Innlent

Réttað í meiðyrðamáli gegn bæjarfulltrúum Kópavogs

Valur Grettisson skrifar
Það er dóttir Gunnars Birgisson og eiginmaður hennar sem stefna bæjarfulltrúunum.
Það er dóttir Gunnars Birgisson og eiginmaður hennar sem stefna bæjarfulltrúunum.

Aðalmeðferð í máli Frjálsra miðlunar gegn bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar og VG, hófst klukkan níu í morgun. Frjáls miðlun er í eigu dóttur Gunnars Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs. Réttað er í Héraðsdómi Reykjaness.

Frjáls miðlun ehf., stefndi bæjarfulltrúunum Ólafi Þór Gunnarssyni VG, Hafsteini Karlssyni Samfylkingunni og svo Guðríði Arnardóttur sem er einnig í Samfylkingunni.

Það eru hjónin Guðjón Gísli Guðmundsson og Brynhildur Gunnarsdóttir, sem eiga fyrirtækið Frjáls miðlun.

Málið má rekja til þess þegar Deloitte tók út viðskipti Frjálsrar miðlunar ehf., við Kópavog eftir að minnihluti bæjarstjórnar hafði gagnrýnt þau harðlega í vor. Gunnar Birgisson var þá bæjarstjóri.

Var því haldið fram að viðskiptin væru óeðlileg sökum venslatengsla en í niðurstöðu Deloitte kom fram að bærinn hefði hugsanlega brotið lög varðandi opinber innkaup. Lögmannstofan LEX komst hinsvegar að annarri niðurstöðu þegar Gunnar fól þeim að gera úttekt á sama máli.

Alls krefjast hjónin auk Frjálsar miðlunar 11,4 milljóna króna vegna ummælanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×