Fleiri fréttir

Læknar geti séð lyfjasöguna

Heilbrigðisyfirvöld vinna nú að úrræðum til að sporna við misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja, meðal annars rítalíns, og stendur til að gera læknum kleift að sjá sögu sjúklinga áður en skrifað er upp á lyf sem mögulegt er að misnota.

Sýna dýrasta bréf Íslandssögunnar

Hið dularfulla Biblíubréf, dýrasta bréf Íslandssögunnar, verður til sýnis á Norrænu frímerkjasýningunni um helgina. Formaður Landssambands íslenskra frímerkjasafnara hvetur fólk til að gramsa í gömul skjölum, enda gæti slíkur dýrgripur leynst á ólíklegustu stöðum.

Yfir sjöhundruð hjólum stolið á ári

Á síðasta ári voru tilkynningar um stolin reiðhjól til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rúmlega sjöhundruð og allt stefnir í að þær verði fleiri í ár. Góður lás skiptir miklu máli ef koma á í veg fyrir að hjólum sé stolið.

"Það lá ljóst fyrir að þetta yrði gert"

Í dag vísaði dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur frávísunarkröfu frá dómi í meiðyrðamáli Egils Einarssonar. Egill hefur stefnt þremur einstaklingum fyrir meiðyrði eftir ummæli sem birtust á Facebooksíðu sem stofnuð var eftir að viðtal birtis við Egil í tímaritinu Monitor í haust.

Fleiri löggur en mótmælendur

Lögreglan er með töluverðan viðbúnað á Austurvelli við þingsetninguna. Sett hafa verið upp grindverk fyrir framan Alþingishúsið.

Þingmenn komnir í Dómkirkjuna

Þingsetningarathöfnin hófst núna klukkan hálf tvö með guðsþjónustu í Dómkirkjunni þar sem frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands predikar.

Síldarvinnslan opnar skóla

Síldarvinnslan í Neskaupstað áætlar að starfrækja sjávarútvegsskóla í sumar þar sem nemendum úr eldri bekkjum grunnskóla gefst kostur á að fræðast um fiskveiðar og fiskvinnslu.

Segir fyrirsögn um kynferðislega áreitni innan FSA villandi

"Það er verið að gera úlfalda úr mýflugu þarna,“ segir Bjarni Jónasson, settur forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, en Akureyri Vikublað greindi frá því á vefsíðu sinni í dag að pistill framkvæmdastjórnar, og birtist á innri vef sjúkrahússins, hefði ollið töluverðum titringi á meðal starfsmanna.

Ók á skilti og gekk í burtu

Ölvaður maður ók á umferðaskilti á Lækjargötu rétt fyrir klukkan sex í morgun. Lögreglan fékk tilkynningu um mann sem var sagður ganga frá slysstaðnum.

Ísland með forskot

Ísland er einkar ákjósanlegur staður fyrir gagnaver samkvæmt nýrri skýrlsu sem ráðgjafafyrirtækið BroadGroup vann fyrir Landsvirkjun.

Flóttamenn rukkaðir um málskostnað

Flóttamönnum sem kærðir eru fyrir að koma til Íslands á fölsuðum skilríkjum er skipaður verjandi vegna þess brots. Þurfa að greiða 125 þúsund krónur í málskostnað. Dæmi um að það hafi staðið í vegi fyrir dvalarleyfisumsókn, segir lögmaður.

Töldu sig á leið til Kanada - enduðu í fangaklefa í Vestmannaeyjum

Tveir hælisleitendur eru nú vistaðir í fangageymslu í Vestmannaeyjum eftir að þeir fundust um borð í skemmtiferðaskipi stuttu eftir að það lagði úr höfn í Reykjavík í gær. Þeir verða fluttir til borgarinnar í dag, þar sem tekin verður skýrsla af þeim.

Bó vill jarðsyngja Hemma í beinni

Björgvin Halldórsson söngvari gerir það að tillögu sinni að útför Hermanns Gunnarssonar - Hemma Gunn - verði í beinni útsendingu og fari fram frá Valsvellinum. Freyr Einarsson sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 tekur vel í hugmyndina.

Birgitta boðar byltingu í Bandaríkjunum

Birgitta Jónsdóttir einn af þingmönnum Pírata á Alþingi gefur Bandaríkjamönnum góð ráð um hvernig eigi að standa að byltingu þar í landi. Hún bendir á reynslu Íslendinga í kjölfar hrunsins haustið 2008.

Vilja setja upp rennibraut í Kömbunum

Alls sóttu 207 teymi um þátttökurétt í Startup Reykjavík sem haldið verður í annað sinn í sumar. Meðal félaga sem taka munu þátt er Zalibuna sem hefur áhuga á því að hanna og setja upp sleðarennibraut niður Kambana.

Þingsetning í dag

Alþingi kemur saman í fyrsta skipti að loknum kosningum eftir guðsþjónustu í Dómkirkjunni í dag.

Erum rík af illa förnu landi

Landgræðslustjóri ríkisins segir landkosti í hrópandi ósamræmi við raunveruleg gróðurskilyrði í landinu. Brýnt að auka rannsóknir sem skýri tengsl landheilsu og landnýtingar.

Nýr minnisvarði um Surtsey

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, afhjúpaði í gær skjöld til staðfestingar því að Surtsey er á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Gengjastríðunum í Breiðholti er lokið

Gengjamyndun í Breiðholti heyrir sögunni til og hefur lögreglan ekki haft afskipti af slíku síðan árið 2005. Afbrotatíðni í þessu næstfjölmennasta hverfi Reykjavíkurborgar heldur áfram að lækka á milli ára.

Unglingsstúlkur eru fórnarlömb spjallsíðu

Talsvert magn nektarmynda af ungum íslenskum stúlkum er nú í umferð á vefsíðu, að þeim forspurðum. Yngstu stúlkurnar á myndunum eru 13 ára. Sömu netsíðu var lokað af lögreglu fyrir um ári.

Unglingaball með víni tekjuleið fyrir reiðhöll

Forvarnarhópur segir „flöskuböll“ með sextán ára aldurstakmarki í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi ávísun á unglingadrykkju. Forsvarsmaður Faxaborgar segir böllin nauðsynlega fjáröflun. Því séu tilmæli um hækkun aldursmarksins hunsuð.

Vanskil kostuðu SVFR leigu Norðurár

Stjórn Veiðifélags Norðurár íhugaði að kaupa opnunarhollið af Stangaveiðifélagi Reykjavíkur svo stjórn SVFR gæti opnað Norðurá þrátt fyrir vanskil við landeigendur. Fyrir óstaðfestan trúnaðarbrest átti að útiloka fulltrúa Lífsvals frá félagsfundi.

Telur sig hafa fundið náttúruníðinginn

Hlynur Hallsson, myndlistarmaður á Akureyri, var staddur á listasýningu í Berlín þegar hann sá verk þar sem náttúrufyrirbrigðin við Mývatn komu við sögu.

Þau fjölga börnunum í gömlu Gufudalssveit

Á svæði á sunnanverðum Vestfjörðum, þar sem jarðirnar allt um kring hafa verið að leggjast í eyði, hefur ungt par með fimm börn keypt bújörð og er byggja upp stórt sauðfjárbú.

Skyrið rennur út

Hátt í fimm þúsund tonn af skyri verða seld á Norðurlöndunum á þessu ári sem er ríflega tvöfalt meiri neysla á skyri en er hér á landi. Forstjóri Mjólkursamsölunnar segir mikla eftirspurn vera eftir próteinríkum hollustuvörum bæði hér heima og erlendis.

"Hún var grimm og andstyggileg“

"Hún var grimm og andstyggileg, staðreyndin er sú að konur eru líka gerendur og karlar þolendur þegar kemur að heimilisofbeldi." Þetta segir þrítugur karlmaður í einlægu viðtali við Ísland í dag í gærkvöldi. Hann var kúgaður og niðurlægður á heimili sínu í yfir tvö ár og fær enn martraðir vegna þess.

Viðvörun vegna vatnavár

Við hlýindin undanfarna daga hefur snjó tekið upp á norðan- og austanverðu landinu ásamt Vestfjörðum og hluta af Suðurlandi samkvæmt viðvörun frá Veðurstofu Íslands. Síðastliðinn vetur var sá snjóþyngsti síðan 1995 með snjókomu fram undir lok maí.

Sjá næstu 50 fréttir