Innlent

Varað við snörpum vindhviðum

Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll víða um land með kvöldinu og eru vegfarendur því beðnir um að sýna sérstaka aðgát samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Þá er eru vegfarendur hvattir til þess að fara valega vegna vegaframkvæmda á þjóðvegi 1 á milli Sveinsstaða og Litlu Giljá í Austur Húnavatnssýslu.

Vegna framkvæmda við breikkun Vesturlandsvegar verður Álafossvegi lokað tímabundið frá miðvikudegi 29. september.

Stefnt er að því að Álafossvegur verði opnaður aftur fyrir umferð eigi síðar en mánudag 25. október.

Þann tíma sem lokunin varir er allri umferð til og frá Ásum, Löndum, Helgafellshverfi og Álafosskvos beint um Ásland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×