Umferðargenið er fundið Atli Steinn Guðmundsson skrifar 29. október 2009 08:38
Nú er orðið tilgangslaust að bölva glórulausum ökumönnum í umferðinni. Þeir geta nefnilega ekkert að þessu gert. Litlir hæfileikar við stýrið eru nefnilega í genunum eins og svo margt annað. Spekingar hjá Kaliforníuháskóla lögðust í rannsóknir á þessu og fundu út að fólk með ákveðna uppröðun DNA-erfðaefnis, sem um það bil 30 prósent Bandaríkjamanna hafa, stóð sig almennt rúmlega 20 prósentum verr í verklegum ökuprófum en þeir sem ekki hafa þessa sérstöku uppröðun. Og það sem verra er, þessum hópi fer ekki fram í umferðinni eftir því sem hann öðlast meiri reynslu við stýrið, þvert á móti fer honum aftur. Genið sem er öðruvísi í þessum hópi stjórnar ákveðnu próteini sem hefur áhrif á aðgerðaminni fólksins og virðist koma einkar augljóslega fram í aksturshæfileikum, sé eitthvað að marka rannóknina. Dr. Steven Cramer, sem stjórnar rannsókninni, segist velta því fyrir sér hve hátt hlutfall þeirra sem eru í órétti í umferðaróhöppum búi yfir þessari sérstöku erfðatilhögun. Nú þýðir sem sagt ekkert lengur að vera að blikka þá sem aka á 50 á vinstri akrein, geta ekki með nokkru mótið bakkað í stæði og eru heila mínútu að koma sér af stað eftir að græna ljósið er komið. Þeir hafa einfaldlega ekki umferðargenið.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Sjá meira