Lífið

Anna Nicole Smith vildi deyja

Anna Nicole Smith var lífsglöð og hress þegar sá gállinn var á henni. Undir það síðasta var þó allur lífsneisti farinn úr henni.
Anna Nicole Smith var lífsglöð og hress þegar sá gállinn var á henni. Undir það síðasta var þó allur lífsneisti farinn úr henni. MYND/Getty

Skömmu fyrir andlát sitt sagði fyrirsætan Anna Nicole Smith vinkonu sinni að lífið væri að buga sig. „Ég get ekki haldið áfram, lífið er að drepa mig,“ sagði Anna grátandi í símtali. Hún var undir áhrifum fjölda lyfja en mikil lyfjaneysla hafði sett sitt mark á hana. Anna hringdi í vinkonu sína skömmu eftir að hún kom á hótelið í Flórída þar sem hún lést 48 klukkustundum síðar.

„Anna var í hræðilegu ástandi. Líf hennar var reyndar aldrei einfalt en þegar hún hringdi þarna var eitthvað öðruvísi en venjulega. Ég var virkilega hrædd um hana. Hún hafði verið með sjálfseyðingarhvöt í mörg ár og tekið ógrynni af lyfjum. Þarna var augljóst að hún vildi deyja,“ sagði vinkona hennar við News of the World.

Anna Nicole hafði áhyggjur af mörgu undir það síðasta í lífi sínu. Hún syrgði enn tvítugan son sinn sem lést í september eftir ofneyslu eiturlyfja. Það gerðist aðeins þremur dögum eftir að Anna fæddi dóttur sína sem nú er deilt um faðernið á. Þrír hafa gefið sig fram sem líklegir feður en möguleiki er á að Anna hafi notað fryst sæði úr fyrrverandi eiginmanni sínum, auðmanninum J. Howard Marshall, til að styrkja kröfu sína um að erfa auðævi hans.

Þá átti Anna yfir höfði sér lögsókn vegna ásakana um að megrunarpillur sem hún auglýsti gerðu ekkert gagn.

Dánarorsök Önnu liggur ekki fyrir. Ekki mun hafa verið um of stóran skammt lyfja að ræða en líklegt er talið að aukaverkanir af lyfjaneyslu hennar hafi dregið hana til dauða. „Anna tók lyf eins og annað fólk drekkur vatn. Ég veit ekki hvort hún framdi sjálfsmorð en hún vildi deyja. Kannski sagði líkami hennar að nú væri nóg komið,“ sagði vinkona hennar. Anna reyndi að fremja sjálfsmorð í fyrra eftir að sonur hennar dó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.