Fleiri fréttir

Fótbolta-barna-sprengja

Heimsmeistarakeppnin í fótbolta sem haldin var í Þýskalandi sl. sumar hefur leitt af sér mikla fjölgun væntanlegra fæðinga. Yfirbókanir eru á fæðingardeildum um allt landið í apríl þegar mæður "fótboltabarnanna" eiga von á sér. Sömu sögu er að segja af fæðingarnámskeiðum sem eru fullbókuð. Barbara Freischuetz ljósmóðir í Köln sagði að margar mæðranna segðu að börnin væru "minjagripir" frá Heimsmeistarakeppninni.

Með 70 grafir í bakgarðinum

Serbneskur maður vill breyta heimili sínu í kirkju þar sem fjöldi nágranna hans og vina eru grafnir í bakgarðinum. Fyrir tíu árum sótti Dragan Djordjevic frá þorpinu Grbavce um leyfi til að skrá garðinn sinn sem kirkjugarð svo hann gæti jarðað móður sína þar, en hún var þá nýlátin. Næsti kirkjugarður var of langt í burtu.

Anna Nicole Smith vildi deyja

Skömmu fyrir andlát sitt sagði fyrirsætan Anna Nicole Smith vinkonu sinni að lífið væri að buga sig. „Ég get ekki haldið áfram, lífið er að drepa mig,“ sagði Anna grátandi í símtali. Hún var undir áhrifum fjölda lyfja en mikil lyfjaneysla hafði sett sitt mark á hana. Anna hringdi í vinkonu sína skömmu eftir að hún kom á hótelið í Flórída þar sem hún lést 48 klukkustundum síðar.

Fréttir af fólki

Söngkonan Celine Dion ætlar að flytja lagið I Knew I Loved You á næstu óskarsverðlaunahátíð, sem verður haldin í Los Angeles 25. febrúar. Lagið er tileinkað ítalska tónskáldinu Ennio Morricone, sem fær afhentan heiðursóskar á hátíðinni.

Gifting á Hawaii

Tvær af stjörnum sjónvarpsþáttarins vinsæla Lost, þau Dominic Monaghan og Evangeline Lilly, ætla að gifta sig í júlí. Monaghan, sem leikur Charlie, og Lilly, sem leikur Kate, hafa átt í ástarsambandi undanfarin misseri og vilja nú ganga upp að altarinu. Athöfnin verður látlaus og mun fara fram á meðan þau eru í sumarfríi frá tökum á Lost. Athöfnin fer fram á Hawaii, þar sem ástarblossinn á milli þeirra kviknaði við tökur á þættinum.

Langar að ættleiða

Jessicu Simpson langar að feta í fótspor Angelinu Jolie og ættleiða börn. Í viðtali við breska tímaritið Star sagðist söngkonan vilja eignast stóra fjölskyldu, en að hún óttaðist að hún gæti ekki afborið fæðingu oftar en einu sinni. „Mig langar í þrjú börn, en ég veit ekki hvort ég get fætt þrisvar.

Átta ár eru ágætis törn

Bjarni Daníelsson lætur af störfum sem óperustjóri Íslensku óperunnar í lok þessa starfsárs í júní næstkomandi.

Lýðræðið nema hvað?

ReykjavíkurAkademían, félag sjálfstætt starfandi fræðimanna, gengst fyrir hádegisfundaröð um lýðræði og sam-félag nú í aðdraganda kosninganna. Yfirskrift fundanna er „Lýðræði hvað?“ og verður þar rætt á gagnrýninn máta um ýmis brýn samfélags- og lýðræðismál.

Hanna Björk talar frá Teheran: Á slóðum Alexander mikla

Ég gleymi stundum hvað Íran er ævafornt land, hvað menningin er rík og fáguð og hvað gamla Persía var mikið heimsveldi áður, þegar hún náði yfir öll Mið-Austurlönd, hluta af Afríku og alla leið til Indlands. 4000 ára saga þessa lands skiptist í mörg tímabil velmegunar og hnignunar, þrjú heimsveldi Persíu, konungsveldi og klerkaveldi.

Úr sveppunum í sollinn

„Ég ætla að gera sem allra minnst. Laga klósettaðstöðuna og gera barinn huggulegri. En ég ætla að reyna að halda sama andanum. Halda í gamla kúnna og fá helst aðra nýrri,“ segir Ragnar Kristinn Kristjánsson fyrrverandi Flúðasveppagreifi. Hann hefur nú keypt sér Næsta bar við Ingólfsstræti.

Af skurðstofunni í Kauphöllina

Ingunn Wernersdóttir er fædd árið 1964, næstyngst fimm systkina og fékk smjörþefinn af viðskiptalífinu í heimreiðinni en faðir hennar er Werner Rasmusson, einn af mest áberandi karakterum atvinnulífsins hér á árum áður. Werner er lyfjafræðingur að mennt og starfaði hann á árum áður í ýmsum apótekum auk Pharmaco og var framkvæmdastjóri fyrirtækisins í mörg ár og síðar stjórnarformaður.

Skrautlegt líf Playboy-kanínu

Fyrrverandi Playboy-kanínan Anna Nicole Smith lést á fimmtudagskvöldið. Hún fannst látin á Seminole Hard Rock Casino sem staðsett er rétt fyrir utan Miami.

Fréttir af fólki

Kevin Costner og eiginkona hans Christine Baumgartner eiga von á sínu fyrsta barni saman. Eru þau vitaskuld mjög spennt og geta varla beðið eftir frumburðinum. Costner kvæntist Christine í september árið 2004.

Elle lifir skírlífi

Hún er falleg, farsæl og viðurnefni hennar – líkaminn – á sannarlega vel við. En það virðist ekki hjálpa Elle Macpherson að finna ástina. Í viðtali við Esquire tímaritið sagði hún að fyrir utan stutt ástarævintýri síðasta sumar hafi hún verið einhleyp og lifað skírlífi síðustu tvö ár. “Menn reyna bara ekki við mig. Hversu glatað er það?”

Graskersbaka gerði útslagið

Rússneskur maður skildi við eiginkonu sína til 18 ára eftir að komast að því að hún hafði gefið honum ódýr grasker í staðinn fyrir kúrbít. Ivan Dimitrov, 47, var niðurbrotinn eftir að hann komst af því að hafa fengið graskersbökur í staðinn fyrir kúrbítsbökur. Dimitrov er frá Voronezh í Rússlandi. Þegar hann fór að finna graskersbörk í ruslinu réði hann umsvifalaust lögmann til að fá skilnað sem fyrst við konu sína, hina 38 ára gömlu Irenu.

Niðurstöðu krufningar beðið

Niðurstöðu krufningar á líki leikkonunnar og Playboy fyrirsætunnar Önnu Nichole Smith er nú beðið. Vonast er til að hún leiði í ljós hvort dauða hennar bar að með eðlilegum hætti eða ekki. Smith fannst meðvitundarlaus á hótelherbergi í Flórída en var úrskurðuð látin á sjúkrahúsi eftir að lífgunartilraunir báru ekki árangur.

Britney forðast Paris eins og plágu

Partýprinsessurnar Britney Spears og Paris Hilton hafa æ oftar sést saman undanfarið en það virðist sem vináttusamband þeirra sé farið forgörðum. Þær eru báðar á tískuvikunni í New York og höfðu áform um að fara á Heatherette tískusýninguna. Það varð þó ekki af því. Þær hættu báðar við að mæta af ótta við að rekast á hvora aðra, samkvæmt heimildum New York Daily News.

Þátttakendur í X-Factor vekja athygli

Úrslitakeppnin er komið á fulla ferð og má með sanni segja að X-Factor-æðið sé hafið fyrir alvöru. Það kom mörgum á óvart þegar systkinin Hans Júlíus og Ásdís Rósa Þórðarbörn, sem skipa dúettinn Já, féllu úr keppni í síðasta þætti, sérstaklega í ljósi þess að dómararnir höfði verið á einu máli um og haft sérstaklega á orði í fyrsta þættinum hversu miklir listamenn þau væru og að þau hefðu þá staðið sig einna best af öllum.

Britney dömpað símleiðis

Kærasti Britney Spears, Isaac Cohen, sagði henni upp símleiðis á sunnudagskvöld. Þetta staðfestir Brandi Lord, umboðsmaður Isaac á fyrirsætuskrifstofunni L.A. Models, en Isasc starfar sem fyrirsæta. Britney og Isaac kynntust í gegnum danshöfund Britneyar og byrjuðu að hittast um miðjan desember. Er Isaac fyrsti maðurinn sem Britney er með eftir skilnaðinn við dansarann Kevin Federline, þann 7. nóvember síðastliðinn.

Katie fannst hún valdamikil eftir fæðinguna

Leikkonan knáa, Katie Holmes, sem eignaðist sitt fyrsta barn í apríl síðastliðnum, segir að það að eignast barn hafi látið hana finnast hún valdamikil. ,,Ég er svo stollt yfir því að hafa eignast barn. Það gerði mig nánari öðrum konum, systrum mínum og móður minni. Eftir fæðinguna fannst mér ég valdamikil. Ég var búin að fæða barn. Ég gerði það! Þá er ekkert sem ég ræð ekki við,” sagði Katie í viðtali við Harper’s Bazaar.

Óborganlegar tölvu-fyrirspurnir

Breska símafyrirtækið BT hefur gefið út undarlegustu fyrirspurnir sem starfsfólk í þjónustuveri fyrirtækisins hefur fengið frá viðskiptavinum í sambandi við tölvur. Anthony Vollmer yfirmaður nettengingarmála BT sagði að í sumum tilfellum ætti starfsfólkið erfitt með að halda aftur af brosinu. Hér eru nokkur dæmi:

Apple-deilan leyst

Tölvufyrirtækið Apple hefur náð samkomulagi við Bítlana vegna deilu yfir notkun á nafninu Apple. Tölvufyrirtækið mun öðlast fullan rétt á vörumerkinu Apple. Mun fyrirtækið starfa með fyrirtæki Bítlanna og aðstoða það við áframhaldandi notkun nafnsins Apple, en á annan hátt en áður.

Affleck hættur að reykja

Ben Affleck hætti að reykja eftir að hann lék í nýjustu mynd sinni, Smokin‘ Aces. Í myndinni leikur hann mann sem vinnur við að leysa fólk út úr fangelsi gegn tryggingu. Sá er keðjureykingamaður og segist Affleck hafa fengið nóg af sígarettum í kjölfarið. „Ég reykti svona fimm pakka á dag meðan á tökum stóð. Eftir það fékk ég bara nóg, mig langaði ekki í fleiri sígarettur og hætti,“ segir hinn 34 ára gamli Affleck.

Erfitt þegar Nick byrjaði með nýrri

Brjóstgóða bomban Jessica Simpson segist hafa fengið sting í hjartað þegar fyrrverandi eiginmaður hennar, Nick Lachey, byrjaði með MTV-stjörnunni Vanessu Minnillo. „Auðvitað, hann fór strax á stúfana aðeins þremur vikum seinna og það fékk mjög mikið á mig,“ sagði Simpson en stórt viðtal birtist við hana í nýjasta hefti Elle.

Fleiri kærur á Doherty

Enn hefur bæst á langan afbrotalista rokkarans Pete Doherty þegar honum var tilkynnt í vikubyrjun að hann þyrfti að mæta fyrir dómara vegna umferðarlagabrota. Pete, sem er 27 ára gamall, hefur verið kærður fyrir ýmis umferðarlagabrot. Þar á meðal að vera ekki með ökuskírteini og vera ekki tryggður.

Hans J. Wegner er látinn

Einn virtasti húsgagnahönnuður Danmerkur, Hans J. Wegner, er látinn, 92 ára að aldri. Wegner var eitt af stóru nöfnunum í danskri húsgagnahönnun og var einkum þekktur fyrir stóla sína sem voru frábærlega byggðir og jafnfram byltingarkenndir í útliti.

Katie vill fleiri börn

Leikkonan Katie Holmes segist vilja eignast fleiri börn með eiginmanni sínum Tom Cruise. Katie, sem er 28 ára, leið afar vel á meðgöngunni, fann til að mynda aldrei fyrir morgunógleði, og segir það eiga stóran þátt í að hún vilji eignast fleiri börn.

Skelfilegt að verða átján

„Ég er eiginlega bara feginn, nú fer fólk kannski að taka mann alvarlega,“ segir Ívar Örn Sverrisson leikari um hvernig það leggst í hann að vera orðinn þrítugur.

Sökuð um rasisma

Enn eitt sláandi myndband með Paris Hilton í aðalhlutverki hefur birst á netinu, en það er þó annars eðlis en myndböndin sem vakið hafa hvað mesta athygli á hótelerfingjanum.

Boðið nýtt starf

Einum virtasta upptökustjóra heims, Rick Rubin, hefur verið boðin staða sem aðstoðarformaður plötufyrirtækisins Columbia Records.

Veitingastað lokað

Nýr veitingastaður leikarans Paul Newman, The Dressing Room, varð fyrir miklu vatnstjóni eftir að lagnir gáfu sig.

Mariah veit ekki hver J.Lo er

Söngdívan Mariah Carey kveðst ekki þekkja til söngkonunnar Jennifer Lopez. Þetta kom fram í viðtali á þýskri sjónvarpsstöð samkvæmt heimildum MSNBC. Þegar Mariah var spurð um álit sitt á Beyonce þá sagði Mariah hana vera fallega, góða og hæfileikaríka. Þegar samtalið beindist að Jennifer þá breyttist skyndilega málrómurinn.

Jessica Simpson tjáir sig um Nick Lachey

Söngkonan Jessica Simpson segir að það hafi sært sig að sjá fyrrum eiginmann hennar, Nick Lachey með annarri konu eftir skilnaðinn. Nick sást fyrst með Laguna Beach stjörnunni Kristin Cavallari en hann hefur verið að hitta Vanessu Minnillo, þáttastjórnanda á MTV, undanfarna mánuði. Segir Jessica frá þessu í viðtali við tímaritið Elle.

Justin og Scarlett láta vel hvort að öðru

Hjartaknúsarinn Justin Timberlake er sannarlega að lifa lífinu þessa dagana. Hann og leikkonan Caemeron Diaz eru nýhætt saman eftir tveggja ára samband og er Justin greinilega kominn á markaðinn aftur. Í síðasta mánuði var hann að hitta kynbombuna Jessicu Biel en nú virðist hann hafa snúið sér að annarri leikkonu, henni Scarlett Johansson.

Skólahreysti

Þriðju og fjórðu riðilar í keppni grunnskóla um Skólahreysti fara fram fimmtudaginn 8. febrúar. Þriðji riðill byrjar kl. 16:00 og líkur kl. 17:30 en fjórði riðill byrjar kl. 19:00 og líkur kl. 20:30. Fer keppnin fram í íþróttahúsi Breiðabliks í Smáranum og eru allir velkomnir og er aðgangur ókeypis.

Í haldi tískulöggu?

Lost leikkonan fyrrverandi, Michelle Rodriguez, er sannkallaður húmoristi. Hún var tekin fyrir ölvunarakstur á Hawaí í fyrra og þurfti að dúsa í fangelsi vegna þessa. Hún virðist þó hafa húmor fyrir því. Michelle mætti á tískusýningu Marc Jacobs á tískuvikunni í New York í gærkvöldi. Þar var hún íklædd hvítum kjól, en það var ekki kjóllinn sem vakti hvað mesta athygli.

Bond í vandræðum með að leggja

Kvikmyndaleikarinn Daniel Craig veldur nú kætingi í Hollywood - með tilraunum sínum til að leggja nýjum bíl almennilega. Breska dagblaðið The Sun segir að James Bond stjarnan hafi keypt einn stærsta jeppa á götum Los Angeles og nágrannar leikarans segja hann vera í vandræðum með að leggja 2,5 tonna Cadillac Escalade bifreiðinni við gangstéttarbrúnina.

Líkamsræktarstöð fyrir strípalinga

Líkamsræktarstöð í Hollandi ráðgerir nú að bjóða æfingatíma fyrir striplinga á sunnudögum. Hollenska nektarfélagið segir að stöðin í Heteren verði fyrsta stöðin í landinu sem kemur til móts við strípalinga. Eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Patrick De Man segir að fólk beri sig þegar það fari í sauna; “Af hverju ekki í tækjunum?”

Svínheppnir gæludýraeigendur

Smásvín seljast nú eins og heitar lummur í Kína. Ástæðan er sú að árið 2007 hefst ár svínsins samkvæmt kínversku ártali og trúa eigendur dýranna að þeim fylgi heppni af þeim sökum. Á fréttavef Ananova kemur fram að eigandi gæludýrabúðar á Guangzhou markaði í Nanchang í austurhluta Kína selji að meðaltali 20-30 smásvín á dag.

Erfiðasti tíminn fyrir Philippe

Leikarinn Ryan Philippe hefur tjáð sig um skilnaðinn við fyrrum eiginkonu sína, leikkonuna Reese Witherspoon. Hann segir að skilnaðurinn hafi reynst erfiðasta verkefni lífs síns. Slúðurblöð og sjónvarpsþættir um stjörnurnar vestanhafs veltu sér upp úr endalokum gullnu leikarahjónanna í Hollywood.

Illur fengur

Hugmyndaríkur ræningi í New Jersey, í Bandaríkjunum, kom inn í matvörubúð, lagði tuttugu dollara seðil á afgreiðsluborðið og bað um skiptimynt. Afgreiðslumaðurinn varð við þeirri beiðni, en þegar hann hafði opnað peningakassann, dró ræninginn upp byssu og heimtaði alla peningana.

Unaður skrifræðisins

Samkvæmt nýjum reglum um félagslegar íbúðir í Þýskalandi, er gert ráð fyrir ákveðnu plássi fyrir hvern íbúa sem er á framfæri hins opinbera. Gallinn er sá að það eru ekki til nógu margar litlar íbúðir til þess að mæta þessari minnkuðu plássþörf.

Óvissa við Efstaleiti

„Nú er í gangi ferli þar sem menn segja til um hvort þeir kjósi að vinna hjá hinu nýja félagi eða ekki. Í samræmi við það sem gert er ráð fyrir í lögum er öllum boðið sama starf og þeir höfðu,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri.

Júníformklæði rokseljast

„Þetta er smá ástand, svona jákvætt vandamál,“ sagði Birta Björnsdóttir, fatahönnuðurinn að baki Júníform, innt eftir gangi mála í búðinni á Hverfisgötunni. Eftir að Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir kynnti Söngvakeppni sjónvarpsins í fatnaði frá Júníform varð sprengja í eftirspurn eftir fötum frá merkinu.

Knoxville skilinn

Johnny Knoxville, einn af gröllurunum úr þáttunum Jackass, er skilinn við eiginkonu sína Melanie eftir ellefu ára hjónaband. Þau eiga saman dótturina Madison sem er tíu ára. Orðrómur hafði verið uppi um að Knoxville hefði haldið framhjá henni nokkrum sinnum, þar á meðal með Jessicu Simpson. Neituðu þau hjón ávallt þeim sögusögnum.

Sjá næstu 50 fréttir