Fleiri fréttir

Á kajak í kringum landið

Vinir og stuðningsmenn Samhjálpar komu saman í samkomusal Samhjálpar í gær til að kveðja Guðna Pál Viktorsson áður en hann heldur í kajakróður í kringum Ísland til styrktar Samhjálp.

Fleiri frambjóðendur dæmdir

Tveir á framboðslista Hægri grænna hafa hlotið dóma samkvæmt dómasafni héraðsdómstóla. Lárus Einarsson sem skipar 24.sæti í suðvesturkjördæmi fyrir flokkinn var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur 2006 í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða rúmar fjörutíu milljónir vegna vangoldins virðisaukaskatts hjá fyrirtæki sem hann átti og var framkvæmdastjóri hjá.

"Treystir sér ekki til að snúa aftur til heimalands síns"

Til stóð að senda fjóra króatíska hælisleitendur úr landi í morgun þrátt fyrir að kæruferli á synjun hælisumsóknar þeirra stæði enn yfir hjá innanríkisráðuneytinu. Króatarnir neyddust til að draga umsóknir sínar til baka og fengu frest til að fara úr landi. Lögmaður eins segir framgöngu ráðuneytisis áhyggjuefni.

Vilja reisa 100 leiguíbúðir í Vatnsmýrinni

Eigendur fasteignafélagsins S10 vilja reisa hundrað leiguíbúðir í Vatnsmýrinni og segja skilyrði fyrir byggingunum uppfyllt. Þeir undra sig á seinagangi borgarinnar í málinu en formaður borgarráðs segir lóðina sem um ræðir falla undir fyrirhugaða skipulagssamkeppni um háskólasvæðið.

Fleiri þunganir unglingastúlkna hér á landi

Fæðingar unglingsstúlkna eru fleiri hér á landi en á öllum hinum Norðurlöndunum, þrátt fyrir að þeim hafi fækkað mikið. Snemmbær þungun getur verið fátæktargildra og bæta þarf aðgengi að getnaðarvörnum.

Flestir vilja klára aðildarviðræðurnar

Ríflega helmingur þjóðarinnar vill að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði kláraðar og samningurinn settur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þriðjungur landsmanna vill hins vegar draga umsóknina til baka.

Viggó Þór Þórisson sakfelldur fyrir stórfelld auðgunarbrot

Hæstiréttur kvað í dag upp dóm í máli Viggó Þórs Þórissonar þar sem hann var sakfelldur fyrir tilraun til fjársvika. Viggó var dæmdur til tveggja ára og sex mánaða fangelsisrefsingar, en Hæstiréttur þyngdi refsingu héraðsdóms Reykjaness um hálft ár.

Rannsókn á morði á Litla Hrauni lokið

Rannsókn lögreglunnar á Selfossi á andláti Sigurðar Hólm Sigurðssonar á Litla Hrauni þann 17. maí í fyrra er lokið. Fanginn lést í klefa sínum og grunar lögregluna að honum hafi verið ráðinn bani. Áður hefur verið greint frá því að þar hafi Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson að verki.

Sjálfstæðisflokkurinn aftur stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn er aftur orðinn stærsta stjórnmálaafl landsins samkvæmt nýjustu könnun sem MMR framkvæmdi á tímabilinu 17. til 18. apríl. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 27,5% fylgi, borið saman við 22,9% í síðustu mælingu.

Mál aldraða sjúklingsins á Suðurnesjum ekkert einsdæmi

Mál aldraða mannsins sem var látinn bíða veikur fyrir utan Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í gær á meðan vinur hans hringdi í Neyðarlínuna, er ekki einsdæmi. "Þetta voru ekki mistök af hálfu okkar starfsmanns. Við ætlum okkur að senda út upplýsingar um það fyrir eða eftir helgi hvernig þetta er,"

Peningaskúffumálið í World Class upplýst

Peningaskúffa var brotin upp í líkamsræktastöð World Class í Kringlunni í fyrrinótt. Málið telst nú upplýst samkvæmt Birni Leifssyni, eiganda World Class. Kæran á hendur aðilunum verður líklegast dregin til baka.

Handbolti verður sýnd á Cannes

"Ég er bara ótrúlega ánægður, það er bara heiður að komast þangað,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Vigfús Þormar Gunnarsson en stuttmynd hans og útskriftarverkefnið, Handbolti, verður sýnd á stuttmyndahátíð Cannes í Frakklandi í maí. Það var fatahönnuðurinn Mundi sem leikstýrði myndinni en Vigfús leikur aðalhlutverkið og framleiðir.

Kappræður úr Norðausturkjördæmi á Stöð 2 í kvöld

Oddvitar flokkanna í Norðausturkjördæmi takast á um kosningamálin í kappræðum á Stöð 2 í kvöld, sem hefjast strax að loknum fréttum klukkan 18.55. Þetta er annar kjördæmaþátturinn af sex sem Stöð 2 sendir út fyrir þingkosningarnar en sá fyrsti var í gærkvöldi, - úr Suðvesturkjördæmi. Þeir sex listar í Norðausturkjördæmi, sem kannanir sýna að líklegastir eru til að ná þingsætum, senda fulltrúa sína.

Ráðherrar VG tilnefndu 5 af 6 í nýrri stjórn rammaáætlunar

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað nýja verkefnisstjórn rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða. Fimm fulltrúar af sex eru samkvæmt tilnefningum ráðherra Vinstri grænna, en sjötti fulltrúinn samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Það sama gildir um jafnmarga varamenn. Við meðferð rammáætlunar á Alþingi í vetur voru stjórnarflokkarnir gagnrýndir fyrir að víkja frá faglegri niðurstöðu og lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks til að rammáætlun yrði aftur vísað til verkefnisstjórnar og henni falið að flokka virkjunarkosti á ný.

Umferðaslysum fækkað verulega á 10 árum

Umferðarslys hér á landi í fyrra hafa að meðaltali ekki verið færri síðustu tíu ár að því er fram kemur í nýútkominni skýrslu Umferðarstofu. Banaslysum hefur fækkað um helming síðustu fimm ár og slösuðum í umferðinni fækkar umtalsvert milli ára.

Um 80% eru á móti lögleiðingu kannabisefna

Rúmlega áttatíu prósent landsmanna eru andvíg lögleiðingu á neyslu kannabisefna hér á landi samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Um fjörutíu og fimm prósent stuðningsmanna Pírata eru þó mjög eða frekar fylgjandi lögleiðingu.

Hátt í sex þúsund greitt atkvæði utankjörfundar

Alls hafa 5775 kosið utankjörfundar á landinu öllu samkvæmt upplýsingum frá Bergþóru Sigmundsdóttur, yfirmanni utankjörfundaratkvæðagreiðslu, en það er mun meira en þegar kosið var til Alþingis árið 2009. Þá kusu 1207 utankjörfundar.

„Víktu burt, drullusokkur!“

Teitur Atlason, frambjóðandi Samfylkingarinnar, segir Gunnlaug M. Sigmundsson hafa veist að sér með fúkyrðaflaumi á fundi Samtaka atvinnulífsins í morgun.

Stím málið bíður á borði ákæruvaldsins

Rannsókn sérstaks saksóknara í hinu svokallaða Stím máli lauk í seinasta mánuði. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort ákæra verður gefin út í málinu. Málið er á borði saksóknara sem ræður framhaldi þess.

Sævar Karl er til sölu

Rekstur Sævars Karls er nú til sölu og rennur frestur til að skila kauptilboðum í verslunina út 1. maí 2013. Verslunin er í Hverfisgötu 6 en húsnæðið er ekki til sölu.

Íslenskur læknir í Boston aldrei upplifað annað eins

"Ég hef aldrei upplifað neitt þessu líkt. Aðrir læknar á spítalanum lýstu svipuðum aðstæðum þann 11. september, en þá var allur spítalinn í viðbragsstöðu og eins þegar næturklúbbur brann í nærliggjandi ríki fyrir nokkrum árum,“ segir Ólöf Viktorsdóttir, svæfinga- og gjörgæslulæknir á Massachusetts General-spítalanum í Boston. Ólöf var á vakt á spítalanum þegar sprengjuárásin í maraþoninu varð á mánudag.

Uppþornuð vatnaskil

Fyrsta hreina vinstristjórnin var álitin marka mikil tímamót í íslenskri stjórnmálasögu. Forystumenn hennar ætluðu sér að gjörbreyta samfélaginu en færðust kannski full mikið í fang. Efnahagsmálin urðu aðalatriðið í kjölfar hrunsins.

VÍS brýtur ísinn í Kauphöll Íslands

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, verður fyrsta konan eftir hrun til að stýra fyrirtæki sem skráð er í Kauphöll Íslands. Mikil umframeftirspurn var eftir bréfum VÍS í útboði sem lauk á þriðjudag. Bréf seldust á allt að 30% yfir verðmatsgengi.

Jörðin Teigarhorn nú friðlýst

Óðalsjörðin Teigarhorn í Djúpavogshreppi hefur verið friðlýst, en Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði friðlýsingu jarðarinnar sem fólksvangs. Við sama tækifæri undirritaði ráðherra endurskoðaða friðlýsingu geislasteinsnáma á jörðinni sem náttúruvætti.

Leiga hækkaði um 0,7% í mars

Vísitala húsaleigu á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% frá febrúar til mars, að því er fram kemur í tölum Þjóðskrár Íslands.

Ný skonnorta til Húsavíkur

Hvalaskoðunarfyrirtækið Norðursigling á Húsavík hefur fjárfest í skonnortu sem hefur verið gefið nafnið Opal.

Heilbrigðiskerfið í landinu hrundi víst

Starfsmenn LSH taka ekki undir orð oddvita Samfylkingarinnar um að velferðarkerfið hafi staðið af sér hrunið. Fréttablaðið heimsótti spítalann með frambjóðendum í gær og spjallaði við starfsmenn. Enginn vildi spyrja þingmenn spurninga.

"Ég er síðastur út"

Síðasti íbúinn í Vesturvör 27 flutti í gær úr vatns- og rafmagnslausu húsinu. Hann segir mannskapinn hafa fundið sér þak yfir höfuðið á ýmsum stöðum. Sjálfur flytji hann á gistiheimili en vonist til að geta eignast íbúð. Húsið er óíbúðarhæft.

Kvennametið slegið á borgarstjórnarfundi

Aldrei hafa jafn margar konur setið sem borgarfulltrúar og á fundi borgarstjórnar á þriðjudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Af fimmtán fundarmönnum voru tíu konur.

Hindra að þú sofir hjá nánum ættingja

Á mörgum erlendum fréttavefjum er í dag fjallað um app Íslendingabókarinnar undir þeim formerkjum að nýtt app sem varni því að fólk sofi hjá frændsystkinum sínum. Á vef Business Week segir til dæmis að það fylgi því vissar hættur að hitta einhvern á bar og fara með vikomandi heim. Búi maður á Íslandi sé ein hættan sú að viðkomandi geti verið náinn ættingi, þar sem á Íslandi búi einungis 320 þúsund íbúar og nánast allir eigi sama forföður. Það sé ekkert app sem komi í veg fyrir að menn hitti náinn frænda eða nána frænku á veitingastöðum um helgar.

Þessir kæmust á þing

Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, kemst inn á þing samkvæmt nýjustu könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins og Sjálfstæðismenn bæta við sig þremur þingmönnum miðað við síðustu kosningar en Samfylkingin missir ellefu þingmenn og Vinstri græn níu.

Fimm íslensk bikarmörk í Noregi

Fjölmargir leikir fóru fram í fyrstu umferð norsku bikarkeppninnar í fótbolta í dag. Fimm íslensk mörk litu dagsins ljós.

Þrjú fyrirtæki hlutu jafnlaunavottun VR

Þrjú íslensk fyrirtæki hlutu í gær, fyrst fyrirtækja, jafnlaunavottun VR, en hún er ætluð fyrirtækjum og stofnunum sem vilja sýna svart á hvítu að launastefna þeirra og mannauðsstjórnun mismuni ekki konum og körlum.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig - Framsókn dalar

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig verulegu fylgi en Framsókn dalar samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Prófessor í stjórnmálafræði segir að útspil Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokks, um síðustu helgi hafi heppnast fullkomlega.

Grunaður um fjárdrátt

Starfsmanni við bókhald í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið vikið frá störfum vegna gruns um fjárdrátt. Þetta kemur fram á vef Vikudags á Akureyri. Þar segir að við innra eftirlit hafi vaknað grunsemdir um að ekki væri allt með felldu við meðferð á fjármunum tengdum skólanum.

"Menn mjög hræddir og fáir á ferli"

Melkorka Árný Kvaran, ein þeirra 35 íslendinga sem tóku þátt í Boston maraþoninu á mánudaginn er á leið heim í kvöld ásamt manni sínum.

Sjá næstu 50 fréttir