Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Í tísku að fjarlægja svitakirtla úr holhönd Ný tækni í lýtalækningum hefur gert það að verkum að aðgerðir í handarkrikum vegna of mikillar svitamyndunar hafa færst í vöxt. Guðmundur Már Stefánsson, lýtalæknir hjá Domus Medica, segir að gerðar séu um fimm slíkar aðgerðir í mánuði og kosti á bilinu 100 til 150 þúsund krónur. 13.8.2010 06:00
Salan lítið breytt milli ára Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) ákvað á fundi sínum á mánudag að nýta heimild og gefa út nýtt viðmiðunarverð á kindakjöti. Verðskráin hækkar um fimm prósent frá í fyrra, sem er sambærilegt við hækkun vísitölu neysluverðs á sama tíma. 13.8.2010 06:00
Lögfræðiálit er ekki ígildi dóms „Auðvitað fer vægi álits eftir því hvernig það er rökstutt. En sá sem biður um álit, hann leggur ákveðnar forsendur fyrir þann sem gefur álitið. Álitið getur verið pottþétt miðað við þessar forsendur. Hins vegar getur verið að það megi skoða málið frá öðru sjónarhorni og þá gæti vægi álitsins rýrnað,“ segir Sigurður Líndal lagaprófessor. 13.8.2010 05:00
Sakborningar svara spurningum vestra Sakborningar í málshöfðun slitastjórnar og skilanefndar Glitnis á hendur sjö fyrrum eigendum og stjórnendum Glitnis fyrir dómi í Bandaríkjunum þurfa undir lok þessa mánaðar að mæta til New York og gefa munnlegan vitnisburð vegna frávísunarkröfu sinnar á málið. 13.8.2010 04:00
Hefði átt að vita meira um málaflokkinn Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur minnir á að ráðherra beri pólitíska ábyrgð á sínum málaflokki og því sem embættismenn undir honum vinna að. „Ef eitthvað fer úrskeiðis þá ber ráðherra ábyrgð gagnvart þinginu og verður að svara fyrir það,“ segir Birgir og nefnir sem dæmi að ef forveri Gylfa, Björgvin G. Sigurðsson, segðist ekki hafa vitað neitt í aðdraganda bankahrunsins, þá væri það engin afsökun. 13.8.2010 03:15
Bálreiðir slökkviliðsmenn senda verkfallsverði norður Verði af verkfalli Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á morgun munu verkfallsverðir á þeirra vegum fara norður á Akureyri og Húsavík til þess að koma í veg fyrir verkfallsbrot, samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur frá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum. 12.8.2010 22:55
Byggt með berum höndum Viðbygging við fræðslumiðstöð íslensku góðgerðarsamtakanna Enza í Suður-Afríku er nú í fullum gangi. Engar stórtækar vinnuvélar eru notaðar við framkvæmdirnar, heldur nota verkamenn og sjálfboðaliðar berar hendur að mestu leyti við verkið. 12.8.2010 20:07
Verulega dregur úr tíðni leghálskrabba Nýjum tilfellum af leghálskrabbameini hefur fækkað um meira en 70% hér á landi eftir að skipuleg leit hófst og dauðsföllum hefur fækkað um 90%. Þetta kemur fram í yfirlitsgrein um leit að leghálskrabbameini eftir Kristján Sigurðsson yfirlækni Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins. Greinin birtist í ágústhefti tímaritsins Cytopathology. 12.8.2010 23:17
Seðlabankastjóri tók þátt í Reykjavíkurrallý Már Guðmundsson brá sér úr hefðbundnu hlutverki sínu sem seðlabankastjóri í kvöld. Í stað þess að húka á skrifstofu sinni á Kalkofnsvegi ákvað Már að gerast aðstoðarökumaður Daníels Sigurðssonar í Reykjavikurrally sem er nýhafið. Daníel ekur um á Subaru Impreza. 12.8.2010 22:13
Enn fundað í kjaradeilu Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn sitja enn á fundi til að reyna að ná lendingu í kjaradeilu sinni áður en þriðja lota verkfalls þeirra hefst klukkan átta á morgun. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir fékk frá samninganefnd Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna liggur ekkert fyrir um það hvenær fundinum lýkur. 12.8.2010 21:38
Gagnrýna seinagang við vinnu fjárhagsáætlunar Það er afar nauðsynlegt að borgarstjórn fari að einbeita sér að brýnum verkefnum Reykjavíkurborgar, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. 12.8.2010 21:24
Eldur í íbúðarhúsi á Hellu Eldur varð laus í íbúðarhúsi á Hellu í Rangárvallasýslu á níunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli er enginn inni í húsinu. Um er að ræða timburhús þannig að töluverður eldsmatur er í því, að sögn lögreglunnar. Slökkviliðsmenn frá Hellu og Hvolsvelli hafa unnið að því að slökkva eldinn. 12.8.2010 21:03
Íslendingur handtekinn með kíló af fíkniefnum íslenskur karlmaður hefur verið handtekinn Vilinus, höfuðborg Litháen, með 1 kiló af kókaíni meðferðis. Eftir því sem fram kom í kvöldfréttum RÚV fékk alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra tilkynningu um málið frá yfirvöldum í Litháen í morgun. Haft var eftir Smára Sigurðssyni, yfirmanni alþjóðadeildar, að maðurinn hafi áður komið við sögu lögreglunnar á Íslandi. 12.8.2010 19:05
Hvetja kortanotendur til að gæta öryggis Í ljósi upplýsinga frá lögreglu um óprúttna aðila sem hafa verið á kreiki við hraðbanka og reyna að ná PIN-númerum og öðrum kortaupplýsingum af fólki, vilja Samtök fjármálafyrirtækja minna korthafa á að gæta alltaf fyllstu varkárni við hraðbanka. 12.8.2010 18:56
Íhuga samúðaraðgerðir vegna verkfallsins Slökkviliðsmenn á Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli íhuga nú samúðaraðgerðir vegna verkfalls slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Ljóst er að slíkar aðgerðir geta haft víðtæk áhrif á allt millilandaflug. 12.8.2010 18:34
Saka Jón Gnarr um að brjóta siðareglur Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna segja að Jón Gnarr borgarstjóri brjóti siðareglur borgarstjórnar með því að semja við fyrirtæki 12.8.2010 17:45
Ökumaður tekinn með allt niðrum sig Karl á þrítugsaldri var stöðvaður við akstur á Breiðholtsbraut í gærmorgun. Afskiptin voru tilkomin vegna þess að ökumaðurinn var að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað. 12.8.2010 17:06
Rösklega 91% fleiri lesa Fréttablaðið Rösklega 91% fleiri lásu Fréttablaðið en Morgunblaðið í maí til júlí síðastliðnum, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup. Meðallestur Fréttablaðsins var þá 61,4%, en meðallestur Mogunblaðsins var 32,1%, samkvæmt könnuninni. 12.8.2010 16:58
Íslendingar lentu í „líbönsku lykkjunni“ Kærð hafa verið til lögreglu ætluð auðgunarbrot þar sem afrit segulranda debetkorta og upplýsingum um PIN númer þeirra hefur verið náð af viðskiptavinum hraðbanka hér á landi. 12.8.2010 16:47
Kosið til stjórnlagaþings 27. nóvember Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, hefur að höfðu samráði við stjórnlaganefnd og Rögnu Árnadóttur, dómsmála- og mannréttindaráðherra, ákveðið að kjördagur til stjórnlagaþings verði laugardaginn 27. nóvember næstkomandi. Hlutverk stjórnlagaþings er að endurskoða stjórnarskrá Íslands. 12.8.2010 16:35
Segja leyndarhyggju stjórnvalda óásættanlega Fulltrúar Framsóknarflokksins í efnahags- og skattanefnd og viðskiptanefnd hafa óskað eftir sameiginlegum fundi nefndanna vegna vinnubragða stjórnvalda er snerta gengistryggð lán. Að mati þingmannanna, Birkis Jón Jónssonar og Eyglóar Harðardóttur, verður að halda þennan fund án tafar. Vinnubrögð og leyndarhyggja stjórnvalda sé með öllu óásættanleg og verði að ræða ítarlega á vettvangi Alþingis. Þau vilja að Jónína S. Lárusdóttir fyrrverandi ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og Sigríður Rafnar Pétursdóttir lögfræðingur frá sama ráðuneyti komi á fundinn. 12.8.2010 16:20
Hóf störf sem bæjarstjóri Akureyrar í dag Eiríkur Björn Björgvinsson hóf formlega störf sem bæjarstjóri Akureyrar í dag en upphaflega stóð til að hann kæmi til starfa á mánudaginn í næstu viku. 12.8.2010 16:09
Dvalargjöld hækka í skólum Hafnarfjarðar Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í morgun tillögu fræðsluráðs um gjaldskrár í leik-, grunn- og tónlistarskóla fyrir næsta skólaár, frá 1. ágúst 2010 til júlíloka árið 2011. 12.8.2010 15:48
Sjálfstæðismenn bæta við sig - vinsældir stjórnarinnar dala Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 35% fylgi samkvæmt nýrri könnun Capacent sem birt var í dag. Fylgi flokksins í júlímánuði er tveimur prósentustigum meira en var í júní og hefur það ekki mælst eins hátt síðan í apríl 2008. Fylgi VG minnkar að sama skapi um tvö prósentustig og er nú 19%. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, liðlega 24% segjast ætla að kjósa Samfylkinguna, Framsóknarflokkurinn mælist með 12% og Hreyfingin tæplega 4%. Um sex prósent myndu kjósa aðra flokka og þar af mælist Borgarahreyfingin með 2% og Besti flokkurinn einnig. 12.8.2010 15:45
Flugeldarnir verða í boði Vodafone Flugeldasýningin sem ávallt hefur verið fastur liður á Menningarnótt í Reykjavík verður að þessu sinni í boði Vodafone. Í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu segir að Vodafone muni kosta sýninguna, samkvæmt samkomulagi sem náðst hafi á milli Höfuðborgarstofu og fyrirtækisins. 12.8.2010 15:15
Vilja hjólavefsjá í Reykjavík Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur lögðu í dag til að gerð verði hjólavefsjá fyrir Reykjavík. Tillagan gerir ráð fyrir að vefsjáin verði gagnvirk vegvísun sem sýni borgarbúum á einfaldan hátt hvernig hjólafólk kemst frá A til B á sem fljótlegastan og öruggastan hátt, að því er fram kemur í tilkynningu frá Gísla Marteini Baldurssyni borgarfulltrúa. Hann segir að í hverjum mánuði aukist fjöldi þeirra sem hjóla í borginni og að hjólavefsjá myndi gera hjólreiðar að öruggari og aðgengilegri kosti fyrir hjólreiðafólk. 12.8.2010 15:11
Sóley Tómasdóttir: Besti flokkurinn genginn stóriðjunni á hönd Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, segir að Besti flokkurinn sé genginn til liðs við það sem hún kallar stóriðjuarm Samfylkingarinnar og að fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarstjórn standi ekki með ráðherra flokksins. 12.8.2010 14:44
Bjarni Ben: Gylfi getur ekki firrt sig ábyrgð Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að viðskiptaráðherra geti ekki firrt sig ábyrgð á því að ekki hafi verið gripið aðgerða vegna upplýsinga sem viðskiptaráðuneytið bjó yfir um ólögmæti gengistryggðra lána. Bjarni segir málið það alvarlegt að kalla verði Alþingi saman og þá telur hann að ríkisstjórnin eigi að víkja. 12.8.2010 14:15
Ofurbakterían skýrist að hluta af ofnotkun sýklalyfja Mikið er rætt um svokallaðrar ofurbakteríur í breskum fjölmiðlum um þessar mundir. Bakterían er ónæm fyrir sýklalyfjum og hefur greinst á sjúkrahúsum í Bretlandi og í fleiri löndum. Sóttvarnalæknir segir vandamálið meðal annars til komið vegna mikillar sýklalyfjanotkunnar. Hann bindur vonir við að bólusetningar við eyrnabólgu í börnum sem hefja á hér á landi dragi úr notkun sýklalyfja. 12.8.2010 12:58
Flogið til Húsavíkur vegna verkfalls slökkviliðsmanna Vegna boðaðs verkfalls slökkviliðsmanna á morgun hefur Flugfélag Íslands gert ráðstafanir til að fljúga áætlunarflug sitt til Húsavíkur í stað Akureyrar ef til verkfalls kemur. Forstjóri flugfélagsins vonast til þess að aðilar nái saman þar sem kostnaður félagsins og óþægindi farþega séu mikil. 12.8.2010 12:40
Skorar á fagráð kirkjunnar að gefa upp fjölda mála Forstöðukona Stígamóta skorar á fagráð kirkjunnar sem sér um meðferð kynferðisbrota að gefa upp fjölda mála sem til þess hafa borist. Hún segir það á skjön við hlutverk ráðsins að ætla að þegja um starfsemi þess líkt og formaður þess vill. 12.8.2010 12:20
Telur mjólkurfrumvarpið kalla á endurskoðun landbúnaðarkerfisins Ekki ríkir sátt um mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra milli stjórnarflokkanna, en Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hafi gert grundvallarathugasemdir við að hugsanlega bryti frumvarpið gegn stjórnarskrá. Hún segist vona að umræðan um frumvarpið verði til þess að landbúnaðarkerfið verði endurskoðað frá grunni. 12.8.2010 12:20
Slökkviliðsmenn æfir yfir afskiptum bæjarstjóra Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn eru æfir yfir afskiptum starfandi bæjarstjóra á Akureyri, af deilu þeirra við launanefnd sveitarfélaganna. Karl Guðmundsson, sem hefur verið starfandi bæjarstjóri, beitti sér fyrir því að slökkvibíll fari til Húsavíkur á morgun, þegar þriðja verkfall slökkviliðs og sjúkraflutnignamanna skellur á. Þetta telja slökkviliðsmenn að sé skýrt verkfallsbrot. 12.8.2010 12:03
Harður árekstur við Fitjar í Reykjanesbæ Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Stekks við Fitjar í Reykjanesbæ klukkan ellefu í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum voru minniháttar meiðsl á fólki en tveir voru fluttir til læknisskoðuna á Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja en útskrifaðir að því loknu. 12.8.2010 11:47
Flugeldasýningin verður haldin Hætt hefur verið við að blása flugeldasýninguna á Menningarnótt af, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Höfuðborgarstofu. Líkt og undanfarin ár verður sýningin í samtarfi við Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Tilkynning þess efnis verður send út síðar í dag. 12.8.2010 11:44
Lögreglan lýsir eftir Karel Atla Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Karel Atla Ólafssyni, 17 ára. Karel Atli fór frá heimili sínu í gærmorgun um klukkan hálfsjö og hefur ekki komið heim til sín eftir það. Mjög líklegt er að hann haldi sig á höfuðborgarsvæðinu, að sögn lögreglu. 12.8.2010 11:24
FÍB fagnar banni á innflutningi tjónabíla Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að þar á bæ fagni menn nýjum reglum sem banna innflutning á erlendum tjónabílum. „Við fögnum því að sett sé fyrir þennan leka sem verið hefur hér á landi í þessum málum. Það hafa verið töluverð brögð að því að hingað hafi verið fluttir inn bílar sem teljast vera ónýtir annars staðar," segir Runólfur. 12.8.2010 10:58
Mikil þörf fyrir aðstoð í Pakistan Rauði krossinn kallar eftir tafarlausri aðstoð til Pakistans. Ekkert lát hefur verið á úrfellinu vegna monsúnrigninga í landinu og er nú um 70% af öllu landinu undir vatni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Rauða krossi Íslands. Talið er að um 14 milljónir manna hafi orðið fyrir áföllum vegna flóðanna og að um 6 milljónir þurfi á tafarlausri aðstoð að halda eigi íbúar að lifa hamfarirnar af á næstu vikum. Þetta eru verstu flóð í sögu landsins. 12.8.2010 10:54
Grænmeti stolið frá sjö ára börnum í Kópavogi „Auðvitað er þetta mjög leiðinlegt og krakkarnir eru mjög leiðir,“ segir Bryndís Pétursdóttir, garðstjóri í skólagörðum við Dalveg í Kópavogi. Á þriðjudaginn var hvítkáli og hnúðkáli stolið úr skólagörðum sem sextíu og fimm krakkar á aldrinum 7 til 12 ára hafa verið að rækta í allt sumar. Einungis kálið var tekið og blöðin skilin eftir en engin skemmdarverk voru unnin á görðunum að öðru leyti. 12.8.2010 10:40
Þjóðkirkjan taki skýra afstöðu gegn kynferðisofbeldi Femínistafélag Íslands tekur undir með Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og hvetur til þess að þjóðkirkjan taki skýra afstöðu gegn kynferðisofbeldi og virkan þátt í baráttu gegn því. Í ályktun félagsins segir að prestar og aðrir trúarleiðtogar séu í valdastöðu gagnvart þeim sem til trúfélaga leita eða starfi innan þeirra. Misnotkun á slíkri stöðu er gríðarlega alvarleg, að mati Femínstafélagsins. 12.8.2010 10:20
Banna skráningu erlendra tjónabíla Frá og með 1. janúar 2011 verður ekki heimilt að skrá ökutæki hér á landi sem skráð eru erlendis sem tjónaökutæki og bera slíkt skráningarskírteini með sér. Þessu beinir Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til Umferðarstofu. Þá verða þessi ökutæki að teljast í flestum tilfellum óhæf til endurskráningar í öðrum löndum. 12.8.2010 08:56
Málið orðið flóknara en áður „Nýjar upplýsingar hafa komið fram í rannsókninni á Kaupþingi. Það gerist þegar mál ganga lengra og fleira kemur í ljós. Það er nú orðið stærra og flóknara,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari um rannsóknina á meintum brotum stjórnenda Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins. 12.8.2010 08:15
Sóttu fótbrotinn mann í Laufáshnjúk Björgunarsveit Landsbjargar í Grenivík var kölluð út um tíu leitið í gærkvöldi til að sækja karlmann, sem hafði fótbrotnað í gönguferð í Laufáshnjúk, fyrir ofan bæinn Laufás í Eyjafirði. 12.8.2010 07:46
Innbrot í Varmárskóla Brotist var inn í Varmárskóla í Mosfellsbæ í nótt og þaðan stolið flatskjá og leikjatölvu. 12.8.2010 07:36
Loftsteinadrífa skellur á jörðinni, ætti að sjást vel á Íslandi Loftsteinadrífa skellur á jörðinni seint í kvöld en hún stafar frá halastjörnunni Swift-Tuttle 12.8.2010 07:27