Margir enn fastir í húsarústum 28. október 2009 20:41
Margir eru enn fastir undir brennandi húsarústum eftir sprengjuárásina sem gerð var í Pakistan í morgun. Slökkviliðsmenn og björgunarsveitir reyna í örvæntingu að bjarga þeim áður en það er um seinan. Talið er að yfir eitthundrað manns hafi fallið þegar flug sprengja sprakk í verslunargötu í borginni Peshawar í Pakistan í dag. Henni var að sögn fjarstýrt. Eldur kviknaði í mörgum nærliggjandi húsum við sprenginguna og þau stóðu í björtu báli. Brakið á sprengistaðnum var svo mikið að björgunarsveitir áttu óhægt um vik að komast á vettvang. Í dag hefur jöfnum höndum verið unnið að því að slökkva elda og bjarga fólki úr rústunum. Einnig að fjarlægja lík. Fréttamaður Sky fréttastofunnar í Pakistan segir að talið sé að margir séu grafnir undir húsarústum og að tala látinna eigi eftir að hækka verulega. Enginn vafi er á að talibanar stóðu á bak við þetta ódæðisverk. Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nýkomin í heimsókn til Pakistans til þess að stappa stálinu í stjórnvöld og hvetja þau til þess að herða enn sóknina gegn talibönum. Her Pakistans hefur undanfarna daga verið að herja á helsta víghreiður talibana sem er í héraðinu Suður-Waziristan skammt frá landamærunum að Afganistan. Hernum hefur að sögn orðið vel ágengt en talibanar hafa verið að hefna sín með fjöldamorðum á óbreyttum borgurum.
Tengdar fréttir Áttatíu fórust í sprengjuárás í Pakistan Að minnsta kosti áttatíu manns fórust og tugir særðust þegar öflug sprengja sprakk í markaðsgötu í borginni Peshawar í Pakistan í dag. 28. október 2009 09:45 Enn sprengt í Pakistan Að minnsta kosti sextán létust og tugir eru slasaðir eftir að stór sprengja sprakk á markaði í pakistönsku borginni Peshawar í morgun. Eldur læsti sig í nærliggjandi byggingar eftir að sprengjan sprakk. Ekkert lát virðist vera á sprengjuárásum í landinu sem virðast vera hefndaraðgerðir gegn aðgerðum stjórnarinnar gagnvart Talíbönum. Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nú í opinberri heimsókn í höfuðborginni Islamabad. 28. október 2009 08:55 Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Sjá meira
Áttatíu fórust í sprengjuárás í Pakistan Að minnsta kosti áttatíu manns fórust og tugir særðust þegar öflug sprengja sprakk í markaðsgötu í borginni Peshawar í Pakistan í dag. 28. október 2009 09:45
Enn sprengt í Pakistan Að minnsta kosti sextán létust og tugir eru slasaðir eftir að stór sprengja sprakk á markaði í pakistönsku borginni Peshawar í morgun. Eldur læsti sig í nærliggjandi byggingar eftir að sprengjan sprakk. Ekkert lát virðist vera á sprengjuárásum í landinu sem virðast vera hefndaraðgerðir gegn aðgerðum stjórnarinnar gagnvart Talíbönum. Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nú í opinberri heimsókn í höfuðborginni Islamabad. 28. október 2009 08:55