"Ég er síðastur út" Garðar Örn Úlfarsson skrifar 18. apríl 2013 06:00 Síðasti íbúinn í Vesturvör 27 yfirgaf húsið í gær og naut aðstoðar félaga síns við flutning búslóðar sinnar. Fréttablaðið/Garðar „
Ég er síðastur út,“ sagði Pólverji á miðjum aldri sem í gær flutti úr Vesturvör 27 eftir að öllum var gert að yfirgefa húsið. Vesturvör 27 í Kópavogi er atvinnuhúsnæði. Þar hefur engu að síður um árabil búið fjöldi fólks sem langflest er innflytjendur, fyrst og fremst frá Póllandi og Litháen. Í byrjun mars var sagt frá baráttu fólksins fyrir því að fá að vera áfram í húsinu eða fá aðstoð frá Kópavogsbæ til að fá húsaskjól annars staðar. „Fólkið útvegaði sér á endanum sjálft staði til að fara á. Sjálfur er ég búinn að leita mikið en ekki gengið vel. Ég fer á gistihús uppi í Grafarvogi til að byrja með. Kannski tekst mér að kaupa íbúð,“ sagði Pólverjinn, sem ekki lét nafns getið en kvaðst starfa hjá Pósthúsinu, við útburð Fréttablaðsins. Bæði vatn og rafmagn hafði verið tekið af Vesturvör 27 fyrir nokkru. Innandyra var aðvörun frá slökkviliðsstjóra um að öryggiskröfur væru ekki uppfylltar og að allir þyrftu að vera farnir úr húsinu fyrir 18. apríl, það er í dag. Pólski viðmælandinn okkar virtist taka þróun sinna húsnæðismála eins og hverju öðru hundsbiti. „Þetta er bara eðlilegt,“ svaraði hann spurður um hvaða augum hann liti að þurfa að yfirgefa vistarveruna sem hann hefði haft á leigu. Eins komið hefur fram í Fréttablaðinu er það félagið Drómi sem á Vesturvör 27. Komið hefur fram í yfirlýsingu frá Dróma að félagið sjálft hafi ekki verið leigusali fólksins heldur þriðji aðili. Drómi hafi hins vegar ítrekað krafist þess af leigusalanum að sjá til þess að húsið yrði rýmt vegna þess að það væri í afar bágu ástandi og óhæft til útleigu, meðal annars vegna skorts á flóttaleiðum við eldsvoða. Til stendur að rífa húsið.
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira