Fleiri fréttir

Al-Sadr fær lokafrest

Iyad Allawi, sem gegnir stöðu forsætisráðherra Íraks, hefur gefið öfgaklerknum Muqtada al-Sadr lokafrest til að yfirgefa Imam Ali moskuna í Najdaf og fyrirskipa hersveitum sínum að leggja niður vopn. Al-Sadr hafði fallist á vopnahlé í gær en setti síðan fram ýmsar kröfur sem ekki var hægt að ganga að. 

Uggandi vegna Bandaríkjahers

Sumir íranskir herforingjar telja réttast að verða fyrri til að láta til skarar skríða ef þeir telja hættu á að Bandaríkjamenn komi til með að gera árás á Íran. Þetta sagði Ali Shamkhani, varnarmálaráðherra Írans, í viðtali á Al-Jazeera sjónvarpsstöðinni.

Efnir ekki loforðið

Þrátt fyrir loforð sín um að vinna gegn spillingu í palestínsku heimastjórninni hefur Jasser Arafat neitað að staðfesta löggjöf sem er ætlað að sporna gegn spillingu.

Fortíð föðurins reyndist dýrkeypt

Syndir feðranna geta enn reynst mönnum erfiðar. Það fékk Shin Ki-nam, leiðtogi Uri-flokksins sem er við völd í Suður-Kóreu, að reyna. Hann hefur nú neyðst til að segja af sér í kjölfar ásakana um að hafa reynt að breiða yfir störf föður síns fyrir japanska hernámsveldið.

Spáðu þvert á úrslit

Útgönguspá sem bandarískt fyrirtæki gerði meðan kosningarnar í Venesúela voru enn í fullum gangi er nú í miðdepli deilna um hvort brögðum hafi verið beitt til að tryggja Hugo Chavez forseta áframhaldandi völd. Samkvæmt spánni vildu 59 prósent kjósenda binda enda á kjörtímabil forsetans en talning atkvæða sýndi að 59 prósent vildu hafa hann áfram.

Górilla eignaðist tvíbura

"Þetta er kraftaverki líkast því górillurnar eru í útrýmingarhættu," sagði Fidelle Ruzigandekwa, yfirmaður Náttúrulífsstofnunar Rúanda, eftir að fjallagórilla fæddi tvíbura. Þetta er aðeins í þriðja skipti í sögunni sem það gerist, svo vitað sé til.

Olíuleit við Færeyjar

Bjarni Djurholm, viðskipta- og iðnaðarráðherra Færeyja, hefur samþykkt að leyfi til olíuleitar við Færeyjar verði veitt. Umsóknarfrestur er til nóvemberloka og verða leyfin veitt í janúar.

Máli Khodorkovskýs ekki vísað frá

Dómstóll í Moskvu hafnaði því í dag að vísa frá máli sem höfðað hefur verið gegn Mikhaíl Khodorkovský, einum ríkasta manni Rússlands. Khodorkovský, sem var forstjóri Yukos olíurisans, hefur verið í haldi lögreglu og er ákærður fyrir svik. Lögmenn hans segja málið eiga sér pólitískar rætur.

Flóttamönnum forðað frá lífshættu

Lögreglan í Síerra Leóne stöðvaði í dag 500 flóttamenn sem ætluðu að sigla á manndrápsfleytu til Kanaríeyja. Yfirvöld í Sierra Leone, Gíneu og Spáni stóðu saman að aðgerðinni en talsmaður lögreglunnar segir skipið vera gamalt, óhæft til siglinga og ætti að fara beint í niðurrif.

Hundur át 380 evrur

Kona nokkur í Þýskalandi hélt að hún hefði verið rænd þegar kom að bíl sínum í dag í borginni Aschaffenburg í vesturhluta landsins. Í bílnum var hundur hennar ælandi og 380 evrur sem voru í bílnum voru horfnar.

Lokaárás yfirvofandi

Lokaárás er yfirvofandi í Najaf í Írak þar sem harðlínuklerkurinn al-Sadr ögrar stjórnvöldum og neitar að gefast upp. Orrustuþotur og skriðdrekar láta sprengjum rigna í kringum Imam Ali moskuna þar sem al-Sadr heldur til.

Sharon og Arafat fara halloka

Ariel Sharon og Jassir Arafat virðast báðir standa höllum fæti eftir pólitísk átök við eigin bandamenn undanfarna daga. Stjórnarslit og nýjar kosningar virðast óumflýjanlegar í Ísrael og palestínska þingið frestaði í dag fundi í mótmælaskyni við Arafat.

Stórar sprengingar í Najaf

Að minnsta tíu stórar sprengingar urðu í írösku borginni Najaf í gærkvöld, stuttu eftir að Ayad Allawi, forsætisráðherra Íraks, sendi sjíaklerknum Muqtada al-Sadr lokaákall um að afvopnast.

Mikil spenna í Najaf

Mikil spenna ríkir í Najaf í Írak eftir að harðlínuklerkurinn Muqtada al Sadr neitaði að eiga fund með sendinefnd írakskra stjórnmála- og trúarleiðtoga í gær.

Olíuverð nær enn hámarki

Olíuverð náði enn á ný nýju hámarki í gær þegar verð á hráolíufati náði fjörutíu og sjö dollurum. Ástæða hækkunarinnar er sú að hátt eldsneytisverð hefur ekki enn haft áhrif á efnahagslíf í Bandaríkjunum og því telja sérfræðingar að eldsneytisþörf þar muni ekki minnka með þeim afleiðingum að verð lækki.

Fimm fórust í Gasa-borg

Fimm fórust í árás Ísraelshers í Gasa-borg snemma í morgun. Árásin var gerð á svæði þar sem íslamskir öfgamenn eiga sér bakland og eru þeir sem féllu sagðir hryðjuverkamenn. Að auki liggja sjö alvarlega slasaðir á sjúkrahúsi.

Hryðjuverkamenn fyrir dóm

Átta hryðjuverkamenn, sem lögreglan í Bretlandi hefur haft í haldi í tvær vikur og voru í gær ákærðir fyrir að eiga aðild að morðum, koma fyrir dóm í dag. Þrír mannanna eru einnig ákærðir fyrir að hafa undir höndum gögn sem tengjast fyrirætluðum hryðjuverkum á fjármálafyrirtæki í New York, Washington og New Jersey.

Tilræði við Blair og Berlusconi?

Lögreglan á Ítalíu aftengdi í morgun sprengju nálægt sumarhúsi Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu. Aðeins fáeinum klukkustundum áður hafði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, yfirgefið sumarhúsið en hann var þar í heimsókn ásamt konu sinni, Cherrie.

Handteknir vegna fylgis við páfa

Átta rómversk-kaþólskir prestar hafa verið handteknir í Kína. Handtökurnar eru hluti herferðar kínverskra stjórnvalda gegn þeim sem hliðhollir eru páfa en Kínverjar rufu öll tengsl við Páfagarð árið 1950 og hafa síðan bannað aðrar kaþólskar kirkjur en þá sem stjórnvöld komu sjálf á fót.

Fá nokkurra klukkustunda frest

Varnarmálaráðherra Íraks segir skæruliða harðlínuklerksins Muqtada al-Sadrs hafa nokkurra klukkustunda frest til þess að leggja niður vopn og gefast upp. Að öðrum kosti megi þeir eiga von á ærlegri ráðningu. Ráðherrann segir að hersveitir yfirvalda og Bandaríkjahers séu reiðubúnar að láta til skarar skríða gegn skæruliðasveitunum.

Olíuverð aldrei hærra

Metverð fékkst fyrir olíufatið í gær, fjörutíu og sjö dollarar. Sérfræðingar sjá engin teikn um verðhjöðnun á næstunni og víða um heim er stefnt að neyðaraðgerðum til að draga úr eldsneytisnotkun.

Fólksfjölgun næstu áratugi

Fólksfjölgun er spáð um allan heim næstu áratugi nema í Evrópu. Ísland er þó undantekning hér á landi er gert ráð fyrir fjölgun um tuttugu og tvö prósent.

Friðarumleitanir út um þúfur

Harðir bardagar geisa í hinni helgu borg Najaf. Friðarumleitanir fóru út um þúfur þegar klerkurinn Muqtada al-Sadr neitaði að hitta friðarsendinefnd í gær. Varnarmálaráðherra Íraks hótar harkalegum viðbrögðum, gefist uppreisnarmenn í borginni ekki upp innan nokkurra stunda.

Leita að rúbínum á Grænlandi

Kanadískt námufélag hóf nýlega leit að rúbínum á svæðinu við Qeqertarsuatsiaat á Grænlandi. Miklar vonir eru bundnar við verkefnið eftir því sem sagt er frá í grænlenska útvarpinu KNR.

Sadr gengst við kröfum stjórnvalda

Sjíta klerkurinn Múktada al-Sadr hefur ákveðið að gangast við kröfum stjórnvalda í Írak um að enda uppreisnarástand í borginni Najaf. Bréf frá skrifstofum al-Sadr í Bagdad, var lesið upphátt á ráðstefnu þar í borg þar sem valið verður þjóðarráð Íraka. Þar sagði að hann hefði ákveðið að yfirgefa Imam Ali Moskuna sem hefur verið hersetin í lengri tíma.

Náðar 500 fanga

Forseti afríkuríkisins Togo hefur náðað 500 fanga til að standa við gefin loforð um bætt mannréttindi í landinu. Togo er fyrrum frönsk nýlenda og eru íbúar um fimm milljónir. Af þeim voru 3200 í fangelsi, nú 2700.

Frakki grunaður um hryðjuverk

Pólska lögreglan hefur handtekið Frakka sem grunaður er um að hafa verið að skipuleggja meiriháttar hryðjuverk. Saksóknari í borginni Poznan í vesturhluta landsins greindi frá þessu í dag.

Skriða í Skotlandi

Nokkrir bílar í Skotlandi hafa skolast af vegi í flóðbylgju. Allt að 20 bílar eru fastir í skriðu á svipuðum stað. Tvær þyrlur eru komnar á staðinn en miklar rigningar í Skotlandi virðast hafa hrundið skriðunni af stað. Ekki virðast þó hafa orðið nein dauðsföll í hamförunum.

Sadr samþykkir frið

Harðlínuklerkurinn Múktada al-Sadr hörfaði í dag ásamt fylgismönnum sínum frá mosku í borginni Najaf og lýsti því yfir að skæruliðasveitir hans ætluðu að leggja niður vopn. Harðir bardagar hafa staðið í helgu borginni Najaf í um hálfan mánuð.

Taugaveiklun veldur olíuhækkun

Taugaveiklun er talin ein meginástæða síhækkandi olíuverðs. Sérfræðingar segja að verðið á olíufati geti enn hækkað en verðlækkun sé ekki í sjónmáli. Síðdegis var verðið á olíufatinu komið vel yfir 47 dollara og svo virðist sem það sé enn að hækka.

Flóð á Englandi

Hellirigning olli skyndiflóðum í Cornwall á Englandi síðdegis í gærdag með þeim afleiðingum að bjarga varð tugum manna frá heimilum þeirra, þar sem beljandi straumur umlék þau. Björgunarþyrlur sveimuðu yfir bæjum á svæðinu og björguðu fólki af þökum húsa.

Óeirðir í Venesúela

Óeirðir brutust út í Caracas, höfuðborg Venesúela í gær, eftir að ljóst varð að forseti landsins, Hugo Chaves, bar sigur úr bítum í kosningu um hvort reka ætti hann úr embætti. Svo virðist sem bæði andstæðingar og stuðningsmenn Chaves hafi gengið berserksgang í sumum hverfum borgarinnar í gær

Sprengikúluregn í Bagdad

Uppreisnarmenn skutu sprengikúlum á fjölfarinni götu í Bagdad í morgun með þeim afleiðingum að minnst fjórir létust og 24 særðust. Áður var talið að bílsprengja hefði sprungið í götunni sem er staðsett í miðborginni.

Tvö ný tungl fundust

Tvö ný tungl hafa verið uppgötvuð við plánetuna Satúrnus með hjálp Cassini geimfarsins. Tunglin eru um þrjá og fjóra kílómetra að þvermáli og eru í um 200 þúsund kílómetra fjarlægð frá miðju plánetunnar. Þar með eru þekktir fylgihnettir Satúrnusar orðnir 33. Tunglin eru kölluð S/2004 S1 og S/2004 S2, til bráðabirgða en þeir eru staðsettir milli tveggja tungla, Mimas og Enceladus.

Gerðir upptækir vegna ölvunar

Danska dómsmálaráðuneytið vill gera upptæka bíla þeirra sem aka undir áhrifum áfengis. Dönsk yfirvöld hafa miklar áhyggjur af ölvunarakstri, sem er vaxandi vandamál, í landinu. Dómsmálaráðuneytið skipaði nefnd til þess að fjalla um málið og hefur hún nú lagt fram tillögur sem fela í sér stórlega hertar refsingar við ölvunarakstri.

Páfinn miðlar málum í Najaf

Sjítaklerkurinn Múktada al-Sadr hefur þegið boð Jóhannesar Páls páfa um að miðla málum í átökum uppreisnarmanna og Bandaríkjamanna, í hinni helgu borg Najaf. Boð um milligöngu í þessari deilu barst frá Páfagarði, í gær.

15 saknað í Cornwall

Fimmtán manna er enn saknað eftir skyndiflóð í Cornwall, í Englandi, síðdegis í gær. Hundruð manna tepptust í flóðunum. Flóðin komu öllum að óvörum, eftir miklar úrhellis rigningar. Vatnsflaumurinn var svo mikill og bráður, að björgunarþyrlur flughersins voru kallaðar út, til aðstoðar.

Átta ákærðir fyrir hryðjuverk

Átta hryðjuverkamenn, sem lögreglan í Bretlandi hefur haft í haldi í tvær vikur, voru í dag ákærðir fyrir að eiga aðild að morðum og öðrum hryðjuverkaglæpum. Níundi maðurinn var ákærður fyrir ólöglega vopnaeign. Hins vegar var fjórum mönnum sleppt vegna málsins.

Þúsund íbúðir á Vesturbakkann

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur fallist á tilboð verktaka um að byggja 1000 nýjar íbúðir á Vesturbakkanum. Málinu hafði verið slegið á frest til þess að styggja ekki Bandaríkjamenn.

Stórfyrirtæki loka vegna hótana

Nokkur stórfyrirtæki í Nepal hafa hætt starfsemi vegna hótana maóískra uppreisnarmanna. Uppreisnarmennirnir nota þess leið til að þrýsta á stjórnvöld að koma á úrbótum varðandi meint arðrán stórfyrirtækja á starfsfólki.

19 manns hafa látist vegna Charley

Nítján manns hafa þegar verið úrskurðaðir látnir af völdum fellibylsins Charley. Yfir 2000 manns hafast við í tímabundnum skýlum, á meðan reynt er að finna handa þeim húsnæði. Yfir 750 þúsund heimili og fyrirtæki eru án rafmagns á svæðinu og 150 þúsund manns eru án símasambands.

Hjartalyf við HIV

Hópur lækna á Spáni segir ýmislegt benda til þess að lyf sem notuð eru til þess að meðhöndla hjartasjúkdóma geti hjálpað til við að halda niðri HIV veirunni. Læknarnir gáfu sex HIV smituðum einstaklingum tiltekið hjartalyf í einn mánuð og í ljós kom að styrkleiki veirunnar minnkaði til muna á meðan lyfið var tekið.

Kafnaði á poppkorni

Þriggja ára drengur lést eftir að hafa borðað poppkorn í kvikmyndahúsi í New York í Bandaríkjunum.

Fótboltakappar í verkfall

Danskir knattspyrnumenn hófu í gær verkfall og er það í fyrsta sinn í sögunni sem slíkt gerist í Danmörku.

Ákærðir fyrir hryðjuverk

Átta grunaðir hryðjuverkamenn hafa verið ákærðir fyrir samsæri um morð og önnur hryðjuverk. Tveir þeirra voru ákærðir fyrir að hafa undir höndum njósnagögn um fjármálastofnanir í New York, Washington og New Jersey í Bandaríkjunum. Níundi maðurinn var handtekinn fyrir ólöglega vopnaeign.

Sjá næstu 50 fréttir