Fleiri fréttir

Vélarnar voru á lofti í 40 tíma

Met var slegið í flugi tveggja óauðkenndra TU-95 sprengjuflugvéla Rússlandshers sem flugu í tvígang um íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið laust fyrir síðustu mánaðamót.

Jákvæðni íbúa kom ánægjulega á óvart

„Ég ákvað að sækja um stöðuna þegar hún var auglýst,“ segir Tómas Sturlaugsson búfræðingur sem undanfarið hefur leyst af bændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli þegar þeir hafa farið í frí.

Slökkviliðsmenn funda með viðsemjendum á morgun

Samninganefndir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga ætla að koma saman til fundar á morgun og reyna að ná lendingu í kjaradeilu. Samningar slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa verið lausir í heilt ár.

Fimm ára barn slasaðist á höfði

Fimm ára gamalt barn slasaðist þegar að það féll á steingólf á Reykhólum í Barðastrandasýslu um hálffimmleytið í dag. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hversu hátt fallið var en ráðlegast þótti að kalla til þyrlu sem flutti barnið á Landspítalann í Fossvogi eftir að hlúð var að því um borð þyrlunnar. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar slasaðist barnið á höfði.

Gera úttekt á búsetu utangarðsfólks úti á Granda

Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að gerð verði úttekt á því hvernig til hefur tekist með búsetu fólks í smáhýsum á Granda og þeirri þjónustu sem þar hefur verið veitt. Í fréttatilkynningu frá Velferðarráði kemur fram að töluverður órói hefur verið í kringum smáhýsin á undanförnum vikum og umræða um þau skapaðist við fráfall gestkomandi konu þar í síðustu viku.

Undanþága Jóns á við tvær góðar kýr utan kvóta

Mjólkurfrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gerir ráð fyrir undanþágu handa þeim sem framleiða 15 þúsund lítra af mjólkurafurðum í heimaframleiðslu utan kvótakerfis, en þeim verður ekki refsað. Magnið jafngildir ársframleiðslu tveggja góðra mjólkurkúa.

Ungir bændur ánægðir með Jón

Stjórn Samtaka ungra bænda fagnar frumvarpi sem Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram um breytingar á búvörulögum og telur stjórn Samtaka ungra bænda að fyrirhugaðar breytingar á búvörulögum verði til þess fallnar að styrkja grundvöll mjólkurframleiðslu í hinum dreifðu byggðum landsins.

„RÚV glopraði keppninni úr höndum sér“

Ríkisútvarpið hafði langan tíma til þess að tryggja sér sýningarréttinn að heimsmeistaramótinu í handbolta áður en Stöð 2 ákvað að kaupa réttinn eins og greint var frá í gær. Forstjóri 365 segir RÚV hinsvegar hafa reynt að yfirbjóða samninginn sem að lokum var gerður.

Bjarnveig er hæf

Bjarnveig Eiríksdóttir er hæf til að sitja í Magma nefndinni samkvæmt áliti Trausta Valssonar stjórnsýslufræðings. Frá þessu greinir fréttavefurinn Smugan.

Næstum 80% óku of hratt

Um 78% ökumanna óku of hratt á Engjavegi í dag þegar að lögreglan fylgdist með umferð þar.

Svínaflensan: Viðbúnaðarstig lækkað

Viðbúnaðarstig vegna svínainflúensu hefur verið lækkað hér á landi. Í tilkynningu á vef Landlæknisembættisins segir að þann 10. ágúst síðastliðinn hafi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýst því yfir að heimsfaraldur inflúensu væri genginn yfir og viðbúnaðarstig vegna faraldursins yrði því lækkað. Jafnframt hvetur stofnunin til ýtrustu árvekni því reynslan hefur sýnt að heimsfaraldrar ganga yfir í síðari bylgjum sem erfitt er að spá fyrir um.

Ofbeldismenn sitji ekki eins og kóngar heima

„Þetta er mjög til bóta. Við horfum upp á þann fáránleika á hverjum degi að fjölskyldur eru gerðar brotrækar af heimilum sínum vegna ofbeldis heimilismanns,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.

Reykur úr pizzaofni ræsti út slökkviliðið

Slökkviliðið var kallað út í dag á Laugaveg en þaðan höfðu borist tilkynningar um reyk út um glugga á húsi. Þegar komið var á staðinn kom hinsvegar í ljós að um var að ræða pizzustað þar sem menn voru að kynda eldofninn fyrir viðskipti dagsins. Að sögn slökkviliðsmanns mun þetta ekki vera í fyrsta sinn sem eldofnar á pizzustöðum valda slíkum miskilningi.

Benedikt Gröndal jarðsunginn á föstudag

Útför Benedikts Gröndal, fyrrverandi forsætisráðherra, fer fram á vegum ríkisins næstkomandi föstudag klukkan 13 frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Benedikt lést 20. júlí, 86 ára að aldri.

Tilkynnt um reyk á Laugavegi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er nú á leið í útkall en tilkynnt var um reyk út um glugga á húsi á gatnamótum Laugavegar og Barónsstígs. Engar nánari upplýsingar er að fá á þessari stundu um umfang málsins en þrír dælubílar hafa verið sendir á vettvang.

Manndráp í Reykjanesbæ: Þingfesting í héraði

Þingfest hefur verið ákæra á hendur rúmlega þrítugum manni sem varð manni á sextugsaldri að bana í Reykjanesbæ í maí síðastliðnum. Í ákæruskjali sem lagt var fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag kemur fram að maðurinn hafi veist harkalega að fórnarlambi sínu með þeim afleiðingum að hann lést skömmu síðar af áverkum sínum. Saksóknari telur brotið varða við 211. almennra hegningarlaga.

Árekstur við Hvolsvöll

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir árekstur rétt austan við Hvolsvöll um hádegisbil í dag. Að sögn lögreglu ók bifreið aftan á aðra en óljóst er hvernig óhappið atvikaðist.

Sjö aðilar vilja reka leikhús í Hafnarfirði

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar fór í dag yfir þær sjö umsóknir sem bárust nefndinni um leiklistarstarfsemi að Strandgötu 50 þar sem Hafnarfjarðarleikhúsið hefur verið til húsa undanfarin ár. Í sumar auglýsti nefndin eftir tilboðum frá leikfélögum eða leikhópum um rekstur leikhúss við Strandgötu.

Vegagerðin að hefja lagfæringar á varnargarðinum

Ragnheiður Hauksdóttir landvörður í Húsadal segir að Vegagerðin hafi nú þegar sent stórvirk vinnutæki til þess að gera lagfæringar á veginum inn í Þórsmörk en Markarfljótið rauf veginn á kafla fyrr í dag.

Ýtir undir nýsköpun og skerpir núgildandi lög

Formaður Bændasamtakanna fagnar nýju mjólkurfrumvarpi. Hann segir að mjólkursamlögum sé þegar bannað að taka við mjólk frá framleiðendum umfram kvóta til sölu. Nú sé verið að skerpa á löggjöfinni hvernig taka eigi á þeim sem brjóta lögin.

Flóð í Markarfljóti - varnargarðar hafa brostið

Vegna vatnavaxta í Markarfljóti hafa varnargarðar brostið og er áin farin að flæða yfir veginn inn í Þórsmörk. Menn sem hafa farið um svæðið meta það sem svo að vegurinn sé hættulegur, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Vegagerðin er á leiðinni í Þórsmörk til meta ástandið. Lögregla varar fólk við ferðalögum um svæðið af þessum sökum.

Neitar því að hafa hvatt Unni til að hafna kaupum Magma

Sveinn Margeirsson, doktor í iðnaðarverkfræði, hafnar því að hafa hvatt Unni G. Kristjánsdóttur um að hafna kaupum Magma í HS Orku, enda hafi nefnd um erlenda fjárfestingu verið löngu búin að taka ákvörðun þegar samtal þeirra átti sér stað, en þetta var meðal þess sem réð því að forsætisráðherra vildi ekki skipa Svein í nefnd sem rannsaka á kaup Magma á HS Orku.

Greiðslufyrirkomulag heilbrigðisstarfsmanna kannað

Heilbrigðisráðherra ætlar að láta kanna fyrirkomulag á greiðslum heilbirgðisstarfsmanna. Tilefnið er launafyrirkomulag yfirlæknis á Ísafirði en ráðherra segir að þar virðist vinnuskyldunni hafi verið skipt í tvennt, annars vegar hefðbundin laun fyrir fastavinnuskyldu og hins vegar verktakagreiðslur. Athyglisvert sé ef menn eru í margskonar tengslum við kerfið.

Geysissvæðið olnbogabarn í kerfinu

Landsspilda ríkisins á Geysissvæðinu í Haukadal, virðist vera einskonar olnbogabarn, því engin ríkisstofnun eða ráðuneyti telja svæðið á sínu forræði og þar með ber engin ábyrgð á ástandi þess.

Á móti mjólkurfrumvarpi Jóns

Frjálshyggjufélagið legst eindregið gegn frumvarpi Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra um að refsa beri afurðastöðvum, sem kaupa mjólk, sem er farmleidd er án ríkisstyrkja. Í ályktun félagsins segir enn fremur að hér sé á ferðinni gróf aðför að atvinnufrelsi í landinu og til þess ætluð að vernda einokun og fákeppni gamla tímans.

Oddvitinn endurkjörinn

Gústaf Jökull Ólafsson var endurkjörinn oddviti hreppsnefndar Reykhólahrepps til eins árs á fyrsta fundi nefndarinnar á mánudag. Andrea Björnsdóttir var kosin varaoddviti til sama tíma. Greint er frá þessu á vef Reykhólahrepps.

Skæðir fallvindar vel þekktir á leitarsvæðinu

„Fallvindar sem þessir eru vel þekktir meðfram allri austurströnd Grænlands, aðallega að vetrinum en vægari gerðin þekkist einnig að sumarlagi," segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur. 14 kajakræðara er saknað við austurströnd Grænlands og nú siglir danska eftirlitsskipið Ejnar Mikkelsen hraðbyri í átt að Scoresbysundi.

Sjóvá gaf löggunni myndavélar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið sex myndavélar að gjöf frá Sjóvá. Gjöfin var afhent í síðustu viku í tilefni af 50 ára afmælis umferðardeildar lögreglunnar en þeim tímamótum var fagnað fyrr í sumar. Myndavélarnar koma að mjög góðum notum en þær verða notaðar við umferðarlöggæslu, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.

Lögreglan sendi kanadískri fjölskyldu þýfi

Kanadísk hjón og dóttir þeirra urðu fyrir óskemmtilegri reynslu þegar þau heimsóttu Ísland fyrr í sumar. Brotist var inn í bíl þeirra þegar þau skoðuðu sig um í Reykjavík og úr honum var stolið ýmsum búnaði, meðal annars bakpokum þeirra og GPS-tæki. Fram kemur á vef lögreglunnar að með hjálp heiðvirðra borgara hafi lögreglumönnum tekist að endurheimta mest af búnaði þeirra og koma aftur í réttar hendur áður en Íslandsheimsókninni lauk.

Eyddu sprengju á Bolafjalli

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send með sprengjusérfræðinga vestur á Bolafjall í gærmorgun til að eyða sprengju, sem þar fannst.

Dópaður í djúpum skít

Ökumaður reyndi í nótt að stinga lögregluna af, eftir að hún ætlaði að hafa tal af honum við venjulegt eftirlit á Nýbýlavegi í Kópavogi.

Lögreglan stöðvaði 40 ökumenn á Veiðivatnasvæðinu

Lögreglumenn frá Selfossi, í samráði við lögregluna á Hvolsvelli, stöðvaði 40 ökumenn á Veiðivatnasvæðinu í gærkvöldi vegna ábendinga um ölvunarakstur, og reyndust tveir þeirra ölvaðir, og fimmtán til viðbótar höfðu smakkað áfengi.

Hagnaður ÁTVR þrefaldast

Hagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) í fyrra nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Árið 2008 var hagnaðurinn 447 milljónir króna.

Tilraunaboranir á Siglufirði

Tilraunaboranir Rarik eftir heitu vatni í Skarðdal við Siglufjörð hafa gengið vel. Þetta kemur fram á siglo.is.

Lög um fjárfestingu sögð illa skrifað torf

Eignarhald útlendinga í íslenskum sjávarútvegi er orðið hitamál að nýju eftir að kínverskir fjárfestar keyptu sig inn í Storm Seafood. Lögspekingar efast ekki um að fjárfesting Storms sé lögleg. Þeir segja lögin hins vegar illa skrifað torf.

Frosktegundir í mestri útrýmingarhættu

Hafið er viðamikið verkefni í fjórtán löndum þar sem leitast verður við að finna tegundir froskdýra sem gætu verið, eða eru, í útrýmingarhættu. Verkefnið á að standa yfir í rúma tvo mánuði.

Engin leynd yfir tölvupósti

Aðallögfræðingur Seðlabankans, Sigríður Logadóttir, segir að engin fyrirvari hafi verið gerður um notkun viðskiptaráðuneytisins á tölvupósti sem hún sendi lögfræðingi ráðuneytisins, en hann fjallaði um heimild til gengistryggingar lána og var endursögn á minnisblaði Sigríðar sama efnis.

Spaugstofan kostaði 81 milljón

Spaugstofan kostaði Ríkisútvarpið 81 milljón í hitteðfyrra samkvæmt tölum sem komu fram í sundurliðuðu svari Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í vetur.

Þarf að auka öryggi á Geysissvæðinu

„Maður á náttúrlega að passa þetta lítil börn. Það liggur alveg fyrir því að það er þarna hiti sem vellur upp úr allskonar holum," segir Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógarbyggðar. Geysir í Haukadal er í Bláskógarbyggð en þar slasaðist tveggja ára gömul telpa í gær þegar að hún datt í heitt vatn sem hafði fallið úr hvernum Strokki.

Berst með kjafti og klóm til að viðhalda menningarstarfi

„Ég er staðfastur í því og viss umað það verður einhver flugeldasýning í gangi," segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi og formaður menningar- og ferðamálaráðs, um flugeldasýninguna sem venjulegast markar endalok

Katrín: HM málið skoðað í ráðuneytinu

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra ætlar að láta skoða hvort rétt sé að skylda Stöð 2 Sport til þess að sýna leiki á HM í handknattleik í opinni dagskrá. „Það er heimild til að setja reglugerð um viðburði sem eru í opinni dagkskrá," segir Katrín.

Telja að ráðherra hafi kippt fótunum undan rækjufyrirtækjum

Starfsmenn Byggðastofnunar eru þeirrar skoðunar að landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hafi kippti fótunum undan rekstrargrundvelli nokkurra viðskiptavina stofnunarinnar þegar hann gerði veiðar á úthafsrækju frjálsar. Þessi ákvörðun gæti þýtt að Byggðastofnun þurfi að afskrifa 1,3 milljarða króna vegna lána til fjögurra fyrirtækja.

Hægist á fjölgun örorkulífeyrisþega

Verulega hefur hægt á fjölgun örorkulífeyrisþega á þessu ári miðað við það undanfarin ári. Með örorkulífeyrisþegum er átt við þá sem skráðir eru með 75% örorku eða meira. Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins.

Sjá næstu 50 fréttir