Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bílsprengja í Írak Bílsprengja sem sprakk í Diyala héraði í Írak í dag varð 15 mönnum að aldurtila og slasaði að minnsta kosti 20. Að sögn lögreglu sprakk sprengjan við varðstöð lögreglu enda létust sjö lögreglumenn í tilræðinu. Al Kaída samtökin hafa enn sterka stöðu í héraðinu sem er norðan við Bagdad. 16.11.2008 13:14
Enn eitt sjóránið undan Sómalíuströndum Sjóræningjar réðust í gær á Japanskt flutningaskip undan ströndum Sómalíu, að því er Suður-Kóresk stjórnvöld segja. 23 eru í áhöfn skipsins og eru þeir allir í haldi sjóræningjanna. Áhafnarmeðlimir eru frá Suður-Kóreu og Fillipseyjum en ekki er vitað um ástand þeirra og líðan að svo stöddu. Skipið er tuttugu þúsund tonn að stærð og var það að flytja efnavörur. 16.11.2008 11:50
Írakar samþykkja veru Bandaríkjamanna í þrjú ár í viðbót Ríkisstjórn Íraks samþykkti í morgun samkomulag við Bandaríkjamenn sem heimilar veru bandarískra hermanna í Írak næstu þrjú árin til viðbótar. Samkomulagið verður lagt fyrir íraska þingið síðar í vikunni. 16.11.2008 10:20
Skógareldar brenna enn í Kalíforníu Slökkviliðsmenn í Kalíforníu berjast enn við skógarelda í Montecito sýsly í Los Angeles. Rúmlega tvö þúsund manns berjast við eldana sem loga á tveimur stöðum en hætta er talin á því að Los Angeles verði rafmagnlaus nái eldarnir að raforkuveri í nágrenninu. Mikill vindur er á svæðinu sem gerir slökkvistarf erfitt og nær ómögulegt er að beita flugvélum og þyrlum við slökkvistarfið. 15.11.2008 19:59
Geimfarar drekka endurunnið þvag Á verkefnalista geimfaranna sem lögðu af stað með geimferjunni Endeavour í gær áleiðis að alþjóðlegu geimstöðinni verður að koma fyrir nýju kerfi sem endurvinnur allt vatn um borð og gerir það drykkjarhæft. Þegar talað er um allt vatn um borð er einnig átt við þvagið úr geimförunum en þeir munu í framtíðinni drekka það. 15.11.2008 20:55
Lítið að frétta frá Washington Óvíst er að nokkur áþreifanleg niðurstaða fáist á leiðtogafundi um alheimskreppuna í Washington í dag. Leiðtogar nítján ríkja, forvígismenn Evrópusambandsins og fulltrúar alþjóðasamtaka sitja fundinn sem hófst í Washington í gærkvöldi. 15.11.2008 19:05
Kona til æðstu metorða í Bandaríkjaher Kona komst í fyrsta sinn í gær til æðstu metorða í bandaríska hernum. Ann Dunwoody varð þá fjögurra stjörnu hershöfðingi fyrst kvenna. Hún stjórnar birgðamálum fyrir herinn, hefur yfirumsjón með hergögnum hvers konar. 15.11.2008 16:09
Tíu létust í bílsprengjuárás í Írak Tíu manns létust og tugir eru slasaðir eftir að bílsprengja sprakk á bílasölu í norðurhluta landsins í bænum Tal Afar. Bærinn er í Nineveh héraði þar sem skæruliðar á vegum al Kaída hafa látið mikið til sín taka undanfarið. 15.11.2008 13:46
Tamíltígrum stökkt á flótta Stjórnarherinn á Srí Lanka segist hafa náð allri vesturströnd landsins á sitt vald og hrakið uppreisnarmenn Tamíltígra á flótta. Talið er að herinn geti innan tíðar sótt af fullri hörku úr þremur áttum að vígi tígranna í Kí-lí-nosjí. 15.11.2008 10:09
Breskir íhaldsmenn óttast um pundið Íhaldsmenn í Bretlandi óttast að dagar breska pundsins geti verið taldir vegna aðgerða ríkisstjórnar Verkamannaflokksins til bjargar bresku efnahagslífi. George Osborne, talsmaður Íhaldsflokksins í efnahagsmálum, segir í viðtali við breska blaðið Times í morgun að Gordon Brown, forsætisráðherra, sé of viljugur til að taka lán til að bjarga efnahag landsins. 15.11.2008 09:47
Meira en 5 þúsund heimili rýmd vegna skógarelda Að minnsta kosti 13 manns hafa slasast og 100 heimili eyðilagst í miklum eldum sem geysa í suðurhluta Kalíforníu, á stað sem oft er kallaður Riverían. 14.11.2008 23:38
Obama mun funda með McCain á mánudag Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, mun hitta öldungadeildarþingmannin og fyrrverandi mótframbjóðanda sinn, John McCain, næstkomandi mánudag. 14.11.2008 20:58
Ég hengi hann upp á eistunum sagði Putin Vladimir Putin forsætisráðherra Rússlands var í miklum vígahug þegar stríðið við Georgíu stóð sem hæst. 14.11.2008 16:08
Upplýst um dulnefni Baracks Obama Bandaríska leyniþjónustan hefur meðal annars það hlutverk að gæta öryggis forsetans, fjölskyldu hans og háttsettra embættismanna. 14.11.2008 14:49
Samþykkja að lengja kjörtímabil forseta Rússlands Neðri deild rússneska þingsins samþykkti í dag með yfirgnæfandi meirihluta tillögu Medvedevs forseta um að lengja kjörtímabil forsetans úr fjórum árum í sex. 14.11.2008 13:04
Verður Hillary utanríkisráðherra í ríkisstjórn Obama? Barack Obama er að hugsa um að skipa Hillary Clinton í embætti utanríkisráðherra, að sögn innanbúðarmanna í herbúðum hins nýkjörna forseta. 14.11.2008 10:49
NASA birtir myndir af plánetum í öðru sólkerfi NASA birtir í dag í fyrsta sinn myndir af plánetum utan okkar sólkerfis. Með allra nýjustu tækni í ljósmyndun með stjörnusjónauka hefur vísindamönnum NASA auðnast að ná myndum af fjórum plánetum sem nýlega voru uppgötvaðar utan okkar sólkerfis. 14.11.2008 08:35
Obama hverfur af þingi á sunnudag Barack Obama hefur sagt af sér embætti öldungadeildarþingmanns frá og með næsta sunnudegi. 14.11.2008 08:32
Kínverjar hafa ekki áhuga á að hjálpa öðrum Það mætti ætla að Kínverjar væru nokkuð ánægðir með 9 prósenta hagvöxt á síðasta ársfjórðungi. 13.11.2008 18:05
Hittir loksins Dalai Lama Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, mun funda með Dalai Lama, andlegum leiðtogi Tíbeta, í næsta mánuði í Póllandi. 13.11.2008 14:16
Fritzl ákærður fyrir morð Austurríkismaðurinn Josef Fritzl hefur verið ákærður fyrir morð á einu þeirra sjö barna sem hann eignaðist með dóttur sinni. Það lést skömmu eftir fæðingu, í kjallaranum þar sem Fritzl hélt dótturinni fanginni í 24 ár. 13.11.2008 13:30
Talibanar vilja stöðva aftökur - annarra Afganistan hóf aftökur á nýjan leik í þessari viku eftir árs hlé. Níu manns hafa verið teknir af lífi fyrir morð, nauðganir og mannrán. Þrír talibanar voru í þeim hópi. 13.11.2008 12:15
Rússar tilbúnir að hætta við eldflaugar Það hefur farið ósegjanlega í taugarnar á Rússum að Bandaríkjamenn skuli ætla að setja upp tíu loftvarnaeldflaugar í Póllandi. 13.11.2008 11:45
Danskur hermaður dæmdur fyrir voðaskot Dómstóll í Hilleröd í Danmörku dæmdi í dag danskan hermann í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa orðið félaga sínum í hernum að bana í búðum Dana í Afganistan fyrr á árinu. 13.11.2008 10:28
Stór-glæpamaður of stór fyrir fangaklefa Kanadískum fanga var sleppt úr fangelsi áður en hann hafði afplánað dóm sinn þar sem hann var of feitur til að rúmast í fangaklefa. 13.11.2008 08:16
Úrgangi fargað á laun á Ítalíu Ítölsk heilbrigðisyfirvöld rak í rogastans þegar þau uppgötvuðu iðnaðarúrgang sem hafði verið grafinn niður með leynd í úthverfi Napólí. 13.11.2008 07:29
Norskir innbrotsþjófar slá af kröfunum Óprúttnir aðilar sjá sér víða leik á borði og Norðmenn horfa nú upp á öldu rána og þjófnaða sem enginn eðlilegur þjófur hefði látið standa sig að fyrir aðeins nokkrum vikum. 13.11.2008 07:27
Spá 45 prósenta aukningu gróðurhúsalofttegunda Ekki er útilokað að gróðurhúsalofttegundir í andrúmslofti jarðar muni aukast um 45 prósent fram til ársins 2030. 13.11.2008 07:23
Hvalir áfram kvaldir Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að sjóherinn megi nota bergmálstæki á æfingum sínum undan suðurströnd Kaliforníu án takmarkana vegna hvala. 12.11.2008 16:14
Ahmadinejad brýnir Obama Allir sem vinna gegn írönsku þjóðinni verða kramdir, að sögn Mahmoud Ahmadinejad forseta Írans sem segist hafa meiri áhyggjur af stefnu bandarískra stjórnvalda gagnvart Íran heldur en hver fari með völd í Hvíta húsinu. 12.11.2008 14:19
Grætur eftir að hafa tapað forsetaslag John McCain öldungadeildarþingmaður segist gráta hástöfum eftir að hafa tapað fyrir Barack Obama í forsetakosningunum. 12.11.2008 12:53
Forseti Súdans lýsir yfir vopnahléi í Darfur-héraði Omar al-Bashir, forseti Súdans, tilkynnti í morgun um vopnahlé í hinu stríðshrjáða Darfur-héraði sem taka myndi gildi strax og yrði skilyrðislaust. 12.11.2008 10:59
Viðmót eldri kvenna þægilegra Fimmtíu ára og eldri konur eru almennt geðbetri en þær yngri og ólíklegra að þeim sé í nöp við sér yngri konur. 12.11.2008 08:13
Danir punga ríflega út fyrir tannlæknaþjónustu Danir liggja nú í því hvað varðar tannlæknakostnað en hann rýkur upp eins og margt annað þessa dagana. 12.11.2008 07:37
Bush játar að hafa orðið fótaskortur á tungunni George Bush Bandaríkjaforseti játar loksins undir lok embættistíma síns að sumar yfirlýsinga hans hafi ef til vill ekki verið sem allra heppilegastar. 12.11.2008 07:31
Obama telur brýnt að aðstoða fólk í húsnæðiskröggum Hinn nýkjörni og verðandi Bandaríkjaforseti, Barack Obama, lýsti því yfir í gær að brýnt væri að veita millistéttarfólki, sem sæi fram á að missa húsnæði sitt, hjálp hið bráðasta. 12.11.2008 07:30
Sarkozy og prinsinn af Wales seinir til minningarathafnar Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og Karl, prins af Wales, urðu sér til nokkurrar minnkunar í þegar þeir mættu tíu mínútum of seint til minningarathafnar við Douaumont, blóðugasta vígvöll fyrri heimsstyrjaldarinnar, í gær. 12.11.2008 07:24
Óttast hungursneyð í Simbabve Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að minnka matarskammta sem hún deilir út í Simbabve vegna þess að engin viðbrögð hafi borist við ósk stofnunarinnar um 140 milljóna dollara framlag til þess að fæða hina sveltandi í landinu. 11.11.2008 16:37
Leitar nýrra heimkynna fyrir íbúa Maldíveyja Mohamed Nasheed, sem tók í dag við embætti forseta Maldíveyja, bíður heldur óvenjulegt verkefni. Það er að finna þjóð sinni ný heimkynni. 11.11.2008 15:27
Minnast loka fyrri heimsstyrjaldar Níutíu ár eru í dag frá lokum fyrri heimsstyrjaldar. Þeirra tímamóta er minnst víða um heim í dag. 11.11.2008 12:34
Kjarnorkusprengja undir ísnum á Grænlandi? Bandarísk kjarnorkusprengja er talin liggja undir ísnum á norðvesturhluta Grænlands, nærri Thule ratsjárstöðinni. Bandarísk sprengjuflugvél fórst þar fyrir fjörutíu árum. Ein fjögurra kjarnorkusprengja um borð fór í sjóinn og fannst aldrei. 11.11.2008 12:26
Obama vill neyðarfjárvetingu til bílaframleiðenda Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, hefur beðið George Bush, fráfarandi forseta, um að styðja tillögu um neyðarfjárveitingu til bílaframleiðenda í Bandaríkjunum til að koma í veg fyrir gjaldþrot. Bush og Obama funduðu í Hvíta húsinu í gærkvöldi. Fundur þeirra var sá fyrsti frá forsetakosningunum fyrir viku. 11.11.2008 12:22
Westergaard með fleiri Múhameðsteikningar Kurt Westergaard, einn af teiknurum Jótlandspóstsins í svokölluðu Múhameðsmáli, hyggst senda frá sér fleiri myndir í þá veru eftir því sem Berlingske Tidende segir frá. 11.11.2008 10:51
Verkmannaflokkurinn sækir enn í sig veðrið Verkamannaflokkurinn undir forystu Gordons Brown sækir enn í sig veðrið í Bretlandi fyrir frammistöðuna í fjármálakreppunni ef marka má nýja skoðanakönnun breska blaðsins Times. 11.11.2008 09:12
Tvöhundruð og fimmtíu bresk börn í afbrotum daglega Tvöhundruð og fimmtíu börn eru staðin að glæpum í Bretlandi hvern dag samkvæmt tölum frá lögreglu þar í landi. 11.11.2008 08:15