Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjálfari Mexico hættur Richardo La Volpe er hættur sem þjálfari hjá Mexico. Mexico komst í 16-liða úrslit á HM og tapaði liðið fyrir Argentínu í framlengdum leik. La Volpe hefur þjálfað lið Mexico síðan 1998. Hann segist hafa áhuga að komast til Evrópu að þjálfa. 5.7.2006 11:51
"Klinsmann verður að vera áfram" Keisarinn sjálfur, Franz Beckenbauer segir að Jurgen Klinsmann eigi að vera áfram með liðið þrátt fyrir að liðið hafi verið slegið út í undanúrlitum á HM í gær. 5.7.2006 11:45
Draumur að rætast Marcello Lippi, þjálfari Ítala segir að draumur sinn hafi ræðst í gær þegar lið hans komst í úrslitaleikinn á HM eftir 2-0 sigur á Þjóðverjum í Dortmund. 5.7.2006 11:41
Æfingar fyrir leikinn í kvöld Frakkar og Portúgalar bjuggu sig undir komandi átök á æfingum liðanna í gær. Meðfylgjadi myndasyrpa sýnir leikmennina létta í lund við það tækifæri. Vitanlega ríkir mikill taugatitringur fyrir leikinn, enda úrslitaleikurinn undir. 5.7.2006 11:11
Hinir Bláu, ódauðlegu Ég er ennþá að jafna mig eftir undanúrslitaleikinn í gær, Hvítir á móti Bláum, og ég held að úrslit hans séu í meira lagi söguleg á HM mælikvarðann. 5.7.2006 10:00
Carragher vill sjá Gerrard sem fyrirliða Jaimie Carragher telur að Steven Gerrard liðsfélagi hans já Liverpool sé betri kostur sem næsti fyrirliði enska landsliðsins heldur en John Terry leikmaður Chelsea. 4.7.2006 16:34
Ítalir unnu Þjóðverja á HM-1982 Marco Tardelli skorar fyir Ítalíu gegn Vestur-Þjóðverjum í úrslitaleik HM-1982, sem fór fram í Madríd á Spáni. Þessi svarthvíta mynd var tekinn á vellinum þann 11. júlí árið 1982. Ítalir sigruðu leikinn 3-1 og urðu heimsmeistarar. Þessar þjóðir mætast aftur á HM í kvöld og berjast um að komast í úrslitaleikinn. 4.7.2006 15:35
Klinsmann vongóður um sigur Jurgen Klinsman, þjálfari Þýskalands er vongóður um sigur hjá sínum mönnum í kvöld, er liðið mætir Ítölum í Dortmund, í undanúrslitum á HM. Klinsman segir að sitt lið muni áfram spila sóknarbolta. 4.7.2006 15:19
Viðbrögð á næstunni Enska knattspyrnusambandið ætlar að senda frá sér viðbrögð á næstunni vegna bottvísunar Wayne Rooney. Hann fullyrðir að hann hafi ekki sparkað viljandi í klof Carvalho, þegar hann var rekinn af velli gegn Portúgal á dögunum. 4.7.2006 14:54
Fabio Capello hættur hjá Juventus Fabio Capello hefur sagt af sér sem þjálfari Juventus á Ítalíu, en líklegt þykir að félagið verði á næstunni dæmt til að leika í neðri deildunum þar í landi. Capello hefur verið sterklega orðaður við spænska liðið Real Madrid að undanförnu og er fyrsti kostur nýkjörins forseta félagsins Ramon Calderon. Capello hefur gert Juventus að tvöföldum meisturum á Ítalíu, en heldur nú væntanlega til Spánar á ný þar sem hann gerði einmitt Real að meisturum árið 1997. 4.7.2006 14:04
Tekur Maradona við Argentínu? Diego Armando Maradona útilokar ekki að taka við Argentínska landsliðinu. Hann segist ekki útiloka neitt. Maradona segir að það séu skiptar skoðanir um hann innan knattspyrnusambands Argentínu. 4.7.2006 13:53
Carlos hættur með Brasilíu Roberto Carlos, leikmaður Real Madrid og Brasilíska landsliðsins er hættur með að spila með landsliðinu. Kappinn hefur spilað 132 leiki fyrir þjóð sína og skorað 11 mörk í þeim. 4.7.2006 13:49
Næstfæst mörk frá upphafi Undanúrslit á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi hefjast í kvöld með leik Þjóðverja og Ítala í Dortmund. Það hafa aðeins 138 mörk verið skoruð í 60 leikjum til þessa á HM í Þýskalandi eða 2,30 að meðaltali í leik. 4.7.2006 13:40
Rooney segist ekki hafa stigið á Carvalho viljandi Wayne Rooney gaf út yfirlýsingu í gær þar sem hann þvertók fyrir það að hann hefði stigið viljandi á portúgalska leikmanninn Ricardo Carvalho í 8-liða úrslitum á HM. 4.7.2006 13:36
Bandaríkjamenn falast eftir Klinsmann Það eru uppi sögusagnir um að bandaríska knattspyrnusambandið hafi áhuga á að fá Jurgen Klinsmann, þjálfara Þjóðverja, til að leysa Bruce Arena af sem landsliðsþjálfari. Breska blaðið Daily Telegraph greinir frá þessu í dag. 4.7.2006 11:25
Næst á dagskrá: Líf eða dauði Það hefur verið forvitnilegt að lesa blöðin í dag, annarsvegar afsagnir og afsakanir liða og leikmanna sem eru farin heim frá HM, hinsvegar vonir og væntingar þeirra sem ennþá eru með. Á morgun, Þýskaland - Ítalía, svakalegur leikur hvernig sem á það er litið. 3.7.2006 21:08
Frings í bann Þýski landsliðsmaðurinn Torsten Frings hefur verið dæmdur í eins leiksbann fyrr að slá Julio Cruz, leikmann Argentínu eftir leik þjóðanna á föstudaginn. Einnig eiga tveir Argentínumenn yfir höfði sér bann. Frings missir þar að leiðandi af undanúrslita leiknum við Ítali á morgun. 3.7.2006 19:47
Segir engin leiðindi á milli sín og Rooney Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United og Portúgalaska landsliðsins segir að hann og Wayne Rooney séu sáttir og engin vandamál væru á milli þeirra eftir atvik sem varð í leik Englands og Portúgal á HM á laugardaginn. 3.7.2006 17:43
Ballack og Klose tilbúnir í undanúrslitin Michael Ballack og Miroslav Klose verða með Þjóðverjum er þeir taka á móti Ítölum á morgun í undanúrslitum HM. Báðir þessir leikmenn meiddust í leiknum við Argentínu á föstudaginn í 8-liða úrslitum. 3.7.2006 17:39
Frakkland er ekki of gamalt lið Patrick Vieira, leikmaður Frakklands segir að sigur þeirra gegn Brasilíu í 8-liða úrslitum hafi sýnt það og sannað og liðið sé ekki of gamalt eins og margir hafa verið að segja. 3.7.2006 17:32
Rooney ætlar ekki að fyrirgefa C. Ronaldo Enski köggullinn, Wayne Rooney, á ekki eftir að fyrirgefa samherja sínum C. Ronaldo hjá Man.Utd. Rooney var æfur eftir leikinn gegn Portúgal og eftir vítaspyrnukeppnina ætlaði Rooney að æða inn í búningsherbergi Portúgal og eiga nokkur vel valin orð við samherja sinn hjá Man.Utd. Ronaldo 3.7.2006 17:23
Mourinho hvetur Scolari til að vera áfram Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að hann óski þess fyrir Portúgal að Luiz Felipe Scolari haldi áfram með liðið. 3.7.2006 10:44
Breskir veðbankar telja John Terry líklegastan Breskir veðbankar gera nú mikið úr þeirri stöðu að nýr leikmaður taki við fyrirliðabandinu í enska landsliðinu. Veðbankarnir telja mestar líkur á að John Terry, varnarmaður frá Chelsea, verði næsti fyrirliði enska landsliðsins en David Beckham sagði stöðunni lausri á blaðamannafundi í gær. 3.7.2006 10:38
Gerrard ekki ánægður með Ronaldo Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og leikmaður enska landsliðsins sendir hinum Portúgalska leikmanni Manchester United, Ronaldo kaldar kveðjur eftir atvik sem gerðist í leik Englands og Portúgal í gær á HM. 2.7.2006 23:37
Beckham meiddur í 6 vikur David Beckham meiddist í lokaleik Englands á HM í Þýskalandi og verður frá æfingum og keppni í um 6 vikur og missir líklega af fyrsta landsleik Englands undir stjórn Steve McClaren. 2.7.2006 20:19
"Ég reyndi ekki að hafa áhrif á rauðaspjaldið" Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United og Portúgalska landsliðsins segir að hann hafi ekki með neinu móti reynd að fá félaga sinn hjá United, Wayne Rooney út af í leiknum í gær. 2.7.2006 12:05
"Ekki kenna Rooney um" Steven Gerrard, fyrirliðu Liverpool og leikmaður enska landsliðsins segir að það eigi ekki að kenna Wayne Rooney hvernig fór í gær en England var slegið út af Portúgal í 8-liða úrslitum og Rooney fékk að líta rauða spjaldið á 62 mínútu. 2.7.2006 12:01
Beckham hættur sem fyrirliði David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins ætlar að hætta sem slíkur. Hann tilkynnti þetta nú í dag á blaðamannafundi. Beckham segir að nýtt tímabil sé að hefjast hjá enska landsliðinu með nýjum þjálfarar og réttast væri að nýr aðili taki við. John Terry eða Steven Gerrard eru sagðir líklegastir til að fá stöðuna. 2.7.2006 11:56
Hvað segja menn núna Sven? ,,Þeir börðust vel 10, en við töpuðum leiknum og það er sárt'' sagði Sven Göran í viðtali áðan, skiljanlegt, en hvernig hefði verið að spila betur 11? Það er ljóst, Englendingar fara heim, Portúgal áfram, að mörgu leyti óverðskuldað, sýndu ekkert umfram Englendinga í kvöld, nema að þeir eru betri í vítakeppni. Rauða spjaldið á Rooney var harður dómur, engin spurning, tveggja fóta tælkling í seinni hálfleik var um margt harður dómur, hefði hæglega getað verið gult miðað við tveggja fóta tæklingu Portúgala í fyrri hálfleik. 1.7.2006 20:00
Stelpurnar fylgjast með Á meðfylgjandi mynd má sjá Viktoriu Beckham, eginkonu David Beckham, ásamt Cheryl Tweedy (uppi til vinstri) sem er kærasta Ashley Cole og Carly Zucker (niðri til vinstri) kærustu Joe Cole. Þær eru að fylgjast með mönnum sínum leika knattspyrnu í landsleiknum England - Portúgal sem fer nú fram á HM. 1.7.2006 15:34
8-liða úrslitin klárast í dag Það kemur í ljós í dag hvaða þjóðir það verða sem í mætast í seinnileiknum í undanúrslitum HM. Í gær tryggðu Þjóðverjar og Ítalir sér farseðilinn og munu þær mætast í Dortmund á þriðjudaginn. Í dag mætast annarsvegar England og Portúgal klukkan 15.00 í Gelsenkrichen og klukkan 19.00 mætast í Frankfurt Brasilía og Frakkland. Allt þetta og miklu meira á Sýn í dag. 1.7.2006 14:04
"Verðum að eiga toppleik" Steven Gerrard, leikmaður Englands segir að lið sitt verði að eiga toppleik ætli það sér að fara lengra í keppninni. England mætir Portúgal í dag í 8-liða úrslitum. 1.7.2006 13:51
Blatter mjög ósattur við uppákomuna í gær Leiðinleg uppákoma var eftir leik Þýskalands og Argentínu í gær eftir að þjóðverjar höfðu unnið eftir vítaspynrukeppni. Leandre Cufre, leikmaður Argentínu fékk að líta rauðaspjaldið eftir leik en þessi varamaður Argentínu réðst að Per Mertesacker, leikmanni Þýskalands og sauð aðeins uppúr. 1.7.2006 13:44
Scolari tilbúinn að taka áhættu með Ronaldo Luiz Felipe Scolari, þjálfari Portúgals er tilbúinn að taka áhættu í leiknum gegn Englandi í dag og nota Cristiano Ronaldo sem hefur verið meiddur undanfarið. Scolari sagði fyrir stuttu að leikmaðurinn væri kominn í lag og yrði með. Deco verður ekki með í þessum leik þar sem hann er í banni. 1.7.2006 13:41
Aragones áfram með Spánverja Hinn 67 ára gamli Luis Aragones, þjálfari Spánar verður áfram með liðið fram yfir EM sem fer fram eftir 2 ár. Spænska liðið var slegið út úr HM í 16-liða úrslitum gegn frökkum. 1.7.2006 13:38
Scolari biður FA afsökunar Luiz Felipe Scolari, þjálfari Portúgala hefur beðið enska knattspyrnusambandið afsökunar á því að hafa sagt að hann hafi hafnað því að taka við enska landsliðinu í vor. 1.7.2006 13:34