Fleiri fréttir

Varað við snörpum vindhviðum

Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll víða um land með kvöldinu og eru vegfarendur því beðnir um að sýna sérstaka aðgát samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Þyrlan leitar Andrésar í dag

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið á sveimi yfir suðvesturlandi í dag í leit að Andrési Tómassyni sem saknað hefur verið síðan 24. september

Blind börn fá loksins réttu hjálpartækin

Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélags Íslands, fagnar skjótum viðbrögðum hjá Reykjavíkurborg eftir að hann benti á að mannréttindi væri brotin á blindum og sjónskertum börnum í grunnskólum borgarinnar.

Bein útsending á Vísi frá Alþingi og Austurvelli

Bein útsending verður á Vísi í kvöld frá Alþingi og Austurvelli en Jóhanna Sigurðardóttir mun klukkan 19:50 flytja stefnuræðu forsætisráðherra. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á sama tíma á Austurvelli og á samskiptavefnum Facebook hafa um tvö þúsund manns boðað komu sína.

Lögðu glæsibílunum ólöglega en sluppu við sektir

„Mér finnst þetta nú svolítið eins og þeir fátæku séu rukkaðir en ekki hinir ríku," segir Andres Zoran Ivanovic sem tók myndir af glæsibifreiðum sem var ölöglega lagt fyrir utan Laugardalshöllina þegar árshátíð Landsbankans fór fram.

World Class mátti miðla upplýsingum úr augnskanna

Persónuvernd hefur úrskurðað að líkamsræktarstöðinni World Class hafi verið heimilt að miðla upplýsingum til manns sem varð fyrir tjóni á bifreið sinni á bílastæði við líkamsræktarstöðina. Upplýsingarnar voru sóttar í augnskanna líkamsræktarstöðvarinnar.

Skoða viðurlög við barngervingu í klámi

Refsiréttarnefnd hefur verið falið að skoða mögulegar breytingar á lögum um bann við vörslu og dreifingu á barnaklámi. Í því felst meðal annars að athuga hvort og þá hvernig unnt væri að heimfæra undir refsiákvæðið tilvik þar sem fullorðinn einstaklingur er barngerður í kynferðislegum tilgangi en slík lagaákvæði er meðal annars að finna í norsku hegningarlögunum.

Minnsta kosti sex vikur í framsal

Alþjóðadeild Ríkislögreglustjórans hefur engin viðbrögð fengið vegna framsalsbeiðni á hendur Steingrími Þór Ólafssyni, sem er í haldi í Venesúela, grunaður um að vera höfuðpaur í fjársvikamáli hér á landi.

Ríkissaksóknari: Hættulegar hausaveiðar í kynferðisbrotamálum

Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segist undrandi á yfirlýsingu Femínistafélags Íslands þar sem hann er vændur um að skorta skilning á eðli nauðgana og sé hreinlega óhæfur til að gegna starfi sínu. „Viðbrögð þeirra kvenna sem standa að baki þessarar yfirlýsingu koma mér á óvart og hljóta að vera umhugsunarefni ekki síst fyrir þær sjálfar og málstaðinn. Ég hef haft mikinn áhuga á þessum málaflokki ekki síst sem dómari um árabil. Í því starfi sem og í starfi ríkissaksóknara tel ég mig hafa unnið samkvæmt lögum og viðurkenndum sjónarmiðum,“ segir Valtýr.

Hverfisgatan hreinsuð í dag

Verið er að vinna í því í dag að þrífa græna litinn af Hverfisgötunni í dag. Liturinn var settur á götuna til að afmarka hjólreiðastíg á götunni.

Bætt réttarstaða fórnarlamba mansals og hælisleitenda

Útlendingastofnun hefur fengið heimild til að veita tímabundið dvalarleyfi til sex mánaða til einstaklings sem grunur leikur á að sé fórnarlamb mansals. Auk þess er mælt fyrir um endurnýjanlegt dvalarleyfi til eins árs þegar talið er að dvöl fórnarlambs mansals hérlendis sé nauðsynleg vegna persónulegra aðstæðna viðkomandi, eða vegna samvinnu viðkomandi við yfirvöld í tengslum við rannsókn eða við meðferð sakamáls.

Óvíst hve margir hafa boðið sig fram til stjórnlagaþings

Framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út á hádegi eftir hálfan mánuð, samkvæmt upplýsingum frá Þórhalli Vilhjálmssyni, ritara landskjörstjórnar. Hvorki Þórhallur né Ástráður Haraldsson, formaður landskjörstjórnar, segjast hafa tiltækar upplýsingar um það hversu margir hafi þegar boðið sig fram.

Krefst skýringa frá ráðherra velferðarmála

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í fjárlaganefnd Alþingis, telur að Guðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarmála, þurfi að skýra betur ummæli sín um að hann hafi komið of seint inn í ráðuneytin til að móta niðurskurðartillögur í velferðarmálum.

Meintir fjársvikarar áfram í varðhaldi

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að sex einstaklingar sem sæta nú rannsókn vegna umfangsmikilla fjársvika skuli sitja í gæsluvarðhaldi til 8. október.

30 sagt upp hjá Háfelli

Um þrjátíu manns hefur verið sagt upp hjá verktakafyrirtækinu Háfelli síðustu mánuði þegar líða tók að lokum Héðinsfjarðarganga sem Háfell hefur unnið við.

Femínistafélagið segir ríkissaksóknara óhæfan

Femínistafélag Íslands telur ríkissaksóknara óhæfan til að gegna starfi sínu. „Eftir ummæli hans hefur orðið alvarlegur trúnaðarbrestur milli hans og almennings, ekki síst þess fólks sem á að geta leitað réttar síns ef á því er brotið," segir í tilkynningu sem félagið hefur sent frá sér vegna ummæla Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara í viðtölum við DV um kynferðisbrot. Þar segir að Valtýr sé ekki starfi sínu vaxinn og að hann sýni mikið skilningsleysi á eðli nauðgana.

Símakerfi samgönguráðuneytisins bilað

Símakerfi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins er bilað þessa stundina. Af þeim sökum er illmögulegt að ná sambandi við ráðuneytið. Vonast er til að kerfið komist í lag síðar í dag samkvæmt tilkynningu.

Vilja niðurgreiðslu vegna íþróttaiðkunar eldri barna

Samtök, svæðisráð foreldra nemenda í grunnskólum Akureyrar, fara fram á það við bæjaryfirvöld að þau endurskoði afstöðu sína gagnvart niðurgreiðslum vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna með lögheimili í sveitarfélaginu. Óska þau eftir að aldur barna sem fá niðurgreiðslu verði hækkaður í 16 ár.

Innbrot á Geysi enn í rannsókn - verðmæti þýfis fimm milljónir

Þjófanna sem brutust inn í ferðamannaverslunina á Geysissvæðinu er enn leitað. Rannsókn lögreglu hefur enn ekki leitt til niðurstöðu og biður lögregla alla sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010. Söluvirði þess sem stolið var er á fimmtu milljón króna, að því er fram kemur í tilkynningu.

Gæsirnar fljúga til Skotlands sem aldrei fyrr

Heiðagæsir flykkjast nú frá Íslandi til Skotlands í meira mæli en nokkru sinni fyrr, þannig að líkja má við landflótta. Samkvæmt BBC hafa nú 65 þúsund íslenskar heiðagæsir verið taldar í Montrose í skotlandi, sem er 15 þúsund gæsum fleira en á sama tíma í fyrra og meiri fjöldi en nokkru sinnum hefur verið talinn þar síðan talning hófst árið 1976.

Flugstöðin orðin bleik

Flugfarþegar á leið um Flugstöð Leifs Eiríkssonar eiga von á því að sjá flugstöðina í nýjum búningi í október því vegna átaks Krabbameinsfélagsins hefur fjugstöðin verið sveipuð bleikum ljóma.

Undrandi á 120 þúsund króna framfærslu

Guðbjartur Hannesson, ráðherrra velferðarmála, segir mikilvægt að vinna gegn fátækt þannig að færri þurfi að sækja sér matargjafir hjá hjálparsamtökum. „Í fyrsta lagi þarf að laga grunnframfærslu sveitarfélaganna. Það er kannski „billegt" af mér að vera að vísa á sveitarfélögin en það hefur komið mér á óvart að þar er verið að vinna með 120 til 126 þúsund sem framfærslu," segir hann.

Réttað í meiðyrðamáli gegn bæjarfulltrúum Kópavogs

Aðalmeðferð í máli Frjálsra miðlunar, sem er í eigu dóttur Gunnars Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, gegn bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar og VG þar í bæ, hófst klukkan níu í morgun. Réttað er í Héraðsdómi Reykjaness.

Róttækra breytinga þörf á starfi Samfylkingarinnar

Guðrún Jóna Jónsdóttir tölvunafræðingur, sem kjörinn var formaður Ungra jafnaðarmanna á landþingi samtakanna í gær, sagði í ræðu sinni á þinginu að rótækra breytinga væri þörf á innra starfi Samfylkingarinnar.

Árásarmaðurinn á Akureyri er enn í haldi

Karlmaður, sem réðst á annan mann í fjölbýlishúsi við Tjarnarlund á Akureyri í gærmorgun, er enn í haldi lögreglunnar á Akureyri og verður yfirheyrður með morgninum.

Ósætti vegna ráðningar skrifstofustjóra

Umsækjendur um starf skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu eru ósáttir við niðurstöðu Ögmundar Jónassonar, dóms- og samgöngumálaráðherra, um að ráða Jóhann Guðmundsson, aðstoðarmann Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í starfið.

Tvö hundruð manns leituðu um helgina

Rúmlega 200 björgunarsveitar- og lögreglumenn leituðu að Andrési Tómassyni um helgina. Andrés hefur verið týndur í tíu daga og sást síðast til hans föstudaginn 24. september.

Nýta eiginleika sem heilbrigt fólk skortir

Gangi áætlun fyrirtækisins Sérfræðingarnir eftir munu allt að átján einhverfir einstaklingar hljóta þjálfun strax á næsta ári sem gerir þeim kleift að takast á við verkefni á almennum vinnumarkaði.

Eiga að mæta með hávaðatól

Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli klukkan 19.30 í kvöld. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á sama tíma og er fólk hvatt til þess að mæta með stóra hljómgjafa til þess að „skapa réttan undirleik og umgjörð“ eins og segir á Facebook-síðu fyrir mótmælin sem ganga undir nafninu Tunnumótmælin.

Lömuð kona slasaðist vegna kæruleysis bílstjóra

Slys við flutning á fatlaðri konu hefur orðið til þess að Umferðarstofa vill endurskoða reglur um ábyrgð ökumanna. Konan, sem er mikið fötluð, slasaðist þegar verið var að flytja hana á milli staða í bíl í mars síðastliðnum. Hjólastóll konunnar var festur í bílinn en konan ekki í stólinn. Hún féll úr stólnum þegar bílstjórinn ók út á afrein. Konan er lömuð og gat því ekki tryggt sig þegar bíllinn beygði. Málið er komið til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að reglur um öryggisbúnað hafi ekki verið brotnar en ákvörðun um framhald málsins hefur ekki verið tekin.

Reyðarfjarðarlína verður endurreist

Ákveðið hefur verið að endurreisa sauðfjárveikivarnarlínu sem liggur upp úr Reyðarfirði vegna garnaveiki sem kom upp í Fáskrúðsfirði í vetur.

Leit að Andrési hefur ekki borið árangur

Leit að Andrési Tómassyni hefur staðið yfir í allan dag án árangurs, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Síðast er vitað um ferðir Andrésar á föstudaginn 24. september. Hann er með bifreiðina LZ-195 sem er ljósbrún Suzuki Grand Vitara árgerð 2003.

Sérstakur saksóknari í máli Geirs kjörinn á miðvikudag

Gert er ráð fyrir að sérstakur saksóknari Alþingis vegna ákæru á hendur Geir Haarde verði skipaður á þingfundi á miðvikudag, segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Hún á von á því að farið verði með kosninguna með svipuðum hætti og þegar að Umboðsmaður Alþingis er kosinn.

Sjá næstu 50 fréttir