Innlent

Vilja niðurgreiðslu vegna íþróttaiðkunar eldri barna

Mynd: E.Ól.
Samtök, svæðisráð foreldra nemenda í grunnskólum Akureyrar, fara fram á það við bæjaryfirvöld að þau endurskoði afstöðu sína gagnvart niðurgreiðslum vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna með lögheimili í sveitarfélaginu. Óska þau eftir að aldur barna sem fá niðurgreiðslu verði hækkaður í 16 ár.

Niðurgreiðslan er nú til barna á aldrinum 6 til 12 ára.

Erndið var tekið fyrir á síðasta fundi íþróttaráðs og því þar vísað til gerðar fjárlagaáætlunar fyrir næsta ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×