Innlent

Krefst skýringa frá ráðherra velferðarmála

Erla Hlynsdóttir skrifar
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í fjárlaganefnd Alþingis, telur að Guðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarmála, þurfi að skýra betur ummæli sín um að hann hafi komið of seint inn í ráðuneytin til að móta niðurskurðartillögur í velferðarmálum.

Í samtali við fréttastofu á föstudag sagði Guðbjartur að hann útilokaði ekki að endurskoða niðurskurð framlaga til einstakra stofnana. Þar var sérstaklega fjallað um að Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík þurfi að skera niður um tæp 40 prósent samkvæmt fjárlögum næsta árs. „Ég var nú ekki í því að semja þessar tölur í smáatriðum, ég kom of seint til þess, en ég hef áskilið mér rétt til að skoða þetta," sagði Guðbjartur.

Höskuldur gerir athugsemdir við þennan málflutning þar sem Guðbjartur var formaður fjárlaganefndar þar til hann settist á ráðherrastól og sat sem slíkur í svokölluðum ríkisfjármálahópi sem kom að gerð fjárlaga. „Þessi hópur átti, eftir því sem ég best veit, að leggja drögin að því sem síðar birtist okkur í fjárlagafrumvarpinu. Ég set því stórt spurningamerki við fullyrðingar um að hafi ekki komð að gerð fjárlaganna," segir Höskuldur.

Í ríkisfjármálahópi eiga sæti bæði formaður og varaformaður fjárlaganefndar og hefur Þórhallur áður gagnrýnt að með þessu fyrirkomulagi sé verið að blanda saman löggjafar- og framkvæmdavaldi. „Mér finnst undarlegt að þeir sem standa að gerð fjárlagafrumvarpsins eigi síðan að taka við eigin verki og breyta því í meðförum þingsins," segir Höskuldur.

Tengd frétt:

„Sjúkrahússtarfsemin á Húsavík sem slík er lögð af"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×