Innlent

World Class mátti miðla upplýsingum úr augnskanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
World Class mátti miðla upplýsingum um viðskiptavin sinn. Mynd/ Pjetur.
World Class mátti miðla upplýsingum um viðskiptavin sinn. Mynd/ Pjetur.
Persónuvernd hefur úrskurðað að líkamsræktarstöðinni World Class hafi verið heimilt að miðla upplýsingum til manns sem varð fyrir tjóni á bifreið sinni á bílastæði við líkamsræktarstöðina. Upplýsingarnar voru sóttar í augnskanna líkamsræktarstöðvarinnar.

Um var að ræða upplýsingar um að tiltekinn annar maður hafði verið í líkamsræktarstöðinni á þeim tíma sem tjónsatvikið átti sér stað. Talið var að miðlunin hafi verið nauðsynleg til að sá sem fékk upplýsingarnar og varð fyrir tjóninu gæti gætt lögmætra hagsmuna sinna.

Maðurinn sem olli tjóninu leitaði til Persónuverndar og taldi það brot á persónuverndalögum að World Class miðlaði upplýsingum með þessum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×