög í Lúxemborg

Ríkisskattstjóri hefur grunsemdir um að skattur hafi ekki verið greiddur af viðskiptum með íslensk hlutabréf hjá félögum í Lúxemborg. Hefur skattstjóri því sótt ársreikninga 30-40 félaga í eigu Íslendinga, sem skráð eru þarlendis, til að skattleggja arð og söluhagnað hlutabréfa sem runnið hafa til félaganna. Viðskiptablaðið skýrir frá þessu.

Hjálpardekk losað af vestra

Bandaríski seðlabankinn tilkynnti í gær að hann muni kaupa síðasta skammtinn af ríkisskuldabréfum í lok mánaðar í næstu viku. Eftir það muni ljúka þessum stuðningi hins opinbera við banka og fjármálafyrirtæki þar í landi sem varað hefur síðastliðin þrjú ár.

Seðlabankinn íhugar að vísa dagsektum til dómtóla

Seðlabankinn íhugar nú hvort óhjákvæmilegt sé fyrir bankann að vísa til dómstóla dagsektum sem úrskurðað var að bankinn skyldi greiða. Það var áfrýjunarnefnd samkeppnismála sem ákvað að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um dagsektir skyldu standa þar sem bankinn hafði hafnað því að veita eftirlitinu umbeðnar upplýsingar um útlán banka og sparisjóða.

Allt mun fara í opnu söluferli

Landsbankinn ætlar að bjóða til sölu allar eignir sem hann hefur fengið við yfirtöku eins fljótt og unnt er í opnu og gegnsæju söluferli á almennum markaði. Skilyrði er þó sett um það að salan brjóti ekki gegn lögvörðum hagsmunum viðskiptavina bankans.

Snúa sér til Evrópu

Talið er að kínversk stjórnvöld hafi dregið úr kaupum á bandarískum ríkisskuldabréfum á fyrstu fjórum mánuðum ársins og séð hag sínum borgið með kaupum á evrópskum ríkisskuldabréfum.

Plastiðjan höfðar mál á hendur Sp-fjármögnun

Plastiðjan hefur höfðað mál á hendur Sp-fjármögnun vegna endurútreiknings á lánssamningi, sem hún segir vera byggðan á röngum forsendum. Niðurstaða dómsins mun hafa ríkt fordæmisgildi, segir lögmaður Plastiðjunnar.

Ákærður fyrir stórfelld umboðssvik

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur ákært Viggó Þórisson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu Sparisjóðanna, fyrir stófelld umboðssvik.

Fullnustueignir auglýstar og boðnar til sölu á almennum markaði

Landsbankinn birtir í dag nýja stefnu um sölu og ráðstöfun fullnustueigna bankans. Í tilkynningu frá bankanum segir að stefnan sé hluti af innleiðingu sjónarmiða samfélagslegrar ábyrgðar í rekstri Landsbankans. „Landsbankinn kynnti aðgerðalista í febrúar og eitt af loforðum á listanum var að tryggja opið og gagnsætt söluferli allra fullnustueigna bankans. Með því að birta og innleiða stefnu um sölu fullnustueigna er bankinn að efna það loforð.“

Picasso verk seldist á milljarða á uppboði

Málverk eftir meistarann Picasso seldist í gær á uppboði í London fyrir þrettán og hálfa milljón punda, eða um 2,5 milljarða íslenskra króna. Háskólinn í Sidney nýtur góðs af sölunni en verkið var gefið skólanum á síðasta ári. Sá sem gaf þessa rausnarlegu gjöf vill ekki koma fram undir nafni en söluandvirðið verður notað til þess að rannsaka offitu.

Áherslubreytingar OR kynntar á opnum ársfundi

Orkuveita Reykjavíkur heldur í fyrsta sinn opinn ársfund, og fer hann fram á morgun milli klukkan 14.00 og 16.00. Ástæða þess að fundurinn er öllum opinn er til að auka gegnsæi í starfseminni og stuðla að upplýstri umræðu um málefni þess. Þess er þó krafist að fólk skrái mætingu á vef Orkuveitunnar. Á fundinum verða kynntar áherslubreytingar í rekstri, skipulagi og þjónustu OR, drög að nýrri eigendastefnu fyrir fyrirtækið og staða úttektar eigenda á tildrögum fjárhagsvanda fyrirtækisins. Ársskýrslu Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2010 og Umhverfisskýrslu 2010 verður dreift á fundinum á rafrænu formi og verða þær aðgengilegar á vef OR eftir fund. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur.

Qantas fær skaðabætur frá Rolls Royce

Ástralska flugfélagið Qantas hefur komist að samkomulagi við vélaframleiðandann Rolls Royce, sem smíðaði hreyflana í Airbus þotur félagsins en einn slíkur sprakk á flugi á síðasta ári.

Starfsmenn Klafa boða til verfalls

Starfsmenn þjónustufyrirtækisins Klafa, sem sér um upp- og útskipun fyrir álver Norðuráls og Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga samþykktu með öllum greiddum atkvæðum að boða til verkfalls fimmta júlí, ef ekki semst fyrir þann tíma.

Verðbólga eykst fram á haustið

Greiningardeild Arion banka býst við verðbólgukúfi fram eftir hausti og gerir ráð fyrir að hún fari í 5,2 prósent í september. Deildin gerir ráð fyrir að verðbólga fari úr 3,4 prósentum í maí í 4,3 prósent nú.

Byr átti að skila ársuppgjöri í mars

„Það tekur langan tíma að búa til fyrsta ársreikninginn eftir svona mikil umskipti. Það er umfangsmeira verk en alla jafna,“ segir Jón Finnbogason, forstjóri Byrs.

Kreditkort ætlar að kæra til áfrýjunarnefndar

Kreditkort ætlar að kæra til áfrýjunarnefndar neytendamála þá niðurstöðu Neytendastofu að framkvæmd greiðsludreifingar sem korthöfum hefur verið boðið upp á frá 1991 brjóti i bága við ákvæði laga um neytendalán.

OECD: Íslendingar hraði afnámi gjaldeyrishafta

OECD leggur til að Íslendingar hraði afnámi gjaldeyrishafta og standi vörð um fiskveiðistjórnunarkerfið. Stofnunin er á meðal þeirra sem hömpuðu bankakerfinu fyrir hrun, en segist hafa lært mikið síðan þá.

Kreditkort brýtur gegn lögum um neytendalán

Greiðsludreifing sem Kreditkort býður upp á brýtur bæði gegn lögum um neytendalán, og lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með greiðsludreifingunni. Þetta er niðurstaða Neytendastofu en vegna fjölda kvartana frá neytendum tók hún til skoðunar umrædda greiðsludreifingu. Í henni felst að ef neytandi getur ekki greitt kreditkortareikninginn sinn í einu lagi er honum boðið upp á að skipta reikningnum og greiða hann á fleiri en einum gjalddaga. Neytendastofa gerir ekki athugasemdir við að neytendum sé boðið upp á þessa leið en stofnunin telur greiðsludreifinguna vera neytendalán sem gera verður sjálfstæðan skriflegan samning um þar sem fram kæmu allar þær upplýsingar sem lánveitandi á að veita neytanda samkvæmt lögum um neytendalán.

Fær viðbótarfrest til að fjármagna kísilver í Helguvík

Íslenska kísilfélagið hefur fengið tveggja mánaða viðbótarfrest frá helstu viðsemjendum, til 15. ágúst, til að fjármagna smíði kísilverksmiðju í Helguvík. Til stóð að framkvæmdir hæfust fyrri hluta sumars en nú er ljóst að það markmið næst ekki.

Flugmenn funda enn um kjaramál

Samninganefnd Félags Íslenskra atvinnuflugmanna situr enn á fundi með samningsaðilum en fundur hófst klukkan níu í morgun. Flugstjórar hafa boðað til ótímabundins yfirvinnubanns á föstudag klukkan tvö semjist ekki fyrir þann tíma.

OECD mælir með óbreyttu kvótakerfi

Efnahags- og framfarastofnunin OECD mælir með að ekki verði hróflað við núverandi kvótakerfi hér á landi, heldur verði auðlindagjaldið hækkað. Það sé vænlegra til að tryggja að fiskveiðikerfið verði áfram arðbært, skilvirkt og sjálfbært, fremur en að stjórnvöld láti undan þrýstingi almennings um grundvallarbreytingar á stjórnun fiskveiða hér við land, breytinganna vegna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar sem fjallar almennt um landshagi og framtíðarmöguleika hér á landi. Kynning á skýrslunni hófst nú klukkan tíu í innanríkisráðuneytinu.

Vísitala byggingarkostnaðar hækkar

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan júní 2011 er 109,9 stig sem er hækkun um 2,3% frá fyrri mánuði. Þar af vegur þyngst 6,7% hækkun launa vegna kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands sem undirritaðir voru 5. maí 2011. Vísitalan gildir í júlí 2011. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 7,6%.

Kísilfélagi tókst ekki að uppfylla fyrirvara

Íslenska kísilfélaginu, sem hyggst reisa kísilver í Helguvík, tókst ekki fyrir tilskilinn frest þann 15. júní að uppfylla fyrirvara sem voru í samningum um verkefnið og hefur neyðst til að biðja um lengri frest. Ekkert bólar á framkvæmdum.

Lady Blunt seldist fyrir metfé

Lady Blunt, ein þekktasta Stradivarius fiðla heimsins,var seld á uppboði fyrir metfé í dag eða yfir 1,8 milljarða kr. Fyrirfram var búist við að fiðlan yrði seld á yfir 1,1 milljarð kr. sem raunar einnig hefði verið metfé fyrir Stradivarius fiðlu.

Seðlabankinn gæti hagnast um hundruð milljóna

Seðlabanki Íslands hefur sett hámarksverð við gjaldeyriskaup í seinni legg fyrsta gjaldeyrisútboðs bankans. Það merkir að bankinn gæti fengið hundruð milljóna í hreinan hagnað af útboðinu ef þátttaka er góð.

Hækkanir á íbúðaverði hafa mikil áhrif á verðbólguna

Verðþróun íbúðarhúsnæðis setur umtalsvert mark á verðbólguna í landinu en á milli maí og apríl hækkaði íbðaberð um 2,7 prósent og er það mesta hækkun sem mælst hefur frá því fyrir bankahrun. Fjallað er um íbúðaverð í Morgunkorni Íslandsbanka og þar segir að verðhækkunin sé þannig ekki „eins mikil gjöf og hún virðist í fyrstu fyrir íbúðaeigendur sem skulda verðtryggt en þannig eru jú flestir íbúðaeigendur.“

Grikkir fá ekkert frá evruþjóðunum í bili

Fjármálaráðherrar evruríkjanna hafa frestað ákvörðun sinni um frekari lánveitingar til handa Grikkjum. Evran lækkaði á mörkuðum í Asíu í morgun við þessi tíðindi en búist hafði verið við ákvörðuninni um helgina. Þess í stað tilkynntu ráðherrarnir að ekkert verði af frekari lánveitingum fyrr en Grikkir ákveði um frekari niðurskurð.

Þekktur kjóll Marilyn Monroe sleginn á hálfan milljarð

Kjóll sem að Hollywood goðsögnin Marilyn Monroe klæddist í kvikmyndinni The Seven Year Itch var seldur á uppboði í gærkvöldi fyrir metupphæð. Kjóllinn seldist á 4,6 milljónir dollara eða tæpar 540 milljónir króna. Monroe þótti standa sig afar vel í umræddri mynd Billys Wilder sem er frá árinu 1955.

Ætla að stefna ríkinu vegna þjóðnýtingar Glitnis

Hópur fólks sem tapaði milljörðum á kaupum hlutabréfa í Glitni vikuna fyrir þjóðnýtingu bankans hyggst stefna ríkinu. Hópurinn segist hafa rændur þar sem ráðamönnum hafi verið grafalvarleg staða bankakerfisins ljós en engu að síður leyft kaup og sölu á hlutabréfum í bankanum.

Dýrt að verjast árásum tölvuþrjóta

Árásir skemmdarvarga í tölvuheimum hleypa upp kostnaði við rekstur þeirra, segir Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, hann segir vel hægt að verjast slíkum árásum en það sé dýrt. Tölvuþrjótar brutust inn í tölvukerfi japanska fyrirtækisins Sega um helgina.

Segja enga ástæðu til að örvænta

Olíuframleiðsla Norðmanna dróst saman um 9,4 prósent í fyrra og hefur nú dregist saman í níu ár í röð. Þetta kemur fram í ársskýrslu olíurisans BP sem Dagens Næringsliv sagði frá í vikunni.

Landsmótið gríðarleg innspýting

„Þetta verður gríðarleg innspýting í hið skagfirska hagkerfi,“ segir ferðamálafulltrúi Skagafjarðar en þar er nú verið að undirbúa eitt stærsta mannamót landsins þetta árið - Landsmót hestamanna - sem varð að slá af í fyrra vegna hrossapestarinnar.

Styðja Háskólann í Reykjavík um 200 milljónir

Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins og Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun hafa ákveðið styðja við og efla háskólastarf á Íslandi með 200 milljón króna framlagi til Háskólans í Reykjavík. Þetta kom fram í ávarpi Ara Kristins Jónssonar, rektors skólans, við útskriftarathöfn HR sem haldin var í Hörpu í dag.

Gæfa Íslands að vera utangarðs

„Gæfa Íslands var sú að það uppfyllti ekki skilyrði fyrir björgun úr vandanum,“ skrifar Ásgeir Jónsson hagfræðingur í grein sem birtist á vef Wall Street Journal í fyrradag.

Evran betri en kanadadollar

Að mati aðalhagfræðings Seðlabankans er evran heppilegust ef íslendingar ákveða að reka fastgengisstefnu gagnvart öðrum gjaldmiðli. Hann segir Íslendinga ekki eiga nógu mikil viðskipti við Kanadamenn til að dollarinn sé betri.

Milljarðar fara í útrunna þjónustusamninga ráðuneytanna

Tæpur þriðjungur allra skuldbindandi rekstrar- og þjónustusamninga sem ráðuneytin hafa gert eru útrunnir. Samtals nema skuldbindingar ríkisins vegna þeirra um 33 milljörðum króna á tímabilinu 2011-14. Þetta kemur fram á vef Ríkisendurskoðunar. Á þessu ári munu samtals tæplega 40 milljarðar króna renna úr ríkissjóði til ýmissa verkefna sem samtök, einakaðilar eða sveitarfélög sinna samkvæmt svokölluðum skuldbindandi rekstrar- og þjónustusamningum við ráðuneytin. Af samtals 116 slíkum samningum eru 33 nú útrunnir, þ.e. um 28%, þótt haldið sé áfram að starfa og greiða samkvæmt þeim. Um er að ræða samninga sem heyra undir fjögur ráðuneyti: mennta- og menningarmála-, innanríkis-, velferðar- og utanríkisráðuneyti. Samningar annarra ráðuneyta eru enn í gildi. Alls nema skuldbindingar ríkisins vegna útrunninna samninga um 33 milljörðum króna á tímabilinu 2011-14. Í nýrri ábendingu Ríkisendurskoðunar kemur fram að stofnunin telur óviðunandi að unnið sé samkvæmt útrunnum rekstrar- og þjónustusamningum. Mikilvægt sé að þeir verði endurnýjaðir sem fyrst og eldri samningar gerðir upp. Þá þurfi ráðuneytin að tryggja að Ríkisendurskoðun berist ávallt afrit rekstrar- og þjónustusamninga og ársreikninga sem tengjast þeim. Mennta- og menningarmálaráðuneyti sker sig úr vegna fjölda útrunninna samninga en 26 af samtals 44 samningum þess eru útrunnir eða tæp 60%. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu vinnur það nú að endurnýjun þessara samninga

Seðlabankinn vill kaupa evrur - liður í losun gjaldeyrishafta

Seðlabankinn Íslands tilkynnti í gær að hann bjóðist til að kaupa evrur gegn greiðslu í ríkisverðbréfi. Útboðið er liður í losun gjaldeyrishafta. Alls býðst seðlabankinn til að kaupa sextíu og fjórar milljónir evra en markmið þessara aðgerða er að endurheimta þann gjaldeyri sem Seðlabankinn nýtti til kaupa aflandskrónum í útboði. Krónurnar verða svo seldar til aðila sem tilbúnir eru til að eiga þær í minnst fimm ár. Að því er fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum stuðlar aðgerðin þannig jafnframt að því að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga þannig úr endurfjármögnunarþörf á meðan losað er um gjaldeyrishöft.

Sjá næstu 50 fréttir