Fleiri fréttir

Hagnast um 389 milljónir

Upplýsingatæknifyrirtækið Skýrr hagnaðist um 389 milljónir króna í fyrra samanborið við 362 milljóna króna tap árið á undan.

Íslensk skip landa minni afla

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum maímánuði, metinn á föstu verði, var 10% minni en í maí 2010. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 7% miðað við sama tímabil 2010, sé hann metinn á föstu verði. Aflinn nam alls 43.421 tonnum í maí 2011 samanborið við 73.550 tonn í maí 2010. Þetta kemur fram í nýjum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Botnfiskafli dróst saman um tæp 1.250 tonn samanborið maí 2010 og nam 37.600 tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 17.300 tonn, sem er aukning um 3.600 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam 4.600 tonnum sem er um 2.600 tonnum minni afli en í maí 2010. Karfaaflinn jókst um rúm 1.600 tonn samanborið við maí 2010 og nam 4.100 tonnum. Tæp 5.600 tonn veiddust af ufsa sem er um 1.650 tonnum meiri afli en í maí 2010. Mikill samdráttur varð í veiði á úthafskarfa og öðrum botnfiskafla samanborið við maí 2010. Engum uppsjávarafla var landað í maí síðastliðnum samanborið við tæplega 29.000 tonna afla í maí 2010. Flatfiskaflinn var rúm 3.200 tonn í maí 2011 sem er svipaður afli og í maí 2010. Skel- og krabbadýraafli nam um 1.400 tonnum samanborið við tæplega 1.700 tonna afla í maí 2010.

Lindex opnar á Íslandi

„Við erum ekki þekkt fyrir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur,“ segir Albert Þór Magnússon, en hann hyggst færa Íslendingum sænsku verslanakeðjuna Lindex ásamt konu sinni, Lóu Dagbjörtu Kristjánsdóttur. Verslunin verður opnuð í 450 fermetra plássi í Smáralindinni í nóvember.

Ráðuneytið skiptir sér ekki af sölu Byrs

Fjármálaráðuneytið hefur ekki kallað sérstaklega eftir upplýsingum um aðkomu fyrirtækisins Arctica Finance að sölunni á Byr sparisjóði. „Nei, mér er ekki kunnugt um það," segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.

Forstjórinn vill stækka Actavis

Actavis þarf að þrefaldast að umfangi á næstu þremur árum áður en það verður skráð á hlutabréfamarkað eða sameinað öðru samheitalyfjafyrirtæki. Þetta segir Claudio Albrecht, forstjóri fyrirtækisins, í viðtali við Bloomberg-fréttaveituna.

Afnám gjaldeyrishaftanna í fullum undirbúningi

Seðlabankastjóri segir næstu skref í afnámi gjaldeyrishaftanna í fullum undirbúningi. Hann segir að skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs í síðustu viku merki að hægt sé að fara mun hraðar í afnámið en ella.

Lítilsháttar aukning í veltu dagvöruverslana

Velta í dagvöruverslun jókst um 1,1% á föstu verðlagi í maí miðað við sama mánuð í fyrra og um 2,0% á breytilegu verðlagi. Þetta kemur fram í nýjum tölum Rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í maí um 1,9% frá sama mánuði í fyrra og verð á dagvöru hefur hækkað um 0,9% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Ársskýrsla Skýrr í þrívídd

Velta fyrirtækjanna sem mynda samstæðu Skýrr ehf. var liðlega 22 milljarðar króna á árinu 2010. Í afkomutilkynningu frá samstæðunni segir að EBITDA framlegð af reglubundnum rekstri þessara félaga hafi verið 790 milljónir króna og afkoma eftir skatta var um 390 milljónir króna. Skýrr gefur nú út ársskýrslu eftir nokkurt hlé og var bryddað upp á því nýmæli að hafa skýrsluna í þrívídd. Skýrsluna má nálgast á skrifstofu Skýrr ásamt þrívíddargleraugum en einnig má finna hana hér.

Enn berjast athafnamenn: Wessman hafði betur í Hæstarétti

Hæstiréttur Íslands snéri í dag frávísunarúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur,sem féllst á frávísunarkröfu Novator í maí síðastliðnum í skuldamáli sem athafnamaðurinn Róbert Wessman höfðaði gegn fyrirtækinu, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar.

Flugvirkjar í þriggja daga verkfall á mánudag

Flugvirkjar ætla að leggja niður störf í þrjá sólarhringa frá og með miðnætti á mánudag í næstu viku verði ekki búið að semja í kjaradeilu þeirra við Icelandair. Deiluaðilar ætla að funda á morgun en haft er eftir Óskari Einarssyni, formanni Flugvirkjafélags Íslands, í Fréttablaðinu í dag að hlutirnir séu að þokast í rétta átt. Miklar tafir urðu á flugáætlun Icelandair í síðustu viku þegar flugvirkjar lögðu tímabundið niður störf.

Arion banki endurreiknar 2000 ólögmæt lán

Arion Banki hyggst endurreikna öll þau lán sem kveða á um sömu efnisatriði og Hæstiréttur hefur í nýlegum dómum sínum talið ólögmæt. Um tvö þúsund lán er að ræða samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Arion banki stefnir að því að ljúka endurútreikningi í október en niðurstaðan verður kynnt lánþegum eins fljótt og auðið er.

Nordea bankinn semur við Nýherjafélag

Hugbúnaðarfélagið Applicon, sem er hluti af Nýherjasamstæðunni, hefur lokið innleiðingu á PeTra hugbúnaðarlausn hjá Nordea, einum stærsta banka Norðurlanda.

Gengi krónu lækkar enn

Krónan hefur ekki verið jafn veik gagnvart helstu viðskiptamyntum síðan í lok maí á síðasta ári. Gengi krónunnar hefur lækkað nokkuð á síðustu dögum og stóð gengisvísitalan í morgun í 219 stigum. Þar með er hún rúmlega 5% veikari en um síðustu áramót. Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur fram að á sama tímabili í fyrra var þessu öfugt farið en þá styrktist krónan um rúm 8% miðað við gengisvísitöluna, það er fór úr rúmum 233 stigum í tæp 216 stig. Samkvæmt Morgunkorninu má að hluta til rekja þessa þróun á veikingu á gengi evrunnar á þessum tíma en svo virðist sem máttur krónunnar sé fremur lítill um þessar mundir og þar með að krónan sé sjálf undir töluverðum lækkunarþrýstingi.

Stýrivextir óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum.

Viðskiptavinir geta losnað við FIT kostnaðinn

Íslandsbanki býður viðskiptavinum sínum aukna þjónustu með því að veita þeim svigrúm til þess að lagfæra færslur sem hafa lent á FIT. Viðskiptavinir geta skráð FIT viðvörun í Netbanka og fengið tölvupóst eða SMS ef þeir fara yfir á reikningnum sínum, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Segir Kaupþingsmenn hafa teiknað upp "Project Polo“

Jón Ásgeir Jóhannesson segir að forsvarsmenn Kaupþings hafi teiknað upp viðskiptafléttuna sem fól í sér að Baugur keypti hlutabréf í sjálfum sér fyrir fimmtán milljarða af stjórnendum félagsins. Þetta kemur fram í greinargerð hans í skaðabótamáli sem skiptastjóri Baugs hefur höfðað vegna milljarðanna fimmtán.

Karfinn veiðist vel

Mokveiði er á úthafskarfamiðunum djúpt úti á Reykjaneshrygg þar sem átta íslenskir og 25 erlendir togarar eru á veiðum. Afli íslensku togarnna fer upp í 50 tonn á sólarhring, en frystigeta skipanna er yfirleitt ekki meiri.

Seðlabankastjóri Bandaríkjanna varar við nýrri kreppu

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, varar við nýrri efnhagskreppu. Hann segir lánshæfismat Bandaríkjanna í hættu ef þingmenn koma sér ekki saman um fjárlög og nái að stoppa upp í gríðarlega stórt gat í fjárlögum landsins.

Atvinnuleysi 7,4 prósent í apríl

Atvinnuleysi á Íslandi mældist 7,4 prósent í apríl og lækkaði um 0,7 prósent milli mánaða. Þá er atvinnuleysið 0,9 prósentum minna en á sama tíma í fyrra.

Þrjú færeysk félög á aðallista

Engar breytingar verða á samsetningu OMX Iceland 6-hlutabréfavísitölunnar, sem tekur gildi um mánaðamótin. Í vísitölunni eru sex skráð fyrirtæki sem mest er verslað með á hlutabréfamarkaði.

Þingnefnd ræðir stöðu banka

Ársskýrslur Íslandsbanka og Landsbanka Íslands voru til umræðu á fundi viðskiptanefndar Alþingis í gær. Fulltrúar bankanna fóru yfir afkomu þeirra og stöðuna eftir fyrsta ársfjórðung.

Fiskmarkaðurinn í Hull hruninn vegna skorts á fiski frá Íslandi

Fiskmarkaðurinn í Hull í Bretlandi er hruninn vegna þess að hann fær ekki lengur hráefni frá Íslandi. Þar með lýkur hundrað og fimmtíu ára sögu fiskmarkaðar í borginni. Íslenska fyrirtækið Atlantic Fresh flytur út íslenskan fisk í umboðssölu til Bretlands og hefur um nokkurra ára skeið verið með allan þann fisk sem kom á fiskmarkaðinn í Hull. En nú hefur fyrirtækið hætt að flytja fisk þangað og þar með lýkur 150 ára sögu fiskmarkaðar í borginni. Magnús Guðmundsson stjórnarformaður Atlantic Fresh segir aðalástæðu þessa vera að mjög hafi dregið úr framboði á ferskum fiski frá Íslandi. Fyrirtækið mun nú eingöngu flytja út fisk á markaðinn í Grimsby. Sextan menn missa vinnuna á fiskmarkaðnum í Hull og í breskum fjölmiðlum segir að mönnum sé mjög brugðið við þessa ákvörðun. Magnús vonar þó að fiskkaupmenn í Hull kaupi fisk af fiskmarkaðnum í Grimsby í staðinn, enda stutt á milli staðanna. Meirihlutinn af þeim fiski sem fluttur hefur verið út til Hull hefur verið ýsa, en framboð á henni hefur minnkað mikið undanfarin ár vegna minni kvóta, sem á eftir að minnka enn frekar á næsta fiskveiðiári. Mikið af ýsunni fer á Fisk og franskar staði, sem selja þennan þjóðarrétt Breta. Magnús telur að þjóðarrétturinn muni ekki hækka í verði vegna minna framboðs frá Íslandi.

Rúmlega tólf þúsund atvinnulausir í maí

Skráð atvinnuleysi í maí 2011 var 7,4%, en að meðaltali voru 12.553 manns atvinnulausir í maí og fækkaði atvinnulausum um 709 að meðaltali frá apríl eða um 0,7 prósentustig. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunnar.

Aðalmeðferð í máli Hauks Þórs - aftur

Aðalmeðferð yfir bankamanninum Hauki Þór Haraldssyni fer fram að öðru sinni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Haukur, sem starfaði hjá Landsbankanum fyrir hrun, var ákærður eftir hrun fyrir fyrir að millifæra 118 milljónir króna af reikningi félagsins NBI Holdings Ltd. 8. október 2008 inn á eigin reikning.

Heildarlaunakostnaður lækkar

Heildarlaunakostnaður á greidda stund lækkaði frá fyrri ársfjórðungi um 4,2% í iðnaði, 3,4% í verslun, 2,8% í samgöngum og 1,5% í byggingarstarfsemi. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar. Þá lækkaði heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna um 0,8% í iðnaði frá fyrri ársfjórðungi. Á sama tímabili hækkaði heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna um 0,3% í verslun og um 0,6% í atvinnugreinunum byggingarstarfsemi og samgöngum. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desember- og orlofsuppbót. Ársbreyting heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá fyrsta ársfjórðungi 2010 var á bilinu 4,1% til 8,9%. Mest var hækkunin í byggingarstarfsemi en minnst í iðnaði.

Lýsi í duftformi prófað á Íslandi

Norska fyrirtækið Oil4Life hefur þróað lýsi í duftformi fyrir fólk sem finnst lýsisbragð vont. Hægt verður að blanda því í mat.

Pakkningar minnka en verð helst óbreytt

Framleiðendur ýmiss konar neytendavöru á alþjóðamarkaði hafa undanfarin misseri tekið á það ráð að minnka innihald neytendapakkninga en halda verði óbreyttu. Þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC, en fjölmargar vörur af þessu tagi eru fluttar inn hingað til lands og hafa því bein áhrif á íslenska neytendur.

Framboð Stanley Fischer breytir litlu

Enn sem komið er þykir líklegast að Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, verði næsti framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Framboð Stanley Fischer, seðlabankastjóri Ísraels, virðist ekki ætla að breyta miklu í þeim efnum. Þrátt fyrir mikla reynslu og hafa starfað hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er Fischer ekki talinn líklegur til að hljóta starfið.

Landsbankaleiðin til góðs fyrir hluthafa

Forstjóri Bankasýslu ríkisins segist ekki hafa ástæðu til að efast um að Landsbankaleiðin verði til góðs fyrir hluthafa bankans, en niðurfærsla á eignum bankans vegna skuldaúrræðanna nemur milljörðum.

Fischer framkvæmdastjóri AGS?

Stanley Fischer, seðlabankastjóri Ísraels, tilkynnti í gærkvöldi að hann hyggðist sækjast eftir embætti framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Tvö berjast um starf Strauss-Kahn

Christine Lagarde og Augustin Carstens eru nú tvö eftir í baráttunni um framkvæmdarstjórasætið hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, en Grigory Marchenko, seðlabankastjóri Kasakstan, hefur dregið umsókn sína til baka þar sem hann segir það augljóst að Lagarde fái starfið.

Aukið frelsi veldur meiri skattsvikum

Svört atvinna og skipulögð glæpastarfsemi getur þrifist innan félaga á Íslandi án sýnilegra vandkvæða vegna sveigjanleika í félagafrelsi, að mati Aðalsteins Hákonarsonar, sviðsstjóra eftirlitssviðs Ríkisskattstjóra. Hann skrifar grein í nýjasta tölublað fréttablaðs RSK, Tíund.

Fengu 13 milljarða í arð í fyrra

Breska matvörukeðjan Iceland Foods hagnaðist um 155,5 milljónir punda, jafnvirði 29 milljarða króna, fyrir skatt í fyrra. Til samanburðar nam hagnaðurinn 135,4 milljónum punda árið 2009.

Góðar vísbendingar um tiltrú fjárfesta á hagkerfið

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru sammála um að gjaldeyrisútboð Seðlabankans og skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs hjálpi til við afnám gjaldeyrishafta. Góðar vísbendingar séu um tiltrú fjárfesta á íslenska hagkerfið.

Alcoa semur við verkalýðsfélög

Undirritaður var í dag á Reyðarfirði kjarasamningur milli Alcoa Fjarðaáls annars vegar og AFLs Starfsgreinafélags og Rafiðnaðarsambands Íslands hins vegar (RSÍ).

Bensínverð tíu krónum lægra

Bensínlítrinn á sjálfsafgreiðslustöðum er tíu krónum ódýrari sé borgað með dælulykli frá Orkunni og Atlantsolíu og má því búast við talsverðu annríki á stöðunum í dag. Mikil ferðamannahelgi er framundan enda Hvítasunnuhelgi framundan.

Spá óbreyttum stýrivöxtum á miðvikudag

IFS Greining spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi stýrivöxtum óbreyttum n.k. miðvikudag. Raunstýrivextir (hvort sem er virkir eða ekki) hafa lækkað um nokkra punkta frá síðasta stýrivaxtafundi sem talið er vera minnkun í peningalegu aðhaldi og jafngildi lækkun stýrivaxta.

ESA: Ísland verður að borga Icesave

Íslendingar þurfa að borga lágmarksinnistæðutryggingar vegna Icesave reikninga Landsbankans í Bretlandi og í Hollandi. Þetta er niðurstaða Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, sem kynnti álit sitt á málinu í dag.

Walker segist geta fjármagnað kaupin á Iceland

Malcolm Walker forstjóri Iceland Foods verslunarkeðjunnar segir að hann sé þess fullviss að geta aflað sér nægilegs fjármagns til að kaupa keðjuna. Hann segir í samtali við Reuters að fjármögnun kaupanna verði ekkert vandamál fyrir sig.

Sjá næstu 50 fréttir