Fleiri fréttir

Eftirlit með mannréttindahópum hert í Rússlandi

Óttast er að mannréttindahópar í Rússlandi hrekist nú úr landi eftir að rússneska þingið, Dúman, samþykkti ný lög sem virðast eiga að gera mannréttindahópum erfiðara fyrir með að starfa í landinu. Samkvæmt lögunum verða allir slíkir hópar að skrá sig hjá því opinbera og samþykkja eftirlit af hálfu lögreglunnar.

Bolton hótar að Bandaríkjamenn afgreiði ekki fjárlög fyrir SÞ

John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur hótað því að Bandaríkin afgreiði ekki fjárlög fyrir Sameinuðu þjóðirnar nema starf samtakanna verði endurskipulagt og það fyrir næstu áramót. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur sagt að tillögur um endurskipulagningu muni ekki liggja fyrir fyrr en í febrúar á næsta ári.

Pinochet í stofufangelsi vegna skattsvika

Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, hefur verið hnepptur í stofufangelsi vegna gruns um skattsvik. Pinochet, sem er 89 ára að aldri, er einnig sakaður um að nota fölsuð opinber skjöl og að veita rangar upplýsingar um eignir sínar, upp á 1,7 milljarða íslenskra króna.

Merkel segir Evrópu þurfa stjórnarskrá

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir Evrópusambandið ekki mega afskrifa stjórnarskrárdrögin sem Frakkar og Hollendingar höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslum í sumar. Sagði Merkel, er hún heimsótti höfuðstöðvar sambandsins í Brussel í dag, Evrópu þarfnast stjórnarskrár.

Barnamjólk tekin úr verslunum vegna bleks

Milljónir lítra af barnamjólk frá matvælarisanum Nestle hafa verið fjarlægðar úr verslunum eftir að blek fannst í mjólkinni. Stormur í vatnsglasi, segir forstjóri fyrirtækisins.

Hersveitir fljótlega frá Írak?

Það verður ekki þörf á öllum þeim hersveitum sem eru í Írak miklu lengur að mati Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Sirleaf lýst sigurvegari í forsetakosningum í Líberíu

Ellen Johnson-Sirleaf varð í dag fyrsta konan sem kjörin er þjóðarleiðtogi í Afríkuríki þegar kjörstjórn í Líberíu lýsti hana sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru 8. nóvember síðastliðinn. Sirleaf, sem var áður fjármálráðherra landsins og er menntaður hagfræðingur, bar sigurorð að fyrrverandi knattspyrnuhetjunni George Weah sem hefur haldið því fram að svindlað hafi verið í kosningunum.

Vopnaðir menn drápu feðga í Bagdad

Vopnaðir menn í einkennisbúningi íraskra hermanna skutu og drápu í nótt sjötugan súnníta og þrjá syni hans á heimili þeirra í Bagdad. Konurnar á heimilinu voru látnar í friði.

Merkel komin til Parísar

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er komin til Parísar. Um er að ræða fyrstu opinberu heimsókn Merkels sem kanslari. Með í för er utanríkisráðherra Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier. Fréttaskýrendur telja ástæðuna fyrir því að París hafi verið fyrir valinu, sem fyrsti áfangastaður hennar sem kanslari, sú að hún hafi viljað styrkja samband þjóðanna tveggja. Merkel heldur áfram til Brussel í dag og endar för sína í London þar sem hún verður á morgun.

Átta milljónir án vatns í Harbin í Kína

Yfir átta milljónir manna eru nú án vatns í borginni Harbin í Kína. Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa borgarinnar þegar ákveðið var að loka fyrir vatnsveitu borgarinnar en ástæðan var sprenging í efnaverksmiðju sem varð á dögunum.

Pallbíll og lest skullu saman í Tyrklandi

Að minnsta kosti níu manns fórust og um tuttugu slösuðust þegar farþegalest skall á pallbifreið í suðurhluta Tyrklands í dag. Pallbifreiðin var að flytja vinnumenn á bóndabæ, en allir þeir sem létust voru í bifreiðinni. Bifreiðin var að aka þvert yfir lestarteina þegar slysið varð. Lestarslys eru tíð í landinu en þetta var það fjórða í landinu á síðustu tveimur árum.

Slagsmál í þinginu

Slagsmál brutust út í þinginu í suður-kóreu í morgun þegar frumvarp um að opna hrísgrjónamarkaðinn og greiða fyrir innflutningi á þessari vöru, var samþykkt. Þingmenn lítils stjórnarandstöðuflokks reyndu að hertaka forsetasætið í þingsalnum en þingmenn stjórnarflokkanna komu í veg fyrir það. Hundruð bænda mótmæltu utan við þinghúsið en þeir óttast um afkomu sína og þúsundir bænda stóðu fyrir mótmælum víðs vegar um landið. Forseti þingsins, sagði þingið ekki haft aðra kosti en að samþykkja frumvarpið þar sem Suður-Kórea væri í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi.

Ísraelskir hermenn særðu palestínska unglinga

Sex palestínskir unglingar særðust alvarlega þegar ísraelskir hermenn skutu þá eftir áhlaup á borgina Jenín á Vesturbakkanum í morgun. Þá særðust einnig þrír hermenn í átökunum við uppreisnarmennina. Jenín hefur verið vettvangur blóðugustu átakanna sem hafa átt sér stað frá því að Palestínumenn hófu uppreisn fyrir fimm árum.

Ísraelsþing samþykkir nýjan flokk Sharons

Ísraelska þingið lagði í dag blessun sína yfir hinn nýja miðjuflokk Ariels Sharons forsætisráðherra sem hann stofnaði á mánudaginn eftir að hann sagði sig úr Likud-bandalaginu. Flokkurinn hefur enn ekki fengið nafn en hefur stuðning sextán þingmanna á ísraelska þinginu, 15 sem áður voru í Likud-bandalaginu og eins úr Verkamannaflokknum.

Sífellt fleiri rottur ónæmar fyrir eitri í Danmörku

Æ fleiri rottur í Danmörku eru verða ónæmar fyrir þeim eiturefnum sem notuð hafa verið til að drepa þær. Greint er frá því í Politiken í dag að stórum hluta landsins hafi meindýraeyðar fundið rottur sem þola vel þrjú af sex eiturefnum sem finnast á markaðnum.

Barir lengur opnir á Bretlandi frá miðnætti

Ný lög um afgreiðslutíma vínveitingastaða í Bretlandi taka gildi á miðnætti í kvöld en þá verður eigendum staðanna leyft að hafa opið allan sólarhringinn kjósi þeir það. Hingað til hafa barir aðeins mátt vera opnir til klukkan 11 en frá og með morgundeginum geta bjórþyrstir Bretar setið lengur að sumbli á fjölmörgum stöðum.

Venesúelamenn aðstoða fátæka Massachusetts-búa

Ríkisstjórn Venesúela hefur nú hlaupið undir bagga með fátækum íbúum Massachusetts í Bandaríkjunum með því að selja þeim olíu til húshitunar á mun lægra verði en gengur og gerist.

Samkynhneigðir ótækir sem prestar, segir Vatíkantið

Vatíkanið segir að samkynhneigðir menn sem stundi kynlíf séu ótækir til að gegna prestsembættum nema þeir hafi haft taumhald á samkynhneigðinni í að minnsta kosti þrjú ár. Kemur þetta fram í skjali sem ítalska fréttastofan Adista hefur birt á netinu.

Þingkosningar í Ísrael 28. mars

Þingkosningar verða haldnar í Ísrael þann 28. mars á næsta ári. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Jerúsalem í gær. Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, sagði sig úr Likud-bandalaginu í vikunni en hann hyggst stofna nýjan flokk og hefur boðið Simoni Perez um að ganga til liðs við sig í flokki, sem hann kallar hófstilltan miðjuflokk.

Sakfelldur fyrir aðild að al-Qaida í Bandaríkjunum

Hinn 24 ára gamli Ahmed Omar Abu Ali var í gær fundinn sekur af alríkisdómstól í Bandaríkjunum um aðild að hryðjuverkasamtökunum al-Qaida og samsæri um að ætla að ráða George Bush Bandaríkjaforseta af dögum.

Ítalskir hermenn heim frá Írak

Ítalir ætla að draga herlið sitt heim frá Írak. Áætlanir um brottflutning hersins verða kynntar í janúar á næsta ári. Varnarmálráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfeld, hitti Antonio Martino, varnarmálaráðherra Ítalíu, í gær þar sem Martino tilkynnti honum um áætlanir Ítala.

Stóra samsteypa hefst handa

Angela Merkel sór í gær embættiseið sem kanslari Þýskalands. Hún er fyrsta konan sem gegnir því embætti. Nýju samsteypustjórnarinnar bíður erfið glíma við atvinnuleysis-, efnahags- og kerfisvanda.

Merkel tekin við völdum

Angela Merkel, formaður Kristilega demókrataflokksins í Þýskalandi, er tekin við embætti kanslara Þýskalands af Gerard Schröder. Hún er áttundi kanslari Þýskalands frá stríðslokum og fyrsta konan sem gegnir embætti þessu. Þýska þingið, Bundestag, valdi hana með 397 atkvæðum af 614.

Lokað fyrir vatn í Harbin vegna sprengingar í efnaverksmiðju

Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa í Harbin, einni af stærstu borgum Kína, þegar ákveðið var að loka fyrir vatnsrennsli vegna sprengingar í efnaverksmiðju á dögunum sem varð fimm manns að bana. Til þess ð tryggja öryggi íbúa borgarinnar var ákveðið að skrúfa fyrir vatnið í fjóra daga.

Vill upplýsingar frá Íslandi

Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag hefur sent Atlantshafsbandalaginu og stjórnvöldum í Bandaríkjunum, Kanada, Lúxemborg og á Íslandi beiðni um afrit af hleruðum fjarskiptum fyrrverandi yfir­manns júgóslavneska heraflans. Beiðnin er send í tengslum við rannsókn á meintum stríðsglæpum hershöfðingjans fyrrverandi, Dragoljubs Ojdanic.

Saka Sharon um valdníðslu

Kosningabaráttan fyrir þingkosningarnar í Ísrael í vor er þegar hafin. Stuðningsmenn Ariels Sharon forsætisráðherra, sem í fyrradag klauf Likud-bandalagið, ítrekuðu í gær markmið hins nýja flokks um að friðarsamkomulagi við Palestínumenn yrði náð og þeir fengju að stofna sjálfstætt ríki.

Gambíturinn gæti borgað sig

Brotthvarf Ariel Sharon úr Likud-bandalaginu markar upphaf nýs kafla í stjórnmálasögu í Ísrael. Ljóst er að þessi aldni haukur tekur umtalsverða áhættu með þessu bragði sínu en skoðanakannanir benda þó til að flétta forsætisráðherrans geti vel gengið upp.

Skipta hugsanlega úr F-35 í Eurofighter

Nýja vinstristjórnin í Noregi ætlar að endurskoða þátttöku Norðmanna í þróun nýju F-35 orrustuþotunnar sem Bandaríkjamenn hafa forgöngu um, og áskilur stjórnin sér rétt til að kaupa frekar evrópsku Eurofighter-þotuna. Norðmenn áforma að kaupa nýjar orrustuþotur árið 2008 fyrir andvirði 600 milljarða íslenskra króna.

Nýr patríarki rétttrúnaðarkirkjunnar

Theofilos þriðji varð í dag nýr patríarki grísku rétttrúnaðarkirkjunnar með viðhöfn í hinni helgu borg Jerúsalem. Theofilos tekur við af Irineos, sem neyddist til að hætta í maí, eftir ásakanir um að hann hefði leigt landskika í Jerúsalem í eigu kirkjunnar til gyðingahóps. Theofilos hlaut öll greidd atkvæði í vali um arftaka Irineosar.

Hizbollah ætla að sýna fulla hörku

Hundruð söfnuðust saman í þorpinu Siskin í suðurhluta Líbanon til að vera við útför bardagamanns Hizbollah-samtakanna, sem féll í átökum við Ísraela við landamæri landanna tveggja í gær.

Merkel sór embættiseið

Angela Merkel sór embættiseið sem áttundi kanslari Þýskalands eftir síðari heimstyrjöld í dag.

Rannsaka fangaflug í Evrópu

Sérstök samevrópsk rannsóknarnefnd um leynifangelsi CIA kannar nú tugi grunsamlegra flugferða sem hafa lent í Evrópu undanfarin ár.

Maður verður fyrir lest -í annað sinn

Maður varð fyrir lest í New York um síðustu helgi. Maðurinn slasaðist á höfði en ástand hans er stöðugt. Þetta er í annað sinn sem maðurinn verður fyrir lest en hann varð fyrir lest og slasaðist á höfði fyrir þremur árum.

Krefjast svara um fangaflug og leynifangelsi

Evrópusambandið vill að bandarísk stjórnvöld geri hreint fyrir sínum dyrum vegna upplýsinga sem komið hafa fram um fangaflug CIA með meinta hryðjuverkamenn og leynileg fangelsi í Evrópu.

Íhugaði árás á Al-Jazeera

George W. Bush Bandaríkjaforseti íhugaði að fyrirskipa sprengjuárás á höfuðstöðvar Al-Jazeera sjónvarpsstöðvarinnar í Katar í fyrra en Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, talaði hann ofan af því á fundi þeirra í Washington í fyrra. Þessu er haldið fram í breska blaðinu Daily Mirror í dag.

Ríkið eitt að áfengissölu

Systembolaget, sænska áfengiseinkasalan, ætlar að berjast fyrir því að ríkinu einu verði leyft að selja áfengi þar í landi. Formælandi Systembolaget segir það ekki vera áætlun Svía að segja öðrum þjóðum hvernig fara eigi með áfengi, heldur að fá Evrópusambandsþjóðir til að sætta sig við hvaða leiðir Svíar fari í þeim efnum. Evrópusambandið hefur lagt hart að stjórnvöldum í Svíþjóð að breyta fyrirkomulagi við sölu áfengis þar í landi en mikill meirihluti Svía er fylgjandi því að áfengi sé selt í verslunum á vegum ríkisins.

Styrkir stöðu sína

Bræðralag múslima, flokkur íslamista í Egyptalandi, hefur enn styrkt stöðu sína og fengið 25% þeirra þingsæta sem þegar hefur verið kosið um. Þó er talið víst að endaleg úrslit kosninganna muni ekki breyta því að flokkur Hosnis Mubaraks forseta sitji áfram við stjórnvölin eins og undanfarinn aldarfjórðung. Starfsemi Bræðralagsins er opinberlega bönnuð, en flokkurinn hefur þó fengið að starfa óáreittur og hafði aðeins 15 af 454 þingsætum fyrir kosningarnar.

30 þúsund störf lögð niður

Forstjóri General Motors tilkynnti þetta í gær. Fyrirtækið hyggst fækka verksmiðjum um tólf talsins en þær eru alls um áttatíu í landinu öllu í dag. Á fyrsta níu mánuðum ársins nam tap fyrirtækisins um fjórum milljörðum bandaríkjadala eða sem nemur 240 milljörðum íslenskra króna. Formenn verkalýðsfélaganna segja þetta gríðarlegt áfall fyrir heilu bæjarfélögin þar sem á sumum stöðum er ekki ym aðra vinnu að ræða. Stjórnendur fyrirtækisins segja þó að General Motors muni reyna að koma til móts við þá starfsenn sem sagt verður upp með bótum en ljóst sé þó að ef ekki verði ráðist í að segja upp hluta starfsmanna núna, verði fyrirtækið að segja öllum upp áður en langt um líður. Uppsagnirnar séu erfiðar en nauðsynlegar.

Fleiri landnemabyggðir lagðar niður

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, útilokar ekki að fleiri landnemabyggðir Ísraela á Vesturbakkanum verði lagðar niður. (LUM) Sharon sagði þetta á blaðamannafundi í gær þar sem hann kynnti stefnu nýs miðjuflokks síns í Jerúsalem. Hann sagði að flokkurinn myndi vinna að koma á friði og ró fyrir botni Miðjarðarhafs. Skírskotaði Sharon þar til alþjóðlegrar friðaráætlunar. Hann sagði ennfremur að flokkurinn myndi beina spjótum að vandamálum í Ísrael, eins og til dæmis fátækt, glæpum og ofbeldi.

Breytingartillögur á stjórnarskrá Kenýa felldar í gær

Breytingartillögur á stjórnarskránni í Kenýa voru felldar í gær. Úrslitin eru áfall fyrir forseta Kenýa, Mwai Kibaki, sem barðist fyrir breytingartillögunum. Tölur sem bárust í morgun gefa til kynna að 3,2 manna hafi kosið gegn breytingartillögunum og 2,2 milljónir með henni. Þá á eftir að telja um 850.000 atkvæði.

83 hafa farist í flóðum í Kólumbíu

83 hafa látist og 5 er saknað í Kólumbíu eftir tvo mánuði af stöðugum regnstraumi sem hefur valdið miklum flóðum um norð-vestur héruð landsins. Auk hinna látnu hafa um 250 þúsund manns lent illa í flóðum, aurskriðum og ám sem flæða yfir bakka sína.

Örninn besta erlenda þáttaröðin

Danska sjónvarpsþáttaröðin Örninn var valin besta dramatíska erlenda dramatíska þáttaröðin á þrítugustu og þriðju Emmyhátíðinni fyrir erlenda sjónvarpsframleiðslu sem haldin var í Bandaríkjunum síðustu nótt.

Hættulegasta borg Bandaríkjanna

Borgin Camden í New Jersey fylki í Bandaríkjunum er talin vera hættulegasta borg Bandaríkjanna. Þetta er annað árið sem borgin er efst á lista yfir hættulegustu borgir í Bandaríkjunum.

73 ára Norðmaður fékk lottóvinning í annað sinn á ævinni

73 ára gamall Norðmaður datt heldur betur í lukkupottinn fyrir stuttu og það í annað sinn á ævinni. Um helgina vann Friðþjófur Bodin um tíu milljónir íslenskra króna en fyrir 14 árum vann hann um 17 milljónir íslenskra króna í Lottóinu í Noregi.

Sjá næstu 50 fréttir