Innbrot á Geysi enn í rannsókn - verðmæti þýfis fimm milljónir 4. október 2010 10:51
Þjófanna sem brutust inn í ferðamannaverslunina á Geysissvæðinu er enn leitað. Rannsókn lögreglu hefur enn ekki leitt til niðurstöðu og biður lögregla alla sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010. Söluvirði þess sem stolið var er á fimmtu milljón króna, að því er fram kemur í tilkynningu. Talsverður erill var hjá lögreglumönnum á Selfossi um helgina. Mörg útköll voru vegna hávaða- og drykkjuláta í húsum og á götum úti. Tilkynnt var um tvær minni háttar líkamsárásir. Önnur í Hveragerði og hin á Selfossi. Lögreglumenn sem kallaðir voru í fjölbýlishús á Selfossi fundu áberandi hasslykt berast frá einni íbúðinni. Þar fannst hass og var íbúi handtekinn. Hann viðurkenndi að eiga efnin. Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur um helgina og 19 fyrir hraðakstur. Bifreið var stolið í Hveragerði aðfaranótt laugardags. Lögreglumenn á Suðurnesjum sá til ferða hennar við Voga á laugardag. Karlmaður, sem ók bifreiðinni, reyndist ölvaður og var hann handtekinn og færður til yfirheyrslu. Hann bar því við að hafa tekið að sér að ferja bifreiðina á milli staða fyrir vinkonu sína. Bifreiðin reyndist óskemmd og var komið til eiganda. Snemma á föstudag var maður handtekinn á Selfossi grunaður um að hafa tekið bensín hjá Olís á Selfossi án þess að greiða fyrir það. Maðurinn var á bifreið sem stolið var nokkru áður í Reykjavík. Við yfirheyrslur játaði maðurinn bensínstuldin en ekki nytjastuldin en gekkst þó við því að vita að bifreiðin var stolin. Maðurinn hefur oft komið við sögu lögreglu vegna ýmiss konar þjófnaðarmála.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira