Sakborningar svara spurningum vestra 13. ágúst 2010 04:00 Lárus Welding, fyrrum forstjóri, og Þorsteinn Jónsson, fyrrum stjórnarformaður Glitnis, á aðalfundi bankans í febrúar 2008. Fréttablaðið/Rósa
Sakborningar í málshöfðun slitastjórnar og skilanefndar Glitnis á hendur sjö fyrrum eigendum og stjórnendum Glitnis fyrir dómi í Bandaríkjunum þurfa undir lok þessa mánaðar að mæta til New York og gefa munnlegan vitnisburð vegna frávísunarkröfu sinnar á málið. Farið var fram á frávísun á þeim grundvelli að bandarískir dómstólar hefðu ekki lögsögu í málinu og vegna þess óhagræðis sem það hefði í för með sér fyrir sakborningana að reka mál sitt vestra. Þetta kemur fram í málsskjölum sem birt hafa verið á vef dómstólsins. Jón Ásgeir Jóhannesson og sex aðrir fyrrum eigendur og stjórnendur Glitnis banka eru í stefnu skilanefndarinnar krafðir um sem nemur 260 milljörðum íslenskra króna fyrir að hafa staðið að meintu samsæri um að svíkja lánsfé út úr bankanum til að nota í eigin fyrirtæki. Málshöfðunin vestra byggir á því að meint brot sjömenninganna beinist gegn hagsmunum bandarískra lögaðila því þar hafi farið fram skuldabréfaútboð þar sem bankanum hafi verið aflað lánsfjár. Gert er ráð fyrir því að vitnisburðurinn hjá hverjum og einum geti tekið tvo daga. Jón Ásgeir er boðaður til að gefa vitnisburð mánudaginn 23. ágúst næstkomandi og svo mæta koll af kolli hvern virkan dag þar á eftir, Þorsteinn Jónsson, Jón Sigurðsson, Lárus Welding, Pálmi Haraldsson, Hannes Smárason og Ingibjörg Pálmadóttir, allt til 31. ágúst. Vitnaleiðslurnar fara fram á lagaskrifstofum Steptoe & Johnson í New York og hefjast allar klukkan tíu árdegis. Framlagning gagna og mótgagna vegna frávísunarkröfu sakborninganna og annarra krafna í málinu stendur fram í október næstkomandi, en 12. þess mánaðar verður frávísunarkrafan sjálf tekin fyrir. Í skjölum sem birt hafa verið á vef dómsins kemur fram að skilanefndin krefur sjömenningana um ítarleg gögn. Má þar nefna gögn varðandi ferðir þeirra, búsetu, eignir, viðskipti, eignarhald fyrirtækja og umfang fyrirtækjareksturs í Bandaríkjunum. Þannig er krafa um gögn frá Jóni Ásgeiri í 72 liðum. Í þeim fyrsta er krafist gagna sem staðfesti hvern dag sem hann hefur dvalið í New York, í öðrum hvern dag sem hann hefur dvalið í Bandaríkjunum, og þeim þriðja gögn sem staðfesti hvern dag sem hann hefur dvalið á Íslandi frá byrjun þessa árs. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, hafði ekki kynnt sér af hverju sóst væri eftir þessum gögnum í gær. Hún á von á því að niðursaða fáist í málið öðru hvoru megin við næstu áramót. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Sjá meira