Fleiri fréttir

Í dag er sjö, níu, þrettán

Í dag er 7. september sem er kannski neitt sérstaklega merkilegt nema fyrir þær sakir að árið er 2013. Það gerir dagsetninguna: 7.9.13 sem af mörgum eru taldar happatölur.

Beikonhátíð á Skólavörðustíg

Eins og nafnið gefur til kynna er mikið um beikon á hátíðinni. Boðið er upp á beikon í matartjöldum og átta veitingastaðir selja beikonrétti á 250 krónur í matarkofum víðsvegar á Skólavörðustígnum.

Þorsteinn harðorður í garð forseta Íslands

Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra er harðorður í garð forseta Íslands og hörðustu andstæðinga viðræðna við Evrópusambandið í grein í Fréttablaðinu í dag.

„Ef ekkert verður gert förum við í greiðsluþrot“

Greiðsluþrot blasir við Eyþingi, Sambandi sveitafélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu, vegna halla á rekstri Strætó á Norður og Norðausturlandi. Sveitafélögin hafa séð um almenningsamgöngur á svæðinu síðan í fyrra. Formaður Eyþings segir málið alvarlegt.

Ölvaður sofnaði á ljósum

Lögreglumenn höfðu afskipti af sofandi ökumanni á umferðarljósum á Höfðabakka í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í morgun. Kom í ljós að sá var á leiðinni í Grafarvog en komst ekki lengra þar sem hann sofnaði sökum ölvunarástands. Hann var færður á lögreglustöð þar sem málið var afgreitt. Ökumaðurinn var vistaður í fangageymslu og verður rætt við hann þegar af honum rennur.

Brjálað veður í dag

Veðurstofan varar við stormi á Vestanverðu landinu í dag. Á vef vegagerðarinnar kemur fram að á norðanverðu Snæfellsnesi megi reikna með vindhviðum frá því eftir klukkan níu til ellefu upp í 25-30 m/s, og allt að 35 m/s undir kvöldið, eða upp úr klukkan sex. Frá þeim tíma má einnig búast við miklum vindhviðum víðar á Vesturlandi s.s. undir Hafnarfjalli og á Vestfjörðum t.d. á neðanverðri Gemlufallsheiði og við Arnardal á Súðavíkurvegi. Veðrið gengur niður í nótt.

Fannst liggjandi á bílastæði

Maður á níræðisaldri fannst liggjandi á bílastæði við Hrafnistu í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt. Hann er talinn hafa dottið niður af steinvegg og legið í einhvern tíma. Fallið var um einn metri. Maðurinn hlaut sár á andliti, brjóstkassa og hendi og var fluttur á slysadeild. Maðurinn liggur nú á gjörgæsludeild en líðan hans er stöðug.

Samskiptabrestur tafði morðrannsókn á Egilsstöðum

Svo virðist sem samskiptabrestur á milli Neyðarlínunnar, fjarskiptamiðstöðvar Ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á Egilsstöðum hafi orðið til þess að morðrannsókn á Egilsstöðum seinkaði um nokkrar klukkustundir.

Ekkert nema bjartsýni í boði

Hagbarður Valsson, verktaki í Noregi, varð fyrir þeirri raun í sumar að missa eiginkonu sína, Guðrúnu G. Sigurðardóttur, sem var gengin sjö mánuði með þeirra fjórða barn. Telpunni Rósu Jónu var bjargað af miklu snarræði með keisaraskurði á stofugólfinu.

Læra að sauma nýjar flíkur úr gömlum

Hjálparstarf kirkjunnar og Hjálpræðisherinn í Reykjavík halda saumanámskeið á ný. Skjólstæðingar sem stóðu sig vel á námskeiðunum í fyrra verða aðalleiðbeinendur. Hundruð umsókna vegna skólagöngu barna. Uppgerðar tölvur útvegaðar.

Safna til stuðnings sýrlensku þjóðinni

Sjálfboðaliðar Rauða krossins komu saman á Lækjartorgi í gær til að vekja athygli á þeim hrikalegu aðstæðum sem Sýrlendingar búa við bæði innan og utan eigin landamæra.

Lög um almannatryggingar endurskoðuð

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að skipa nefnd til að ljúka heildarendurskoðun almannatrygginga og gera drög að frumvarpi til nýrra laga um lífeyrisréttindi.

Komu hringnum loks í réttar hendur

Íslensk hjón fundu fyrir tilviljun demantsskreittan hvítagullshring á Spáni fyrir fimm árum. Með hjálp veraldarvefsins og fjölmiðla tókst þeim að hafa uppi á sænskum eigendum hringsins, sem í dag komu hingað til lands til að vitja hans.

Strætókort hækka um meira en 100% frá 2011

Nemakort Strætó hafa hækkað um meira en hundrað prósent frá árinu 2011. Kortin voru ókeypis árið 2008 en hafa hækkað ár frá ári síðan þá. Þrátt fyrir þessa hækkun hafa aldrei fleiri tekið strætó og var var ágúst metmánuður hjá Strætó bs

Flugvöllurinn: Ríkið getur tekið sér skipulagsvald

Formaður borgarráðs segir hugmynd um að færa skipulagsvald yfir Reykjavíkurflugvelli til ríkisins aðeins pólitískt útspil, en lektor í lögum segir ríkið geta tekið sér skipulagsvald einhliða. Þar reyni þó á pólitíska ábyrgð.

466 bíða afplánunar

Í árslok 2012 biðu 466 dómar þess að verða fullnustaðir. Það er um tvöfalt fleiri en í árslok 2009.

Landspítalinn kominn í þrot

Læknar á Landsspítalanum segja spítalann kominn í þrot og grípa þurfi til aðgerða nú þegar til að styrkja starfsemi hans. Skipulag spítalans bitni á sjúklingum og starfsfólki.

Kallar fram anda indjána á Íslandi

Friðarsinninn Blue setur upp heilsugarða víðsvegar um Ísland og biður anda um að styrkja jákvæðni, kærleika og frið í heiminum.

Dagur segir Höskuld stunda lýðskrum

Dagur B. Eggertsson gefur lítið fyrir hugmyndir Höskuldar Þórhallssonar; þær að ríkið ráði skipulagi flugvallasvæðisins. Dagur segir að þessi mál verði ekki afgreidd bara eftir því hvernig vindarnir blása hverju sinni.

„Ríkisstjórnin ætti að hafa mjög miklar áhyggjur“

Smári McCarthy, framkvæmdarstjóri IMMI, alþjóðlegrar stofnunar um upplýsinga- og tjáningarfrelsi, segir hinn almenna netnotanda ekki þurfa að hafa miklar áhyggjur vegna frétta af því að þjóðaröryggisstofnanir Bandaríkjanna og Bretlands hafi notað búnað til að afkóða dulkóðuð gögn.

Sjá næstu 50 fréttir