Útgjöld til sérstaks saksóknara samtals 3,7 milljarðar Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. september 2013 19:00
Framlag ríkissjóðs til sérstaks saksóknara í fjárlögum síðustu fimm ára nemur samtals 3,7 milljörðum króna. Embættið hefur ákært í tæplega 100 málum á tímabilinu. Fyrst var gert ráð fyrir sérstökum saksóknara í fjárlögum 2009 þegar útgjöld til embættisins námu 50 milljónum króna. Árið eftir fékk embættið 315 milljónir en síðan voru útgjöld til þess aukin og fékk embættið tæpa 1,2 milljarða árið 2011 og 1,3 milljarða árið 2012. Í fjárlögum þessa árs voru áætluð útgjöld 849 milljónir króna. Samtals eru þetta 3,7 milljarðar króna sem embættið hefur kostað en það hefur alltaf starfað innan fjárheimilda. Hér sést svo árangur embættisins (sjá myndskeið með frétt) á sama tíma samkvæmt minnisblaði frá því fyrr í sumar. 134 mál eru nú í rannsókn, 121 eru í ákærumeðferð og þar af hefur verið gefin út ákæra í tæplega 100 málum. 206 mál hafa verið felld niður og rúmlega 50 mál eru í greiningu eða bíða rannsóknar. Þetta eru samtals 512 mál sem embættið hefur haft til skoðunar á tímabilinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er það afstaða nokkurra ráðherra ríkisstjórnarinnar að embættið sérstaks saksóknara hafi kostað of mikið og skera þurfi niður. Ekki hafa hins vegar fengist staðfestar tölur en þær liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi sem lagt verður fram í október og endanleg ákvörðun er hjá innanríkisráðherra sem stýrir útgjöldum hjá sínu ráðuneyti en þarf að fylgja niðurskurðarkröfu fjármálaráðherra. Frá og með 1. janúar sl. var innanríkisráðherra heimilt að leggja niður embættið að fenginni umsögn ríkissaksóknara, samkvæmt lögum um embættið. Samkvæmt minnisblaði frá árinu 2010 á embættið að starfa út næsta ár. Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari sagði í samtali við fréttastofu að embættið hefði engar upplýsingar fengið um niðurskurð næsta árs og átti hann von á því að þær upplýsingar lægju ekki fyrir fyrr en við framlagningu fjárlagafrumvarpsins í október.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira