"Það firrir ekki skólann ábyrgð þó að foreldrarnir treysti börnunum sínum" Jóhannes Stefánsson skrifar 6. júní 2013 16:17 vísir/valli „
Við erum að taka ákvörðun um það í samráði við foreldrana hvort þessu verði áfrýjað," segir Fanney Birna Jónsdóttir, lögmaður foreldra drengsins sem slasaðist í frímínútum við Árbæjarskóla. Eins og kom fram í frétt Vísis í gær var VÍS sýknað af kröfum foreldra drengsins um greiðslu skaðabóta en hann hafði orðið fyrir tjóni þegar hann fór inn á lóð félagsmiðstöðvar við hliðina á skólalóð Árbæjarskóla og slasaði sig. Aðspurð að því hvort Fanney hafi búist við þessari niðurstöðu segir hún: „Já og nei, það er oft á brattann að sækja í ábyrgðartryggingarmálum en við erum náttúrulega ekki sátt við þessa niðurstöðu. Krafan sem við vorum að gera er í raun sú að það sé skylda skólans að tryggja öryggi nemenda. Þetta er hættulegt svæði þar sem hann slasaðist," segir Fannney. „Málstaður okkar er sú að fyrst ekki var talin ástæða til að girða skólann af þá hefði þurft að vera betra eftirlit svo nemendur kæmust ekki á þetta hættulega svæði."Kröfur dómsins til skólansankannalegar „Dómurinn er í rauninni að reyna að leggja mat á það hvort réttmætt sé að treysta þessu tiltekna barni og metur það út frá því að móðirin treysti honum til að ganga einn heim úr skólanum." Fanney segir að miðað við forsendur dómsins virðist það hlutverk fellt á skólann að vita hvernig sambandi foreldra og hvers og eins barns í skólanum er háttað og meta út frá því hversu mikið eftirlit sé haft með hverjum og einum. „Það firrir ekki skólann ábyrgð þó að foreldrarnir treysti börnunum sínum eitthvað til að sjá um sig sjálf umfram það sem almennt gengur um önnur börn á sama aldri. Er í lagi að sum börn séu eftirlitslaus meira og minna á skólatíma á meðan önnur eru undir eftirliti og hvernig á það mat að fara fram?" segir Fanney Birna. Að lokum segir Fanney: „Það er eðlilegt að gera þá kröfu þegar að það eru hættulegar aðstæður í námunda við skólalóð að það sé afgirt og ef ekki þá þarf að vera betra eftirlit með þeim svæðum."
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið.“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira