Fleiri fréttir Reyndi aftur að brjótast inn í ráðherrabústaðinn Boð barst frá þjófavarnakerfi ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu í gærkvöldi og hélt lögregla þegar á vettvang. 3.9.2012 07:09 Þriggja pilta leitað eftir hrottalega árás á barn "Þetta var alveg hræðilegt. Þegar ég kom á svæðið liggur drengurinn blóðugur á jörðinni og þeir hlupu í burtu," segir Þórarinn Engilbertsson knattspyrnuþjálfari. Hann varð vitni að fólskulegri árás fjögurra 12 til 13 ára pilta á sex ára dreng. 3.9.2012 07:00 Hjólhýsi fuku í miklu hvassvirði í borginni Verulega hvessti víða á höfuðborgarsvæðinu um og upp úr miðnætti og hlaust sumstaðar tjón af, en hvergi stórtjón. 3.9.2012 06:55 Stálin stinn mætast á makrílfundinum í London Áhrifamenn í norskum sjávarútvegi og starfsbræður þeirra í Evrópusambandinu leggja hart að samningamönnum sínum að gefa Íslendingum og Færeyingum ekkert eftir í makríldeilunni, en deilendur koma saman til fundar í London í dag. 3.9.2012 06:46 Skriðdreki í björtu báli í Grafarvoginum Eftirlíking af skriðdreka stóð í björtu báli þegar slökkkviliðið kom á vettvgang í skemmtigarðinum við Gylfaflöt í Grafarvogi í nótt. 3.9.2012 06:43 Sænskur knattspyrnumaður lést í miðjum leik Victor Brännström, 29 ára gamall knattspyrnumaður, lést eftir að hafa hnigið niður í leik með sænska neðrideildarliðinu Piteå. 3.9.2012 22:45 Gráösp valin tré ársins Skógræktarfélag Íslands útnefnir gráösp Tré ársins 2012 við hátíðlega athöfn að Brekkugötu 8 á Akureyri um daginn. Tréð er í eigu Sigríðar Maríu Hammer og Páls Steindórs Steindórssonar. 3.9.2012 17:30 Fær þakkir frá fólki úti á götu Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, hefur verið iðinn við kolann að benda á það sem betur mætti fara í málfari fjölmiðla. 3.9.2012 17:00 Björguðu mönnum sem voru fastir í bíl í Laxá á Ásum Björgunarsveit Landsbjargar á Blönduósi var kölluð út í gær til koma mönnum til hjálpar sem höfðu fest bíl sinn út í Laxá á Ásum. 3.9.2012 06:51 Smærri lönd líka með Verkefnið Almannarómur, samstarf tæknirisans Google, Háskólans í Reykjavík (HR) og Máltækniseturs, var frumraun samstarfs sem gerir fólki á smáum málsvæðum kleift að nýta sér raddleit Google (e. Voice Search) í snjallsímum. Íslenska er meðal þrettán nýrra tungumála sem bætt var við raddleitina um miðjan ágúst. 3.9.2012 06:00 Aðstæðurnar góðar á Íslandi "Sjósport er vaxandi jaðaríþrótt á Íslandi," segir ofurhuginn Janis Kozlovskis sem hélt sér í flugdreka og stóð á brimbretti við Seltjarnarnes. 3.9.2012 06:00 Sáning á birkifræi hefur gefið góða raun Vegna góðs fræárs hjá birkitrjám biðla Hekluskógar til einstaklinga, skóla eða félagasamtaka um að safna birkifræi á höfuðborgarsvæðinu og víðar um sunnan- og vestanvert landið. Að sögn Hreins Óskarssonar, verkefnisstjóra Hekluskóga, hefur verið samið við Endurvinnsluna um að taka við fræinu síðustu vikuna í september. 3.9.2012 05:00 Sálgæslu barna verður að efla Aðeins í Reykjavík er bakvaktaþjónustu barnaverndarnefndar haldið úti allan sólarhringinn. Forstjóri Barnaverndarstofu segir þjónustuna víða með öllu óviðunandi. Rætt er um sameiginlega bakvakt alls höfuðborgarsvæðisins. 3.9.2012 04:00 Ríkisstjórnin bundin af samþykkt Alþingis 3.9.2012 03:
Sjá næstu 50 fréttir
Reyndi aftur að brjótast inn í ráðherrabústaðinn Boð barst frá þjófavarnakerfi ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu í gærkvöldi og hélt lögregla þegar á vettvang. 3.9.2012 07:09
Þriggja pilta leitað eftir hrottalega árás á barn "Þetta var alveg hræðilegt. Þegar ég kom á svæðið liggur drengurinn blóðugur á jörðinni og þeir hlupu í burtu," segir Þórarinn Engilbertsson knattspyrnuþjálfari. Hann varð vitni að fólskulegri árás fjögurra 12 til 13 ára pilta á sex ára dreng. 3.9.2012 07:00
Hjólhýsi fuku í miklu hvassvirði í borginni Verulega hvessti víða á höfuðborgarsvæðinu um og upp úr miðnætti og hlaust sumstaðar tjón af, en hvergi stórtjón. 3.9.2012 06:55
Stálin stinn mætast á makrílfundinum í London Áhrifamenn í norskum sjávarútvegi og starfsbræður þeirra í Evrópusambandinu leggja hart að samningamönnum sínum að gefa Íslendingum og Færeyingum ekkert eftir í makríldeilunni, en deilendur koma saman til fundar í London í dag. 3.9.2012 06:46
Skriðdreki í björtu báli í Grafarvoginum Eftirlíking af skriðdreka stóð í björtu báli þegar slökkkviliðið kom á vettvgang í skemmtigarðinum við Gylfaflöt í Grafarvogi í nótt. 3.9.2012 06:43
Sænskur knattspyrnumaður lést í miðjum leik Victor Brännström, 29 ára gamall knattspyrnumaður, lést eftir að hafa hnigið niður í leik með sænska neðrideildarliðinu Piteå. 3.9.2012 22:45
Gráösp valin tré ársins Skógræktarfélag Íslands útnefnir gráösp Tré ársins 2012 við hátíðlega athöfn að Brekkugötu 8 á Akureyri um daginn. Tréð er í eigu Sigríðar Maríu Hammer og Páls Steindórs Steindórssonar. 3.9.2012 17:30
Fær þakkir frá fólki úti á götu Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, hefur verið iðinn við kolann að benda á það sem betur mætti fara í málfari fjölmiðla. 3.9.2012 17:00
Björguðu mönnum sem voru fastir í bíl í Laxá á Ásum Björgunarsveit Landsbjargar á Blönduósi var kölluð út í gær til koma mönnum til hjálpar sem höfðu fest bíl sinn út í Laxá á Ásum. 3.9.2012 06:51
Smærri lönd líka með Verkefnið Almannarómur, samstarf tæknirisans Google, Háskólans í Reykjavík (HR) og Máltækniseturs, var frumraun samstarfs sem gerir fólki á smáum málsvæðum kleift að nýta sér raddleit Google (e. Voice Search) í snjallsímum. Íslenska er meðal þrettán nýrra tungumála sem bætt var við raddleitina um miðjan ágúst. 3.9.2012 06:00
Aðstæðurnar góðar á Íslandi "Sjósport er vaxandi jaðaríþrótt á Íslandi," segir ofurhuginn Janis Kozlovskis sem hélt sér í flugdreka og stóð á brimbretti við Seltjarnarnes. 3.9.2012 06:00
Sáning á birkifræi hefur gefið góða raun Vegna góðs fræárs hjá birkitrjám biðla Hekluskógar til einstaklinga, skóla eða félagasamtaka um að safna birkifræi á höfuðborgarsvæðinu og víðar um sunnan- og vestanvert landið. Að sögn Hreins Óskarssonar, verkefnisstjóra Hekluskóga, hefur verið samið við Endurvinnsluna um að taka við fræinu síðustu vikuna í september. 3.9.2012 05:00
Sálgæslu barna verður að efla Aðeins í Reykjavík er bakvaktaþjónustu barnaverndarnefndar haldið úti allan sólarhringinn. Forstjóri Barnaverndarstofu segir þjónustuna víða með öllu óviðunandi. Rætt er um sameiginlega bakvakt alls höfuðborgarsvæðisins. 3.9.2012 04:00
Gormlaga dýr fannst í sjónum Leiðangursmenn frá Hafrannsóknastofnun urðu margs vísari eftir að hafa nýtt neðansjávarmyndavélina á allt að 730 metra dýpi fyrr í sumar. Í leiðangrinum tókst meðal annars að mynda svokallaðan þyrnikóral í fyrsta skipti hér við land, segir Steinunn Hilma Ólafsdóttir leiðangursstjóri. 3.9.2012 02:00
Bæjarstjórinn biður undirmanni vægðar Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornafirði, vill að starfsmaður sveitarfélagsins sem sendur var í leyfi vegna gríðarlegrar umframeyðslu bæjarsjóðs í tengslum við gerð sjónvarpsþátta fái að snúa aftur. 3.9.2012 01:00
Frábært hvað börn eru klár Eva María Jónsdóttir situr ekki aðgerðalaus þó hún hafi horfið af skjáum landsmanna og öldum ljósvakans um sinn. Fram undan er fyrsta verkefnið í tvö ár utan heimilis og það snýst um börn. Börn eru alltumlykjandi í lífi hennar núna, þar sem hún og sambýlismaður hennar eiga samtals sjö, á aldrinum tveggja til þrettán ára. Gunnþóra Gunnarsdóttir hitti samt á Evu Maríu eina heima. 2.9.2012 21:30
Íslendingar í fangelsi vegna innflutnings á e-töflum Tveir íslenskir karlmenn hafa verið dæmdir í fangelsi í Danmörku fyrir innflutning á 25 þúsund e-töflum. Þeir sátu í gæsluvarðhaldi síðasta hálfa árið. 2.9.2012 18:30
Sjö ráðherrar brotið jafnréttislög Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segist ekki hafa íhugað að segja af sér vegna brota hans á jafnréttislögum. Sjö ráðherrar hafa í gegnum tíðina gerst brotlegir við lögin vegna ráðningar karls í stað konu. 2.9.2012 18:45
Strætó keyrir út á land Strætó bs. stækkaði í dag þjónustusvæði sitt þegar akstur hófst til Stykkishólms, Búðardals, Hólmavíkur og Reykhóla. 2.9.2012 17:37
Glæsileg þýsk skúta við Reykjavíkurhöfn Þýska skólaskútan Alexander von Humboldt II liggur nú við Reykjavíkurhöfn. Skipið kom hingað frá Dublin í gærdag og heldur heim á leið til Þýskalands á fimmtudag. Tæplega 80 manns komu með skipinu, þar af eru 54 nemar. Samkvæmt bæklingi um skipið, sem fréttastofa fékk við höfnina, mega nemarnir vera á aldrinum 14 til 75 ára. 2.9.2012 13:22
Biskup Íslands segir upplýsingavef ekki áróðursvef Biskupsstofa opnar síðar í þessum mánuði sérstakan upplýsingavef vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar þar sem kjósendur taka afstöðu til þess hvort ákvæði um þjóðkirkju eigi að vera í stjórnarskrá Íslands. Biskup Íslands segir þetta ekki verða áróðursvef heldur til að auðvelda almenningi aðgang að upplýsingum. 2.9.2012 13:06
Ögmundur ætlar ekki að biðjast afsökunar Ögmundur Jónasson segist í góðri trú hafa ráðið karl í embætti sýslumanns á Húsavík þó niðurstaða kærunefndar jafnréttismála sé að hann hafi brotið jafnréttislög. Þrátt fyrir harða gagnrýni sér Ögmundur ekki ástæðu til að biðjast afsökunar. 2.9.2012 12:09
Guðbjartur í Lundúnum: Ólympíumótið stórkostleg upplifun "Mér finnst skipta máli að sýna þessu áhuga ekki síður en hinum Ólympíuleikunum. Þetta eru að mínu mati stórkostlegri Ólympíuleikar- það er alveg makalaust að fylgjast með því hvað fólk getur," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sem er nú staddur í Lundúnum að fylgjast með Ólympíumóti fatlaðra. 2.9.2012 11:10
Stúlka slegin í miðborginni Karlmaður var fluttur með höfuðáverka á slysadeild eftir slagsmál í miðborginni rétt fyrir klukkan fimm í morgun. Ekki er vitað hversu alvarlegir áverkarnir eru á þessari stundu en lögregla hefur ekki haft hendur í hári árásarmannsins. 2.9.2012 09:30
20 þúsund á flugeldasýningu Um tuttugu þúsund gestir Ljósanætur í Reykjanesbæ fylgdust með flugeldasýningu í gærkvöldi sem markaði lok hátíðarinnar. 2.9.2012 09:28
Sóknargjöld verða hækkuð á ný Kirkjuþing samþykkti ályktun þar sem þess er krafist að sóknargjöld verði hækkuð að nýju. Í ályktuninni segir að leiðrétting sóknargjalda sé nauðsynleg og að sóknir landsins hafi tekið á sig skerðingu sem sé 25% umfram aðrar stofnanir sem heyra undir innanríkisráðuneytið. 2.9.2012 09:40
Spá útgáfuhrinu erótískra bóka Fimmtíu gráir skuggar er íslenskt heiti erótísku skáldsögunnar Fifty Shades of Grey kemur út í íslenskri þýðingu í næstu viku. Upplagið er þrefalt samkvæmt upplýsingum útgefanda bókarinnar, Forlagsins, sem verst fregna um nákvæmar upplagstölur. 1.9.2012 21:15
Ögmundur fyrir 8 árum: "Ráðherrar fari á skólabekk til að læra jafnréttislög" Formaður Jafnréttisráðs segir það meira en sérkennilegt að Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, finnist í lagi að hann brjóti mannréttindalög. Í nágrannalöndum hefði honum verið gert að segja af sér samdægurs. 1.9.2012 19:46
Fjórðungur kennara hefur ekki trú á skóla án aðgreiningar Fjórðungur íslenskra grunnskólakennara hefur ekki trú á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar, en aðeins 42 prósent eru jákvæð gagnvart henni samkvæmt nýrri könnun meðal kennara. Þá telja 77 prósent kennara að álag í kennslu hafi aukist mjög mikið á undanförnum fimm árum. 1.9.2012 18:30
Erró heiðursborgari Reykjavíkur Borgarráð samþykkti á fundi sínum, fimmtudaginn 30. ágúst, að gera listamanninn Erróað heiðursborgara Reykjavíkur. Jón Gnarr borgarstjóri tilkynnti þetta við hátíðlega athöfn við opnun sýningar á verkum listamannsins í Listasafni Reykjavíkur í dag. 1.9.2012 17:05
Stríðsbrúðurin líklega komin í leitirnar Dóttir íslenskrar konu, sem hvarf sporlaust á sjötta áratugnum, segist ekki hafa vitað um þann hrylling sem móðir hennar gekk í gegnum í fyrra hjónabandi sínu. Svo virðist sem Ragna Esther Gavin sé komin í leitirnar eftir sextíu ár. 1.9.2012 20:10
Kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Eldur kom upp í bifreið í Mosfellsbæ eftir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá slökkviliðinu var bíllinn kyrrstæður þegar eldurinn kom upp. Eigandi hans var búinn að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang. Ekki er grunur um íkveikju. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni. Enginn slasaðist. 1.9.2012 14:34
Ráðist á heimasíðu Útlendingastofnunar "Við erum búin að kæra þetta til lögreglu og þetta er komið í ferli þar,“ segir Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar. Ráðist var á heimasíðu stofnunarinnar í morgun en þetta er í annað skiptið á tæpri viku sem það gerist. 1.9.2012 13:46
Getnaðarvarnar- og hjartalyf í skolpi hér á landi Getnaðarvarnar- og hjartalyf eru á meðal efna sem mælast í skolpi á Íslandi, þetta sýnir ný norræn rannsókn. 1.9.2012 12:56
Ráðuneytið skoðar málið Verið er að fara yfir úrskurð kærunefndar jafnréttismála í innanríkisráðuneytinu, eftir að nefndin úrskurðaði að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefði brotið gegn jafnréttislögum. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um framhaldið. 1.9.2012 10:00
Hamraborgarhátíð í Kópavogi Fjölmargir hafa lagt leið sína á Hamraborgarhátíðina í Kópavogi í dag en þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. Hamraborginni hefur verið breytt í göngugötu þar sem m.a. er hægt að gera góð kaup á svokölluðum skottmarkaði þar sem bæjarbúar selja gömul föt og notaði muni beint úr skottinu á bílnum sínum. 1.9.2012 15:29
Boðað til kirkjuþings vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskránna Ákvæði um þjóðkirkju í stjórnarskrá er umræðuefni aukakirkjuþings sem stendur yfir í dag. Til þingsins var boðað vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um endurskoðun stjórnarskrárinnar. 1.9.2012 13:04
Vill fund vegna fjárframlaga til stjórnmálaflokka Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hefur óskað eftir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fái ríkisendurskoðenda á fund sinn hið fyrsta til að ræða fjárframlög fyrirtækja sem telja má tengda aðila til stjórnmálaflokka. 1.9.2012 12:24
Vöffluilmur eftir undirskrift kjarasamnings Vöffluilminn lagði frá Karphúsinu í gærkvöldi, venju samkvæmt, eftir að skrifað var undir kjarasamning milli Framsýnar- stéttarfélags og Landssambands smábátaeigenda vegna sjómanna á smábátum að 15 brúttótonnum. 1.9.2012 10:33
Henti glerflösku í gegnum rúðu á skemmtistað Dyraverðir á skemmtistað í miðborginni óskuðu eftir aðstoð lögreglu um eittleytið í nótt eftir að maður henti glerflösku í gegnum rúðu á staðnum. Þeim tókst að halda honum þar til aðstoðin barst en maðurinn var mjög æstur og streittist á móti handtöku þegar lögreglu bar að garði. Hann gistir nú fangageymslur og verður yfirheyrður í dag. 1.9.2012 09:29
Ætlaði að ná fram hefndum - ruddist inn í vitlausa íbúð Maður á fimmtugsaldri ruddist inn í íbúð á Akureyri um þrjúleytið í nótt og hafði þaðan á brott með sér tölvu. Húsráðanda var verulega brugðið og kallaði til lögreglu sem hafði upp á hinum seka og endurheimti þýfið. Svo virðist sem maðurinn hafi ætlað að jafna sakir við annan mann með athæfinu en fór inn í ranga íbúð. Hann var undir áhrifum áfengis en málið telst nú upplýst. 1.9.2012 09:26
Biluð dæla brýtur á höfundarrétti Rúríar "Enginn listamaður er sáttur við að verk hans séu sýnd í öðru en sínu rétta formi enda kveða lög á um að sé listaverk haft til sýnis í skemmdu eða biluðu ástandi, sé það brot á sæmdarrétti,“ segir myndlistarkonan Rúrí. 1.9.2012 09:00
Barði í lögreglubifreið og lýsti vanþóknun sinni á störfum lögreglu Mjög ölvaður karlmaður barði í lögreglubifreið og var með óspektir og alls kyns fúkyrði gagnvart lögreglu um fimmleytið í morgun. Honum var skellt í járn en maðurinn hélt áfram að lýsa vanþóknun sinni á störfum lögreglu, sem fann á honum fíkniefni við leit. 1.9.2012 09:45
Lenti í "venjulegum útistöðum" Maður var sleginn um í úthverfi Reykjavíkur um þrjúleytið og var árásarmaðurinn handtekinn en sá hafði einnig brotið rúðu í fyrirtæki skammt frá. Við yfirheyrslur bar hann því við að hafa lent í "venjulegum útistöðum" en hann fær að útskýra mál sitt frekar fyrir lögreglu þegar af honum rennur. 1.9.2012 09:32