LungA alþjóðlegri og fjölmennari í ár Hallfríður Þ. Tryggvadóttir skrifar 17. júlí 2012 10:43
Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, LungA, er nú haldin í þrettánda sinn á Seyðisfirði. Vikulöng gleðin hófst með opnunartónleikum síðastliðið sunnudagskvöld og að sögn Berglindar Sunnu Stefánsdóttur, tónlistarstjóra LungA, er hátíðin í ár fjölmennari og alþjóðlegri en áður. „Við erum með svolítið mikið af alþjóðlegum þátttakendum í listasmiðjunum og bæði danska og breska kennara sem kenna annars vegar myndbanda- og hins vegar skúlptúrgerð. Einnig eru tveir Frakkar hér og Hollendingar," segir Berglind og bætir við að hópur Dana, Finna og Íslendinga vinni í sameiningu að póstkortum út frá hugrenningum sínum um dagskrá hátíðarinnar og fyrirlestri sem Goddur og Pétur Pönk flytja í dag um listir og lýðræði, sem er þema verkefnisins. Dagskrá LungA er afar þétt og býður upp á sjö listasmiðjur sem hófust í gær. Berglind segir aðsókn þátttakenda hafa aukist mikið milli ára. „Það fylltist í smiðjurnar á innan við tveimur vikum og núna taka 115 manns þátt en í fyrra voru 80 skráðir." Hún segir fjölda listunnenda koma án þess að sækja smiðjurnar. „Það eru margir sem hafa tjaldað til að njóta þess að vera í kringum hátíðina, taka þátt í dagskrá utan smiðjanna og teikna úti í náttúrunni," segir hún og telur upp fjölskrúðuga viðburði vikunnar. Svo stiklað sé á stóru má nefna tilraunakennda tónleika í kvöld, dansgjörning með Lazyblood á morgun og sýningu danska leikhópsins Völvunnar, sem hefur farið víða um heim. Hátíðin vekur athygli á ungum íslenskum fatahönnuðum árlega og verður tískusýning fimmtudagskvöldsins með óhefðbundnu sniði. „Hún verður með breyttu ívafi og í formi innsetninga í stórri gamalli fiskverksmiðju en ekki þetta venjulega „catwalk". Hönnuðirnir hanna sjálfir rýmið og stemninguna svo sýningin kemur okkur jafn mikið á óvart og áhorfendum," segir hún. Föstudagurinn er helgaður myndlist og spretta upp myndlistasýningar víðs vegar um bæinn. Uppskeruhátíð smiðjanna fer svo fram á laugardaginn þar sem þátttakendur sýna vinnu liðinnar viku. Um kvöldið lýkur hátíðinni með tónleikum undir berum himni sem upphefur unga tónlistarmenn. „Fleiri ung bönd spila og mér finnst það aðeins meira í takt við hátíðina því hún gengur út á að gefa ungu fólki færi á að koma fram, gera list og vera skapandi. Þetta gefur hátíðinni heillegri mynd," segir Berglind og telur upp Retro Stefson, Hermigervil, Samaris, Sudden Weather Change, Legend og Ojbarasta sem flytjendur. Mikil skipulagning liggur að baki hátíðinni og hefur Berglind Sunna nærri lagt líf sitt að veði en hún datt við uppsetningu aðalskiltisins og brákaði sig á fæti. Með henni í skipulagsnefnd eru Elísabet Karlsdóttir og Guðmundur Ingi Úlfarsson ásamt þeim Aðalheiði Borgþórsdóttur, þekktri sem mömmu LungA, og Björt Sigfinnsdóttur en tvær síðast nefndu hafa komið að skipulagningu frá upphafi.
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira