Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eiginkona Bo ákærð fyrir morð Eiginkona kínverska stjórnmálamannsins Bo Xilai hefur verið ákærð fyrir morð. Xilai var áður vonarstjarna í kínverskum stjórnmálum og allt benti til að brátt yrði hann meðal valdamestu manna landsins. Morðmálið hefur gert út af við framavonir hans. 26.7.2012 15:12
Gjá undir Suðurskautslandinu varpar ljósi á hækkun sjávarborðs Bandarískir vísindamenn hafa uppgötvað 1.5 kílómetra djúpa gjá undir Suðurskautslandinu. Grunur leikur á að gjáin stuðli að bráðnun íshellunnar sem og hækkandi yfirborðs sjávar. 26.7.2012 14:58
Íþróttaálfur og forsetafrú í auglýsingu Magnús Scheving og Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, hafa tekið höndum saman og boða nú vitundavakningu í Bandaríkjunum um heilbrigt líferni. 26.7.2012 14:23
Kim Jong-un vill vera opnari leiðtogi Miklar getgátur hafa verið um dularfullu konu sem sést hefur við hlið Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu undanfarið. Nú hafa fjölmiðlar þar í landi tilkynnt að konan sé sannarlega eiginkona Kim Jong og að hún heiti Ri Sol-ju. 26.7.2012 13:26
Ki-moon heimsækir Srebrenica Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu Þjóðanna, lagði í dag blómsveig að minnisvarða þeirra sem létust í fjöldamorðunum í Srebrenica. Að minnsta kosti 8 þúsund Bosníu-múslimar létust í voðaverkum Serba árið 1995. 26.7.2012 13:07
Japanir banna sashimi úr nautalifur Japanir hafa tekið upp á því að banna sölu sashimi úr nautalifur sem áður var einn þjóðarrétta þeirra. 26.7.2012 10:11
Ólympíumet sem seint eða aldrei verða slegin Til eru met á sumarólympíuleikum sem aldrei verða slegin og met sem erfitt er að sjá að nokkurn tíman verði slegin. 26.7.2012 07:29
Holmes sendi lýsingar á skotárásinni til háskóla síns Í ljós hefur komið að James Holmes maðurinn sem myrti 12 manns og særði tugi annarra í skotárás á forsýningu nýjustu Batman myndarinnar í Denver sendi pakka með ítarlegum upplýsingum um árásina til háskólans sem hann stundaði nám við. 26.7.2012 06:44
Forræðið fært tímabundið Dómari hefur ákveðið að að veita TJ Jackson, bróðursyni Michaels Jackson, tímabundið forræði yfir börnum poppgoðsins. 26.7.2012 09:00
Obama vill breyta skotvopnalögum Bandaríkjanna Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur loksins tjáð sig um skotvopnalög landsins. Obama segir að embætti hans sé að vinna að endurbótum á skotvopnalögunum sem m.a. eiga að koma í veg fyrir að geðveikt fólk geti keypt sér skammbyssur eða önnur skotvopn. 26.7.2012 06:49
Sjö fórust í námuslysi í Mexíkó Sjö námumenn fórust og nokkrir slösuðust þegar sprenging varð í námu í Coahulia-héraðinu í norðurhluta Mexíkó. Talið er að gasleki hafi valdið sprengingunni. 26.7.2012 06:38
Fundu brjóstahaldara frá 15. öld Fornleifafundur í Austurríki sýnir að brjóstahaldarar voru til á 15. öld og eru því mun eldri en áður var talið. 26.7.2012 06:35
Tyrkir loka landamærum Sýrlands Sýrlandsher beinir nú afli sínu einkum gegn uppreisnarmönnum í Aleppo, stærstu borg landsins, en virðist hafa náð að mestu valdi á höfuðborginni Damaskus. Nýr yfirmaður friðargæsluliðs SÞ reynir að vera bjartsýnn. 26.7.2012 05:30
Obama talsvert sigurstranglegri Um 65% líkur eru á sigri Baracks Obama forseta í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, að því er kemur fram á vef tölfræðisérfræðingsins Nates Silver. Þó munurinn á fylgi Obama og Mitts Romney, frambjóðanda repúblikana, sé aðeins rúm tvö prósent á landsvísu ber nokkuð þeirra á milli sé tekið tillit til fylgis í einstökum ríkjum. 26.7.2012 00:00
Strætisvagn sem gerir armbeygjur Tékkneski listamaðurinn David Cerny hefur útbúið tveggja hæða strætisvagn, sem getur gert armbeygjur. Vagninn verður til sýnis á meðan ólympíuleikarnir fara fram í Lundúnum. Cerny útvegaði sér sex tonna strætó og hefur dundað sér síðustu vikur að breyta honum í listaverk. Það sem er óvenjulegt við þetta listaverk hans er að vanginn getur gert armbeygjur. Hann segir að hugmyndin hafi komið vegna þess að armbeygjur sé sú æfing sem allir íþróttamenn geta gert. Vagninn verður til sýnis fyrir utan ólympíuþorp tékkneska liðsins í Islington og vonast Cerny að vagninn gefi keppendum landsins innblástur til þess að vinna til verðlauna. 25.7.2012 21:06
16 mánaða fangelsi fyrir að þykjast vera lögga Maður sem þóttist vera lögreglumaður í Svíþjóð í apríl hefur verið dæmdur í sextán mánaða fangelsi. 25.7.2012 20:58
Lést eftir að hafa verið nauðgað af sex konum Velauðugur kaupsýslumaður frá Nígeríu fannst látinn á heimili sínu í morgun eftir að hafa verið nauðgað af eiginkonum sínum. Hann átti sex eiginkonur og svo virðist vera sem afbrýðissemi á milli þeirra hafi verið ástæða dauða hans. 25.7.2012 20:40
Leiðtogi Norður Kóreu genginn út Ríkisfjölmiðlar í Norður Kóreu hafa fengið staðfest í fyrsta skipti að Kim Jong-un, hinn ungi leiðtogi landsins, hafi gift sig. Samkvæmt frásögnum miðlanna sást hann með konu sinni við opnun skemmtigarðs. Miklar vangaveltur hafa verið uppi að undanförnu um einkalíf Kims eftir að óþekkt kona sást á myndum með honum. Kim Jong-un tók við sem leiðtogi Norður Kóreu þegar faðir hans. Kim Jong-il, lést í desember á síðasta ári. Hér má sjá umfjöllun BBC um konuna í lífi Kims Jong-un 25.7.2012 13:49
Forseti Argentínu afboðar komu sína á Ólympíuleikana Pólitík blandast inn í Ólympíuleikana í London eins og oft hefur gerst áður. Cristina Kirchner forseti Argentínu hefur afboðað komu sína á opnunarhátíð leikanna á föstudaginn kemur. 25.7.2012 07:05
Veiddi stærsta fisk sem veiðst hefur á stöng í N-Ameríku Michael Snell 65 ára gamall Breti sem var í sumarfríi í Kanada um síðustu helgi náði að veiða stærsta fisk sem veiðst hefur á stöng í Norður Ameríku. 25.7.2012 06:47
Vopnasala stóreykst í Denver eftir skotárásina á Batman myndinni Vopnasala hefur stóraukist í borginni Denver í Colorado í kjölfar árásarinnar á forsýningu nýjustu Batman myndarinnar sem kostaði 12 mannslíf og tugi særða. 25.7.2012 06:37
Mesta bráðnun á Grænlandsísnum í áratugi Bráðnun Grænlandsíssins í þessum mánuði er sú mesta síðan mælingar á henni hófust. Þetta sýna gervihnattamyndir sem NASA, geimsvísindastofnun Bandaríkjanna hefur sent frá sér. 25.7.2012 06:29
Stór jarðskjálfti reið yfir eyjuna Súmötru Jarðskjálfti af stærðargráðunni 6,4 á Richter reið yfir vesturströnd eyjunnar Súmötru á Indónesíu í nótt. 25.7.2012 06:44
Samaras boðar betri tíð í lok næsta árs Ríkisstjórnin á Grikklandi reynir nú að semja við fulltrúa Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um næstu útborganir úr neyðarsjóðum þeirra. 25.7.2012 05:15
Setningarathöfn ÓL stytt um hálftíma Setningarathöfn Ólympíuleikanna í London hefur verið stytt um hálftíma til að öruggt sé að gestir geti haldið heim á leið áður en almenningsfarartæki hætta að ganga. 25.7.2012 00:30
Björguðu kynlífsdúkku úr á Lögreglan í Shandong-héraðinu í Kína bjargaði kynlífsdúkku upp úr á þar sem þeir héldu að um væri að ræða konu sem hefði drukknað. Dúkkan var fljótandi um 50 metrum frá árbakkanum þegar lögreglumenn komu á staðinn. Samkvæmt kínverskum fjölmiðlum var kallaður út auka mannskapur og tóku 18 lögreglumenn þátt í björgunaraðgerðum þegar mest lét. Það tók lögregluna 40 mínútur að koma dúkkunni á land en það var ekki fyrr en einn lögreglumaðurinn náði taki á henni að hann áttaði sig á því að um dúkka var að ræða - en ekki lík konu. Atvikið átti sér stað fyrir tveimur vikum síðan og yfir 1000 manns horfðu á björgunaraðgerðirnar. 24.7.2012 20:23
Orrustuþotur vörpuðu sprengjum á sýrlenska borg Orrustuþotur voru notaðar í bardögum í borginni Aleppo sem er fjölmennasta borg Sýrlands. Fréttamenn BBC telja þetta vera fyrsta skiptið sem orrustuþotur eru notaðar í borginni. 24.7.2012 16:46
Ákærur gefnar út í símahlerunarmálinu Saksóknari í Bretlandi tilkynnti í dag hverjir verða ákærðir í hinu svonefna símahlerunarmáli. Meða þeirra eru Andy Coulson, sem var ritstjóri News of the World blaðsins áður en hann gerðist fjölmiðlafulltrúi David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, og Rebekah Brooks, sem einnig var ritstjóri. 24.7.2012 14:38
Big Ben hringir inn Ólympíuleikana Eitt af helstu kennileitum Lundúnarborgar, Big Ben, fær nýtt hlutverk þegar Ólympíuleikarnir verða settir þar í borg á föstudaginn. Klukkan mun hringja inn Ólympíuleikana og mun hringja í samtals 3 mínútur. 24.7.2012 13:47
248 fóstur fundust í skógi Íbúar í sunnanverðum hlíðum Úralfjallanna í Rússlandi hafa rambað á andstyggilegan fund - fjórar tunnur sem innihéldu 248 mannleg fóstur yfirgefnar í frumskógi. 24.7.2012 13:38
Danskt nautakjöt fær sömu stöðu og kampavín Kjötið af hinni svartflekkóttu dönsku mjólkurkú á Vestur Jótlandi hefur fengið vörumerkjavernd hjá Evrópusambandinu svipað og parmesanostur og kampavín. 24.7.2012 09:49
Breivik fluttur í annað fangelsi Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik var fluttur úr Ila fangelsinu í Skien fangelsið í gær. Þetta staðfesti Geir Lippestad, verjandi Breiviks, í samtali við norska ríkisútvarpið. Lippestad segir að hann hafi verið í sambandi við fangelsismálayfirvöld bæði fyrir og eftir flutningana og hafi fengið þær fréttir að flutningarnir hafi gengið vel. 24.7.2012 09:44
Offeit börn í hættu á að fá hjartasjúkdóma Ný hollensk rannsókn sýnir að börn sem þjást af verulegri offitu séu í hættu á að fá hjartasjúkdóma þegar í grunnskóla eða fyrir 12 ára aldurinn. Hjartsjúkdómar hafa hingað til nær eingöngu verið bundnir við miðaldra fólk. 24.7.2012 06:43
Þögn Obama og Romney um skotvopnalög vekur athygli Athygli vekur að hvorki Barack Obama Bandaríkjaforseti né Mitt Romney keppinautur hans um forsetaembættið hafa tjáð sig um skotvopnalög Bandaríkjanna í kjölfar árásarinnar í Denver í Colorado. 24.7.2012 07:09
Frestuðu aftöku á þroskaheftum fanga Hæstiréttur í ríkinu Georgíu í Bandaríkjunum hefur frestað aftöku á fanga sem er þroskaheftur. 24.7.2012 06:50
Geimfarinn Sally Ride er látin Sally Ride fyrsta bandaríska konan sem fór út í geiminn er látin 61 árs að aldri. Banamein hennar var krabbamein. 24.7.2012 06:48
Vandi Spánar illviðráðanlegur Slæmar fréttir af efnahagslífi Spánar síðustu daga þykja hafa aukið mjög líkurnar á því að stjórn landsins þurfi að leita á náðir björgunarsjóðs evruríkjanna. Mikill titringur var á verðbréfamörkuðum í Evrópu vegna ástandsins og gengi evrunnar lækkaði. 24.7.2012 03:00
Feðgin stukku niður af kletti Gróðureldarnir á norðaustanverðum Spáni síðustu daga hafa kostað fjóra lífið. Fimm manna fjölskylda komst í sjálfheldu og féll af kletti við ströndina með þeim afleiðingum að sextugur faðir og fimmtán ára dóttir hans fórust. 24.7.2012 00:15
Aðeins beitt gegn útlendingum Sýrlandsstjórn segir að efnavopn, sem hún hefur í fórum sínum, yrðu eingöngu notuð gegn innrásarliði. Þeim yrði aldrei beitt gegn eigin landsmönnum. 24.7.2012 00:00
Spáir því að Kínverjar vinni flest verðlaun á Ólympíuleikunum Hagfræðiprófessor spáir því að í fyrsta sinn í sögunni muni Kínverjar vinna til fleiri verðlauna á Ólympíuleikum en Bandaríkjamenn. 23.7.2012 06:52
Þrír hafa farist í skógareldum í Katalóníu á Spáni Þrír hafa farist, 19 slasast og um 135.000 manns hefur verið skipað að halda sig innandyra vegna mikilla skógarelda sem hafa geisað í Katalóníu á Spáni um helgina. 23.7.2012 06:45
Óperusöngvari með hakakross á brjóstinu hættir við Wagner Rússneski óperusöngvarinn Evgeny Nikitin hefur afboðað þátttöku sina á hinni árlegu Wagner hátíð í Bayreuth. Nikitin átti að syngja hlutverk Hollendingsins fljúgandi í einni af þekktari óperum Wagners. 23.7.2012 06:36
Skotmaðurinn verður ekki látinn laus Hinn 24 ára gamli James Holmes, sem grunaður er um að hafa skotið tólf manns til bana í Aurora í Colorado á föstudagsmorgun, var í fyrsta sinn leiddur fyrir dómara í dag. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að Holmes mun sitja í gæsluvarðhaldi og á ekki möguleika á því að verða látinn laus gegn tryggingu. Samkvæmt frásögn BBC fréttastöðvarinnar eru níu alvarlega særðir eftir árásina en alls særðust 58. 23.7.2012 16:54
Myndu ekki nota efnavopn gegn eigin fólki Stjórnin í Sýrlandi myndi aldrei nota efnavopn gegn eigin borgurum en myndi líklega gera það gegn utanaðkomandi árás. Þetta segja stjórnvöld þar í landi. 23.7.2012 15:35
Cameron og Romney funda David Cameron, forsætisráðherra Breta, mun hitta Mitt Romney, forsetaframbjóðanda Repúblikana í Bandaríkjunum, á fimmtudaginn. Talskona Camerons staðfesti þetta í samtali við breska blaðið Daily Telegraph. Blaðið segir að þessi fundur verði mögulega erfiður fyrir Cameron þar sem forsætisráðherra á samkvæmt venju ekki að hitta fólk sem er í framboði til æðstu embætta í öðrum ríkjum. 23.7.2012 15:05