Fleiri
Allt í háaloft hjá Spice Girls 9.10.2007 07:20 Sigur Rós á tjúttinu með McCartney og Minogue Hljómsveitin Sigur Rós var á meðal sigurvegara á hinni mikilsmetnu Q tónlistarverðlaunahátíð sem haldin var í London í dag. Aðrir sigurvegarar á hátíðinni voru til að mynda Kylie Minogue, Amy Winehouse, Arctic Monkeys, Stereophonics, Manic Street Preachers og Paul McCartney. 8.10.2007 16:34 Jón og Eyvi með Cabaret í Kína Þeir Jón Ólafsson og Eyjólfur Kristjánsson fóru um helgina ásamt fríðu föruneyti til Qingdau í Kína þar sem haldið var upp á kaup Eimskipa á 60% hlut í kínverska gámageymslufyrirtækinu Luyi Depot. 8.10.2007 15:33 The Police mögulega með nýja plötu Andy Summers, gítarleikari hljómsveitarinnar The Police, segir ekki útilokað að hann og félagar í hljómsveitinni taki sig til og geri nýja plötu þegar tónleikaferð þeirra lýkur á næsta ári. "Það væri mikil áskorun fyrir okkur að setjast niður og semja eftir öll þessi ár," sagði hinn 64 ára gamli Summers í samtali við blaðamenn í Dublin. 8.10.2007 14:39 Jolie hittir föður sinn á laun Leikarinn Jon Voight sást koma skælbrosandi út af Waldorf Astoria hótelinu í New York á sunnudag en þar dvöldu einnig Angelina Jolie, dóttir hans og sambýlismaður hennar Brad Pitt. Það bendir til þess að þau feðginin hafi náð sáttum en þau hafa ekki talast við síðan Jolie og Billy Bob Thornton skildu árið 2002. 8.10.2007 13:41 Beckham landar milljóna samningi við Cavalli Victoria Beckham hefur landað milljóna samningi við tískukonunginn Roberto Cavalli og mun hann ætla að sjá um að gera klæðaburð kryddpíanna óaðfinnanlegan í væntanlegri endurkomutónleikaferð sem hefst í byrjun desember. 8.10.2007 12:51 Britney sættist við móður sína Í kjölfar þess að Britney Spears missti tímabundið forræði yfir sonum sínum tveimur mun hún hafa leitast eftir sáttum við móður sína. Spears og móðir hennar Lynne voru ávallt nánar en þær hættu að talast við í sumar eftir að Britney afhenti móður sinni bréf með særandi athugasemdum. 8.10.2007 11:17 Myndband við Bohemian Rhapsody talið best Myndband við lagið Bohemian Rhapsody með hljómsveitinni Queen var valið besta tónlistarmyndbandið í nýlegri könnun sem gerð var í Bretlandi. Af þeim rúmlega þúsund sem tóku þátt í könnuninni sögðu 30 % að hið sex mínútna langa myndband með Queen væri best. 8.10.2007 10:56 Moore og Kutcher í uppnámi eftir myndastuld Demi Moore og eiginmaður hennar Ashton Kutcher eru sögð í miklu uppnámi eftir að nektarmyndir úr síma Kutcher komust í umferð. Leikarinn týndi símanum á ferð sinni um Spán í Apríl síðastliðinn og óprúttinn aðili fann hann í aftursæti leigubíls. 8.10.2007 10:28 Sjá næstu 50 fréttir
Mills og McCarntey komust ekki að samkomulagi Hjónin fyrrverandi þau Paul McCartney og Heather Mills náðu ekki samkomulagi á fundi með dómara í London í gær en þau hittust til að freista þess að gera með sér skilnaðarsáttmála. Af þeim sökum hefjast réttarhöld í málinu í febrúar á næsta ári með öllu því fjölmiðlafári fylgir. 12.10.2007 10:39
Dauðaþögn á Holtinu þegar sjálfstæðistoppar gengu í salinn Þeir félagar úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins, Davið Oddsson, Björn Bjarnason, Kjartan Gunnarsson og Hannes Hólmsteinn Gissurrarson áttu saman stund í koníaksstofunni á Hótel Holti í gærkvöldi. Hannes Hólmsteinn segir að sér sé minnisstæðast frá þessu kvöldi að dauðaþögn hafi slegið á matsalinn á Holtinu þegar þeir gengu þar í gegn. 12.10.2007 09:57
Britney fær aukinn umgengnisrétt Hæstaréttardómarinn Scott Gordon hefur fallist á að veita Britney Spears leyfi til að hafa syni sína hjá sér yfir nótt, einn dag í viku. Í byrjun mánaðarins veitti dómarinn Kevin Federline, fyrrverandi eiginmanni Spears, tímabundið fullt forræði yfir sonum þeirra og fékk Spears einungis að hitta þá á daginn undir eftirliti. 12.10.2007 09:22
Mary krónprinsessu líður eins og einstæðri móður Það er oft ekki tekið út með sældinni að vera krónprinsessa og í tilfelli Mary krónprinsessu Dana er það heldur ekki það ævintýri sem af er látið. Vikublaðið Womans Day í Ástralíu segir að hið konunglega par lifi í raun sitthvoru lífinu. 12.10.2007 07:39
Paris breytir lífi pizzasendils Líf Alexander Väggö von Zweigberg frá Svíþjóð hefur breyst til mikilla muna síðan hann kynntist ofurljóskunni Paris Hilton fyrir nokkrum vikum. Hann vann áður fyrir sér sem pizzasendill en landar nú hverjum módelsamningnum á fætur öðrum og er talinn eiga framtíðina fyrir sér á því sviði. 11.10.2007 16:08
Bobby Brown neitar því að hafa fengið hjartaáfall Bandaríski söngvarinn Bobby Brown, sem er hvað þekktastur fyrir að vera fyrrum eiginmaður Whitney Houston, neitar því að hafa fengið vægt hjartaáfall fyrr í vikunni þrátt fyrir að lögfræðingur hans, Phaedra Parks, hafi greint frá því við Associated Press. Hún sagði Brown hafa lagst inn eftir að hafa fengið fyrir hjartað og að læknar hefðu sagt að álagi og mataræði væri um að kenna. 11.10.2007 14:50
Lausgirtur Eriksson með nýja ástkonu Hinn lausgyrti Sven Göran Eriksson gerir það ekki endasleppt í kvennamálunum á Bretlandseyjum. Nú er hann kominn með nýja konu upp arminn, hina 35 ára gömlu athafnakonu Marisu Cauchi. 11.10.2007 14:14
Kveðjum Lundann í Gallerí auga fyrir auga Ljósmyndarinn Damon Younger opnar í dag ljósmyndasýningu í Gallerí auga fyrir auga að Hverfisgötu 35. Sýningin heitir Kveðjum Lundann 2007 eða Puffin Memorial 2007. 11.10.2007 13:19
Oktoberfest á Gauki og Stöng nær hámarki Hinni árlegu októberfest á skemmtistaðnum Gauki á Stöng við Tryggvagötu fer senn að ljúka. Ekkert er þó gefið eftir á lokasprettinum. Í kvöld verður boðið upp á Blúskvöld með Mood, Ragnheiði Gröndal og Johnny And The Rest og opnar húsið klukkan 20. 11.10.2007 12:43
Loststjarna í sex mánaða fangelsi Fyrrum Loststjarnan Michelle Rodriguez var í gær dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir að brjóta skilorð sem hún hlaut fyrir umferðarlagabrot. 11.10.2007 12:05
Lohan komin með snjóbrettagaur upp á arminn Fyrrum vandræðakleikkonan Lindsay Lohan, sem hefur nýlokið við langa og stranga fíkniefnameðferð, hefur nú ákveðið að hefja nýtt og betra líf og er auk þess kominn með nýjan og ferskan kærasta upp á arminn. 11.10.2007 11:41
Clooney er góðmennskan uppmáluð Hinn góðhjartaði hjartaknúsari George Clooney hefur beðið yfirmenn á Palisades Medical Center í New Jersey um að endurskoða þá ákvörðun sína að víkja 40 heilbrigðisstarfsmönnum tímabundið úr starfi fyrir að hafa lekið upplýsingum úr sjúkraskrá hans í fjölmiðla. 11.10.2007 10:46
Útgáfu á breiðskífu Britney flýtt Útgáfudegi Blackout, nýjustu breiðskífu Britney Spears, hefur verið flýtt um tæpar tvær vikur. Platan átti að koma út þann 13. nóvember en verður nú fáanleg þann 30. október. Talsmenn Jive Recors, útgáfufyrirtækis Spears, segja ákvörðunina tekna til að sporna við frekara ólöglegu niðurhali á lögum af plötunni sem lekið hefur verið út á netið. 11.10.2007 09:22
Pamela komin tvo mánuði á leið Pamela á von á barni, samkvæmt heimildum In Touch Weekly, og mun hún vera komin tvo mánuði á leið. Faðirinn er Rick Salomon, fyrrverandi kærasti Parisar Hilton, en hann og Pamela gengu að eiga hvort annað þann 6. október síðastliðinn. 11.10.2007 09:22
Marie var villiköttur í rúminu Danska slúðurblaðið Se og Hör hefur haft uppi á fyrrverandi kærasta Marie Cavallier sem er tilvonandi eiginkona Jóakims prins. Kærastinn er athafnamaðurinn Anthony D. búsettur í Sviss og lætur allt flakka um sambandið við Marie. 11.10.2007 08:01
Sólveig Káradóttir: Mætti með bítlasoninn Dhani til Yoko „Ég vil ekkert tjá mig um þetta og ætli ég haldi mig ekki bara við aðstoðarmanna-söguna,“ segir fyrirsætan og sálfræðineminn Sólveig Káradóttir. Sólveig, sem er dóttir Kára Stefánssonar, forstjóra deCODE, hefur þráfaldlega verið orðuð við Dhani Harrison, son Bítilsins George Harrison og Oliviu Harrison. Þær sögusagnir fengu byr undir báða vængi þegar þau mættu saman í móttöku borgarstjóra Reykjavíkur í Hafnarhúsinu eftir að hafa fylgst með ekkju Johns Lennon, Yoko Ono, kveikja á Friðarsúlunni úti í Viðey. 11.10.2007 07:30
Charlize Theron kynþokkafyllst Tímaritið Esquire hefur útnefnt Óskars- og Golden Globeverðlaunaleikkonuna Charlize Theron kynþokkafyllstu konu heims. 10.10.2007 16:38
Affleck elskar að vera pabbi „Violet dóttir mín er það besta sem hefur komið fyrir mig,“ segir Ben Affleck í samtali við Parade tímaritið. „Hún er hamingjusöm og talar eins og brjálæðingur. Hún fær mig til að brosa gerir mig svo hamingjusaman. Ef ég er ekki í burtu í einhvern tíma get ég ekki hugsað um annað en að komast heim til að vera nálægt henni.“ 10.10.2007 16:08
Jamie Spears vill láta loka dóttur sína inni Jamie Spears, faðir Britney Spears, leggur nú á ráðin, ásamt lögfræðingi sínum, um hvernig sé best að koma Britney aftur í meðferð. Þrátt fyrir að síðasta lyfjapróf söngkonunnar hafi verið neikvætt og að hún hafi mætt á foreldranámskeið þá er faðir hennar enn mjög áhyggjufullur. 10.10.2007 14:50
Von á nýju efni frá Michael Jackson Í bréfi sem Michael Jackson hefur sent til aðdáenda sinna gefur hann í skyn að von sé á nýju efni frá honum næstunni. Síðasta breiðskífa söngvarans, Invicible, kom út árið 2001 en í bréfinu segir hann óvæntra tíðinda að vænta von bráðar. 10.10.2007 13:58
Eignast dóttur kominn hátt á sjötugsaldur Hinn 66 ára gamli leikari Nick Nolte og sambýliskona Clytie Lane, 38, eignuðust í dag litla stúlku. Nolte á fyrir 21 eins árs gamlan son. 10.10.2007 12:54
Lohan ætlar að hefja nýtt líf Lindsay Lohan segir í nýlegu viðtali við tímaritið In Touch Weekly að hún ætli að snúa baki við óheilbrigðu líferni og fara að haga sér eins og fullorðin manneskja. Þetta er í fyrsta skipti sem hún tjáir sig opinberlega eftir að hún lauk meðferð á Cirque Lodge meðferðarheimilinu í Utah. 10.10.2007 11:56
Airwaves á Akureyri Tónleikar í anda Airwaves hátíðarinnar verða haldnir á Græna hattinum á Akureyri laugardagskvöldið 20. október. Á þeim koma hljómsveitirnar Buck65, Plants and Animals, Forgotten Lores og Audio Improvement fram. 10.10.2007 11:23
Hasselhoff fellur Strandvarðarstjarnan David Hasselhoff liggur nú á spítala eftir að hafa fallið. Leikarinn hefur lengi háð baráttu við bakkus en verið þurr í nokkra mánuði. Hann féll fyrir skömmu en um leið og hann áttaði sig á mistökunum setti hann sig í samband við lækna sem lögðu hann inn. 10.10.2007 10:44
Vikið tímabundið úr starfi fyrir að leka upplýsingum um Clooney Allt að 40 heilbrigðisstarfasmönnum á Palisades spítalanum í New Jersey hefur verið vikið tímabundið úr starfi eftir að upplýsingum úr sjúkraskrám leikarans George Clooney var lekið í fjölmiðla. 10.10.2007 10:19
Sutherland í fangelsi Leikarinn Kiefer Sutherland, sem fer með hlutverk Jack Bauer í sjónvarpsþáttaröðinni 24, hefur verið dæmdur í 48 daga fangelsi fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. 10.10.2007 09:23
Randver í sjónvarpið á ný Randver er heiti á þætti, í umsjá Randvers Þorlákssonar, sem hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni ÍNN í næstu viku. 9.10.2007 16:27
Kryddin gera góðverk Kryddpíurnar hafa tekið ákvörðun um að allur ágóði af nýju smáskífu þeirra Headlines renni til góðgerðarmála. Lagið er annað af tveimur sem píurnar hafa tekið upp í tengslum við væntanlega tónleikaferð sína og kemur út þann 19. nóvember næskomandi. 9.10.2007 16:27
Spearssystur í rifrildi úti á götu Birtney Spears og litla systir hennar Jamie Lynn lentu í heldur óskemmtilegu atviki um helgina þegar æst kona réðst að þeim og hellti sér yfir Spears. Systurnar sem höfðu verið að kaupa sér kaffi gengu um götur Malibu umkringdar ljósmyndurum þegar konan birtist. 9.10.2007 15:31
Mills og McCartney ræða milljarða skilnaðarsáttmála Bítillinn Paul McCartney og fyrrverandi eiginkona hans Heather Mills eru sögð ætla á fund hæstaréttardómara á fimmtudaginn næstkomandi til að ganga endanlega frá skilnaði sínum. 9.10.2007 14:18
Wahlberg æfir stíft fyrir boxmynd Leikarinn Mark Wahlberg tekur væntanlegt hlutverk sitt í myndinni The Fighter það alvarlega að hann vaknar klukkan fjögur á morgnanna til að vera mættur í ræktina þegar hún opnar klukkan fimm. 9.10.2007 13:35
Hugh Grant kemur sér í klandur Háskólaár leikarans Hugh Grant eru löngu liðin en um helgina ákvað hann að endurvekja gamlar minningar og fór ásamt fríðu föruneyti ungra meyja í háskólapartý. Hann drakk ótæpilegt magn af ódýru víni, borðaði kalda pizzu og fór í sleik. 9.10.2007 12:07
P. Diddy gengst við 15 mánaða gamalli stúlku Rapparinn Sean P. Diddy hefur viðurkennt að vera faðir hinnar 15 mánaða gömlu Chance. Stúlkan fæddist þegar Diddy var enn í sambúð með Kim Porter. Móðir stúlkunnar heitir hins vegar Sarah Chapman. Því hefur lengi verið haldið fram að Diddy sé faðirinn en hann viðurkenndi það ekki fyrr en niðurstöður DNA-rannsóknar leiddu sannleikann í ljós. 9.10.2007 11:21
Allt á afturfótunum hjá Cruise Mikið af því efni sem búið var að taka upp í tengslum við gerð myndarinnar Valkyrie með, Tom Cruise, er ónothæft og þarf að taka fjölda atriða upp aftur. „Þegar upptökurnar bárust í kvikmyndaver kom í ljós að megnið af efninu var ónýtt eða horfið,“ segir talsmaður framleiðenda í samtali við þýska dagblaðið Bild. 9.10.2007 09:58
Bilet.ro hlýtur verðlaun í Rúmeníu Bilet.ro, dótturfélag Miða.is, sigraði í flokki afþreyingarvefja við afhendingu rúmensku vefviðskiptaverðlaunanna í síðustu viku. Þetta var í annað sinn sem verðlaunin voru afhent og hlaut Bilet.ro verðlaun í flokknum „Besti afþreyingar og frístundavefurinn.“ Alls voru 24 vefir í úrslitum í þeim flokki. 9.10.2007 08:59
Mary grét af afbrýðissemi Danski blaðamaðurinn Trine Willeman hefur skrifað bókina 1015 Köbenhavn K þar sem hún segir af mikilli hreinskilni frá því sem gerist bakvið tjöldin hjá dönsku konungsfjölskyldunni. 9.10.2007 08:12
Sigur Rós á tjúttinu með McCartney og Minogue Hljómsveitin Sigur Rós var á meðal sigurvegara á hinni mikilsmetnu Q tónlistarverðlaunahátíð sem haldin var í London í dag. Aðrir sigurvegarar á hátíðinni voru til að mynda Kylie Minogue, Amy Winehouse, Arctic Monkeys, Stereophonics, Manic Street Preachers og Paul McCartney. 8.10.2007 16:34
Jón og Eyvi með Cabaret í Kína Þeir Jón Ólafsson og Eyjólfur Kristjánsson fóru um helgina ásamt fríðu föruneyti til Qingdau í Kína þar sem haldið var upp á kaup Eimskipa á 60% hlut í kínverska gámageymslufyrirtækinu Luyi Depot. 8.10.2007 15:33
The Police mögulega með nýja plötu Andy Summers, gítarleikari hljómsveitarinnar The Police, segir ekki útilokað að hann og félagar í hljómsveitinni taki sig til og geri nýja plötu þegar tónleikaferð þeirra lýkur á næsta ári. "Það væri mikil áskorun fyrir okkur að setjast niður og semja eftir öll þessi ár," sagði hinn 64 ára gamli Summers í samtali við blaðamenn í Dublin. 8.10.2007 14:39
Jolie hittir föður sinn á laun Leikarinn Jon Voight sást koma skælbrosandi út af Waldorf Astoria hótelinu í New York á sunnudag en þar dvöldu einnig Angelina Jolie, dóttir hans og sambýlismaður hennar Brad Pitt. Það bendir til þess að þau feðginin hafi náð sáttum en þau hafa ekki talast við síðan Jolie og Billy Bob Thornton skildu árið 2002. 8.10.2007 13:41
Beckham landar milljóna samningi við Cavalli Victoria Beckham hefur landað milljóna samningi við tískukonunginn Roberto Cavalli og mun hann ætla að sjá um að gera klæðaburð kryddpíanna óaðfinnanlegan í væntanlegri endurkomutónleikaferð sem hefst í byrjun desember. 8.10.2007 12:51
Britney sættist við móður sína Í kjölfar þess að Britney Spears missti tímabundið forræði yfir sonum sínum tveimur mun hún hafa leitast eftir sáttum við móður sína. Spears og móðir hennar Lynne voru ávallt nánar en þær hættu að talast við í sumar eftir að Britney afhenti móður sinni bréf með særandi athugasemdum. 8.10.2007 11:17
Myndband við Bohemian Rhapsody talið best Myndband við lagið Bohemian Rhapsody með hljómsveitinni Queen var valið besta tónlistarmyndbandið í nýlegri könnun sem gerð var í Bretlandi. Af þeim rúmlega þúsund sem tóku þátt í könnuninni sögðu 30 % að hið sex mínútna langa myndband með Queen væri best. 8.10.2007 10:56
Moore og Kutcher í uppnámi eftir myndastuld Demi Moore og eiginmaður hennar Ashton Kutcher eru sögð í miklu uppnámi eftir að nektarmyndir úr síma Kutcher komust í umferð. Leikarinn týndi símanum á ferð sinni um Spán í Apríl síðastliðinn og óprúttinn aðili fann hann í aftursæti leigubíls. 8.10.2007 10:28