Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fílar að vera full á netinu Leikkonan Gwyneth Paltrow elskar að slaka á heima hjá sér og drekka vín. Iron Man stjarnan, sem á tvö börn með söngvara Coldplay hljómsveitarinnar, Chris Martin, lét hafa eftirfarandi eftir sér: Sum kvöld þegar börnin eru sofnuð nota ég tímann fyrir sjálfa mig og sest ég við tölvuna mína með vínglas mér við hlið. Ég fréttirnar og versla föt á netinu." Þá opnaði hún sig um mataræðið: Ég elska mat og vín of mikið til að sleppa því. Ég elska líka ís. Lífið yrði leiðinlegt ef ég gæti ekki leyft mér að neyta þess sem mér líkar við." 7.10.2010 15:37
Boðið stórfé fyrir að hætta Meðlimum hljómsveitarinnar Weezer hafa verið boðnar tíu milljónir dala, ríflega 1,1 milljarður króna, fyrir að hætta störfum. 7.10.2010 13:30
Féll fyrir bónda Leikkonan Charlize Theron, 35 ára, hefur fundið ástina á ný. Hún á í ástarsambandi við fyrirsætuna og leikarann Eric Thal en það sem merkilegra þykir er að hann er bóndi á milli þess sem hann situr fyrir. Charlize, sem hætti með leikaranum Stuart Townsend í byrjun árs 2010, hefur fundið ástina á ný. Sá heppni er Eric Thal sem á bóndagarð í New York en þar ræktar hann sitt eigið grænmeti svo eitthvað sé nefnt. Það sem dró Charlize að honum var lifnaðarháttur bóndans og viðhorf en hann er tíu árum eldri en hún, 45 ára gamall. Charlize ólst einmitt upp í Suður Afríku á bóndabýli. 7.10.2010 13:15
Ég sker mig inn að beini „Þessi bók er eins einlæg og djúp og hægt er. Ég kemst ekki nær mér og sker mig inn að beini," segir handboltakappinn Logi Geirsson. 7.10.2010 13:00
Gullkálfurinn í Hollywood George Clooney er án nokkurs vafa eini sanni gullkálfurinn í Hollywood. Áhrifameiri leikari og leikstjóri er vandfundinn um þessar mundir í draumaborginni en sjálfur nýtur hann lífsins við Como-vatn á Ítalíu. 7.10.2010 12:00
Anita nýtur lífsins á tökustað Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu mun Anita Briem leika stórt hlutverk í bandarísku kvikmyndinni Elevator. Anita hefur í nægu að snúast því verkefnin hafa smám saman verið að hrannast upp og ekki má gleyma því að hún gekk í það heilaga fyrr í sumar. Á sömu grísku eyjunni og Mamma Mía! var tekin upp. 7.10.2010 11:30
David er sálufélagi minn - myndir Framhjáhaldsásakanir á David Beckham hafa verið háværar undanfarið en þrátt fyrir þær segir Victoria eiginkona hans að þau hafi aldrei verið nánari. Hún getur ekki hætt að dást að manninum sínum sem er sálufélagi hennar. Hann lítur aldrei illa út á morgnana og það er ekki gramm af fitu utan af honum," lét Victoria hafa eftir sér þegar hún talaði um eiginmann sinn til ellefu ára, David Beckham. David kom úr sturtunni um daginn og ég stóð bara og starði á manninn minn þurrka sér. Hann var brúnn, með öll þessi húðflúr sem ég elska og hárið var ekki til haft. Þessi náttúrulega fegurð hans er ómótstæðileg. Hann lítur alltaf óaðfinnanlega vel út," sagði Victoria. Ég lít í augun hans og hugsa með mér að ég er raunverulega gift draumaprinsinum mínum. Við erum ekki einungis gott par heldur erum við sálufélagar." Meðfylgjandi má sjá Victoriu á ferðinni undanfarna daga. 7.10.2010 10:30
Útlitið skiptir engu Söngvarinn sem er orðinn leikari, Justin Timberlake, hefur átt í nánu sambandi við fjölda þekktra kvenna í Hollywood eins og Cameron Diaz, Britney Spears og nú Jessicu Biel. Justin byrjaði með Jessicu árið 2007 og nú ganga um háværar sögur að hún taki ekki annað í mál en að þau giftist innan tíðar. Justin viðurkennir að hann er sáttur í sambandinu með Jessicu en áður fyrr tókst hann vissulega á við sársaukafull sambönd. Ég kolféll á andlitið margoft en það er eðlielgt. Ef þú ert ástfanginn þarftu að vera viðbúinn því að upplifa sársauka," sagði hann. Justin heldur því fram að útlitið sé ekki allt en Jessica er iðulega á lista yfir mest álitlegustu konur heims. Ef konan er með rétt viðhorf til lífsins og með góða nærveru þá skiptir útlitið engu máli," sagði hann jafnframt. 7.10.2010 09:15
Feis! Fyrrverandi leikarinn Frankie Muniz, sem lék eftirminnilega aðalhlutverkið í þáttunum Malcom in the Middle, fékk skot á sig á Twitter á dögunum. Þar sagði notandi að hann væri hræðilegur leikari, en Muniz var fljótur að svara fyrir sig: 7.10.2010 12:30
Forskot á sæluna Rafræn forsala á plötunni Goð+ með neðanjarðarrokksveitinni S.H. Draumi hefst í dag. Salan fer fram á glænýjum vef verslunarinnar Havarí, Havari.is. Þar verður einnig að finna alls kyns aukaefni og efni sem komst ekki fyrir á plötunni. 7.10.2010 12:00
Jakob Frímann nær loks fram hefndum Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon verður spyrill í spurningakeppninni Drekktu betur á Bar 46 við Hverfisgötu á föstudaginn en um helgina verður blásið til sérstakrar Lista- og ölhátíðar á staðnum. Þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, svo sem tónleika, frumsýningu heimildarmyndar um efnahagshrunið eftir Þorfinn Guðnason og nýtt leikrit eftir leikhópinn Peðið. Þá munu blaðamaður og Breiðavíkurdrengur bjóða gestum upp á kreppusúpu. 7.10.2010 11:30
Kominn með nóg af New York Hlustunarveisla verður haldin á Austur í kvöld þar sem lög af nýjustu plötum Hairdoctor, Retro Stefson og Bix verða spilaðar. Þær tvær fyrrnefndu koma út á vegum Braks, undirmerkis Kimi Records, en plata Bix kemur út hjá Muhaha Records um miðjan nóvember. 7.10.2010 11:00
Suðurríkja-Strokes verður að sveitalubba-Bon Jovi Fimmta plata Kings of Leon er væntanleg í október. Hljómsveitin varð gríðarlega vinsæl í kjölfar síðustu plötu, en ætlaði að leita aftur til rótanna á nýju plötunni. Það virðist ekki ætla að ganga eftir, ef marka má þá sem hafa heyrt nýju plötuna. 7.10.2010 10:00
Leikstjóri fundinn Leikstjóri 300 og Watchmen, Zack Snyder, hefur verið ráðinn leikstjóri næstu Superman-myndarinnar. 7.10.2010 09:30
The Town og fleira til Kvikmyndin The Town hefur fengið einróma lof gagnrýnenda en leikstjóri hennar og aðalleikari er Ben Affleck. Svo langt hafa gagnrýnendur gengið að orða Affleck við Óskarinn í tveimur flokkum; sem besti leikarinn og besti leikstjórinn. 7.10.2010 09:00
Tilhlökkun og ótti í Brooklyn „Þetta er bæði tilhlökkun og svolítill ótti,“ segir Ingvar Geirsson, eigandi plötubúðarinnar Lucky Records. Hann opnar tónlistarhátíðina Brooklyn Soul Festival í New York á morgun sem plötusnúðurinn DJ Lucky. „Þetta er svolítil pressa en þetta verður bara gaman.“ 7.10.2010 09:00
RIFF-hátíð fær erlenda athygli Kvikmyndasíðurnar Indiewire.com og Screendaily.com fjalla um Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík, RIFF, sem lauk á sunnudaginn. 7.10.2010 08:30
Timburmenn tvö tekur á sig mynd The Hangover 2 fer í tökur seinna í þessum mánuði. Þetta kemur fram í viðtali Empire við leikstjórann Todd Phillips. Phillips er reyndar mjög upptekinn maður ef marka má Empire því hann mun á næstunni frumsýna vegagamanmyndina Due Date með Robert Downey Jr. í aðalhlutverkinu. 7.10.2010 08:00
Skrímslin eru komin á land Íslenski dansflokkurinn frumsýnir í kvöld sýninguna Transaquania - Into Thin Air. Verkið varð til í samvinnu Ernu Ómarsdóttur, Damiens Jalets og Gabríelu Friðriksdóttur. Erna Ómarsdóttir segir verkið eins konar þróunarsögu. 7.10.2010 07:30
Tveir krummar á Brimi Kvikmyndin Brim eftir Árna Ólaf Ásgeirsson hefur fengið afbragðs góða dóma gagnrýnenda og fékk meðal annars fjórar stjörnur hjá Fréttablaðinu og fullt hús í DV. Enda var hvergi að finna auðan blett í lokapartýi RIFF þar sem frumsýningunni og lokum kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík var fagnað. 7.10.2010 07:00
Spilar sín bestu lög Gylfi Ægisson verður með tónleika á Faktorý í kvöld. Þar ætlar hann að spila flest af sínum vinsælustu lögum, þar á meðal Minningu um mann og Stolt siglir fleyið mitt. 7.10.2010 06:45
Youtube-stríð Stórstjörnurnar ungu Lady Gaga og Justin Bieber stefna bæði að sama takmarki þessa dagana: Að komast upp í milljarðs áhorf á myndbandasíðunni Youtube. 7.10.2010 06:00
Jakob Frímann spyrill á Lista- og ölhátíð Mjög fjölbreytt dagskrá verður í boði á Lista- og ölhátíð Bar 46 á Hverfisgötu um helgina. Meðal atburða er hin víðfræga spurningakeppni staðarins og er það Jakob Frímann Magnússon Stuðbolti sem mun annast hana í tilefni hátíðarinnar. 6.10.2010 21:58
Konur reyna við mig Leikkonan Christina Hendricks, 35 ára, sem slegið hefur í gegn í sjónvarpsþáttaröðinni Mad Men er harðgift kona og því undrar hún sig á að því að samkynhneigðir karlmen og konur gefi sér undir fótinn Konur reyn að við mig. Maðurinn minn er hissa yfir því hvað konur reyna oft við mig. Samkynheigðir menn segja við mig að ef þeir væru ekki hommar myndu þeir reyna við mig. Mér finnst það frábært," sagði Christina. Leikkonan þakkar móður sinni fyrir útlit sitt og vaxtarlag. Hún sagði í nýlegu viðtali við Bazaar tímaritið: Mamma mín sagði mér aldrei að reyna að léttast eða fara í megrun. Hún sagði að það væri fallegt að vera með þrýstin lögulegan líkama og hún sagði mér alltaf að ég væri falleg eins og ég er." 6.10.2010 17:30
Lögð í einelti Leikkonan Eva Mendes hefur viðurkennt að hún var lögð í einelti nánast alla hennar skólagöngui. Fjöldi Hollywoodstjarna hefur stigi fram og talað opinskátt um einelti sem þær urðu fyrir í æsku. Leikkonan Jessica Alba ásamt Evu Mendes eru óhræddar við að ræða harkalegt einelti sem þær upplifðu báðar í æsku.. Eva segir að nánast alla sína skólagöngu var hún lögð í einelti og það tók hana mörg ár að komast yfir óttann og að fá sjálfstraustið á ný. Þegar ég loksins stóð í fæturna og svaraði fyrir mig breyttust hlutirnir," sagði Eva. Jessica Alba sagði eftirfarandi: Mér var strítt á hverjum einasta degi. Pabbi þurfti að fylgja mér í skólann svo ekki yrði ráðist á mig. Ég var mjög hrædd á þessum tíma." 6.10.2010 16:30
Sátt við appelsínuhúðina Leikkonan Jessica Alba er fullkomlega ánægð með líkama sinn. Hún elskar brjóstin á sér þó þau séu byrjuð að vísa niður á við og appelsínuhúðin á lærum hennar er falleg að hennar mati. Jessica, sem á tveggja ára gamla dóttur, Honor, með eiginmanni sínum Cash Warren, viðurkennir fúslega að líkami hennar hefur breyst eftir meðgönguna en henni er alveg sama því það eru forrétindi að verða mamma. Það er yndslegt að fá að vera mamma. Að eignast barn eru forrétttindi. Brjóstin á mér vísa niður á við og ég er með appelsínuhúð og mjaðmirnar á mér eru stærri en áður en vitið þið hvað? Ég elska það!" sagði leikkonan. 6.10.2010 15:30
Katrín Brynja er ný lottóþula Katrín Brynja Hermannsdóttir er ný þula í íslenska lottóinu. Hún er Íslendingum að góðu kunn eftir að hafa unnið sem þula hjá Ríkissjónvarpinu í tíu ár, allt þar til að stöður þulanna voru lagðar niður. Katrín gerir ráð fyrir að hefja störf í lottóinu í lok október og hlakkar mikið til. Vísir ákvað að heyra í henni hljóðið í tilefni af nýja starfinu. 6.10.2010 14:04
Hætt með kærastanum Rumer Willis, 22 ára, er hætt með kærastanum, leikaranum Micah Alberti. Rumer, sem er dóttir Bruce Willis og Demi Moore, er að jafna sig eftir skilnaðinn en sambandið, sem stóð yfir í tvö ár, gekk ekki upp. Parið kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2008 á frumsýningu kvikmyndarinnar The House Bunny. Þau voru óaðskiljanleg á meðan allt lék í lyndi. Nú hefur Rumer endað sambandið og er byrjuð að sækja næturklúbbana þar sem hún dansar til að gleyma. Vinu Rumer sagði í viðtali við Life & style tímaritið: Henni líður ekki vel yfir sambandsslitunum en hún er staðráðin í að halda áfram að lifa lífinu. 6.10.2010 13:30
Keppast um að koma hvort öðru á óvart Leikkonan Eva Longoria Parker, 35 ára, segir að eiginmaður hennar, körfuboltahetjan Tony Parker, sé rómantískur og snillingur að koma henni á óvart. Tony er stöðugt að gleðja Evu með því að koma henni á óvart og að ekki sé minnst á rándýrar gjafir sem gleðja leikkonuna. Hann heldur frábærar afmælisveislur og kemur mér stöðugt á óvart. Segja má að við keppumst við að koma hvort öðru á óvart. Þetta er orðið að harðri keppni," sagði Eva. Eva heldur því fram að eftir að þau giftu sig hafi sambandið batnað til muna. Brúðkaupið breytti öllu hjá okkur. Við urðum bæði öruggari í sambandinu og með okkur sjálf. Gifting er heilög sameining og við tökum þessu alvarlega. Þegar hann fer í löng keppnisferðalög mæti ég þangað þegar ég get og horfi á hann spila. Við getum ekki án hvors annars verið. Vegalengdin skiptir okkur engu máli." Svo finnst mér gaman að ferðast. Ég elska að ferðast með flugvélum þá fæ ég tíma til að lesa og ég á eftir að lesa heilan helling." 6.10.2010 12:30
Þráir fullkominn félaga Leikkonan Sandra Bullock, 46 ára, er tilbúin að hitta menn en þá vill hún gera það fjarri fjölmiðlum. Stuttu eftir að Sandra fékk óskarinn fyrir besta leik í aðalhlutverki komst heimurinn og hún að því að eiginmaður hennar, Jesse James, hélt fram hjá henni. Sandra skildi við kauða og ættleiddi dreng, Louis, frá new Orleans á sama tíma. Síðan þá hefur Sandra einbeitt sér að móðurhlutverkinu en segir sagan að Sandra er loksins tilbúin að hitta menn á ný. Hún þráir að finna fullkominn félaga en þó án þess að fjölmiðlar verði hluti af sambandinu. Louis er átta mánaða gamall og Sandra nýtur þess að sinna honum en nú er kominn tími til að verða ástfangin að hennar mati, er haft eftir nánum vini Söndru sem sagði jafnframt að Sandra lætur oftar til leiðast að kíkja á næturlífið í fylgd vina í Hollywood þar sem hún skoðar úrvalið. 6.10.2010 11:30
Á lausu í leit að karlmanni Bandaríska sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 29 ára, hefur lýst því yfir að hún vill hitta karlmenn þegar hún flytur til New York þar sem hún ætlar að setja upp DASH vreslun ásamt systur sinni, Kourtney. Nú þegar Kim er á lausu finnst henni tími til kominn að skemmta sér og hitta karlmenn. Ég á frekar erfitt með að vera ein. En bara get ekki vanist því. Þegar ég flyt til nýrrar borgar ætla ég að skoða vel í kringum mig," sagði Kim. 6.10.2010 09:15
Hönnuður sakaður um vopnaburð Aðalmeðferð í máli Ríkislögreglustjóra gegn ástralska hönnuðinum Sruli Recht fór fram í sal 202 í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sruli er gefið að sök að hafa haft undir höndum vopn sem hann hafi ekki haft leyfi fyrir en um er að ræða regnhlífar með hnúajárni fyrir handfang. Leikhús fáranleikans, segir lögmaður Sruli, Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson. 6.10.2010 17:30
Gefur út spennusögu um sjúkan heim útrásarvíkinga „Þeir sem hafa lesið bókina segjast þekkja hluti úr fari ákveðinna manna í ákveðnum persónum. Ég get svo sem ekki neitað því að þeir sem hafa verið í framlínu sveitar svokallaðra útrásarvíkinga gætu kannast við sig í þessari bók,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson fréttastjóri. 6.10.2010 17:00
Hundrað skráðir á milljónapókermót „Það á eftir að bætast hellingur við. Við búumst við að þetta verði 200 manna mót og það er allt útlit fyrir að það gangi upp,“ segir Valur Heiðar Sævarsson, formaður mótanefndar Pókersambands Íslands. 6.10.2010 10:00
Fögnuðu Fítonblaði Hið árlega Fítonblað kom út fyrir helgi. Af því tilefni gerði markaðsfólk sér glaðan dag og skálaði í nokkrum svellköldum. 6.10.2010 06:00
Húðflúrin hrikaleg mistök Kelly Osbourne ætlar að láta fjarlægja nokkur húðflúr sem hún hefur látið setja á líkama sinn í gegnum tíðina en hún er með alls fimmtán húðflúr sem hún segir að flest séu misheppnuð húðflúr sem hún á ekki eftir aði sakna þegar búið er að fjarlægja þau. Ég hef ákveðið að láta fjarlægja nokkur til að byrja með. Þau sem hafa merkingu fyrir mig persónulega fá að vera áfram og þau sem passa við húðflúrin sem bróðir minn er með á líkama sínum verð líka áfram en sum húðflúrin eru hrikaleg og ég reyni yfirleitt að hylja þau," viðurkenndi Kelly. Ég vil losna við nótnaborðið sem er á handleggnum á mér. Ég kann ekki einu sinni að spila á píanó og ég vil líka fjarlægja hjartað og beinin á úlnliðnum á mér," útskýrði Kelly. Þegar ég var yngri fannst mér húðflúr virkilega töff. Ég fékk mér þau af því að það stuðaði mömmu. Mér frekar leið illa og veit ekki almennilega af hverju ég lét setja þau á mig." 5.10.2010 17:37
Fékk menningarsjokk í Kína Fegurðardrottningin Sylvía Briem Friðjóns er nýkomin heim frá Kína þar sem hún tók þátt í keppni sem ber yfirskriftina Miss Tourism. 87 stúlkur frá öllu heimsálfum tóku þátt en það var ungfrú Suður Kórea bar sigur úr bítum. 5.10.2010 15:45
Hætt að dópa Breska söngkonan Amy Winehouse, 27 ára, segist halda sig algjörlega frá dópinu. Amy, sem var lögð í skyndi á spitala árið 2007 eftir að hún tók of stóran eiturlyfjaskammt hefur haldið sig frá dópinu í bráðum þrjú ár. Ég er allt önnur núna. Ég er heilsuhraustari og er hætt að dópa. Ég hef ekki notað eiturlyf þrjú ár. Það er ekki eins erfitt að hætta að dópa eins og ég hélt það yrði," sagði Amy. Ég vaknaði einn daginn og hugsaði með mér: Ég vil ekki gera þetta lengur. Aldrei aftur!" Amy er á föstu með leikstjóranum Reg Traviss þar sem gengið hefur á ýmsu því þau hætta og byrja saman aftur en í dag eru þau ennþá saman. Hún segist vilja einblína á framtíðina með réttu hugarfari. Amy langar vissulega að eignast fjölskyldu en börn ætlar hún ekki að eignast alveg strax. 5.10.2010 15:00
Barnið þægara en Simon Cowell Ástralska söngkonan og X-Factor dómarinn, Dannii Minogue, 38 ára, segir að þriggja mánaða sonur sinn, Ethan, hagi sér mun betur en Simon Cowell. Danniii elskar að vera mamma og finnst erfitt að vinna frá syninum. Aðspurð um unga drenginn svaraði Dannii: Hann er miklu þægari en Simon. Ethan er yndislegur og ég á erfitt með að fara frá honum og mæta í vinnuna. Sem betur fer er ég í vinnu sem ég elska og ég veit að hann er í góðum höndum á meðan." 5.10.2010 14:15
Aniston álitlegust Leikkonan Jennifer Aniston, 41 árs, er talin vera álitlegagasta einstæða konan í heiminum í dag samkvæmt könnun sem tímaritið Vanity Fair gerði. Í öðru sæti lenti leikkonan Halle Berry, sem nýverið skildi við fyrirsætuna Gabriel Aubry. Þá er fyrrverandi eiginkona Tiger Woods, Elin Nordegren, þriðja álitlegastas konan en sagan segir að Elin hafi fengið 60 milljónir dollara frá fyrrum eiginmanni sínum. Þá var Betty White, sem hefur veirð einstæð síðan maðurinn hennar Allen Ludden féll frá árið 1981, í fjórða sæti. Þá fékk Lady Gaga einnig þó nokkuð mörg en því er haldið fram að hún muni giftast kærastanum Luc Carl í breskum kastala í desember á þessu ári. Ani 5.10.2010 13:00
Baðar sig upp úr ilmvatni Christina Aguilera segir að ilmvötnin hennar láti konum líða vel. Söngkonan, sem hefur sett saman ilmvötn og markaðssett með frábærum árangri, skilur hvernig konum líður og hvernig þær vilja upplifa sig að eigin sögn. „Ég sjálf elska þegar mér líður eins og drottningu. Ég vil að það sé dáðst að mér og hugsað vel um mig," sagði Christina spurð um tilfinninguna sem hún vill finna. Þegar Christina gerir sér dagamun, klæðir sig upp og fer út, setur hún alltaf á sig ilmvatn. Þá setur hún líka ilmvatn út í baðvatnið sitt áður en hún baðar sig. „Ég set ilmvatn í baðið og líka á mig sjálfa áður en ég fer að sofa. Þá klæðist ég engu nema ilmvatni," viðurkenndi hún og sagði: „Ilmvatn er eins og skartgripur sem þú getur notað við öll tækfiæri en þú þarft að passa að lyktin passi við fötin sem þú klæðist." 5.10.2010 11:30
Andri Freyr ágætur að vakna á morgnana „Hann leynir nefnilega á sér með þetta, ég held hann fari seint að sofa en hann er alltaf vel vaknaður þegar ég kem og er búinn að lesa blöðin og allt,“ segir Guðrún Dís Emilsdóttir. Hún stjórnar morgunþættinum Virkir morgnar á Rás 2 ásamt Andra Frey Viðarssyni en þátturinn hefst klukkan níu stundvíslega. Þar sem Andri Freyr er ekki á bíl þá sér samstarfskona hans um að ná í hann og saman aka þau upp í Efstaleiti. „Ég bý ekki svo mikið úr leið og aumka mig bara yfir hann,“ segir Guðrún. 5.10.2010 10:00
Viðkvæm eins og annað fólk Nýr sjónvarpsþáttur, It’s A Scary World, um líf fyrrum kryddpíunnar Mel B, hefur göngu sína innan tíðar. Mel ætlar að hleypa heiminum inn fyrir dyrnar heima hjá sér en hún segist reyna eins og hún mögulega getur að taka ekki nærri sér skoðanir fólks á því hvernig hún hagar sér. Um er að ræða raunveruleikasjónvarpsþátt um Mel, eiginmann hennar, Stephen Belafonte, og stúlkurnar sem þau eignuðust áður en þau kynntust, en þær eru þrjár talsins. Angel, 3 ára, Phoenix, 11 ára og Giselle, 6 ára. „Ég hef reynt að taka ekki nærri mér skoðanir annarra. Ég er mjög sterk og sjálfsörugg manneskja en auðvitað er ég viðkvæm eins og annað fólk. Það er ekki neikvæður eiginleiki, við erum öll mannleg," sagði Mel spurð hvernig henni líður með að opna heimilið fyrir heiminum. „Í þáttunum fær fólk innsýn inn í líf okkar og fær að sjá nýja hlið á mér. Það fær að sjá hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá okkur." 5.10.2010 09:00
José González: Íslendingar uppteknir af tónlist, drykkju og partíum „Ég hlakka mikið til," segir José González. Hann spilar nú í þriðja sinn á Airwaves-hátíðinni. Síðast steig hann þar á svið fyrir fjórum árum. 5.10.2010 19:00
Bretar falla fyrir Þorsteini Breskir gagnrýnendur virðast ekki hafa fallið í stafi yfir uppfærslu Vesturports á Faust en enska útgáfan af þessari sýningu leikhópsins og Borgarleikhússins var frumsýnd á föstudag. Gagnrýnandi This is London, Henry Hitchings, gefur sýningunni raunar bara tvær stjörnur og segir Faust ekki gera neitt fyrir fólk sem hafi áhuga á ljóðagerð og skrifum Goethes. 5.10.2010 08:00