Lífið

Skelfilegt að verða átján

Ívar Örn Sverrisson.  Honum finnst gaman þegar hann á afmæli en fannst hann orðinn fjarskalega gamall þegar hann varð átján ára.
Ívar Örn Sverrisson. Honum finnst gaman þegar hann á afmæli en fannst hann orðinn fjarskalega gamall þegar hann varð átján ára.

„Ég er eiginlega bara feginn, nú fer fólk kannski að taka mann alvarlega,“ segir Ívar Örn Sverrisson leikari um hvernig það leggst í hann að vera orðinn þrítugur.

Ívar var ekki búinn að skipuleggja neina afmælisveislu þegar Fréttablaðið sló á þráðinn. „Ég er í smá veseni. Ég bý í Reykjavík en er að vinna á Akureyri og er upptekinn allar helgar fram í mars. Mig langar hins vegar virkilega að halda upp á þessi tímamót þannig ég fresta þeim ábyggilega um mánuð.“ Hann fær auk þess gráupplagt tækifæri til að halda tvisvar upp á daginn.

„Ég hef kynnst svo mörgu skemmtilegu fólki fyrir norðan og verð ábyggilega að halda veislu þar líka.“ Ívar er þó ekki fjarri sínum nánustu á sjálfan afmælisdaginn. „Við erum að taka upp síðustu tíu þættina af Stundinni okkar og ég verð í Reykjavík fram á fimmtudag þannig ég verð í faðmi fjölskyldunnar í dag að minnsta kosti.“

Ívari Erni finnst alltaf gaman að fagna þegar hann á afmæli en man hins vegar þá tíð þegar svo var ekki. „Þegar ég varð átján ára fannst mér ég orðinn ofboðslega gamall,“ segir hann og hlær. „Ég var hálf þunglyndur allan daginn. Mamma og pabbi gáfu mér lampa. Þetta var fyrsti húsmunurinn sem ég fékk í afmælisgjöf og mér fannst það skelfilegt! En ég jafnaði mig og hef fagnað öllum afmælum síðan.“

Leikarinn segist una hag sínum vel á Akureyri, þar sem hann leikur með Leikfélagi Akureyrar í sýningunni Svartur köttur, og segist farinn að venjast flakkinu sem því fylgir. „Það eru margir kostir við þetta, til dæmis lærir maður að nota tímann vel. Svo er líka auðvitað gaman að leika í skemmtilegri sýningu með skemmtilegu fólki.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.