Fleiri fréttir

Amy Winehouse handtekin í Noregi

Ófarir bresku söngkonunnar Amy Winehouse virðast engan enda ætla að taka. Í gær var hún handtekin á hótelherbergi sínu í Björgvin í Noregi fyrir vörslu fíkniefna. Í herberginu fundust sjö grömm af maríjúana.

Mest aðsókn var á The Simpsons the Movie

Aðsóknarmesta mynd hérlendis er The Simpsons Movie en ekki Astrópía eins og haldið hefur verið fram í fréttum. 55.937 manns sáu Simpsons. Raunar er Astrópía í fimmta sæti yfir aðsóknarmestu myndir ársins og óumdeilanlega sú íslenska mynd sem mesta aðsókn hefur fengið en 44.021 manns hafa séð myndina.

Britney bannað að hitta börnin

Dómari í umgengnis- og forsjármáli Britney Spears og Kevins Federline yfir tveimur börnum þeirra hefur úrskurðað að Britney fái ekki að sjá börnin þar til hún hlýti dómsúrskurði. Ekki er ljóst hvað átt var við með orðalaginu.

Lindsay ekki trúlofuð

Fréttir OK! glanstímaritsins af trúlofun Lindsay Lohan og snjóbrettakappans Riley Giles virðast vera stórlega ýktar. Fjölmiðlafulltrúi Lohan vinnur nú grimmt í því að leiðrétta þessar fréttir sem farið hafa sem eldur í sinu síðan þær birtust fyrr í vikunni. Tilefna fréttanna var forláta demantshringur sem Lohan sást bera á baugfingri en fjölmiðlafulltrúinn staðhæfir að hann sé gjöf frá pabba Lindsay.

Liz Hurley er nískupúki

Elisabeth Hurley og eiginmaður hennar eru sökuð um nirfilshátt vegna þess að þau greiddu ekki krónu til kirkjunnar þar sem þau voru gefin saman. Vanalega er kostnaður við kór, organista og prest um 130 þúsund krónur. Hurley giftist Arun Nayar í smákirkju við Winchcombe í Gloucestershire í mars síðastliðnum.

Heather krefst sex milljarða

Viku eftir að Paul McCartney og Heather Mills eyddu átta og hálfum tíma í að komast að samkomulagi um eignaskipti fyrir dómi, hefur parinu enn ekki enn tekist að ná samkomulagi. Í byrjun vikunnar voru vísbendingar um að tekist hefði samkomulag um þriggja milljarða króna greiðslu til Heather. Nýjar fregnir herma hins vegar að hún hafi hækkað fjárhæðina um helming og gefið fyrrverandi manni sínum frest til föstudags til að svara. Annars verði málið útkljáð fyrir dómi.

Póker kom Pamelu upp að altarinu

Pamela Anderson segir að hún og Rick Salomon, hafi ákveðið gifta sig á meðan þau spiluðu póker. Þau höfðu verið vinir í ein sautján ár áður en þau ákváðu að ganga upp að altarinu.

Oprah í vandræðum með skjaldkirtilinn

Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey hefur opnað sig um skjaldkirtilssjúkdóminn sem hefur verið að hrjá hana en hann varð meðal annars til þess að hún þyngdist um tíu kíló.

Óþekktur leikari fær hlutverk Kafteins Kirk

Lítt þekktur leikari Chris Pine að nafni hefur verið valinn til að leika Kaftein Kirk í nýju Star Trek myndinni. Þá mun leikarinn Karl Urban sem þekktur er fyrir hlutverk sitt sem Eomer í Hringadrottinssögu leika læknirinn Leonard "Bones" McCoy.

Kynlífsmyndir af verðandi Danaprinsessu

Svissneski sjentilmaðurinn Anthony D. sem er fyrrverandi kærasti Marie Cavallier verðandi Danaprinsessu hefur nú upplýst að hann eigi kynlífsmyndir og myndbönd af þeim, sem "ekki þoli dagsins ljós," eins og hann orðar það.

Græna barnið hennar Berry

Hin 41 árs gamla Halle Berry, sem er komin rúma fjóra mánuði á leið, nýtur meðgöngunnar í botn og ætlar einungis að kaupa umhverfisvæna hluti handa fyrsta barni sínu.

John Voight kominn með nóg af árásum barna sinna

Leikarinn Jon Voight hefur svarað gagnrýni sonar síns opinberlega en sonur hans James Haven segir í samtali við Marie Claire að Voight hafa látið móður hans ganga í gegnum andlegar kvalir svo árum skipti.

Hallgrímur Helgason slær í gegn í Danmörku

Skáldsagan Rokland eftir Hallgrím Helgason fær geysilega góða dóma í Danmörku um þessar mundir. Bókin kom nýverið út í danskri þýðingu Kim Lebek undir heitinu Stormland.

Alræmd tískulöggga á götum á Reykjavíkur

Tískulöggan alræmda, Yvan Rodic, er mætt aftur til Íslands. Rodic vakti athygli á Airwaves hátíðinni í fyrra en þá myndaði hann fólk á förnum vegi og birti af því myndir á heimasíðu sinni. Heimasíða Rodic, facehunter.blogspot.com, er ein þekktasta tískubloggsíða heims en Rodic myndar meðal annars fyrir tímaritin Elle og GQ.

Gyllenhaal vill ekki predika

Leikarinn Jake Gyllenhaal segist forðast það eins og heitann eldinn að leika í kvikmyndum með sterkum boðskap, þrátt fyrir að hafa leikið í myndum á borð við Brokeback Mountain og Rendition.

Ferrera flytur af öryggisástæðum

America Ferrera, leikkonan úr þáttunum um Ljótu Betty, neyddist til að flytja af heimili sínu í Hollywood þar sem framleiðendum þáttanna fannst aðdáendur eiga of auðvelt með að nálgast hana.

Bloom yfirheyrður vegna áreksturs

Leikarinn Orlando Bloom þarf að mæta til yfirheyrslu hjá lögreglunni í Los Angeles eftir að hann klessti bíl vinar síns um síðustu helgi. Bloom, sem fór á kostum í myndunum um sjóræningjana í Karabíahafinu, hafði verið úti á galeiðunni í Hollywood með félögum sínum þegar hann keyrði á kyrrstæða Porche-bifreið.

Kylie Minogue þakkar aðdáendum stuðning

Ástralska söngkonan Kylie Minogue þakkaði aðdáendum sínum sérstaklega fyrir stuðning þeirra þegar heimildarmynd um hana var frumsýnd í London í gær. Myndin, White Diamond, fjallar um baráttu Minogue eftir að hún greindist með brjóstakrabbamein í fyrra.

Lennon vitjaði sonar síns

Julian Lennon var heldur betur brugðið þegar hann fékk vægast sagt óvænta kveðju frá föður sínum 25 árum eftir dauða hans. Julian, sem vinnur nú að kvikmynd í Ástralíu,

Batnandi Paris er best að lifa

Paris Hilton segist enn staðráðin í því að að breyta lífi sínu til hins betra í stað þess að eyða því í næturklúbbabrölt. Paris, sem hefur verið tíður gestur á helstu skemmtistöðunum Hollywood undanfarin ár og þurfti meðal ananrs að dúsa í 23 daga í fangelsi fyrir ölvunarakstur,

Sífellt minna að gera hjá Pfeiffer

Stardustleikkonan Michelle Pfeiffer segir að tilboðum um að leika í kvikmyndum fækki áþreifanlega eftir því sem aldurinn færist yfir. Leikkonan sem kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1979, þá 21 árs, segir í samtali við BANG Showbiz að hún fái mun færri handrit í hendurnar nú þegar hún er að verða fimmtug.

Federline með óhreint mjöl í pokahorninu

Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður Britney Spears, er sagður hafa reykt maríjúana á meðan tökur á nýjum sjónvarpsþætti stóðu yfir. Hinn 29 ára gamli Federline, sem hefur átt í hatrammri forræðisdeilu við Spears, mun koma fram sem gestaleikari í unglingaþáttunum One Tree Hill.

Júróvisjónstjarna lést í bílslysi

Einn allra vinsælasti poppsöngvari Makedóníu, Tose Proeski, lést í dag eftir umferðarslys í Króatíu. Proeski tók þátt í úrslitakeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2004 og var dáður um allan Balkanskaga.

Fingraför tekin af Britney

Britney Spears mætti í gær á lögreglustöð í Los Angeles þar sem henni var birt kæra í tengslum við umferðaróhapp sem hún varð valdur að þann sjötta ágúst síðastliðinn. Spears er gefið að sök að hafa keyrt á kyrrstæðan bíl á bílastæði en látið sig síðan hverfa. Ljósmyndarar sem fylgdu henni eftir náðu myndum af atvikinu.

Dagur eins og sannkölluð Armani fyrirsæta

Þeir Dagur B. Eggertsson og Björn Ingi Hrafnsson hafa nú gengið í eina sæng og ætla framvegis að sammælast um hin ýmsu borgarmál. Það er ekki amalegt að fá tvo fjallmyndarlega karlmenn í brúnna sem auk þess tóna vel við hvorn annan með dökku yfirbragði sínu.

Konur í Hollywood heiðraðar

Sjö konur voru í gær heiðraðar á árlegri samkomu Elle tímaritsins, ,Women in Hollywood, sem haldin var í Los Angeles. Sex leikkonur og einn leikstjóri hlutu heiðurinn í ár og var sú yngsta fjórtán ára en sú elsta 82.

Hudson vill fá Wilson aftur

Eftir að gamanleikarinn Owen Wilson reyndi sjálfsmorð fyrir skemmstu gerði fyrrverandi kærasta hans, Kate Hudson, sér grein fyrir því hversu mikið hún elskar hann og vill nú fá hann aftur að því er tímaritið People greinir frá.

Mel B og Eddie Murphy mætast í dómssal

Kryddpían Mel B á stefnumót við barnsföður sinn Eddie Murphy um miðjan næsta mánuð og fer það fram í dómshúsi einu í Los Angeles. Parið fyrrverandi talast almennt ekki við en ætlunin er að ræða meðlagsfyrirkomulag og fleira í tengslum við sex mánaða dóttur þeirra Angel Iris.

Ekki heimsk eins og Lindsay og Paris

Partýgellan og American Pie leikkonan Tara Reid segir fólk aldrei koma til með að lesa fréttir af því að hún hafi komist í kast við lögin. „Ég er ekki heimsk eins og Lindsay Lohan og Paris Hilton,“ segir hún kokhraust.

Aniston vildi helst vera Oprah

Þó svo að Jennifer Aniston þyki af mörgum nánast fullkomin þá á hún sér drauma eins og aðrir og myndi helst vilja vera sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey ef hún mætti skipta í einn dag. Í viðtali við Harper's Bazar segist hún líka geta hugsað sér að vera Bondstúlka og ef hún ætti að starfa fyrir ríkisstjórnina myndu hún helst vilja gegna hlutverki njósnara.

JK Rowling elskar að árita

Harry Potter höfundurinn JK Rowling ferðst nú um Bandaríkin til að árita bækur sínar. Hún bauð skólabörnum til sín í Kodak leikhúsið í Hollywood í gær og áritaði alls 1.600 eintök. „Það spyrja mig allir að því hvort ég verði ekki þreytt en satt að segja þá er þetta eitt af því skemmtilegasta sem ég geri,“ sagði Rowling við fréttamenn á staðnum.

Farrell segir frá erfiðleikum sonar síns

Leikarinn Colin Farrell segir frá því í samtali við Irish Independent að fjögurra ára sonur hans, James, sé haldinn taugasjúkdómi sem nefnist Angelman Syndrome. „Hann er hamingjusamur og hugrakkur drengur og einu skiptin sem ég verð var við að hann sé öðruvísi er þegar ég sé hann með jafnöldrum sínum.

Aniston háð vaxi

Jennifer Aniston er eins og mörgum er kunnugt mjög umhugað um hárið á sér. Hún sést sjaldan ótilhöfð og hefur fengið mikið lof fyrir makkann. Það sem færri vita er að Aniston er einnig mjög umhugað um þau hár sem ekki tilheyra höfðinu. Þegar kemur að þeim vill hún hins vegar sem minnst af þeim vita.

Jolie kynnþokkafyllsta ofurhetjan

Angelina Jolie í hlutverki Löru Croft í Tomb Raider er kynþokkafyllsta ofurhetja allra tíma samkvæmt nýrri könnun. Könnunin var gerð í tilefni af útgáfu myndarinnar Rise of The Silver Surfer á DVD með Jessicu Alba.

Gaf afmælisgjafir til geðfatlaðra

Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, afþakkaði allar gjafir í tilefni af sextugsafmæli sínu á dögunum en bað afmælisgesti um að láta frekar fé af hendi rakna til Dvalar sem er athvarf fyrir geðfatlaða í Kópavogi. „Ég á allt og því fannst mér kjörið að biðja fólk um að leggja inn pening á reikning Dvalar. Ég þekki til starfseminnar og þarna er unnið gríðarlega gott starf," segir Gunnar.

Árshátíð íslenskra hljómsveita í uppsiglingu

Iceland Airwaves tónlistarhátíðin hefst næstkomandi miðvikudag eins og flestir eflaust vita. Hátíðin er sú stærsta til þessa og hefur hún bæði stækkað að umfangi og virðingu með hverju ári síðan 1999 þegar hún var fyrst haldinn, segir Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Alls troða um 200 hljómsveitir og tónlistarmenn upp í ár og þar af eru um 50 erlend númer.

Jerry Hall segir alla söguna

Jerry Hall, fyrrverandi eiginkona Mick Jagger söngvara Rolling Stones, hefur samið við útgáfufélagið HarperCollins um útgáfu ævisögu sinnar og verður sérstök áhersla lögð á tímann með Jagger.

Friðartónleikum með Bryan Adams aflýst

Friðartónleikum til stuðnings lausnar á deilum Ísraela og Palestínumanna hefur verið aflýst sökum þess að þátttakendum var hótað. Söngvarinn Bryan Adams ætlaði að troða upp á tvennum tónleikunum sem halda átti í Ísrael og Palestínu þann 18. október næstkomandi. Auk þess ætluðu ísraelskir og palestínskir tónlistarmenn að koma fram.

Affleck borgar ekki aukaleikurum

Leikaranum og leikstjóranum Ben Affleck var svo mikið í mun um að halda kostnaði við gerð myndarinnar Gone Baby Gone, sem hann leikstýrir, í lágmarki að hann borgaði engum aukaleikurum. Í staðinn gerði hann óbreytta Bostonbúa að kvikmyndastjörnum.

Julia Roberts hreppti Cinematheque verðlaunin

"Ég er bara lítil stelpa frá smábæ í Georgíu sem átti stóran og skrítinn draum," sagði Julia Roberts þegar hún tók við bandarísku Cinematheque verðlaununum við hátíðlega athöfn í Los Angeles á föstudagskvöldið. Leikkonan sem á þrjú lítil börn sagðist vera mest stolt af því að vera eiginkona og móðir.

McCartney og Mills ekki á leið í dómsalinn

Sir Paul McCartney og konan hans fyrrverandi, Heather Mills ætla sér að gera úrslitatilraun til þess að komast að samkomulagi um hvernig hafa skuli skilnaði þeirra án þess að málið þurfi að fara fyrir dómara. Deilurnar standa þó enn og ekki að furða að Paul hafi ekki séð sér fært að mæta í Viðey til þess að vera viðstaddur tendrun friðarsúlunnar, enda ekki friðvænlegt á hans heimavígstöðvum.

Jordan elskar brjóstin á frú Beckham

Breska fyrirsætan Jordan, sem sennilega er þekktust fyrir barm sinn sem þykir bera í bakkafullan lækinn, réðst harkalega að Victoríu Beckham í breskum spjallþætti í gær.

Rífandi stemning á útgáfutónleikum Sprengjuhallarinnar

Það var nær fullt út úr dyrum á útgáfutónleikum Sprengjuhallarinnar í gærkvöldi í Austurbæ. Drengirnir í hljómsveitinni léku á alls oddi og rífandi stemning myndaðist í salnum á meðan þeir fluttu lögin af nýútkominni plötu sinni Tímarnir okkar.

Sjá næstu 50 fréttir