Byggt með berum höndum Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. ágúst 2010 20:07 Sjálfboðaliðar úr nærliggjandi grunnskóla aðstoða við stækkun byggingarinnar sem hluta af samfélagsverkefni skólans.
Viðbygging við fræðslumiðstöð íslensku góðgerðarsamtakanna Enza í Suður-Afríku er nú í fullum gangi. Engar stórtækar vinnuvélar eru notaðar við framkvæmdirnar, heldur nota verkamenn og sjálfboðaliðar að mestu leyti berar hendur við verkið. Það var Auður Capital sem styrkti Enza um kaup á litlu húsi í Mbekweni Newrest fátækrahverfinu skammt frá Höfðaborg fyrir rúmu ári síðan. Stækkun hússins gerir það að verkum að starfsemi getur nú farið í fullan gang. Enza samtökin styðja konur og stúlkur sem hafa þurft að gefa frá sér nýfædd börn til ættleiðingar vegna sárrar fátæktar og/eða útskúfunar. Oft hefur stúkunum verið nauðgað, en í Suður-Afríku er konu nauðgað á 17 sekúndna fresti og eru nauðganir hvergi fleiri í heiminum.Á myndinni sést stækkun hússins.„Þarna mun fara fram kennsla fyrir Enza stúlkurnar, sem vantar sárlega þekkingu og stuðning til að komast í þau atvinnutækifæri sem eru til staðar á svæðinu," segir Unnur Steinsson, varaformaður Enza á Íslandi. „Fræðslumiðstöðin mun þó einnig þjóna öðrum konum í fátækrahverfinu, en ekki er vanþörf á að styrkja þær því afleiðingar aðskilnaðarstefnunnar eru meðal annars þær að staða kvenna er mjög veik í fátækrahverfunum." Unnur hvetur þá sem geta lagt samtökunum lið að leggja inn á reikning félagsins, en upplýsingar um hann má nálgast á heimsíðunni enza.is. Nú þurfi bæði innréttingar og allt innbú í viðbygginguna. Mánaðarlegt framlag einstaklinga upp á nokkur hundruð krónur geti skipt sköpum fyrir reksturinn. „Nú fyrir hlaupagarpa sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu hvetjum við auðvitað alla líka til að hlaupa í þágu Enza," segir Unnur að lokum.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Sjá meira