Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yankee stay home Þúsundir manna mættu á útifundi í Indónesíu um helgina til þess að mótmæla fyrirhugaðri heimsókn Baracks Obama til landsins síðar í þessum mánuði. 16.3.2010 13:48
Hálfgert borgarastríð í Mexíkó Baráttan við eiturlyfjabarónana í Mexíkó er sífellt meira að taka á sig mynd borgarastríðs. Ekki er óvenjulegt að tugir manna falli í skotbardögum á degi hverjum. 16.3.2010 13:36
Sænskur vísindamaður hlýtur norræn líforkuverðlaun Göran Berndes, sænskur vísindamaður, hlaut í dag líforkuverðlauna Norrænu ráðherranefndarinnar. Verðlaunin eru veitt einstaklingi eða samtökum sem hafa lagt mikið af mörkum til að auka notkun eða framleiðslu á líforku. Það var Andreas Carlgren, umhverfisráðherra Svíþjóðar, sem afhenti Berndes verðlaunin á orkuþingi sem fer fram í dag í Stokkhólmi. 16.3.2010 11:12
Bandaríkjamenn hætta við Ísraelsheimsókn Bandaríkjamenn hafa hætt við að senda George Mitchell til Ísraels í dag, en hann er sérlegur sendimaður þeirra í Miðausturlöndum. 16.3.2010 10:33
Holskefla nauðungaruppboða í Danmörku Nauðungaruppboðum á íbúðarhúsnæði hefur fjölgað um 164 prósent í Danmörku síðan árið 2006. 16.3.2010 10:10
Eftirskjálfti upp á 6,7 skók Chile Eftirskjálfti upp á 6,7 á Richter skók strendur Chile í gærkvöld um 70 kílómetrum frá borginni Conception. Borgin varð illa úti í skjálfta upp á 8,8 á Richter sem reið yfir landið þann 27. febrúar síðastliðinn. Björgunarsveitamenn í Chile segja að enginn hafi skaðast í eftirskjálftanum og ekki sé vitað um að neinar skemmdir hafi orðið. Ekki er búist við að skjálftinn valdi flóðbylgju. 16.3.2010 08:26
Börnum þrælað út í kakóframleiðslu Næstum helmingurinn af kakói sem framleitt er í heiminum er unnið í barnaþrælkun á Fílabeinsströndinni. Þar er börnum þrælað út, allt niður í átta ára að aldri. Börnunum er í sumum tilfellum smyglað frá nærliggjandi löndum eins og Malí inn í Fílabeinsströndina. Þar er 40% af öllu kakói í heiminum framleitt og selt áfram til heimskunnra fyrirtækja á borð við Nestlé og Mars. 16.3.2010 07:14
Múslimar ætla að stefna dönskum blöðum fyrir breskum dómstólum Hópur múslima hyggst stefna dönskum dagblöðum fyrir breskum dómstólum vegna birtinga á myndum af Múhameð spámanni. 16.3.2010 07:06
Nunna erfði hóruhús Fimmtíu og fimm ára gömul nunna í Skotlandi erfði hóruhús í Austurríki eftir móður sína sem hún hafði aldrei séð. 15.3.2010 16:53
Höfum byggt í Jerúsalem í 40 ár Bandaríkjamenn þrýsta mjög á Ísraela að hætta við áform um að byggja 1600 nýjar íbúðir í austurhluta Jerúsalem. 15.3.2010 15:57
Vill bin Laden fjölskylduna lausa Í bréfi sem sagt er vera frá einum af sonum Osama bin Ladens er æðsti trúarleiðtogi Írans hvattur til þess að sleppa fjölskyldumeðlimum bin Ladens úr prísund sinni. 15.3.2010 15:22
Tígrisdýrin eru að hverfa Gersamlega hefur mistekist að vernda stofn tígrisdýra sem nú er í alvarlegri útrýmingarhættu að sögn stofnunar Sameinuðu þjóðanna um bann við sölu á afurðum dýra í útrýmingarhættu, CITES. 15.3.2010 15:08
Ósprungnar fosfórsprengjur á Gaza ströndinni Sprengjusérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafa sprengt upp 340 fallbyssukúlur og sprengjur sem ekki sprungu þegar Ísraelar vörpuðu þeim á Gaza ströndina í innrásinni á síðasta ári. 15.3.2010 14:51
Handskrifað ritmál er að hverfa Handskrifað ritmál er smámsaman að leggjast af og eftir einhver ár verður hætt að kenna það í skólum, segir framtíðarrýnirinn Johan Peter Paludan í samtali við danska blaðið 24timer. 15.3.2010 13:53
Viðurkenndi morð á sex börnum sínum Þrjátíu og átta ára gömul frönsk kona viðurkenndi fyrir rétti í dag að hún hefði myrt sex nýfædd börn sín. Lík barnanna fundust í plastpokum í kjallara hennar. 15.3.2010 13:24
Norðmenn missa bíla sína Nauðungaruppboð á bílum jukust um 40 prósent í Noregi árið 2009 miðað við árið áður. Það eru bílaumboð og lánastofnanir sem heimta bílana aftur þegar kaupendurnir geta ekki staðið í skilum með afborganir. 15.3.2010 10:34
Ein stærsta rannsókn sem unnin hefur verið á orsökum geðklofa Ef báðir foreldrar barns eru haldnir geðklofa eru næstum 70% líkur á því að barnið sjálft verði haldið einhverjum geðsjúkdóm, sýnir ný dönsk rannsókn. Um 25% líkur eru á því að barnið fá sjálft geðklofa. 15.3.2010 10:17
Fangelsi og há sekt fyrir að selja hvalkjöt Japanskur veitingamaður í Kaliforníu á yfir höfði sér eins árs fangelsi og um 40 milljóna króna sekt fyrir að selja sushi með hvalkjöti. 15.3.2010 09:54
Flokkur Sarkozy tapaði Allt lítur út fyrir að hægriflokkur Frakklandsforseta hafi beðið ósigur í fyrri umferð í héraðskosningunum sem fóru fram í gær. 15.3.2010 08:13
Prestfrú lést á meðan hún fastaði 55 ára prestfrú í Flórída lést nýverið eftir að hún lokaði sig inni í svefnherbergi til að fasta. Það sagðist hún gera til að minnast þess tíma sem Jesús fastaði í eyðimörkinni. 15.3.2010 08:09
Bandaríkjastjórn enn móðguð Bandríkjastjórn telur að Ísraelar hafi sýnt varaforsetanum Joe Biden mikla vanvirðingu þegar þeir tilkynntu í síðustu viku um byggingu 1600 nýrra íbúða gyðinga í austurhluta Jerúsalem. Biden var þá í þriggja daga heimsókn á svæðinu og skyggði tilkynningin á heimsókn hans en vonir voru bundnar við að hún yrði til þess að Ísraelar og Palestínumenn hæfu friðarviðræður á nýjan leik. Palestínumenn vilja að austurhluti borgarinnar verði höfuðborg sjálfstæðrar Palestínu. 15.3.2010 07:57
Kennari kærður fyrir að kalla nemenda aumingja Bandarískur kennari hefur verið kærður fyrir að kalla stúlku í sjötta bekk „loser“ eða aumingja í umsögn í tengslum við ritgerð sem hún skilaði. 15.3.2010 07:10
Århus verði Aarhus Meirihluti borgarstjórnar Árósa vill að stafsetningu á heiti borgarinnar verið breytt og að hætt verði að nota danska bolluaið og að í stað bókstafsins komi tvöfallt A. Frá þessu er greint á vef Berlingske Tidende. 15.3.2010 07:08
Handtekinn fyrir að hóta fjöldamorðum í Svíþjóð Lögreglan í Stokkhólmi handtók í gærkvöldi karlmann sem hefur viðurkennt að hafa hótað að fremja fjöldamorð í Konunglega tækniháskólanum í höfuðborg Svíþjóðar í dag. 15.3.2010 07:00
Boðað verkfall flugliða óréttlætalegt Samgönguráðherra Bretlands gagnrýnir harðlega fyrirhugað verkfall sem flugliðar hjá flugfélaginu British Airways hafa boðað um næstu helgi. Að hans mati eru hinar fyrirhuguðu aðgerðir með öllu óréttlætanlegar. Um helgina slitnaði upp úr viðræðum á milli samningsaðila og lítur allt út fyrir að þúsundir starfsmanna flugfélagsins leggi niður störf í þrjá daga frá og með næsta laugardegi. Ráðherrann telur að boðað verkfall stefni framtíð British Airways í hættu. 15.3.2010 06:58
Vilja Thaksin aftur til valda Bangkok, ap Þúsundir mótmælenda komu saman í Bangkok, höfuðborg Taílands á sunnudag. Mótmælendurnir, sem kenndir eru við rauðar skyrtur, vilja að stjórnvöld leysi upp þingið og efni til kosninga. Þannig vonast þeir til að Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra, komist aftur til valda en hann var settur af með hervaldi árið 2006 vegna meintrar spillingar og misbeitingu valds. 15.3.2010 01:30
Eftirlýstur Baski handtekinn í London Lögreglan í Lundúnum handtók í dag mann sem eftirlýstur er af spænskum yfirvöldum fyrir hryðjuverk. Maðurinn, Garikotz Murua, er 29 ára gamall Baski og er hann talinn tengjast aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA. Er honum gefið að sök að hafa efnt til og tekið þátt í óeirðum og hemdarverkum í Baskalandi. 14.3.2010 20:22
Mamma Maddíar biður fyrir ræningjunum Kate McCann, móðir Maddý litlu sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007, segist biðja fyrir mönnunum sem rændu dóttur hennar. Þetta kemur fram í útvarpsviðtali við Kate sem fór í loftið í dag á BBC. McCann, sem er kaþólsk, segir að Guð hafi gefið sér innri styrk til þess að komast í gegnum daginn þegar portúgalska lögreglan gaf henni réttarstöðu grunaðs í málinu. 14.3.2010 16:38
Árásin í Kandahar var aðvörun til Bandaríkjamanna Sprengjuárásirnar í Kandahar í gær sem urðu að minnsta kosti 35 manns að bana í gær voru aðvörun til Bandaríkjanna og NATO. Talsmaður Talibana lýsti þessu yfir í dag og var árásunum ætlað að fæla Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra frá því að auka við liðsstyrk sinn á svæðinu til þess að hrekja Talíbana á brott. 14.3.2010 15:21
Snjósleðamenn lentu í snjóflóði Þrír snjósleðamenn eru látnir og margra er saknað í Kanada eftir að snjóflóð féll í kanadísku klettafjöllunum í gær. Um 200 snjósleðamenn voru þar samankomnir á móti þegar flóðið skall á hluta hópsins. 14.3.2010 14:23
Ísraelar handsama háttsettan Hamas-liða Háttsettur foringi hjá Hamas samtökunum í Palestínu var handtekinn í dag í árás sem ísraelskir hermenn gerðu í bænum Ramallah á Vesturbakkanum. Maher Udda, er 47 ára gamall og segja Ísraelar að hann tengist dauða um 70 manna í gegnum árin. 14.3.2010 13:51
Frétt af rússneskri innrás í Georgíu var uppspuni Það varð uppi fótur og fit í Georgíu í gærkvöldi þegar sjónvarpsstöð í landinu flutti af því fréttir að rússneskir skriðdrekar væru komnir til höfuðborgarinnar Tblisi og að forseti landsins væri látinn. Fréttinn var uppspuni en engu að síður olli hún miklu uppnámi í landinu og símkerfi landsins hrundi auk þess sem fjöldi fólks þusti út á götur. 14.3.2010 10:14
Jarðskjálfti skók byggingar í Tókýó Öflugur jarðskjálfti skók Japan í morgun og hristust byggingar í höfuðborginni Tókýó. Skjálftinn átti upptök sín um 80 kílómetra undan austurströnd landsins og mældist hann 6,6 stig. 14.3.2010 09:55
Þrettán myrtir í Acapulco Þrettán voru drepnir í mexíkönsku strandborginni Acapulco í gær. Morðin eru talin tengjast fíkniefnaviðskiptum og höfðu morðingjarnir hoggið höfuðin af fjórum fórnarlambanna. 14.3.2010 08:30
Fangar í Georgíu afplána dóma í munkaklaustrum Til stendur að láta fanga í Georgíu afplána dóma sína í munkaklaustrum þar í landi vegna skorts á fangelsisrými. 14.3.2010 07:00
Telja að Logi geimgengill hafi fyrstur stigið á tunglið Eitt af hverjum 10 börnum í Bretlandi telur að drottningin þeirra hafi fundið upp síman, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem var gerð til að meta þekkingu barna. Sumir eignuðu jafnvel Charles Darwin og Noel 13.3.2010 22:00
Jesú fær andlitslyftingu Styttan af Jesú Kristi sem gnæfir yfir brasilísku borgina Rio de Janeiro er nú í allsherjar yfirhalningu. Rigningar hafa tært hluta andlits styttunnar og hendur hennar og þá hefur styttan einnig skemmst í eldingarveðrum í gegnum árin. Verkamenn vinna nú hörðum höndum að því að flikka upp á styttuna en búist er við því að viðgerðin kosti um fjórar milljónir dollara. 13.3.2010 21:00
Húsgögn Michaels Jackson á uppboð Aðdáendur poppkóngsins Michaels Jackson sem lést í fyrra eiga brátt kost á því að bjóða í húsgögn sem stjarnan hafði látið sérsmíða fyrir sig rétt áður en hann lést. Um er að ræða 22 gripi sem allir áttu að fara til Bretlands en Jackson hafði í hyggju að flytjast á glæsilegt sveitasetur í Kent en þegar hann lést var hann að æfa fyrir stóra tónleikaröð í London. 13.3.2010 20:30
25 látnir í Kandahar Fjórar sprengjur sprungu í afgönsku borginni Kandahar í dag og svo virðist sem um skipulagðar árásir hafi verið að ræða. Sprengjurnar sprungu nærri hóteli, fangelsi, mosku og á gatnamótum í miðborginni að því er lögreglustjóri borgarinnar segir. 13.3.2010 16:52
Kostnaðarsamt kuldakast Tölur frá breskum tryggingafélögum sýna að kostnaður þeirra vegna kuldakastsins sem gekk yfir Bretland í desember og janúar hleypur á hundruðum milljónum punda. 335 þúsund tryggingakröfur voru afgreiddar og er heildartalan um 650 milljónir punda eða um 125 milljarðar íslenskra króna. 13.3.2010 16:47
Karzai skiptir um skoðun og leyfir kosningaeftirlit Hamid Karzai forseti Afganistans hefur skipt um skoðun og ætlar nú að leyfa alþjóðasamfélaginu að fylgjast með komandi þingkosningum í landinu. Áður hafði hann þvertekið fyrir að hleypa erlendum kosningaeftirlitsmönnum inn í landið og í síðasta mánuði voru sett lög í landinu sem heimila forsetanum að skipa sjálfur alla fimm meðlimi nefndar sem hefur yfirumsjón með því að kosningarnar fari vel fram. 13.3.2010 15:59
Feitar byttur fara verr með lifrina en mjóar Fólk sem drekkur áfengi og er einnig of feitt á í meiri hættu að fá lifrarsjúkdóma heldur en mjóslegnari byttur. Þetta sýna tvær nýjar rannsóknir sem benda báðar til þess að offita og áfengisneysla fari illa saman og auki líkurnar á lifrarsjúkdómum. 13.3.2010 14:33
92 ára kona myrti 98 ára gamlan eiginmann sinn 92 ára gömul áströlsk kona hefur verið ákærð fyrir að myrða manninn sinn sem var 98 ára. Lögreglan fór á heimili hjónanna eftir að ættingjar þeirra höfðu lýst áhyggjum sínum yfir heilsu mannsins. 13.3.2010 13:56
Stefnir í þriggja daga verkfall hjá British Airways Þúsundir Breta í ferðahugleiðingum reyna nú að breyta áætlunum sínum til þess að lenda ekki í verkfalli sem flugliðar hjá British Airways hafa boðað á næsta laugardag. 13.3.2010 13:15
Grikkir fá risalán frá ESB Evrópusambandið ætlar að veita Grikkjum neyðarlán upp á allt 25 milljarða Evra. Þetta er fullyrt í breska blaðinu The Guardian í dag. 13.3.2010 10:23