Vill fund vegna fjárframlaga til stjórnmálaflokka Hugrún Halldórsdóttir skrifar 1. september 2012 12:24 Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hefur óskað eftir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fái ríkisendurskoðenda á fund sinn hið fyrsta til að ræða fjárframlög fyrirtækja sem telja má tengda aðila til stjórnmálaflokka.
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hefur óskað eftir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fái ríkisendurskoðenda á fund sinn hið fyrsta til að ræða fjárframlög fyrirtækja sem telja má tengda aðila til stjórnmálaflokka. Margrét segir að kveikjan að óskinni hafi verið bloggpistill Þórðar Sigurðssonar, starfsmanns Hreyfingarinnar, á DV.is. „Svo virðist vera sem tengdir aðilar hafi verið að styrkja stjórnmálaflokka um verulegar upphæðir, en það er semsagt þannig í lögum að hver lögaðili má bara styrkja stjórnmálaflokk um 400 þúsund krónur og tengdir aðilar skulu teljast saman. En bent er á að tengdir aðilar hafi verið að styrkja stjórnmálaflokk þannig að upphæðin samanlögð er mun hærri." Margrét segir fulla ástæðu til að skoða hvort lögin hafi verið brotin og að ríkisendurskoðandi eigi að hafa fullkomið eftirlit með þessum málum. „En ef hann skoðar ekki hvernig aðilar tengjast og hvort þeir eigi í hvorum öðrum þá er eftirlitið ónýtt. Það hlýtur að vera hlutverk ríkisendurskoðanda og stjórnmálaflokkanna, sem taka við styrkjum, að fullvissa sig um að það sé allt saman samkvæmt lögum." En telurðu að það sé brýn nauðsyn á að þessi fundur fari fram sem fyrst? „Já, ég myndi vilja það. Mér finnst þetta frekar aðkallandi. Það er náttúrulega kosningavetur framundan og við vitum að það fara margir stjórnmálaflokkar, sem þiggja á annað borð styrki frá lögaðilum, af stað og óska eftir peningum frá fyrirtækjum."
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira