Árslaun slitastjórnar 269 milljónir Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 5. júní 2013 22:33 Jóhannes R. Jóhannsson stjórnarmaður fékk tæpar 80 milljónir í laun og sagði í samtali við fréttastofu RÚV að um eðlilega hækkun væri að ræða. Samsett mynd
Fjögurra manna slitastjórn Kaupþings fékk 269 milljónir króna í laun í fyrra. Sá launahæsti var með rúmlega sex og hálfa milljón króna á mánuði. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV, og eru laun tveggja stjórnarmanna sögð hafa hækkað um tæp 50 prósent á milli ára. Launakostnaður slitastjórnar var nærri þrefalt hærri í fyrra en árið 2011. Á fundi kröfuhafa með slitastjórninni sem fram fór í dag kom fram að launakostnaður slitastjórnar, án virðisaukaskatts, hefur aukist úr 97 milljónum árið 2011 í 269 milljónir árið 2012. Það er um 277% aukning og deilist á fjóra stjórnarmenn. Jóhannes R. Jóhannsson stjórnarmaður fékk tæpar 80 milljónir í laun og sagði í samtali við fréttastofu RÚV að um eðlilega hækkun væri að ræða. „Við höfum auðvitað á að skipa afskaplega hæfu og góðu starfsfólki sem hefur lagt mikið á sig, sérstaklega að undanförnu,“ sagði Jóhannes. „Það er kannski fyrst og fremst það. Síðan er þetta auðvitað eðlilegt launaskrið og við teljum að þetta sé ásættanleg niðurstaða fyrir búið og kröfuhafa þess.“ Þá hækkuðu laun Davíðs Gíslasonar og Feldísar Óskarsdóttur um tæp 50 prósent á milli ára. „Ég get ekki tjáð mig fyrir þeirra hönd, það er ekki mitt að tjá mig um það,“ segir Jóhannes. „En ég get þó sagt að eins og aðrir hafa þau unnið mjög ötullega og hörðum höndum að nauðasamningsfrumvörpum síðasta árið og meðal annars sleppt leyfum eins og aðrir í því sambandi,“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið.“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira