Nettóskuldir þjóðarbúsins nema tæpum 6.000 milljörðum 3. september 2009 16:21
Erlendar eignir námu 8.389 milljörðum kr. í lok annars ársfjórðungs en skuldir 14.343 milljarða kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 5.954 milljarða kr. og jókst um 571 milljarða kr. frá síðasta fjórðungi. Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að helsta skýringin á þessari þróun milli ársfjórðunga er aukning skammtímaskulda vegna greiðslna í vanskilum. Greiðslur í vanskilum koma til hækkunar á skammtímaskuldum þar sem þær eru raunverulega fjármagnaðar af skuldareigendum og mælast sem innstreymi fjár í fjármagnsjöfnuði. Vert er að geta þess að inni í tölum um erlendar skuldir eru ennþá eignir og skuldir viðskiptabankanna þriggja sem nú eru í greiðslustöðvun. Áætlaðar eignir þeirra námu 5.673 milljarða kr. og skuldir 11.020 milljarða kr. og neikvæð eignastaða þeirra nam því 5.347 milljarða kr. í lok fjórðungsins. Erlend staða þjóðarbúsins án áhrifa þeirra er því neikvæð sem nemur 606 milljörðum kr. Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir m.a. að komið hefur í ljós að skýrslur um beina erlenda fjárfestingu hafa ekki skilað sér sem skyldi í tilfelli mjög stórra og flókinna viðskipta einkaaðila sem áttu sér stað á síðari hluta ársins 2007. Áhrif þessara viðskipta koma aðallega fram undir skuldaliðum, bæði sem lán frá tengdum félögum og sem lán frá erlendum fjárfestum, þar sem þau fólu í sér miklar lántökur innlenda félagsins. Áhrif þessara viðskipta á erlenda skuldastöðu þjóðarbúsins eru um 1.000 milljarða kr. í lok annars ársfjórðungs 2009. Tölur aftur til fjórða ársfjórðungs 2007 hafa einnig verið leiðréttar samkvæmt nýjustu upplýsingum um þessi viðskipti. Mikilvægt er að hafa í huga að um er að ræða lánaskuld við erlenda fjárfesta (móðurfélag) og tengda aðila sem allir eru í einkaeigu undir sömu fyrirtækjasamsteypu.
Tengdar fréttir Kaupþing og ríkið ná samkomulagi um möguleg kaup á bankanum Skilanefnd Kaupþings sem starfar fyrir kröfuhafa bankans náði samkomulagi við ríkið í gærkvöld um möguleg kaup á bankanum. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun skilanefndin eiga rétt á að kaupa 87% hlut í bankanum fram til 1. nóvember. 3. september 2009 15:03 Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira
Kaupþing og ríkið ná samkomulagi um möguleg kaup á bankanum Skilanefnd Kaupþings sem starfar fyrir kröfuhafa bankans náði samkomulagi við ríkið í gærkvöld um möguleg kaup á bankanum. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun skilanefndin eiga rétt á að kaupa 87% hlut í bankanum fram til 1. nóvember. 3. september 2009 15:03