Ráðherra væntir þess að fjármálastofnanir hefji endurreikninga tafarlaust Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 5. júní 2013 19:06 Eygló segir mikilvægt að óvissunni hafi verið eytt. samsett mynd
Umboðsmaður skuldara segir niðurstöðu Hæstaréttar í máli Plastiðjunnar ehf. marka tímamót varðandi réttarstöðu lántaka vegna endurútreiknings ólögmætra gengistryggðra lána. Fordæmisgildi dómsins sé skýrt og hvetur umboðsmaður fjármálafyrirtæki til að hraða endurútreikningi lána í samræmi við það. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu, en það var umboðsmaður skuldara sem vann álitið að beiðni Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hún segir mikilvægt að þessari óvissu hafi nú verið eytt. „Ég vænti þess að fjármálastofnanir muni nú hefja endurreikninga tafarlaust og gera það fljótt og vel," er haft eftir Eygló. Í málinu, nr. 50/2013, komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að Landsbankanum væri óheimilt að krefja Plastiðjuna um óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands fyrir liðna tíð. Að mati umboðsmanns skuldara er því nú komið skýrt fordæmi frá Hæstarétti um að óheimilt sé að endurreikna lán til skemmri tíma, t.d. bílalán, með vöxtum SÍ aftur í tímann a.m.k. í þeim tilfellum þar sem vextir hafa verið greiddir og fullnaðarkvittun liggur því til grundvallar. Umboðsmaður telur fordæmið víðtækt og taki ekki einungis til lána Landsbankans sem aðila að málinu heldur einnig til annarra lánastofnana sem veitt hafa ólögmæt gengistryggð lán til skemmri tíma. Umboðsmaður skuldara telur ljóst af niðurstöðu dómsins að endurreikna beri meginþorra skammtímalána í samræmi við uppgjörsaðferð Hæstaréttar í máli nr. 464/2012. Í því felst að afborganir af höfuðstól lánssamnings, sem inntar hafa verið af hendi til og með þess tíma er viðkomandi samningur var endurreiknaður, komi að fullu til frádráttar upphaflegum höfuðstól, sem ber hvorki gengistryggingu né verðbætur af öðrum toga. Fjárhæð greiddra vaxta hefur þar ekki áhrif, enda teljast þeir að fullu greiddir vegna þessa tímabils. Embætti umboðsmanns skuldara leggur áherslu á mikilvægi þess að endurútreikningum fjármálafyrirtækja verði hraðað eins og unnt er. „Fordæmisgildi dómsins er skýrt og ekkert að vanbúnaði að hefja endurútreikning samkvæmt honum þegar í stað" segir í áliti umboðsmanns.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira