Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Arnór útilokar að Eiður fari Ekki er möguleiki á því að Eiður Smári Guðjohnsen fari á lánssamningi til Bolton. Þetta segir Arnór Guðjohnsen, faðir hans og umboðsmaður, í samtali við BBC. 29.1.2008 17:03
Grant er hættur að eyða Avram Grant, stjóri Chelsea, segist ekki ætla að kaupa fleiri leikmenn í janúarglugganum. Hann hefur þegar fengið til sín þrjá leikmenn sem kostað hafa í kring um 27 milljónir punda. 29.1.2008 16:30
Hutton á leið til Tottenham Nú virðist fátt geta komið í veg fyrir að Tottenham kaupi þriðja varnarmanninn í janúarglugganum. Walter Smith, stjóri Rangers í Skotlandi, segir að bakvörð félagsins Alan Hutton hafi ákveðið að semja við Lundúnaliðið. 29.1.2008 15:48
Aðeins fyrirliðar fái að ræða við dómara Enska knattspyrnusambandið er að íhuga að banna leikmönnum öðrum en fyrirliðum að ræða við dómara í deildarleikjum frá og með næsta keppnistímabili. 29.1.2008 14:02
Wise ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Newcastle Newcastle hefur staðfest að Dennis Wise muni gegna starfi yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu. Hlutverk Wise hjá Newcastle kemur knattspyrnustjóranum Kevin Keegan nokkuð á óvart. 29.1.2008 13:13
Sissoko til Juventus Miðjumaðurinn Mohamed Sissoko hjá Liverpool hefur skrifað undir samning við ítalska knattspyrnufélagið Juventus. Kaupverðið er 8,2 milljónir punda ef marka má frétt Sky. 29.1.2008 12:54
Hann er heitari en fyrrverandi kærastan mín Knattspyrnumenn eru gjarnan áberandi þegar kosið er um kynþokkafyllstu karlmennina og í Daily Mail í dag er talað um eina slíka kosningu. 29.1.2008 10:38
Ronaldo á von á vænum bónus Cristiano Ronaldo mun fá stóran bónus ef hann heldur áfram að skora grimmt fyrir Manchester United. Hann hefur þegar skorað 25 mörk í 27 leikjum fyrir United á leiktíðinni og stefnir hærra. 29.1.2008 10:27
Barton í hóp Newcastle í kvöld Tukthúslimurinn Joey Barton hjá Newcastle hefur fengið grænt ljós á að spila með liðinu á ný eftir að tryggingu hans var breytt. Barton var stungið í fangelsi í síðasta mánuði í tengslum við líkamsárás og hefur ekki spilað með liði sínu síðan á Þorláksmessu. 29.1.2008 09:58
Grétar byrjar en Heiðar er á bekknum Fjórir leikir eru í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og fara þeir senn að hefjast. Íslendingaliðið Bolton tekur á móti Fulham og er Grétar Rafn Steinsson í byrjunarliði Bolton. 29.1.2008 19:28
Mcallister að taka við Leeds? Skotinn Gary McAllister hefur nú verið orðaður sterklega við stjórastólinn hjá Leeds United eftir að Dennis Wise fór til Newcastle. McAllister spilaði yfir 300 leiki fyrir Leeds á tíunda áratugnum og varð Englandsmeistari með liðinu árið 1992. 29.1.2008 13:27
Megson reynir að fá Eið aftur til Bolton Gary Megson, stjóri Bolton á Englandi, segist vera að vinna í að fá Eið Smára Guðjohnsen aftur til síns gamla félags frá Barcelona. 29.1.2008 10:07
Sigurmark Leicester kom í lokin Barry Hayles tryggði Leicester mikilvægan sigur á Crystal Palace í ensku 1. deildinni í kvöld. Leikurinn endaði 1-0 og kom eina markið undir lok leiksins. 28.1.2008 22:00
Downing vill burt frá Boro Talsmaður enska vængmannsins Stewart Downing segir að leikmaðurinn hafi engan áhuga á að ræða nýjan samning við Middlesbrough. Hann hefur þegar neitað nýjum samningi frá félaginu. 28.1.2008 21:00
Nevland á leið til Fulham Fulham er að fá norska sóknarmanninn Erik Nevland frá Gröningen í Hollandi. Kaupverðið er um tvær milljónir punda. 28.1.2008 20:15
Woodgate fer til Tottenham Tottenham hefur unnið kapphlaupið um enska varnarmanninn Jonathan Woodgate frá Middlesbrough. Þrjú úrvalsdeildarlið voru á eftir þessum 28 ára leikmanni. 28.1.2008 18:32
Mínútu þögn fyrir England - Sviss Mínútu þögn verður fyrir landsleik Englands gegn Sviss þann 6. febrúar. Þá verða 50 ár liðin frá flugslysinu í München þar sem átta leikmenn Manchester United týndu lífi. 28.1.2008 17:43
Bolton vill Eið Smára Bolton hefur áhuga á að fá Eið Smára Guðjohnsen aftur til liðsins. Þetta hefur Gary Megson, stjóri Bolton, staðfest. Megson telur þó ekki miklar líkur á að fá Eið. 28.1.2008 17:06
Villa samþykkir tilboð Bolton í Cahill Aston Villa hefur samþykkt kauptilboð Bolton í varnarmanninn Gary Cahill sem sagt er vera á bilinu 4,5 til 5 milljónir punda. Villa hafði áður neitað 4 milljóna punda tilboði í hinn 22 ára gamla varnarmann, sem hefur reyndar ekki spilað fyrir Villa síðan í sumar. Hann á að baki leiki með U-21 árs liði Englendinga. 28.1.2008 16:12
Wise á leið til Newcastle Forráðamenn Leeds hafa staðfest að knattspyrnustjórinn Dennis Wise hafi verið látinn laus frá félaginu til að ganga í starfslið Kevin Keegan hjá Newcastle í úrvalsdeildinni. 28.1.2008 16:05
Reading kaupir vængmann Íslendingalið Reading hefur nú fengið liðsstyrk í ensku úrvalsdeildinni en í dag gekk það frá kaupum á Malí-manninum Jimmy Kebe. Kaupverðið er ekki gefið upp en Kebe þessi er vængmaður og spilaði með Lens í Frakklandi. Hann hefur lengi verið eftirsóttur af forráðamönnum Reading. 28.1.2008 15:50
Wenger: Erum ekki að bjóða í Woodgate Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir ekkert til í fréttum morgunsins sem sögðu Arsenal vera þriðja félagið á höttunum eftir varnarmanninum Jonathan Woodgate. 28.1.2008 14:37
Man Utd og Arsenal mætast í enska bikarnum Nú rétt í þessu var dregið í 16-liða úrslit enska bikarsins í knattspyrnu. Stórleikur umferðarinnar verður viðureign Manchester United og Arsenal á Old Trafford. 28.1.2008 13:30
Mellberg fer til Juventus í sumar Sænski varnarjaxlinn Olof Mellberg hjá Aston Villa hefur samþykkt að ganga í raðir Juventus í sumar þegar samningur hans við enska félagið rennur út. Mellberg mun gera þriggja ára samning við ítalska félagið, en hinn 30 varnarmaður gekk í raðir Villa frá Santander árið 2001 fyrir 5 milljónir punda. 28.1.2008 13:21
Boro er að landa Alves Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough er sagt muni landa brasilíska framherjanum Alfonso Alves frá Heerenveen í Hollandi á næsta sólarhring, en aðeins á eftir að ganga frá smáatriðum í samningum milli félaganna. Þá hefur Boro gefið það út að vængmaðurinn Stewart Downing verði ekki seldur í janúar. 28.1.2008 11:03
Arsenal að bjóða í Woodgate? Breskir fréttamiðlar greina frá því í morgun að þriðja félagið sé komið inn í kapphlaupið um miðvörðinn Jonathan Woodgate hjá Middlesbrough. Talið var að Tottenham væri við það að ganga frá um 7 milljón punda kaupum á varnarmanninum, en nú er sagt að Arsenal hafi lagt fram tilboð á síðustu stundu sem Boro sé þegar búið að samþykkja. 28.1.2008 10:57
Ömurleg helgi hjá City Leikmenn Manchester City vilja eflaust gleyma helginni sem leið sem fyrst. Á meðan liðið var að falla úr keppni í bikarnum með 2-1 tapi fyrir B-deildarliði Sheffield United, létu þjófar greipar sópa um búningsherbergi liðsins og stálu þaðan í kring um 200 þúsund krónum úr veskjum leikmanna. Málið er í rannsókn. 28.1.2008 10:27
Derby komið í eigu Bandaríkjamanna Enska úrvalsdeildarfélagið Derby er nú komið í eigu bandarískra fjárfesta, General Sports and Entertainment. Hópurinn mun ekki taka á sig skuldir félagsins, en Bandaríkjamennirnir hafa verið í nokkra mánuði að skoða klúbbinn. 28.1.2008 10:14
Baros aftur til Englands Portsmouth gekk í dag frá lánssamningi við Lyon þess efnis að tékkneski sóknarmaðurinn Milan Baros myndi leika með Portsmouth út leiktíðina. 27.1.2008 18:13
Engin jafntefli í bikarnum um helgina Ótrúlega nokk þarf ekki að endurtaka neinn leik í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar sem lauk nú í dag en engum af leikjunum sextán lauk með jafntefli. 27.1.2008 17:59
Sheffield United sló út Manchester City Þau óvæntu tíðindi urðu í lokaleik fjórðu umferðar ensku bikarkeppninnar að B-deildarlið Sheffield United sló út úrvalsdeildarlið Manchester City, 2-1. 27.1.2008 17:57
Ronaldo tryggði United sigur Cristiano Ronaldo var hetja Manchester United er hann tryggði sínum mönnum 3-1 sigur gegn Tottenham með tveimur mörkum í síðari hálfleik. 27.1.2008 15:52
Keegan reiknar ekki með Woodgate Kevin Keegan, stjóri Newcastle, á ekki von á því að Jonathan Woodgate komi til félagsins þrátt fyrir að tilboð Newcastle í hann hafi verið samþykkt af Middlesbrough. 27.1.2008 13:00
Chelsea áfram í bikarnum Chelsea vann 2-1 sigur á Wigan í lokaleik dagsins í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar. Nicolas Anelka og Shaun Wright-Phillips skoruðu mörk Chelsea. 26.1.2008 19:14
Woodgate á leið til Newcastle Jonathan Woodgate er á góðri leið með að ganga til liðs við Newcastle samkvæmt fréttastofu BBC. 26.1.2008 18:02
Loksins sigur hjá Hearts Eggert Gunnþór Jónsson var valinn maður leiksins er Hearts vann sinn fyrsta leik í síðustu tíu deildarleikjum sínum. 26.1.2008 17:49
Jóhannes Karl lék í sigri Burnley Burnley vann í dag 2-0 sigur á Scunthorpe en Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Burnley. 26.1.2008 17:37
Aston Villa og Blackburn skildu jöfn Einn leikur fór fram í ensku úrvalsdeildinni í dag en í honum skildu Aston Villa og Blackburn jöfn, 1-1. 26.1.2008 17:28
Tvö úrvalsdeildarlið úr leik Tíu leikir fóru fram klukkan 15.00 í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar. Tvö úrvalsdeildarlið duttu úr keppni. 26.1.2008 17:01
Havant & Waterlooville skoraði tvö á Anfield en tapaði Utandeildarliðið Havant & Waterlooville komst í dag í sögubækurnar með því að komast tvívegis yfir gegn stórliði Liverpool á Anfield í ensku bikarkeppninni í dag. 26.1.2008 16:34
Havant & Waterlooville tók forystuna á Anfield Einhver óvæntustu tíðindi í sögu enskrar knattspyrnu áttu sér stað á áttundu mínútu leiks Liverpool og utandeildarliðsins Havant & Waterlooville. 26.1.2008 15:19
Middlesbrough vann Mansfield Middlesbrough varð í dag annað liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar með því að leggja Mansfield að velli, 2-0. 26.1.2008 14:56
Baros á leið til Portsmouth? Forráðamenn Lyon í Frakklandi fullyrða að framherjinn Milan Baros sé við það að ganga í raðir Portsmouth á Englandi sem lánsmaður. Aðeins eigi eftir að ganga frá læknisskoðun svo af þessu verði. Baros lék áður með Liverpool og Aston Villa á Englandi. 25.1.2008 22:30
Chelsea kaupir ungan Argentínumann Chelsea hefur gengið frá samningi við 18 ára gamlan argentínskan framherja frá liði Audax Italiano í Chile. Sá heitir Franco Di Santo og hefur honum verið líkt við goðsögnina Diego Maradona. Sagt er að kaupverðið sé um 3 milljónir punda en Di Santo hafði verið orðaður við Manchester United og Liverpool. 25.1.2008 20:55
Englendingar mæta Þjóðverjum í nóvember Englendingar og Þjóðverjar munu mætast í vináttuleik í knattspyrnu í Berlín þann 19. nóvember næstkomandi. Þetta var tilkynnt í dag. Liðin mættust síðast í vináttuleik á Wembley í ágúst þar sem þýska liðið vann 2-1 sigur. 25.1.2008 19:32