Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Erna Bjarnadóttir nýr stjórnarformaður Nýja Kaupþings Erna Bjarnadóttir verður nýr stjórnarformaður Nýja Kaupþings í stað Huldu Dóru Styrmisdóttur. Þá mun Theodór Sigurbergsson taka sæti í stjórninni í stað Auðar Finnbogadóttur. 3.9.2009 17:01
Viðskiptajöfnuður í mínus 46 milljörðum á 2. ársfjórðung Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 46 milljarða kr. á öðrum ársfjórðungi sem er svipað og á fjórðungum á undan. Rúmlega 18 milljarða kr. afgangur var á vöruskiptum við útlönd og 7,2 milljarða kr. afgangur á þjónustuviðskiptum. 3.9.2009 16:41
Nettóskuldir þjóðarbúsins nema tæpum 6.000 milljörðum Erlendar eignir námu 8.389 milljörðum kr. í lok annars ársfjórðungs en skuldir 14.343 milljarða kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 5.954 milljarða kr. og jókst um 571 milljarða kr. frá síðasta fjórðungi. 3.9.2009 16:21
Bakkavör hækkaði um 13,3% Hlutir í Bakkavör hækkuðu um 13,3% í kauphöllinni í dag. Úrvalsvísitalan OMX16 hækkaði um 0,6% og stendur í tæpum 799 stigum. 3.9.2009 15:51
Umtalsverð vanhöld á framtöldum vaxtatekjum Umtalsverð vanhöld voru á framtöldum innistæðum og vaxtatekjum heimilanna árið 2007. Það ár voru vaxtatekjurnar sagðar 45 milljarðar kr. en ári seinna, eða í fyrra, námu þær 109 milljörðum kr. 3.9.2009 15:26
Kaupþing og ríkið ná samkomulagi um möguleg kaup á bankanum Skilanefnd Kaupþings sem starfar fyrir kröfuhafa bankans náði samkomulagi við ríkið í gærkvöld um möguleg kaup á bankanum. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun skilanefndin eiga rétt á að kaupa 87% hlut í bankanum fram til 1. nóvember. 3.9.2009 15:03
Hún tapaði 525 milljörðum í kreppunni Þýskur milljarðamæringur hefur tapað öllum auðæfum sínum á fjármálakreppunni, samtals 525 milljörðum kr. Sú sem hér um ræðir er hin 65 ára gamla Madeleine Schickedanz, erfingi Quelle og stór hluthafi í Karstadt-keðjunni. 3.9.2009 14:30
Fitch: Ríkisfjármál Íslands þau veikustu af metnum þjóðum Fitch Ratings segir í nýju mati sínu á Íslandi að ríkisfjármálin séu mest veikburða af þeim þjóðum sem Fitch metur. Hinsvegar megi benda á að tekjur Íslendinga séu háar og skattagrunnurinn sterkur miðað við aðrar þjóðir sem hafa sama lánshæfismat eins og Ungverjaland og Indland. 3.9.2009 12:52
Lánshæfi ríkissjóðs helst óbreytt hjá Fitch Ratings Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings gaf í dag út skýrslu um lánshæfi Ríkissjóðs Íslands. Lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands eru óbreyttar. 3.9.2009 12:13
OECD bjartsýnna á horfur í stærstu hagkerfunum OECD er í nýrri spá öllu bjartsýnna á hagþróun stærstu hagkerfa heims það sem eftir lifir árs en stofnunin var í síðustu spá sinni í júní síðastliðnum. Sér í lagi telur hún að samdráttur í Japan og stærstu löndum evrusvæðis verði minni en áður var talið. 3.9.2009 12:11
Farþegum til landsins fækkar um 150.000 í ár Samtals komu 526 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll á tímabilinu frá janúar til ágúst í ár. Er þetta fækkun um tæplega 150.000 farþega því fjöldinn nam 673 þúsundum á sama tímabili í fyrra. 3.9.2009 10:28
Straumur: Verulega búið að taka til hjá West Ham Georg Andersen forstöðumaður samskiptasviðs Straums segir að verulega sé búið að taka til í fjármálum enska úrvalsdeildarliðsins West Ham. CB Holding tók yfir eignarhaldið á West Ham um mitt þetta ár en félagið er 70% í eigu Straums og 30% í eigu Landsbankans, Byr og fleiri. 3.9.2009 10:14
Nordea með viðskiptavakt fyrir Össur hf. í Kaupmannahöfn Össur hf. hefur í dag gert samning við Nordea Markets (deild innan Nordea Bank Danmark A/S) um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. 3.9.2009 09:55
Skráning Össur hf. í Kaupmannahöfn var samþykkt Umsókn Össurar hf. um skráningu hlutabréfa félagsins í kauphöllina í Kaupmannahöfn hefur verið samþykkt. Hlutabréf Össurar verða opinberlega skráð og tekin til viðskipta 4. september 2009. Hlutabréf Össurar munu áfram vera skráð í kauphöllina á Íslandi. 3.9.2009 09:46
Gjaldeyrir flæðir til Dana, varasjóðurinn yfir 9.000 milljarðar Gjaldeyrir streymir inn til Danmerkur þessa daganna og segir í dönskum fjölmiðlum að seðlabanki landsins þyrfi að stækka gjaldeyrisforðageymslur sínar af þessum sökum. Gjaldeyrisvarasjóður Danmerkur hefur aldrei verið meiri, nemur nú rúmlega 374 milljörðum danskra kr. eða yfir 9.000 milljörðum kr. 3.9.2009 09:32
Gistinætur í júlí svipaðar og í fyrra Gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 203.400 en voru 202.200 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða og á Suðurlandi. 3.9.2009 09:05
Vöruskiptin hagstæð um 12.6 milljarða í ágúst Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir ágúst 2009 nam útflutningur 44,1 milljarði króna og innflutningur 31,5 milljörðum króna. Vöruskiptin í ágúst voru því hagstæð um 12,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 3.9.2009 09:01
West Ham tapaði 7,7 milljörðum í fyrra Enska útvalsdeildarliðið West Ham tapaði 37 milljónum punda eða 7,7 milljörðum kr. Í fyrra. Ársuppgjörið er áfall fyrir liðið og segir Nick Igoe fjármálasstjóri liðsins að viðskiptastefna hinna íslensku eigenda West Ham hafi reynst…”gölluð í grundvallaratriðum”. 3.9.2009 08:39
FIH bankinn gaf út skuldabréf fyrir einn milljarð dollara FIH bankinn í Danmörku stóð fyrir velheppnaðri skuldabréfaútgáfu í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Alls var einn milljarður dollara í boði, eða rúmlega 126 milljarðar kr. Öll útgáfan seldist upp og fengu færri en vildu að kaupa bréfin. 3.9.2009 08:16
Hærri skattur á álfyrirtæki Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar, vill að rætt verði við álfyrirtækin og fleiri stórfyrirtæki um að þau komi að lausn á fjárhagsvanda þjóðarinnar. Hann nefnir sérstaklega hækkun á tekjuskatti þessara fyrirtækja. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. 2.9.2009 20:03
Ríkið setur sér eigendastefnu Ríkið hefur sett sér eigendastefnu í fjármálafyrirtækjum og er henni ætlað að skýra fyrirætlanir ríkisins sem eiganda að fjármálafyrirtækjum. Fram kemur í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu að þetta er í fyrsta skipti sem skýr og skrifleg eigandastefnu er sett fram af hálfu ríkisins. Ætlunin er að eigandastefna ríkisins í fjármálafyrirtækjum geti orðið fyrirmynd að almennri eigandastefnu ríkisins sem unnin verði á næstu misserum og nái til allra félaga og fyrirtækja sem ríkið á hluti í. 2.9.2009 17:23
50 sagt upp í þremur hópuppsögnum Vinnumálastofnun bárust 3 hópuppsagnir í ágústmánuði þar sem sagt var upp samtals 50 manns. Á heimasíðu stofnunarinnar segir að um sé að ræða fyrirtæki í byggingariðnaði eða skyldri starfsemi og er ástæðan fyrirsjáanlegur verkefnaskortur og að verkefnum er að ljúka á næstu vikum. 2.9.2009 16:27
Rólegur dagur í Kauphöllinni Dagurinn var fremur rólegur í kauphöllinni í dag. Úrvalsvísitalan OMX15 hækkaði um 0,9%. Ekkert félag hækkaði í Kauphöllinni í dag. Nýherji lækkaði mest allra félaga eða um rúm 47%. Þá lækkaði Atlantic Petroleum um 6,2% og Össur um 2%. 2.9.2009 16:20
Ný stjórn tekin við Teymi Nýir eigendur Teymis hf. tóku við stjórnartaumum í félaginu á aðalfundi í dag, þar sem ný stjórn var kjörin. Landsbankinn er langstærsti hluthafinn í félaginu með um 62 prósenta hlut. Með stjórnarskiptunum lauk formlega fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins, sem staðið hefur stærstan hluta ársins. Nýr stjórnarformaður Teymis er Þórður Ólafur Þórðarson en aðrir stjórnarmenn eru Einar Páll Tamimi, Gísli Valur Guðjónsson, Lúðvík Örn Steinarsson og Steinþór Baldursson. Í tilkynningu frá nýrri stjórn er því fagnað að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins sé nú endanlega lokið. Með henni hafi tekist að að koma félaginu fyrir vind í því mikla efnahagsóveðri sem geisað hefur undanfarið ár og eyða óvissunni um framtíð félagsins. 2.9.2009 16:09
Iceland Express aftur til Stansted Iceland Express ætlar að hefja flug til Stansted flugvallar í London á ný frá og með 2. nóvember næstkomandi. Flogið verður tvisvar í viku, á föstudögum og mánudögum. Áfram verður flogið daglega til Gatwick-flugvallar. 2.9.2009 14:59
Havila Shipping gerir tilboð í íslensk skuldabréf Norska skipafélagið Havila Shipping hefur gert tilboð í íslensk skuldabréf sem gefin voru út árið 2005 og eiga að koma til borgunnar á næsta ári. Skuldabréfaflokkur þessi er skráður í kauphöllinni undir heitinu HAV 05 1 Iceland. Upphæð hans nemur 250 milljónum norskra kr. eða ríflega 5 milljörðum kr. 2.9.2009 14:49
Úrslitatilraun til að flæma Portland Aalborg af markaðinum Kjarni málsins er þessi: Tilgangur alls þessa dæmalausa málatilbúnaðar er úrslitatilraun til þess að flæma Aalborg Portland frá íslenskum markaði. Öllu skal til tjaldað og í engu sparað þrátt fyrir bágborinn efnahag Sementsverksmiðjunnar, skuldasöfnun og kostnað sem af hlýst. Skiptir þá engu þó að framleiðslukostnaður sé hærri en söluverð. 2.9.2009 13:59
Svikamylla Madoff var afhjúpuð fyrir áratug síðan Svikamylla Bernhard Madoff var afhjúpuð fyrir áratug síðan eða 1999 en samt fékk spilaborgin að standa uppi næstu tíu árin með tapi upp á fleiri tugi milljarða dollara fyrir fórnarlömb Madoff. 2.9.2009 13:42
OECD: Frysta eða lækka laun opinberra starfsmanna Meðal þeirra atriði sem OECD ræðir um í nýrri skýrslu sinni um Ísland er að hin mikla raunhækkun launa meðal opinbera starfsmanna á undan förnum árum þurfi nú að ganga til baka. OECD mælir með því að launin verði fryst eða lækkuð sem liður í niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. 2.9.2009 12:35
Atvinnulausum fer fjölgandi á nýjan leik Atvinnulausum fjölgaði í ágúst og er það í fyrsta sinn sem þeim fjölgar frá því í mars síðastliðnum samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Atvinnulausir skráðir á vinnumiðlunum í ágústbyrjun voru 15.217 en núna ríflega mánuði síðar eru þeir 15.480 og hefur því fjölgað um 263 á tímabilinu. 2.9.2009 11:54
Frumtak kaupir hlut í Andersen & Lauth Frumtak hefur lokið fjórðu fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í Andersen & Lauth ehf. Andersen & Lauth er íslenskt fyrirtæki sem hannar,framleiðir og selur hátískufatnað á alþjóðamarkaði. 2.9.2009 11:49
Yngstu starfsmennirnir verða oftast veikir Í nýrri könnun sem samtök vinnuveitenda í Danmörku (Dansk Erhverv) hafa gert meðal félagsmanna sinna kemur í ljós að það eru yngstu starfsmennirnir sem eru oftast forfallaðir í vinnu sinni vegna veikinda. Yfirleitt hefur verið talið að þessu sé öfugt farið og að veikindaforföll aukist með aldrinum. 2.9.2009 11:28
Endurskoðun lyfjakostnaðar skilar 1,8 milljarða lækkun Lyfjagreiðslunefnd áætlar að endurskoðun á lyfseðilsskyldum lyfjum geti skilað um 1,8 milljarða kr. lækkun á þeim fyrir þjóðarbúið í ár og á næsta ári. 2.9.2009 10:45
OECD: Mikið rými til að skera niður ríkisútgjöld Það er mikið rými til að skera niður útgjöld til heilbrigðis- og menntamála án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar, svo sem haldið hefur verið fram í fyrri skýrslum OECD um Ísland. 2.9.2009 10:17
Raunávöxtun lífeyrissjóðanna lækkaði um tæp 22% í fyrra Hrein raunávöxtun lífeyrissjóðanna, þ.e. ávöxtun umfram verðbólgu, lækkaði gríðarlega mikið milli ára og var -21,78% samanborið við 0,5% á árinu 2007. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sl. 5 ár var 2,5% og meðaltal sl. 10 ára var 3%. 2.9.2009 09:57
Cayman eyjar á barmi gjaldþrots og íhuga skattheimtu Hið opinbera á Cayman eyjum rambar nú á barmi gjaldþrots og hafa stjórnvöld því íhugað að koma á fót skattheimtu á eyjunum til að bregðast við ástandinu. Bresk stjórnvöld, sem eyjarnar heyra undir, hafa hafnað því að draga stjórn Cayman að landi hvað þetta varðar. 2.9.2009 09:16
Hamleys fjölgar verslunum og sölustöðum Leikfangakeðjan Hamleys mun halda áfram að fjölga verslunum sínum og sölustöðum það sem eftir er ársins og fram á næsta ár. Salan hjá Hamleys hefur tekið kipp upp á við eftir eitt erfiðasta rekstrarár í 249 ára sögu keðjunnar. 2.9.2009 08:52
Íslenskt vatn til sölu á JFK og LaGuardia Icelandic Water Holdings, sem framleiðir Icelandic Glacial vatnið, hefur náð samningum við bandarískt fyrirtæki, sem rekur fleiri en 80 veitingastaði á níu flugvöllum víðs vegar um Bandaríkin, um sölu á vatninu á veitingastöðum fyrirtækisins. Vatnið verður meðal annars til sölu á JFK og LaGuardia í New York og O’Hare flugvellinum í Chicago. 1.9.2009 20:30
Sykurskatturinn hefur gífurlegt flækjustig í för með sér Svo virðist sem allir sem að verslun koma fordæmi aðferð ríkisstjórnarinnar við að koma á sykurskattinum svokallaða. Hann er sagður ganga þvert á lýðheilsustefnu í mörgum tilfellum. 1.9.2009 18:55
Rólegur dagur í kauphöllinni Dagurinn var fremur rólegur í kauphöllinni í dag. Úrvalsvísitalan OMX16 lækkaði um 1,2% og skuldabréfaveltan var undir meðaltali síðustu tveggja mánaða. 1.9.2009 15:49
Magma setur skilyrði um skuldamál HS Orku Í samkomulagi því sem Magma og Orkuveitan (OR) hafa gert um kaupin á hlut OR í HS Orku er meðal annars kveðið á um ásættanlega niðurstöðu hvað varðar samninga við aðra aðila um skuldamál HS Orku. 1.9.2009 15:36
Skuldabréfaveltan 16 milljarðar á dag í ágúst Heildarviðskipti með skuldabréf í kauphöllinni námu tæpum 322 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 16,1 milljarða veltu á dag. Þetta er mesta dagsvelta það sem af er ári. 1.9.2009 15:18
deCODE leitar kaupenda að lífsýnabanka sínum deCODE leitar nú kaupenda að lífsýnabanka sínum og hefur félagið rætt við bæði vísinda- og viðskiptasjóði um málið. 1.9.2009 14:00
Nýr sæstrengur til Evrópu í notkun í dag Nýr sæstrengur, sem tengir saman Ísland og Evrópu, var tekin í notkun í dag þegar Vodafone opnaði fyrir umferð viðskiptavina sinna um strenginn. Um er að ræða sæstreng milli Íslands og Danmerkur, svokallaðan Danice-streng, sem nýlega var lagður milli landanna. 1.9.2009 13:31
Stjórnarformaður Storebrand kaupir hluti í félaginu Birger Magnus stjórnarformaður norska tryggingarrisans Storebrand hefur fest kaup á 20 þúsund hlutum í félaginu á genginu 32,42 norskar kr. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar í Osló. 1.9.2009 13:23