Innlent

Gæsirnar fljúga til Skotlands sem aldrei fyrr

Gæsir mælast nú fleiri í Skotlandi en nokkru sinni fyrr.
Gæsir mælast nú fleiri í Skotlandi en nokkru sinni fyrr. Mynd/Rósa

Heiðagæsir flykkjast nú frá Íslandi til Skotlands í meira mæli en nokkru sinni fyrr, þannig að líkja má við landflótta. Samkvæmt BBC hafa nú 65 þúsund íslenskar heiðagæsir verið taldar í Montrose í skotlandi, sem er 15 þúsund gæsum fleira en á sama tíma í fyrra og meiri fjöldi en nokkru sinnum hefur verið talinn þar síðan talning hófst árið 1976.

Fuglafróðir menn, sem fréttastofan hefur rætt við hafa þó ekki áhyggjur af þessu háttarlagi gæsarinnar og telja að vegna mikillar berjasprettu á hálendinu í sumar hafi hún fyrr náð að fita sig fyrir langflugið en ella.

Því sleppi margar gæsanna því að hafa viðdvöl á láglendinu fyrir Skotlandsflugið, heldur haldi þangað beint. Veiðimenn telja of snemmt að spá hvort þetta kunni að hafa einhver áhrif á gæsaveiðina í haust, því gæsin fari ekki að koma til byggða fyrr en verður fari að kólna og land fari að hvítna á hálendinu.

Þá fari grágæsin og heiðagæsin að leita niður á láglendið, en báðir stofnarnir eru í vexti og í góðu ásigkomulagi, þrátt fyrir veiðarnar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×