Raunávöxtun lífeyrissjóðanna lækkaði um tæp 22% í fyrra 2. september 2009 09:57
Hrein raunávöxtun lífeyrissjóðanna, þ.e. ávöxtun umfram verðbólgu, lækkaði gríðarlega mikið milli ára og var -21,78% samanborið við 0,5% á árinu 2007. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sl. 5 ár var 2,5% og meðaltal sl. 10 ára var 3%. Þetta kemur fram á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins í yfirliti um stöðu lífeyrissjóðanna árið 2008. Þar segir að rekja megi þessi neikvæðu áhrif á afkomu lífeyrissjóðanna til erfiðleika á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum og þá sérstaklega falls viðskiptabankanna í október 2008. Heildareignir lífeyrissjóðanna námu tæplega 1.600 milljörðum króna í árslok 2008 samanborið við um 1.700 milljarða í árslok 2007. Nemur tapið um 6% sem samsvarar neikvæðri raunávöxtun um 19% miðað við vísitölu neysluverðs. Iðgjöld lífeyrissjóðanna lækkuðu um 26% á milli ára eða úr 146 milljörðum króna í árslok 2007 í tæplega 116 milljarða króna í árslok 2008. Meginástæða þessarar miklu lækkunar er sú að árið 2007 seldu tveir lífeyrissjóðir eignarhlut sinn í Landsvirkjun, þ.e. Lífeyrissjóðir starfsmanna Reykjavíkurborgar sem seldu hlut sinn fyrir 23,9 milljarða og Lífeyrissjóðir starfsmanna Akureyrarbæjar sem seldu hlut sinn fyrir 3 milljarða. Greiðslan vegna sölunnar var færð sem innborgun frá Akureyrarbæ og Reykjavíkurborg undir iðgjöld. Útgreiddur lífeyrir var 53 milljarðar árið 2008 en var rúmlega 46 milljarðar árið 2007. Séreignarsparnaður í vörslu lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila á árinu 2008 jókst um 7,5% og nam 256 milljörðum króna samanborið við 238 milljarða í árslok 2007. Séreignarsparnaður í heild nam um 16% af heildareignum lífeyriskerfisins í árslok 2008. Iðgjöld til séreignarlífeyrissparnaðar hækkuðu úr 32,6 milljörðum króna í 33,4 milljarða króna á árinu 2008, eða um 2,4%. Samkvæmt lögum um lífeyrissjóði skal vera jafnvægi á milli eigna og skuldbindinga lífeyrissjóða. Komi í ljós við tryggingafræðilega athugun að munur á eignum og skuldbindingum er yfir 10% eða meiri en 5% samfellt í fimm ár ber lífeyrissjóði að grípa til viðeigandi ráðstafana til að ná jafnvægi milli eigna og skuldbindinga. Þann 29. desember 2008 var sett inn bráðabirgðaákvæði sem heimilaði lífeyrissjóðum að hafa allt að 15% mun á milli eignarliða og framtíðarskuldbindinga vegna lífeyris miðað við tryggingafræðilega athugun fyrir árið 2008, án þess að gera breytingar á samþykktum sjóðsins. 26 deildir lífeyrissjóða án ábyrgðar voru með neikvæða tryggingafræðilega stöðu í árslok 2008, þar af 4 deildir með meiri halla en 15% og verða því að skerða réttindi. Þeir lífeyrissjóðir sem njóta bakábyrgðar ríkis, sveitarfélags og banka eru undanþegnir ákvæðum laganna sem fjalla um jafnvægi milli eigna og skuldbindinga lífeyrissjóða. Lítil breyting er á stöðu þessara sjóða á milli ára en verulegur halli er á nánast öllum deildum. Um 8,6% af fjárfestingum lífeyrissjóðanna voru í óskráðum bréfum í árslok 2008 samanborið við um 6,1% í árslok 2007 en samkvæmt lögum höfðu lífeyrissjóðirnir heimild til að fjárfesta fyrir allt að 10% af eignum sínum í óskráðum bréfum. Með óskráðum bréfum er átt við þau verðbréf sem ekki hafa skráð kaup- og sölugengi á skipulegum markaði. Þann 29. desember 2008 var heimild til að fjárfesta í óskráðum bréfum hækkuð í 20%. Gengisbundnar fjárfestingar námu 29% í árslok 2008 en 27% í árslok 2007.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Sjá meira