Sólóplata og opinberun 19. júlí 2012 16:00 Frank Ocean þykir efnilegur tónlistarmaður. Sólóplata hans hefur slegið í gegn. nordicohotos/getty
Frank Ocean sendi frá sér plötuna Channel Orange þann 10. júlí. Platan þykir stórvirki innan R‘n‘B-tónlistarstefnunnar. Tónlistarmaðurinn Frank Ocean sendi frá sér plötuna Channel Orange þann 10. þessa mánaðar. Ocean hóf feril sinn sem lagahöfundur fyrir tónlistarfólk á borð við Justin Bieber, Brandy og John Legend. Hann gekk til liðs við hipphoppsveitina OFWGKTA árið 2010 og sama ár gaf hann út mixdiskinn Nostalgia á vefsíðu sinni því útgáfufyrirtækið Def Jam hafði dregið fæturna í útgáfu disksins. Nostalgia vakti athygli Kanye West, Jay-Z og Beyoncé á Ocean og greiddi það götu hans í útgáfu Channel Orange, en sú plata hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda sem flestir gefa henni fullt hús stiga. Lögin á Channel Orange eru sem ferskur blær inn í R‘n‘B-stefnuna en Ocean virðist einnig sækja innblástur til tónlistarsnillinga á borð við Stevie Wonder og textarnir þykja einlægir og vel ritaðir. Ocean er fæddur í New Orleans árið 1987 og er skírnarnafn hans Christopher „Lonny“ Breaux. Hann ólst upp við djasstónlistaráhuga móður sinnar og sem unglingur sinnti hann hinum ýmsu verkum í þeim tilgangi að safna nægu fé fyrir tíma í hljóðveri. „Ég gerði ýmislegt fyrir peninga. Ég þreif bíla, sló grasið hjá nágrönnunum og fór í göngutúra með hunda,“ sagði Ocean um þann tíma. Hljóðverið skemmdist aftur á móti þegar fellibylurinn Katrina reið yfir New Orleans og í kjölfarið flutti Ocean til Los Angeles. Þar komst hann í kynni við meðlimi OFWGKTA og gekk nokkru síðar til liðs við sveitina. Ocean breytti nafni sínu í Christopher Francis William Ocean árið 2010 og sagði hann eftirnafnið vera fengið úr hinni upprunalegu kvikmynd Ocean‘s 11. Ocean kom út úr skápnum í byrjun mánaðarins, aðeins nokkrum dögum fyrir útgáfudag Channel Orange, og vilja margir meina að vegna tímasetningarinnar sé um auglýsingabrellu að ræða. Svo mun þó ekki vera og ritaði upptökustjórinn Russell Simmons í tímaritið Global Grind að dagurinn sem Ocean opinberaði kynhneigð sína væri stór dagur fyrir hipphoppbransann.
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Stór brjóst eru stór Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira