Innlent

Lögðu glæsibílunum ólöglega en sluppu við sektir

Valur Grettisson skrifar
Glæsijeppi á gangstétt.
Glæsijeppi á gangstétt.

„Mér finnst þetta nú svolítið þannig eins og þeir fátæku séu rukkaðir en ekki hinir ríku," segir Andres Zoran Ivanovic sem tók myndir af glæsibifreiðum sem var ölöglega lagt fyrir utan Laugardalshöllina þegar árshátíð Landsbankans fór fram.

Andres fór þá um og tok myndir af jeppunum sem voru af dýrari tegundunum. Ástæðan fyrir því að Andres tók myndirnar var vegna þess að sjálfur fékk hann sekt fyrir að leggja ólögleg í september.

Þá lagði hann í miðbæ Reykjavíkur. Aftur á móti var hann ekki staddur á árshátíð heldur var hann staddur á borgarafundi gegn fátækt.

Andres Zoran tók myndir af jeppunum.

Þess má geta að gestir þjóðfundarins, sem haldin var í Laugardalshöllinni fyrr á árinu, voru einnig sektaðir þegar þeir lögðu ólöglega.

„Það komu þrír öryggisverðir út og spurðu mig hvað ég væri að gera," sagði Andres sem svaraði þeim að hann væri að taka myndir fyrir erlendan fjölmiðil. Sjálfur segir Andres að verðirnir hafi verið kurteisir í alla staði.

Engin sekt.

En kvöldinu hjá Andres var ekki lokið því um nóttina vaknaði hann við innbrotsþjóf sem hafið brotist inn í geymsluna heima hjá honum. Þjófurinn, sem var stúlka, flúði í burtu en skildi eftir sprautunálar og fíkniefni.

„Svo þurfti ég að bíða í tvo hálfan tíma eftir lögreglunni," sagði Andres sem hefur búið hér á landi í 22 ár og er upprunalega frá Slóveníu.

Hann starfar í ferðamannaiðnaðinum en notar frítíma sinn til þess að mótmæla uppboðum heimila. Hann er hluti af hreyfingu sem kallar sig Heimavarnaliðið.

Andres segir það sorglegt hversu mörg heimili séu boðin upp. Þá segir hann það enn sorglegra hversu lágt verð fást fyrir heimilin þegar þau eru slegin á uppboðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×