Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný bardagaíþrótt fyrir hvern sem er „Hapkido er bardagalist ættuð frá Kóreu og að mörgu leyti náskyld taekwondo og aikido. Það má líkja þessu við innanhúsfótbolta og utanhúsfótbolta, eiginlega sama íþróttin en öðruvísi reglur, aðferðir og spilamennska,“ segir Sigursteinn Snorrason, yfirþjálfari Hapkido Iceland, sem er nýkominn heim frá Kóreu þar sem hann bjó og vann sem taekwondo-þjálfari. 21.7.2012 13:00
Læðan Tsuki komst heim eftir tæpt ár á vergangi „Ég varð mjög hissa því ég var orðin vonlaus um að hún mundi nokkurn tímann skila sér og eiginlega búin að taka það í sátt að hún væri horfin að eilífu. Við áttum annan kött sem hafði horfið sporlaust og því vorum við ekki vongóð um að Tsuki mundi finnast,“ segir Karólína Vigdís Ásgeirsdóttir sem endurheimti nýverið læðuna Tsuki sem hafði horfið sporlaust af heimili sínu í september í fyrra. 21.7.2012 13:00
Emmy-tilnefningarnar koma fæstum á óvart Tilnefningar til Emmy-verðlaunanna voru tilkynntar á fimmtudag. Sjónvarpsþættirnir Mad Men og American Horror Story fengu flestar tilnefningar í ár. Mad Men og American Horror Story fengu sautján tilnefningar hvor. Einnig vakti athygli að allir karlleikarar Modern Family voru tilnefndir til verðlaunanna í ár. Tilnefningarnar koma líklega fáum á óvart enda eru tilnefndir þættir með þeim vinsælustu í dag. 21.7.2012 09:00
Skrímslin, Nemó og Viddi aftur á tjaldið? Sögur herma að framhaldsmynd um fiskinn vinalega hann Nemó sé væntanleg á hvíta tjaldið innan skamms. Samkvæmt fréttamiðlinum Telegraph hefur leikstjórinn Andrew Stanton verið fenginn til að leikstýra ævintýrinu öðru sinni en hann leikstýrði einnig fyrri myndinni, Finding Nemo, sem kom út árið 2003. Sú mynd halaði inn um 200 milljarða króna auk þess sem hún vann til Óskarsverðlauna. Þá er einnig verið að vinna í þrívíddarútgáfu af Finding Nemo og kemur sú mynd út á undan framhaldsmyndinni. 20.7.2012 16:00
Saman á ný Drengjasveitin Backstreet Boys vinnur að sinni fimmtu plötu og er þetta í fyrsta sinn sem allir meðlimir sveitarinnar koma saman í hljóðveri síðan árið 2005. 20.7.2012 16:00
Grillmarkaðurinn með besta borgarann „Við erum alveg geigvænlega hrifin af borginni og okkar hlutverk er meðal annars að benda lesendum á hluti sem þeir ættu að prófa,“ segir Haukur S. Magnússon, annar ritstjóri tímaritsins Reykjavík Grapevine, sem gaf út sitt fjórða árlega „Best í Reykjavík“ tölublað á dögunum. Þar hljóta sjötíu staðir og fyrirbæri lof fyrir að vera bestir á sínu sviði. 20.7.2012 14:00
Connelly mætt á svæðið Ben Stiller yfirgaf landið seinni partinn í gær en hann er væntanlegur aftur á næstunni. Stiller og félagar héldu partí þar sem veitingastaðurinn La Primavera var áður til húsa á miðvikudagskvöld. Fjölmörgum föngulegum stúlkum var boðið og gleðin stóð yfir langt fram á nótt. En það er skammt stórra högga á milli á Íslandi og Hollywood-stjarnan Jennifer Connelly kom til landsins í gærkvöldi. Hún leikur konu Nóa í mynd Darrens Aronofsky um athafnasama smiðinn, sem leikinn er af Russell Crowe. Tökur hefjast innan skamms rétt eins og á mynd Ben Stillers, The Secret Life of Walter Mitty. 20.7.2012 11:00
Klippa allan daginn fyrir hjartað "Pabbi minn fékk hjartaáfall fyrir tveimur vikum síðan. Ég ætlaði að halda klippi-maraþonið upp á gamanið en ákvað að snúa þessu yfir í góðgerðarmál,“ segir Emil Ólafsson, annar eigandi hársnyrtistofunnar Sjoppunnar sem stendur fyrir klippingum gegn frjálsum framlögum og sumargleði í Hjartagarðinum til styrktar Hjartaheill í dag. 20.7.2012 10:30
Bíður svars frá konunni með schaefer-hundinn "Það sendi mér kona skilaboð á Facebook í gær og sagðist vera vinkona þeirrar sem ég væri að leita að. Hún sendi mér upplýsingar um hana og ég er búin að senda henni póst,“ segir Oddbjørn Skjerdal, sem leitar íslenskrar draumadísar sem hann hefur rekist á tvívegis í heimsóknum sínum hingað til lands. 20.7.2012 10:00
Það er helgi annan hvern mánudag á Prikinu "Þetta er bara eitt það steiktasta sem ég hef lent í í þessum bransa," segir Finni á Prikinu um Mánudagsklúbbinn sem kemur saman á Prikinu annan hvern mánudag. 19.7.2012 14:54
Sólóplata og opinberun Frank Ocean sendi frá sér plötuna Channel Orange þann 10. júlí. Platan þykir stórvirki innan R‘n‘B-tónlistarstefnunnar. 19.7.2012 16:00
Siggi Hlö þeytir skífum á Sardiníu „Maður er bara heimsfrægur, það er bara svoleiðis,“ segir plötusnúðurinn Siggi Hlö sem er staddur á Sardiníu á Ítalíu þar sem hann þeytir skífum í brúðkaupi næstkomandi laugardag. 19.7.2012 15:00
Hálfíslenskur John Grant fær þakkir fyrir að vera til „Þetta er búið að vera mjög gaman, allavega upp á síðkastið,” segir hinn hálfíslenski John Harmon Grant um þá upplifun sína að bera sama nafn og þekkti tónlistarmaðurinn John Grant, sem hefur verið búsettur hér undanfarna mánuði og er mörgum kunnugur. 19.7.2012 14:00
Gefur sjálfur 100 þúsund „Ég setti mér það markmið að reyna að safna hálfri milljón og ef það tekst ætla ég sjálfur að gefa 100.000 krónur í viðbót,“ segir Björn Bragi Arnarsson, sem hleypur til styrktar Krabbameinsfélaginu í Reykjavíkurmaraþoninu 18. ágúst. 19.7.2012 13:00
Breytt rokk úr Breiðholtinu frá fyrrum björtustu voninni Önnur breiðskífa Sudden Weather Change kemur út á miðvikudaginn og er margt spennandi í vændum hjá sveitinni sem ferðast vestur um haf með haustinu. 19.7.2012 10:00
Vinnur með stórlaxi í bandarísku sjónvarpi „Það er rosalega skemmtilegt að taka þátt í þessu, þetta er eins og að fara í sumarbúðir í vinnunni sinni,“ segir Björn , sem leikur í fyrsta þættinum í nýrri amerískri þáttaröð, Transporters. 18.7.2012 14:00
Flea á Íslandi Vart er þverfótað fyrir erlendum stórstjörnum á landinu um þessar mundir. Fjölmiðlar hafa greint frá ferðum Bens Stiller og Russells Crowe, en þeir fara með aðalhlutverkin hvor í sinni stórmyndinni, sem verða teknar upp að hluta hér á landi á næstunni. Í gær birti svo enginn annar en Flea, bassaleikari hljómsveitarinnar Red Hot Chili Peppers, mynd af sér á Íslandi á vefsíðunni Twitter. Skilaboðin sem fylgdu myndinni voru stutt en hnitmiðuð: „Ó Ísland". 18.7.2012 11:00
Stolið rúntar með rokkgoði „Við vorum með hetjuna fram í allan tímann sem var ansi hressandi,“ segir Kristinn Jón Arnarsson, bassaleikari hljómsveitarinnar Stolið, um myndband við splunkunýtt lag sem nefnist Dagurinn. 18.7.2012 10:00
Lopez hyggst leika meira Söng- og leikkonan Jennifer Lopez hætti sem kunnugt er sem dómari í raunveruleikaþættinum American Idol í síðustu viku. Hún segist í nýlegu viðtali ætla að halda áfram að einbeita sér að tónlistinni, ásamt því að koma sér aftur í kvikmyndir. 17.7.2012 17:00
Leggja undir sig Eyrarbakka „Myndin verður tekin upp 99% á Íslandi og þá aðallega á Eyrarbakka, en þó aðeins í Reykjavík líka,“ segir Anna G. Magnúsdóttir, framleiðandi sænsku myndarinnar Hemma. 17.7.2012 16:00
Kjartan spilar fyrir Kjartan í tónleikaferð Sigur Rósar „Við erum að gera okkar besta til að fylla í skarðið fyrir Kjartan á þessum túr,“ segir Kjartan Dagur Holm sem spilar fyrir nafna sinn á tónleikaferðalagi Sigur Rósar en sveitin fer út næstkomandi sunnudag. 17.7.2012 15:00
Innrásin frá Hollywood Ljóst er að brostið hjarta leikarans Toms Cruise mun ekki fæla erlent kvikmyndagerðarfólk frá landinu. 17.7.2012 14:00
Heppnastur í heimi Söngvarinn Elton John játaði að hafa á sínum yngri árum stundað kynlíf í gríð og erg án þess að nota verjur. Þetta var í viðtali við Matt Lauer sem sýnt verður á NBC-sjónvarsstöðinni í dag og á morgun. 17.7.2012 13:00
Hannar eigin fatalínu Rihanna er ekki við eina fjölina felld; hún lék í sinni fyrstu kvikmynd á árinu og nú hyggst hún hanna fatalínu fyrir tískumerkið River Island. „Mig hefur lengi langað að hanna mína eigin fatalínu. River Island er hinn fullkomni samstarfsaðili og mér þótti eftirsóknarvert að vinna með bresku, fjölskyldureknu fyrirtæki,“ sagði Rihanna í tilkynningu um málið. „London veitir mér innblástur og River Island hannar skemmtilegan fatnað. Ég hlakka til að vinna með þeim og skapa eitt og annað alveg sérstakt.“ Áætlað er að fatalína Rihönnu komi í verslanir vorið 2013. 17.7.2012 11:00
LungA alþjóðlegri og fjölmennari í ár Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, LungA, er nú haldin í þrettánda sinn á Seyðisfirði. Vikulöng gleðin hófst með opnunartónleikum síðastliðið sunnudagskvöld og að sögn Berglindar Sunnu Stefánsdóttur, tónlistarstjóra LungA, er hátíðin í ár fjölmennari og alþjóðlegri en áður. 17.7.2012 10:43
Uma eignaðist dóttur Leikkonan Uma Thurman eignaðist dóttur með unnusta sínum, viðskiptamanninum Arpad Busson. Stúlkan fæddist á mánudag og heilsast móður og barni vel að sögn talsmanns Thurman. 17.7.2012 09:00
Goðsögn spilar teknó fyrir útvalda "Fáum hefur tekist jafn vel að teknó-væða mannfólkið eins og Dave Clarke,“ segir Arnviður Snorrason betur þekktur sem Addi Exos. Hann er meðal skipuleggjenda framkomu eins frægasta teknó-plötusnúð heims á Þýska barnum næsta laugardagskvöld. 16.7.2012 11:00
Óskar eftir sögum venjulegs fólks Lene Stæhr, dönsk heimildarmyndagerðakona, vinnur að þríleik í samstarfi við danska ríkissjónvarpið sem fjallar um líf fólks í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi. Stæhr leitar nú að söguefni hér á Íslandi og henni þykir ekkert viðfangsefni of stórt eða lítið. 16.7.2012 10:15
Fæðing á Skype á stærstu forritunarkeppni heims "Guð sé lof fyrir Skype," segir Guðmundur Valur Viðarsson sem upplifði fæðingu frumburðarins síns í gegnum Skype staddur í Ástralíu á stærstu forritunarkeppni heims á dögunum. Guðmundur og hópur hans, Radiant Games, lenti í 4. til 5. sæti í keppninni Imagine Cup sem er skólakeppni á vegum Microsoft og fór fram í Sidney í Ástralíu. Íslenski hópurinn komst í tíu liða úrslit af 506 umsækjendum í flokknum leikjahönnun fyrir Windows og Xbox en keppt var í sjö flokkum og mörg þúsund lið skráð til leiks. 16.7.2012 05:00
Á fremsta bekk í París Þrátt fyrir að nokkrir mánuðir séu enn þá í að aðaltískuvikan fari fram í París er tískuheimurinn langt frá því að vera kominn í sumarfrí. Haute-Couture, eða hátískan, renndi sér nýlega niður tískupallana í höfuðborg tískunnar og mátti sjá nokkur þekkt andlit smekklega klædd á fremsta bekk. Mesta athygli vakti fyrsta fatalína hönnuðarins Raf Simmons fyrir tískuhúsið Christian Dior og voru flestir á því að það lofaði góðu fyrir framtíð hans hjá tískuhúsinu. 16.7.2012 03:00
Hollywood-fárið heldur áfram á landinu Stórleikarinn Russell Crowe er væntanlegur hingað til lands í næstu viku í tengslum við tökur á stórmyndinni um Örkina hans Nóa. Til stóð að leigja sumarbústað í Grímsnesi fyrir eiginkonu Crowe, en fallið var frá því vegna nálægðar við nærliggjandi bústaði. Fjárfesting vegna kvikmyndagerðar hleypur á milljörðum króna. 15.7.2012 20:15
Þaggað niður í McCartney Þaggað var niður í rokkstjörnunum Bruce Springsteen og Paul McCarney þegar þeir spiluðu of lengi í gær í Hyde Park, sem er einn stærsti almenningsgarður Lundúna. 15.7.2012 17:43
Jason Kidd ók á tré undir áhrifum áfengis Körfuboltamaðurinn Jason Kidd var í morgun kærður fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis í morgun. Ekki vildi betur til en svo að hann ók bíl sínum á símaklefa í New York, að því er tímaritið People hefur eftir New York Daily News. Kidd gerði þriggja ára samning við New York Knicks á dögunum sem mun færa honum 9,5 milljónir bandaríkjadala, eða ríflega 1,2 milljarða íslenskra króna. Kidd hefur leikið í NBA deildinni í 18 ár. 15.7.2012 17:55
Elton John langar í annað barn Stórsöngvarinn sir Elton John vill eignast fleiri börn. Hann viðurkennir þó í samtali við NBC fréttastöðina að það verði vissulega áskorun fyrir son sinn, Zachary að alast upp hjá tveimur samkynhneigðum karlmönnum. Elton John og eiginmaður hans David Furnish eiga soninn Zachary sem fæddist í Ameríku á jóladag árið 2010 með hjálp staðgöngumóður. 15.7.2012 17:33
Þjappaði fjölskyldunni saman Veitingastaðurinn Slippurinn opnaði við höfnina í Vestmannaeyjum á föstudaginn síðasta. Staðurinn er fjölskyldurekinn og að sögn Indíönu Auðunsdóttur, framkvæmdastjóra Slippsins, hefur reksturinn gert fjölskylduna samheldnari en áður. 15.7.2012 15:00
Fjölskyldan stækkar Mark Wahlberg og eiginkona hans, fyrirsætan Rhea Durham, eru sögð eiga von á sínu fimmta barni á árinu. "Hún er komin þrjá mánuði á leið og fjölskyldan er himinlifandi,“ hafði tímaritið Star eftir heimildarmanni. Parið kynntist árið 2001 og á fyrir börnin Ellu, Michael, Brendan og Grace. Wahlberg er sjálfur úr hópi níu systkina og þekkir því fátt annað en stórt og líflegt heimili. Fréttirnar hafa þó ekki verið staðfestar af talsmanni leikarans enn sem komið er. 15.7.2012 13:00
Ekki hrifin af Rihönnu Angelina Jolie vill ekki að börn sín hlusti á tónlist Rihönnu. Leikkonunni mun þykja textar Rihönnu óviðeigandi og vill ekki að börn sín læri slík orð. „Pax söng lagið Birthday Cake og hló mikið að blótsyrðunum og Angelina var alls ekki sátt. Hún vill að börnin haldi sakleysi sínu sem lengst og gerði geisladiskinn upptækan,“ sagði innanbúðarmaður og bætti við að Jolie fylgist einnig vel með netnotkun barnanna. Jolie og Brad Pitt eiga saman sjö börn og er Maddox Jolie-Pitt, ellefu ára, elstur þeirra. 15.7.2012 11:00
Framleiðandi Sound of Music látinn Kvikmyndaframleiðandinn Richard Zanuck lést í gærnótt. Hann er framleiðandi mynda á borð við Jaws og Sound of Music og hefur hlotið ýmis verðlaun á um 50 ára ferli sínum. 14.7.2012 18:01
Þúsund plötur farnar og sér ekki högg á vatni "Klukkan hálf ellefu í morgun stóðu fimmtíu manns í röð fyrir utan og biðu," segir Arnar Eggert Thoroddsen, sem ákvað að grisja plötusafnið sitt svo hann kæmist til útlanda í nám. 14.7.2012 13:30
Sonur Stallones látinn Sage Moonblood Stallone, sonur leikarans Sylvester Stallone, fannst látinn á heimili sínu í Los Angeles í gær. Grunur leikur á að hann hafi tekið inn of stóran skammt af einhverskonar lyfjum. Sage var 36 ára gamall. Hann var kvikmyndagerðarmaður en hafði einnig leikið í tveimur myndum með föður sínum á tíunda áratug síðustu aldar. New York Post segir að leifar af lyfjunum hafi fundist á heimili hans en óljóst er hvort Sage hafi fyrirfarið sér eða hvort að andlát hans megi rekja til slyss. 14.7.2012 08:31
Þú og ég snýr aftur á Innipúkanum „Við tökum öll vinsælustu lögin eins og Í Reykjavíkurborg, Dans dans dans og Þú og ég,“ segir Helga Möller. Hún stígur á svið Innipúkans með Jóhanni Helgasyni en holdgervingur diskótímabilsins, Þú og ég, snýr aftur ásamt Moses Hightower á tíu ára afmæli tónlistarhátíðarinnar um verslunarmannahelgina. 14.7.2012 15:00
Sigrún Ósk gerir þátt um Neyðarlínuna „Þetta verða átta þættir og fjallað um eitt til tvö mál í hverjum þeirra,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fréttakona sem mun stjórna íslenskum þáttum um Neyðarlínuna sem verða sýndir á Stöð 2 í haust. 14.7.2012 13:00
Ekki krúttlegur lengur Átta ára að aldri óskaði John Bennett þess að bangsinn hans lifnaði við. Óskin rættist og krúttbangsinn Ted vann hug og hjarta heimsbyggðarinnar. En síðan eru liðin tæp þrjátíu ár og í dag eru félagarnir lítið krúttlegir. Þeir sitja bólufreðnir öllum stundum fyrir framan sjónvarpið, Ted er orðinn mikill strigakjaftur og kærasta Johns er orðin þreytt á bangsanum. 14.7.2012 11:00
Einhleypur Ronan Keating mun djamma á Þjóðhátíð "Ég verð á sviðinu í um klukkustund og fer svo og skemmti mér með öðrum á hátíðinni eftir það,“ segir söngvarinn heimsþekkti Ronan Keating sem treður upp á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina. 14.7.2012 11:00
Byggja á popp-kúltúr í sápuóperustíl Nanna Gunnarsdóttir útskrifaðist nýlega úr Rose Bruford College of Theatre and Performance í London. Þar nam hún evrópsk leikhúsfræði. „Það er aðallega leiklist en við lærum einnig dálítið um leikstjórn, leikmyndagerð, leikhönnun og fleira sem tengist leikhúsi.“ Aðaláherslan er á nýsköpun og hópavinnu. 14.7.2012 09:00