Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Var virkur á stefnumótasíðum Daninn Bjarne Østergaard Madsen sem var handtekinn á föstudag í Árósum fyrir morð á kærustu sinni, Lisbet Nielsen, hengdi sig í fangaklefa í gær. Hans aðal áhugamál voru konur og stefnumót. Þetta kemur fram í Extrabladet í dag. 1.11.2009 16:26
Sómalskir sjóræningjar gætu verið að fjármagna hryðjuverkasamtök Háttsettur ráðgjafi hjá Nato í sjóræningjastarfsemi gagnrýnir bresk stjórnvöld fyrir að rannsaka ekki nægilega hvort greiðslur í lausnarfé til sómalskra sjóræningja fari í fjármögnun hryðjuverkasamtaka, líkt og al-Qaida. 1.11.2009 15:18
Fjöldamorðingi handtekinn í Bandaríkjunum Lögreglan í Cleveland í Bandaríkjunum hefur nú í haldi sínu mann sem grunaður er um að vera fjöldamorðingi. Sex lík hafa fundist á heimili mannsins sem áður hefur hlotið dóm fyrir nauðgun. 1.11.2009 12:00
Karzai einn í framboði - Abdullah hættur við Abdullah Abdullah lýsti því formlega yfir í morgun að hann ætlaði ekki að taka þátt í síðari umferð forsetakosninga í Afganistan, en kosningarnar áttu að fara fram um næstu helgi. Abdullah greindi stuðningsmönnum sínum frá þessu í Kabúl í morgun. 1.11.2009 09:46
Óeining meðal sómalskra sjóræningja - bresk hjón í haldi Sómalskir sjóræningjar sem halda breskum hjónum föngnum sögðu í dag að þau hefðu verið færð á nýjan stað en óeining er á meðal sjóræningjanna samkvæmt Reuters fréttaveitunni. 31.10.2009 13:00
Skipuleggja íþróttaveislur í skugga óaldar Í fátækrahverfum Rio de Janeiro í Brasilíu ráða stórtækir eiturlyfjabarónar lögum og lofum. Þeir kalla sig nöfnum á borð við ‚Scooby' og ‚Big Baby', eru búnir bestu vopnum sem völ er á, sæta ásökunum um að pynta lögreglumenn og tókst fyrir viku að skjóta niður lögregluþyrlu. 31.10.2009 05:15
Rekinn fyrir að tala um eiturlyf David Nutt, yfirmaður fíkniefnamála hjá breska innanríkisráðuneytinu, var rekinn í gær. Ástæðan var sú að hann sagði í fjölmiðlum að maríjúana, e-töflur og LSD væru hættuminni en áfengi. 31.10.2009 05:00
Þurfa 100 milljarða evra í sjóð Evrópusambandið telur að 100 milljarða evra þurfi í sjóð til hjálpar fátækum ríkjum vegna loftslagsbreytinga. Allt að helmingur þeirrar upphæðar eigi að koma frá ríkjum víða um heim. 31.10.2009 04:45
Íraki keyrði á dóttur sína Írakskur maður hefur verið handtekinn í Arizona í Bandaríkjunum fyrir að hafa vísvitandi ekið bíl á dóttur sína. 31.10.2009 04:30
Bildt gagnrýnir Íransstjórn Íran Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, gagnrýnir stjórnvöld í Teheran og segir þau beita sömu gömlu brögðunum til að knýja kjarnorkuáætlun sína í gegn. Svíþjóð gegnir nú formennsku í Evrópusambandinu, en evrópskir leiðtogar eru sagðir undirbúa harðorða ályktun vegna málsins. 31.10.2009 04:00
Mótorhjólagengi myrti átta félaga Sex félagar í mótorhjólagenginu Bandidos í Kanada hafa verið dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir að myrða átta félaga sína í innbyrðis uppgjöri. 30.10.2009 15:19
Gera ráð fyrir að almenn bólusetning geti hafist í síðari hluta nóvember Horfur eru á að unnt verði að hefja almenna bólusetningu við svínaflensunni fyrr en gert var áður ráð fyrir, það er að segja í síðari hluta nóvember í stað desember. Ástæðan er sú að meira berst af bóluefni til landsins næstu daga og vikur en reiknað var með í upphaflegum áætlunum. 30.10.2009 15:08
Jörðin er að kólna Mælingar sýna að jörðin er að kólna. Það hefur valdið því að hitnað hefur í kolunum í umræðunni um hnatthlýnun. 30.10.2009 14:12
Fyrrverandi forseti Frakklands fyrir dóm Franskur rannsóknardómari hefur skipað Jacques Chirac fyrrverandi forseta Frakklands að mæta fyrir dóm til að svara ásökunum um misnotun á almannafé meðan hann á sínum tíma var borgarstjóri Parísar. 30.10.2009 11:36
Tveggja klukkustunda hópnauðgun Bandaríkjamenn eru sem þrumu lostnir yfir tveggja klukkustunda hópnauðgun á fimmtán ára stúlku, sem fjöldi manns horfði á án þess að aðhafast nokkuð annað en taka myndir af ódæðinu. 30.10.2009 10:10
Ný gögn um helförina í skrifum aðstoðarmanns Hitlers Náinn aðstoðarmaður Adolfs Hitler, sem lést um helgina, gæti varpað nýju ljósi á kenningar endurskoðunarsinna um helför gyðinga. 30.10.2009 08:21
Ók á bíla og elti fólk með hníf á lofti Það þykir ganga næst kraftaverki að ekki slösuðust fleiri en einn þegar óður maður á fertugsaldri gekk berserksgang á fjölfarinni götu í Árósum í gær, vopnaður jeppabifreið og eggvopni. 30.10.2009 08:17
Tíu helstu draugabæirnir opinberaðir Áströlsk ferðasíða hefur valið tíu helstu draugabæi heimsins, staði sem ekki sála býr á. 30.10.2009 08:13
Vonir Blair dvína Vonir Tonys Blair fyrrverandi forsætisráðherra Breta um að verða fyrsti forseti ráðherraráðs Evrópusambandsins fara nú dvínandi. Leiðtogar sambandsins hittust í gær og á fundinum stuðningsmönnum Blairs ekki að tryggja nægilegan stuðning við hugmyndina. 30.10.2009 07:54
Neyðarástand í New York vegna svínaflensu David Paterson, ríkisstjóri New York, hefur lýst yfir neyðarástandi í ríkinu vegna svínaflensufaraldursins. Í New York-borg einni saman hafa 800.000 manns greinst með flensuna síðan hennar varð fyrst vart í vor. 30.10.2009 07:11
Áttundi fóturinn finnst við Vancouver Áttunda mannsfætinum hefur nú skolað upp á Kyrrahafsströnd Kanada, nálægt Vancouver. Fæturnir hafa fundist einn af öðrum yfir tveggja ára tímabil en töluvert langt er um liðið síðan fótur fannst síðast á svæðinu. 30.10.2009 07:08
Hussein hugðist flýja úr fangelsinu Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, hafði gert áætlun um að flýja úr fangavistinni hjá Bandaríkjamönnum árið 2006 með aðstoð manna sem voru honum hliðhollir. 30.10.2009 07:05
Heimskir glæponar Lögreglan í bænum Carroll í Iowa í Bandaríkjunum átti ekki í miklum erfiðleikum með að finna tvo innbrotsþjófa sem hún fékk tilkynningu um. 29.10.2009 15:02
Mannlaus skúta eftir sjórán Búið er að finna seglskútu breskra hjóna sem sómalskir sjóræningjar rændu fyrr í vikunni. Skútan var mannlaus. 29.10.2009 14:32
95 ára aldursmunur brúðhjóna Mörghundruð brúðkaupsgestir voru til staðar þegar Ahmed Dore gekk að eiga Safíu Abdulleh í bænum Guriceel í Sómalíu. 29.10.2009 12:35
Glænýr sáttatónn í Írönum Í ræðu sem hann hélt í Íran í dag sagði Mahmoud Ahmadinejad forseti að samskiptin við Vesturlönd hefðu breyst úr árekstrum í samvinnu. 29.10.2009 11:36
Sléttuúlfar drápu unga söngkonu Taylor Mitchell var upprennandi þjóðlagasöngkona í Kanada sem þótti eiga bjarta framtíð. Hún var nítján ára gömul. 29.10.2009 09:51
Umferðargenið er fundið Nú er orðið tilgangslaust að bölva glórulausum ökumönnum í umferðinni. Þeir geta nefnilega ekkert að þessu gert. 29.10.2009 08:38
Loftslagsmál og Lissabon-sáttmálin rædd í Brussel Loftslagsmál og Lissabon-sáttmálinn eru þau mál sem líklegast þykir að brenni mest á leiðtogum Evrópusambandsþjóðanna þegar þeir hittast á leiðtogafundi í Brussel í dag. Á fundinum er stefnt að því að komast að niðurstöðu um hve mikið hvert aðildarland sambandsins þarf að greiða til þróunarríkjanna til þess að hjálpa þeim í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. 29.10.2009 08:20
Heimilislausum fækkar í LA Heimilislausu fólki í Los Angeles hefur fækkað töluvert þrátt fyrir alvarlega efnahagskreppu í Kaliforníu. 29.10.2009 07:21
Skutu fjölda skota á bíl í Brøndby Lögreglan í Brøndby á Kaupmannahafnarsvæðinu leitar nú að mönnum sem skutu sjö eða átta skotum út um bílglugga á annan bíl sem þeir mættu á götu. 29.10.2009 07:20
Sjóræningjar hóta að myrða hjónin Sómölsku sjóræningjarnir, sem rændu breskum hjónum þar sem þau voru í siglingu um Indlandshaf, hafa hótað að myrða hjónin og brenna bein þeirra, eins og það er orðað, verði ekki orðið við kröfum þeirra um lausnargjald. 29.10.2009 07:15
Skotlandsmet í of hröðum akstri Tæplega þrítugur skoskur hárgreiðslumaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að aka vélhjóli á tæplega 270 kílómetra hraða eftir vegi þar sem hámarkshraðinn er 90 kílómetrar á klukkustund. 29.10.2009 07:13
BA hækkar gjöld enn á ný Breska flugfélagið British Airways mun á ný hækka innritunargjöld fyrir farangur 10. nóvember og hækkar gjald fyrir þriðju tösku sem innrituð er úr 32 pundum í 72 sem er jafnvirði rúmra 14.000 króna. 29.10.2009 07:04
Margir enn fastir í húsarústum Margir eru enn fastir undir brennandi húsarústum eftir sprengjuárásina sem gerð var í Pakistan í morgun. Slökkviliðsmenn og björgunarsveitir reyna í örvæntingu að bjarga þeim áður en það er um seinan. 28.10.2009 20:41
Siglir undir brú sem er sjö metrum of lág Það fylgjast sjálfsagt margir Danir með þegar risaskipið Oasis of The Seas reynir að sigla á fullri ferð undir Stórabeltisbrúna. Skipið er sjö metrum of hátt. 28.10.2009 15:21
Hefði étið T-Rex í morgunmat Steingervingafræðingar í Bretlandi eru nú búnir að raða saman kjálkabeinum úr risavöxnu sæskrímsli sem fundust í fjöru í Dorset. Fyrstu beinin fundust árið 2002 og síðan hafa fundist tuttugu og fimm til viðbótar. 28.10.2009 14:50
Norðmenn vilja losna við erlend glæpagengi Norðmenn eru orðnir svo þreyttir á þjófagengjum frá Austur-Evrópu að þeir ætla að kanna hvort sé hægt að framlengja varðhald yfir þeim þartil hægt er að vísa þeim úr landi. 28.10.2009 13:06
Verðlaunum rignir í Stokkhólmi Ársþing Norðurlandaráðs er haldið í Stokkhólmi að þessu sinni. Auk þess að ræða margvísleg málefni landanna eru þar einnig veitt margvísleg verðlaun. 28.10.2009 11:15
Áttatíu fórust í sprengjuárás í Pakistan Að minnsta kosti áttatíu manns fórust og tugir særðust þegar öflug sprengja sprakk í markaðsgötu í borginni Peshawar í Pakistan í dag. 28.10.2009 09:45
Upptökur af Baghdad-sprengingum birtar Yfirvöld í Írak hafa birt myndbandsupptökur úr öryggismyndavélum sem sýna sprengingarnar er urðu 155 manns að bana í miðborg Baghdad á sunnudaginn. 28.10.2009 08:57
Enn sprengt í Pakistan Að minnsta kosti sextán létust og tugir eru slasaðir eftir að stór sprengja sprakk á markaði í pakistönsku borginni Peshawar í morgun. Eldur læsti sig í nærliggjandi byggingar eftir að sprengjan sprakk. Ekkert lát virðist vera á sprengjuárásum í landinu sem virðast vera hefndaraðgerðir gegn aðgerðum stjórnarinnar gagnvart Talíbönum. Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nú í opinberri heimsókn í höfuðborginni Islamabad. 28.10.2009 08:55
Bensíndropinn dýr í Bretlandi Félag breskra bifreiðaeigenda hefur lýst yfir áhyggjum af því að lítrinn af eldsneyti þar í landi kosti nú að meðaltali 1,07 pund, rúmar 200 íslenskar krónur, en slíkar álögur hafa ekki sést þar í landi fram að þessu. 28.10.2009 07:09
Sex starfsmenn SÞ drepnir í Afganistan Sex erlendir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna í Afganistan voru myrtir í nótt og níu særðust í árás sem gerð var í höfuðborg landsins Kabúl. Árásin var gerð á gistihúsi sem starfsmenn samtakanna nota að staðaldri en vígamenn sáust fara inn í bygginguna. 28.10.2009 07:06
Sjóræningjar hafa bresk hjón í haldi Sómalskir sjóræningjar hafa lýst á hendur sér mannráni bresku hjónanna Paul og Rachel Chandler sem hurfu sporlaust í siglingu frá Seychelles-eyjum til Tansaníu. Í tilkynningu frá sjóræningjunum segir að þeir hafi náð snekkju hjónanna í Indlandshafi og væru á leið með hana til hafnar. 28.10.2009 07:04