Innlent

Meintir fjársvikarar áfram í varðhaldi

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að sex einstaklingar sem sæta nú rannsókn vegna umfangsmikilla fjársvika skuli sitja í gæsluvarðhaldi til 8. október.

Einn sexmenninganna er starfsmaður ríkisskattstjóra og er grunaður um að hafa aðstoðað við svindlið með því að samþykkja tilhæfulausar endurgreiðslur á virðisaukaskaktti upp á rúmar 270 milljónir.

inn maður til viðbótar hefur verið handtekinn í tengslum við málið. Sá var handtekinn í Venezúela en unnið er að því að fá hann framseldan til Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×