Fleiri fréttir

Hryðjuverk eða samsæri?

Hryðjuverk eða samsæri leyniþjónusta er spurningin sem brennur á íbúum Líbanons í dag. Reiði og tortryggni ríkir vegna morðsins á fyrrverandi forsætisráðherra landsins.

Í hættu í óveðri á Miðjarðarhafi

Sjö hundruð manns voru hætt komin þegar farþegaskip lenti í stormi á Miðjarðarhafinu og missti vélarafl. Heppni virðist hafa ráðið því að bjarga tókst fleyinu og farþegum þess.

Tveir skotnir til bana

Ísraelskir hermenn skutu tvo vopnaða Palestínumenn til bana nærri byggð landtökumanna á Vesturbakkanum eftir að dimma tók í gærkvöldi. Talsmaður hersins sagði hermenn hafa orðið vara við Palestínumennina þar sem þeir nálguðust Bracha, landtökubyggð Ísraela.

Skoða aðstæður fyrir friðargæslu

Afrískir og arabískir embættismenn skoðuðu þjálfunarbúðir fyrir lögreglumenn og ræddu við borgarstjórann í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, þegar þeir komu þangað til að kanna aðstæður áður en ákvörðun verður tekin um að senda friðargæsluliða til landsins sem hefur búið við stjórnleysi í rúman áratug.

Deila um vegatálma

Ísraelskir og palestínskir samningamenn deildu í gær um hvernig staðið skyldi að brottför Ísraelshers frá Jeríkó á Vesturbakkanum og hvað gera skyldi við vegatálma og hersveitir í nágrenni borgarinnar.

Ísrael á krossgötum

Ísraelar þurftu að stíga sársaukafull skref til að vinna að friði, sagði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, á fundi í Jerúsalem með Samtökum erlendra fréttamanna. Hann vísaði til ákvörðunar sinnar um að leggja niður byggðir landtökumanna á Gaza og hluta Vesturbakkans.

Skatturinn rannsakar Pinochet

Skattayfirvöld í Chile hafa sett aukinn kraft í rannsókn á skattamálum Augusto Pinochet, fyrrum forseta landsins. Skattayfirvöld hyggjast fara í gegnum skattframtal Pinochet síðustu tuttugu árin til að rannsaka hvort hann hafi svikið undan skatti.

Drukkin af munnskoli

Bandarísk kona var dæmd til tveggja ára skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. Konan viðurkenndi að hafa verið undir áhrifum og sagði það vegna þess að hún hefði drukkið þrjú glös af munnskoli sem inniheldur áfengi. Áfengismagn munnskolsins sem konan notaði, Listerine, er 26,9 prósent.

Uppreisn gegn aðbúnaði

Á þriðja hundrað fangar í fangelsi í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, gerðu uppreisn gegn slæmum aðstæðum í fangelsinu og kröfðust þess að fangelsisstjóranum yrði vikið úr starfi.

Læknir þykir líklegastur

Ibrahim al-Jaafari, læknir sem vann stærstan hluta starfsævi sinnar í London, þykir líklegastur til að verða næsti forsætisráðherra Íraks. Adel Abdul Mahdi, annar maður sem þótti líklegur til að taka við embætti forsætisráðherra, dró sig í hlé í gær.

Al-Kaída enn stórhættuleg

Al-Kaída samtökin eru enn fær um að gera mannskæðar árásir, að því er fram kemur í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Þar segir enn fremur að aðeins sé tímaspursmál hvenær samtökunum takist að gera mannskæða árás.

Sannfærður um að deilum sé lokið

Mahmoud Abbas, nýkjörinn leiðtogi Palestínumanna, segist sannfærður um að langvinnum deilum Palestínumanna og Ísraelsmanna sé í raun lokið. Í viðtali við bandaríska dagblaðið <em>New York Times</em> í gær sagði Abbas að málflutningur Ariels Sharons í garð Palestínumanna væri gjörbreyttur og að í sameiningu væru leiðtogarnir tveir staðráðnir í að binda enda á ófriðinn.

Stjórnmálamanni rænt í Írak

Mannræningjar í Írak rændu í gær yfirmanni kristinnar stjórnmálahreyfingar í landinu. Maðurinn var á leið í höfuðstöðvar flokksins þegar honum var rænt. Sjónvarpsstöðin Al-Arabya greindi frá þessu í gær.

Setja á fót norræna sjónvarpsstöð

Íslenskir kvikmyndaframleiðendur eru í hópi þeirra sem standa að stofnun sjónvarpsstöðvarinnar Skandinavíu sem á að sjónvarpa norrænu sjónvarpsefni og kvikmyndum. Að sögn danska blaðsins <em>Politiken</em> standa alls 52 aðilar á Norðurlöndum að stöðinni og verður útsendingartími hennar frá klukkan þrjú á daginn til klukkan eitt eftir miðnætti.

Norður-Kórea ekki kjarnorkuveldi

Það er ekki tímabært að líta á Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldi þrátt fyrir nýlegar yfirlýsingar Norður-Kóreumanna um að þeir búi yfir kjarnorkuvopnum. Þetta sagði sameiningarráðherra Suður-Kóreu í morgun. Hann segir að hvorki hafi verið staðfest að Norður-Kóreumenn eigi kjarnorkuvopn né að þau hafi verið prófuð, ef þau séu fyrir hendi sannanlega.

Foreldrar barns 81 fundnir

Búið er að finna rétta foreldra barns 81 sem fannst á lífi í rústum í kjölfar hamfaranna í Suðaustur-Asíu á annan í jólum. Níu konur sögðust vera mæður barnsins og þar sem ekki var hægt að sanna eitt né neitt var gripið til þess ráðs að gera DNA-próf. Nú hefur hið sanna komið í ljós en foreldrarnir þurfa þó að bíða í tvo daga til viðbótar uns þeir fá barnið afhent.

Nýtt afbrigði af HIV-veirunni

Nýtt afbrigði af HIV-veirunni, sem lyf bíta ekki á, fannst í manni í New York í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Það sem sérfræðingar óttast mest við þetta nýja afbrigði er að það virðist leiða mun fljótar til alnæmis en veiran gerir alla jafna. Ámóta afbrigði veirunnar hefur áður fundist en aldrei í þeirri mynd að ekki sé hægt að halda henni niðri með lyfjum.

Mannskæð flóð í Kólumbíu

Neyðarástand ríkir nú í norðurhluta Kólumbíu þar sem meira en tuttugu manns hafa látið lífið í miklum flóðum. Flóðin hafa jafnað meira en fimm þúsund hús við jörðu og 25 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Gríðarlegar rigningar hafa verið víða í Kólumbíu síðan á föstudaginn en að sögn veðurfræðinga er útlit fyrir að þeim muni brátt linna.

Réðst vopnaður inn í barnaskóla

Einn maður lést og tveir særðust þegar sautján ára piltur vopnaður hnífi réðst inn í barnaskóla í borginni Osaka í Japan. Engin börn slösuðust og hefur maðurinn verið handtekinn. Atvikið vekur upp minningar um morð á átta börnum í leikskóla í Japan fyrir fjórum árum. Árásarmaðurinn þá, sem var einnig vopnaður hnífi, var tekinn af lífi fyrir verknaðinn fyrir hálfu ári.

Vill þjóðarsátt um ríkisstjórn

Lykilmaður innan hreyfingar sjíta segir að ný ríkisstjórn í landinu verði ekki mynduð nema um hana ríki þjóðarsátt. Líklegt er talið að sjítar, sem hlutu nærri helming atkvæða í kosningunum 30. janúar, muni mynda samsteypustjórn með bandalagi Kúrda eða flokki Iyads Allawis, forsætisráðherra bráðbirgðastjórnarinnar.

Skemmdu olíuleiðslur í Kirkuk

Uppreisnarmenn skemmdu í gærkvöldi gas- og olíuleiðslur í borginni Kirkuk í Írak. Tvær stórar sprengingar urðu í kjölfarið og í morgun voru slökkviliðsmenn enn að reyna að ráða niðurlögum mikilla elda sem brutust út vegna skemmdarverkanna.

Kostnaður meiri en aflaverðmæti

Sænskur eftirlitsiðnaður með sjávarútvegi þar í landi er vaxinn sjávarútvegnum yfir höfuð þar sem hann kostar meira en sem nemur aflaverðmæti þeirra skipa sem verið er að fylgjast með. Þetta er niðurstaða sænskra blaða- og fréttamanna í Gautaborg sem könnuðu málið.

Særður eftir árás á hermann

Ísraelskir hermenn særðu Palestínumann sem reyndi að stinga hermann í borginni Hebron á Vesturbakkanum í morgun. Samkvæmt ísraelska hernum kom maðurinn að einni eftirlitsstöð hersins í Hebron og reyndi að stinga hermanninn en hann náði að ýta árásarmanninum frá sér. Í kjölfarið skutu félagar hermannsins manninn og er hann samkvæmt ísraelska útvarpinu í lífshættu.

Vill endurskoða starf innan NATO

Hætta er á að Atlantshafsbandalagið verði úrelt verði ekki brugðist við, að mati Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands. Hann telur nauðsynlegt að koma á fót nýjum vettvangi til að samhæfa stefnu og aðgerðir stjórnvalda í Washington og Evrópusambandsins. Schröder er einnig á því að Evrópusambandið eigi að hafa meiri völd í bandalaginu.

Vill auka vægi ESB innan NATO

Hætta er á að Atlantshafsbandalagið verði úrelt verði ekki brugðist við, að mati Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands. Hann kynnti um helgina hugmyndir sem auka vægi Evrópusambandsins og ýta öðrum þjóðum, þar á meðal Íslandi, út á jaðarinn.

Sögð leggja grunn að árás á Íran

Stríðstólin sveima yfir Íran, samkvæmt fregnum bandarískra fjölmiðla, sem segja stjórnvöld í Washington leggja grunninn að innrás.

Öflug sprenging í Beirút

Að minnsta kosti níu létust og tugir slösuðust í öflugri sprengingu í Beirút í Líbanon fyrir stundu. Mikill reykjarmökkur steig til himins frá bíl sem var sprengdur í tætlur þegar bílalest fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons ók þar fram hjá. Nokkrir bílanna lentu í sprengingunni, sem var mjög öflug, en óljóst er um örlög forsætisráðherrans fyrrverandi.

Engin lyf duga á HIV-afbrigðið

Bráðsmitandi afbrigði HIV-veirunnar hefur fundist í Bandaríkjunum. Engin lyf virðast duga á þetta afbrigði, sem dregur menn til dauða á mun skemmri tíma en hingað til hefur sést.

Hariri lést í sprengingu í Beirút

Raffik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanon, lést þegar öflug bílsprengja sprakk í miðborg Beirútar í dag. Að minnsta kosti níu létust og tugir slösuðust. Mikill reykjarmökkur steig til himins frá bíl sem var sprengdur í tætlur þegar bílalest forsætisráðherrans fyrrverandi ók þar hjá.

Lestarslys í Kaupmannahöfn

Talið er að um tuttugu hafi slasast, þar af tveir alvarlega, eftir lestarslys norðan við Lyngby-járnbrautarstöðina í Kaupmannahöfn fyrir stundu. Slysið var þegar lest á leið í suðurátt ók inn í hliðina á kyrrstæðri lest við norðurenda stöðvarinnar. Að sögn <em>Berlingske Tidende</em> eru lestarstjórarnir tveir mest slasaðir.

Býður eftirlitsmenn velkomna

Utanríkisráðherra Írans lýsti því yfir í dag að eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna væri velkomið skoða þá staði í landinu þar sem kjarnorkueldsneyti er framleitt. Þessi orð lét hann falla í kjölfar deilna Írana og Bandaríkjanna um kjarnorkumál, en þeir síðarnefndu telja Írana reyna að smíða kjarnavopn.

Myrti einn kennara og særði annan

Nú er komið í ljós að japanski drengurinn sem réðst vopnaður hnífi inn í barnaskóla í bænum Neyjagawa skammt frá Osaka í Japan myrti 52 ára kennara. Þá særði drengurinn tvo aðra alvarlega með hnífi, sextuga kennslukonu sem er talin í lífshættu og starfsmann mötuneytis.

Komust burt með tíu milljónir

Bankaræningjar komust undan með andvirði tíu milljóna íslenskra króna eftir bankarán í miðborg Kaupmannahafnar í morgun. Ræningjarnir voru tveir og hótuðu starfsfólki með skammbyssu og afsagaðri haglabyssu. Þeir voru í bankanum í tæpa klukkustund og yfirheyrðu starfsfólkið hvert í sínu lagi um hver hefði aðgang að bankahólfum.

Rauð blóm bönnuð í Sádi-Arabíu

Vesturlandabúar tjá margir hverjir ást sína með rauðum rósum á Valentínusardaginn, sem er í dag. Í Sádi-Arabíu er hins vegar með öllu bannað að selja rauð blóm í kringum þennan dag elskenda. Strangtrúaðir múslímar eru í herferð gegn þessum degi því samkvæmt þeirra sannfæringu eru aðeins tvær trúarhátíðir á ári, hátíðarhöld eftir föstuna og Haj-pílagrímaförin.

Syrgja Hariri á götum úti

Stuðningsmenn Rafiks Hariris, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, sem lét lífið þegar öflug bílsprengja sprakk í miðborg Beirútar í dag, fara nú hrópandi um götur borgarinnar til að láta í ljós reiði sína og sorg vegna tilræðisins. Alls fórust tólf manns og tugir slösuðust þegar sprengjan sprakk í sömu andrá og bílalest forsætisráðherrans fyrrverandi ók hjá.

35 látnir í eldsvoða í Teheran

Þrjátíu og fimm létust um það bil 200 slösuðust í eldsvoða í mosku í Teheran í Íran fyrr í dag. Íranska ríkissjónvarpið segir að eldur hafi kviknað út frá rafmagnshitablásara, en fjölmenni var við bænir í moskunni enda stutt í mikla trúarhátíð hjá sjítamúslímum.

Öngþveiti í Madrid

Loka þurfti götum kringum háhýsið sem brann til kaldra kola í Madríd um helgina. Samgöngur lömuðust og fleiri þúsundir komust ekki til vinnu sinnar þar sem hætta var á að turninn félli alveg saman. </font /></b />

Skorið úr um foreldra

Nú liggur fyrir hverjir eru foreldrar þriggja mánaða gamals drengs sem lagður var inn á sjúkrahús eftir flóðbylgjuna á Indlandshafi. Niðurstaða lífsýnatöku sýnir að hjón sem börðust hvað harðast fyrir því að fá drenginn eru raunverulegir foreldrar hans.

Cesar kominn til Maryland

Cesar Arnar Sanchez, íslenski hermaðurinn sem særðist alvarlega í Írak, er kominn á hersjúkrahús í Maryland í Bandaríkjunum. Móðir hans fór utan í dag og vonast hún til að hitta hann strax á morgun. Cesar Arnar særðist alvarlega í sprengjuárás og missti meðal annars sjón á öðru auga.

625 lík hafa fundist

Staðfest er að 625 erlendir ríkisborgarar voru á meðal þeirra ríflega 167 þúsund fórnarlamba flóðbylgjunnar í Indlandshafi sem hafa fundist látin. Enn er tuga þúsunda manna saknað, þar af meira en tvö þúsund erlendra ríkisborgara.

Háir hælar og Viagra til Indónesíu

Vesturlandabúar hafa verið duglegir að safna hjálpargögnum fyrir fórnarlömb flóðbylgjunnar í Indlandshafi. Þó hafa gjafirnar komið að misjöfnu gagni og í raun ótrúlegustu hlutir sem hafa verið sendir til fólks sem á um sárt að binda.

Íranir sverja af sér sakir

Írönsk stjórnvöld eru ekki að þróa kjarnorkuvopn að sögn Kamel Kharrazi, utanríkisráðherra Írans. Bandarískt stjórnvöld og Evrópusambandið hafa haft miklar áhyggjur af kjarnorkuáætlun Írana.

Windsor-byggingin ekki endurreist

Háhýsið sem brann í Madríd á Spáni um helgina er rústir einar, en það tók slökkviliðið sólarhring að slökkva eldinn. Windsor-byggingin er 32 hæða en lítið stendur eftir annað en burðarveggir. Byggingin var þekkt í Madríd en ekki er búist við því að hún verði endurreist. Svæðið í kring er enn lokað af þar sem óttast er að byggingin hrynji. Ekki liggur enn fyrir hvað olli brunanum.

Mesta árás frá styrjaldarlokum

Gríðaröflug sprengja kostaði þrettán lífið í Líbanon í dag, en þetta er mannskæðasta árás þar síðan að borgarastyrjöldinni lauk. Íslamskur öfgahópur lýsti tilræðinu á hendur sér.

Óttast að nýr stofn breiðist út

Nýr og ógnvekjandi stofn HIV-veirunnar var greindur í New York í síðustu viku. Engin lyf virðast duga á veiruna og hún leiðir til alnæmis mun hraðar en þekkst hefur hingað til. Óttast er að nýr stofn lyfjaónæmrar HIV-veiru breiðist nú út.

Sjá næstu 50 fréttir